Tíminn - 10.03.1993, Side 4
4 Tlminn
Miðvikudagur 10. mars 1993
Tíminn
MÁLSVARI FRJÁLSLYHDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
Útgefandi: Tfminn hf.
Framkvæmdastjóri: Hrólfur Öivisson
Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm.
Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar Birgir Guömundsson
Stefán Asgrimsson
Auglýsingastjóri: Steingrímur Gislason
Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavik Sfmi: 686300.
Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300,
ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setnlng og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Oddi hf.
Mánaðaráskrift kr. 1200,- , verð f lausasölu kr. 110,-
Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Búnaðarþing
Búnaðarþing hefur verið að störfum að undanförnu og
er því nú að ljúka. Þing fulltrúa atvinnuveganna hafa
verið fastur þáttur í stjórnkerfi okkar, þar sem meðal
annars er fjallað um löggjafarmálefni sem snerta við-
komandi atvinnugrein. Þetta er þýðingarmikill þáttur í
undirbúningi löggjafar. í öðru lagi er þinghald á borð
við þetta þáttur í stefnumótun í viðkomandi atvinnu-
grein, þótt hún fari ekki síður fram í stéttarfélögunum.
Gífurlegar breytingar hafa verið í landbúnaðarfram-
leiðslunni að undanförnu, sem stafa af samdrætti. Það
helst í hendur að ákvörðun hefur verið tekin um að af-
nema útflutningsuppbætur og sala í ýmsum tegund-
um Iandbúnaðarframleiðslu, einkum kindakjöts, hefur
dregist saman á innanlandsmarkaði.
Þessu hafa bændur landsins reynt að mæta með því að
litast um eftir nýrri atvinnustarfsemi eftir því sem föng
eru á. Sumt hefur tekist miður í þessum efnum, annað
betur. Ferðaþjónusta er orðin umtalsverður atvinnu-
vegur í sveitunum og er nú svo komið að margir eru
þeirrar skoðunar nú að fullhratt og mikið sé fjárfest í
greininni. Þær vonir brugðust að loðdýraræktin yrði
sá burðarás sem vonir stóðu til. Þó er ekki ástæða til
þess að afskrifa hana. Ýmsir feta sig nú áfram í fiski-
rækt, t.d. bleikjueldi. Skógrækt hefur numið land í
sveitum sem atvinnuvegur og mikill áhugi er fyrir sölu
minjagripa af ýmsu tagi.
Allt gerir þetta nýjar kröfur til Búnaðarfélags íslands
sem er móðurstöð leiðbeiningastarfsemi í landbúnaði.
Búnaðarsamböndin hafa föstum starfskröftum á að
skipa, en meiri sérhæfmg og ný atvinnustarfsemi í
sveitum kallar á íjölþættari ráðgjöf en áður þegar at-
vinnulífið í sveitum landsins var einhæfara. Gott sam-
starf í leiðbeiningar- og rannsóknarstarfsemi er því
höfuðnauðsyn.
Uppbygging félagskerfís landbúnaðarins hefur verið
til umræðu í tengslum við Búnaðarþing og þær skoð-
anir hafa verið settar fram af forustumönnum land-
búnaðarins að uppbygging þess hæfi ekki þeim að-
stæðum sem nú eru. Það er vissulega ástæða til þess
fyrir landbúnaðarmenn og forsvarsmenn annarra at-
vinnugreina að hugleiða þessi mál rækilega. Þeirrar
tilhneigingar verður nú vart í atvinnulífinu að rætt er
um samruna ýmissa félagasamtaka sem þjóna því, til
þess að sameina kraftana. Það er meginatriðið að svo
verði. Þeir sem stjórna samtökum atvinnulífsins, hvort
sem heldur er í landbúnaði eða í öðrum greinum, eiga
að forðast eftir mætti of mikla yfirbyggingu eða að
stofna til samtaka sem toga sitt í hvora áttina. Ekki er
að efa að umræður og aðgerðir til þess að endurskipu-
leggja félagskerfi landbúnaðarins eru til góðs og bænd-
um er vel treystandi til þess að leysa þau mál farsæl-
lega.
Eitt af því sem fylgir hinum miklu breytingum í land-
búnaðinum er að afurðastöðvarnar og sölufyrirtæki,
sem þeim eru tengd, eru í miklum vanda. Ljóst er að
miklar breytingar eru þar framundan, en starfsemi
þeirra hefur verið gífurlega mikilvæg fyrir landsbyggð-
ina. Það er áríðandi að sú endurskipulagning, sem þar
er framundan, verði ekki til að herða enn á flóttanum
úr sveitum landsins og þéttbýlisstöðunum sem þjóna
þeim.
Það eru því mörg mál og stór sem þarfnast umræðu á
Búnaðarþingi. Tíminn óskar þess að störf þess leiði til
góðs fyrir bændur og aðra landsmenn.
Sjónvarpsstöðvaimr tvær eiga í
samkeppni sfn í mDll og misjafn-
Jega góðlátlegri eins og gengur.
Þegar forstöðumaður Stöftvar 2
kemur á skjáinn sm megtn, sendir
keppinautanna, Ríkissjón-
varpsins, ög lúta þau þá venjulega
aö einokunaraðstöðu þcss. Þcir hjá
Rikissjónvaipinu fara sér að vísu
hægar í þessari jöfnu og stöðugu
styíjöld, en láta þó frá sér heyra
stöku sinnum ef sérstök ástséða
þykir gefast til — og þá af postul-
Keppnin milli stÖðvanna kemur
svo fram í nokkuó reglulegum
„uppslætti“ á niðurstöðum skoð-
dæmi um hvernig ieíka má sér að
tölum aftur og fram. Því er þá
stungió undir stól eða látið sem
minnst á því bera ef keppinautur-
inn hefur í einhveiju náö forskoti,
en málið allt látið snúastumþaðef
tiltekinn þáttur eigin manna virðist
njóta hylli áhorfenda—svo ekki sé
minnst á fréttimar.
Aðstöðumunur
Vissulega hefur Ríkissjónvaipió
notíð yfirburöa vegna skyláu-
áskriftanna og er f sjálfu sér ekki
óskiljaniegt að ísienska útvarpsfé-
iaginu svíði það nokkuð. Það er
undir hælinn lagt hve margir
nenna að kosta því til að eignast
myndlykil — og svo er alltaf hægt
að láta undan dragast að greiöa
áskriftína, kannske mánuðum
saman. Þá er sá aurinn glataður, en
að sínu vísu, hvort sem ,4skrifend-
ur" hennar njóta þess er þar er
boðiö eður ei. Því má spyrja hvort
kariinn sem klofar snjóskaflana í
auglýsingunni í von um aö ná að
borga áskriftargjaldið í tíma, óttast
meir að missa af liemma Gunn eða
með — sjálfsagt meö góðar og
gHdar fyrirmyndir úr eriendu sjón-
varpi tii hliðsjónan En það veróur
aö segjast að sem heild nær frétta-
liðið ekki að valda þessum „stfl“.
'ni þess þarf lika talsverða sviðs-
hæfileika — ,4éttlcikinn“ verður
að líta i'it <>TÍr að \era áreynslulaus.
Annars tekur það ídaufalega við og
þá er verr af stað farið en heima
setið. Stundum er meiia að segja
ekki laustriðað sumir á fréttadefld
Stöðvar 2 greini ekki á milii kæru-
leysis og ,4éttleika“. Sjónvarpið er
svo hlíföariaus og viðkvæmur mið-
íli að liðið hjá Rikissjónvarpinu
sleppur betur með því að vera
ihaldssamara og gæta sfn.
Viðkvæmur miðill
En þrátt fyrir einokun keppínaut-
anna Iáta þeir bara vel yfir sér á
móti fyrir fhaldssemina á öörum
sviðum. Stöð 2 sýnlr kvUcmyndir
—og oft góðar myndir—fram eft-
ur sé að verða af fyrirteekinu og er
auðvitað gaman að heyra af slflcum
byr nú í kreppunni. Garra þykir
raunar að háðar eigi stöövamar
sína góðu parta í dagskránni, sem
móts við óskir stórs hluta lands-;
manna. Þeir halda semsé áfram að
sýna þegar „einokunar“-sjónvarpið
befur sent sína áhorfendur í hátt-
inn. Þetta nær satt að segja engri
átt hjá þeim á Rikissjónvarpinu og
Garra finnst að þeir séu fj„. ekkert
of góðir tfl að bæta úr þessu. Þetta
er heldur klén frammistaöa hjá
stöðinni og má sjálfsagt færa rök
verri pörtunum hinum megin.
Þegar að fréttunum kemur telur
vinninginn. Þeir halda enn svolrtið
íhaldssömum stfl f framkomu,
sem hann tekur fram yfir þann
„létta“ blæ sem keppinautar þeirra
leitast nú við að lita sínar fréttír
kenna.
Og það er vonandi ektó guðlast,
þótt stungiö sé upp á að þeir hvfii
nú Hemma Gunn. Hemmi er snill-
ings góður þáttastjóri, en því miður
er bara enginn svo góður að hann
þofi aðra eins lotu og þættimir
hans eru orðnhr. Þaö er engum fjöl-
miðlitfl lofs að gjömýtasvo bestu
krafta sína að menn hljóti að taka
aðþreytast Garrf
Embættisverk í óbyggðum
40 vélsleðar og 7 snjóbflar,
mannaðir 90 vöskum björgunar-
mönnum, geystust inn á Land-
mannaafrétt um síðustu helgi til
að bjarga björgunarsveitarmönn-
um sem voru að björgunaræfing-
um uppi á hálendinu. Áður var
búið að fara í björgunarleiðangur
til að ná í slasaðan mann úr sama
björgunarleiðangri, sem þá var
ekki búinn að týna sér.
Veðrabrigði á hálendinu koma
ferðalöngum alltaf jafn mikið á
óvart og er sama hvort þeir eru í
lystitúrum eða björgunarleið-
öngrum, nema hvorutveggja sé.
Sífellt eru að koma upp örðug-
leikar í fjarskiptatækninni þegar
hríðarveður brestur á, og alls
kyns misskilningur verður til
þess að leitarleiðangur er gerður
út til að finna björgunarleiðang-
ur sem búið er að bjarga ein-
hverjum úr og er í villum og þó
ekki villtur, því fjölmiðlar eru
duglegir að breiða það út að dell-
an stafi af misskilningi og eigin-
lega hafi aldrei þurft að bjarga
neinum.
Að hinu leytinu harðneita fjöl-
miðlamenn að taka það gilt þegar
hrakningsmenn á sjó segjast aldr-
ei hafa verið í lífshættu eftir að
landkrabbar eru búnir að útmála
björgunarafrek með dramatísk-
um tilburðum.
Útvíkkun á
starfssviði
Samtímis því að gríðarlega véi-
væddur björgunarleiðangur leit-
ar að björgunarmönnum á skíð-
um æða tröllslegir torfærubflar
upp á hálendið og ætla upp á jök-
ul til að borgarstjórinn í Reykja-
vík geti samið við slökkviliðs-
stjórann í Reykjavík um að skát-
arnir í Reykjavík æfi slökkvilið
höfuðborgarinnar í ferðalögum á
jökli og að rata um óbyggðir í
vondum veðrum.
Margrómað stórjeppalið varð þó
að láta í minni pokann, því land-
Markús Örn
vættir vörnuðu því uppakstur á
jökul og urðu borgarstjóri og
slökkviliðsstjóri að láta sér lynda
að skrifa upp á samninginn um
háfjallaleiðangra brunaliðsins við
jökulrætur.
Sviðsetningin á þessum ein-
stæðu fíflalátum var frábær. Öll-
um að óvörum var hríðarveður á
hálendi og svakalega hissa og yfir
sig hrifið sjónvarpsfólk gargaði
innan úr hettuúlpum sínum út í
hríðina inní myndavélarnar hve
stórbrotið það væri að standa ein-
mitt þarna og á þessari stundu
með hljóðnema fyrir framan sig
og æpa inn í myndavélarnar. Þess
var nefnilega gætt, eins og venju-
lega þegar koma þarf fáfengileg-
heitum á framfæri við þjóðarsál-
ina, að kippa hrifnæmu sjón-
varpsfólki með, sem aldrei lætur
á sér standa þegar þjónustu þess
er þörf.
Svaðilfarir
Veðurbarinn borgarstjóri og
vindblásinn slökkviliðsstjóri
æptu út í hríðina hve stórbrotið
væri að vera á fjöllum við emb-
ættisstörf og umboðsmaður tor-
færubfla flutti hrifnæma ræðu
um hve bflarnir sem hann selur
séu afbragðsvel gerðir til að ferð-
ast um óbyggðir allan ársins
hring. Hann sagði umboð sitt
geta útvegað ágæta torfærubfla
fyrir 5 milljónir króna.
Svo var fluttur dýrðaróðurinn
um bfla og bflstjóra, sem alltaf er
verið að segja frá að séu að bjarga
einhverjum eða að einhver sé að
bjarga þeim.
Það eru áreiðanlega gildar
ástæður til þess að æfa brunaiiðið
til svaðilfara á jöklum og nógu
margar voru björgunarsveitirnar
að rífast um það hnoss að fá að
þjálfa slökkviliðsmenn til björg-
unarleiðangra í óbyggðum, því
einhverjir fóru í fýlu vegna þess
að þeir fengu ekki að taka þátt í
því gamni.
En af hverju þurfti að fara í stór-
leiðangur upp á hálendið í rán-
dýrum farartækjum með borgar-
stjóra, forseta borgarstjórnar og
embættismenn borgarstofnana
til að undirrita samning þar er
óútskýrt flan.
Fjallasækni eigenda torfæru-
trölla allan ársins hring er orðið
viðvarandi verkefni björgunar-
sveita og er satt best að segja orð-
ið erfitt að skilja á milli hverjir
eru í skemmtiferðum og hverjir
eru að leita og bjarga og hverjir
eru svo að leita að björgunarleið-
öngrum.
Ef til vill leyfist manni að spyrja
um hvaða erindi allt þetta stór-
bflafólk á upp á hálendið á þeim
tímum árs sem allra veðra er von
og er svo bjargarlaust og hjálpar
þurfi hve lítið sem út af ber.
En ef maður á 5 milljón króna
fjallabfl, verður að nota hann, og
ef maður á ekki fyrir honum,
gengur maður bara í björgunar-
sveit og fer í rómaða hetjuleið-
angra, jafnvel með borgarstjóran-
um og stórstirnum sjónvarpanna
ef maður er reglulega heppinn.
OÓ