Tíminn - 10.03.1993, Side 9
Miðvikudagur 10. mars 1993
Tíminn 9
B DAGBÓK
Fyrirlestur í Norræna húsinu
í dag, miðvikudag, ki. 17 verður fyrir-
lestur á vegum Minja og sögu í Norræna
húsinu. Adolf Friðriksson fomleifafræð-
ingur flytur erindi sem hann nefnir „Um
fomleifar og sögur" og fjallar um árang-
ur fomleifarannsókna sinna. Þetta er
fyrsta opinbera erindi hans hér á landi
um þessi efni.
Síðastliðin tvö sumur hefur Adolf kann-
að hofminjar. Hann stjómaði umfangs-
miklum skráningarleiðangri um Norð-
urland sumarið 1991 og Austurland
1992. í þessum leiðangri var einnig unn-
ið að uppgreftri á Hofsstöðum í Mývatns-
sveit í ágúst sJ.
Adolf lauk B A (Hons.) prófi í fomleifa-
fræði vorið 1988 við Fomleifafræðistofn-
un Lundúnaháskóla og Master of Philo-
sophy í fomleifafræði við sömu stofnun
árið 1991. Mastersritgerð hans fjallaði
um túlkun á fomleifúm á íslandi í Ijósi
íslendingasagna og annarra miðalda-
heimilda. Þessi ritgerð hans mun koma
út hjá bókaforlagi í Glasgow í haust og
nefnist „Sagas and Popular Antiquarian-
ism in Icelandic Archaeology".
í erindi sínu mun Adolf gefa yfirlit um
rannsóknir sínar síðustu ár. Hann sýnir
litskyggnur frá rannsóknarferðum og
mun svara íyrirspumum að erindi
loknu.
Hafnargönguhópurinn:
Sýningin „Höndlað íhöfuð-
stað“ og gengið út í Örfirisey
í kvöld 10. mars kl. 20 býður Hafnar-
gönguhópurinn að venju í miðvikudags-
kvöldgöngu ffá Hafnarhúsinu, Grófar-
megin.
Byrjað verður á að líta inn á sýninguna
„Höndlað í höfuðstað" og fleiri sýningar í
Borgarhúsinu (áður verslunin Geysir)
undir leiðsögn Lýðs Bjömssonar sagn-
fræðings. Að þvf loknu býðst þeim sem
vilja fá sér hressandi göngu að fara f
gönguferð út f Örfirisey að gömlu versl-
unarstæðunum. Allir velkomnir. Ekkert
þátttökugjald. Báðar ferðimar taka um
tvo klukkutíma.
Miðstöð fólks í atvinnuleit
Fimmtudaginn 11. mars kl. 15 mun Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB,
koma og ræða atvinnumál opinberra
starfsmanna.
Föstudaginn 12. mars kl. 15 verður
skemmtidagskrá.
Miðstöð fólks í atvinnuleit er í Lækjar-
götu 14. Hún er opin mánudaga til föstu-
daga kl. 14 til 17. Síminn er 628180.
Skagfirðingamót
Skagfirðingafélagið í Reykjavík er nú að
hefja öfluga starfsemi sína hér á höfuð-
borgarsvæðinu, eftir nokkurt hlé, með
Skagfirðingamóti sem verður haldið í fé-
lagsheimilinu Drangey, Stakkahlíð 17,
laugardaginn 13. mars n.k. og hefst með
borðhaldi kl. 20.
Þar verður margt sér til gamans gert,
meðal annars syngur söngfélagið Drang-
ey undir stjóm Snæbjargar Snæbjamar-
dóttur. Einnig munu ungir söngvarar að
norðan skemmta með söng og skagfirsk-
ir hagyrðingar munu láta gamminn
geisa. Að síðustu verður stiginn dans.
Skagfirðingafélagið var stofnað 1936 og
hefur oft verið með öfluga starfsemi hér
syðra. Síðastliðið ár hefur farið í að
stækka félagsheimilið, sem þeir komu
upp fyrir nokkmm árum ásamt deildum
félagsins, og eiga nú glæsilegt félags-
heimili að Stakkahlíð 17 ásamt Kvenna-
deildinni og Skagfirsku söngsveitinni.
Skagfirðingafélagið er kærkominn vett-
vangur fyrir Skagfirðinga bæði norðan
og sunnan heiða að hittast og efla þar
með kunningsskap og vináttu og tengja
þar með saman sitt fagra hérað fyrir
norðan og félagsskapurinn hér.
Formaður Skagfirðingafélagsins er
Gunnar Bjömsson trésmíðameistari og
síminn er 37185.
Hitchcock-hátíð í Ameríska
bókasafninu
Núna stendur yfir sjötta kvikmyndavika
Ameríska bókasafnsins. Sem fyrr er leit-
ast við að velja saman til sýninga þær
myndir sem eitthvað eiga sameiginlegt.
Að þessu sinni em nokkrar af þekktustu
myndum leikstjórans Alfreds Hitchcock
teknar fyrir og gefst aðdáendum hans því
tækifæri til að rifja upp kynni sín af þess-
um sígildu perlum kvikmyndanna. Þær
verða á dagskrá alla virka daga fram á
föstudag.
Miðvikudag 10. mars kl. 14: Vertigo
(1958) með James Stewart, Kim Novak,
Barbara Bel Geddes og Tom Helmore.
Fimmtudag 11. mars kl. 14: North by
Northwest (1959) með Cary Grant, Eva
Marie Saint, James Mason, Leo G. Car-
roll og Martin Landau.
Föstudag 12. mars kl. 14: Psycho (1960)
með Anthony Perkins, Vera Miles, John
Gavin, Martin Balsam, John Mclntire, Ja-
net Leigh. Kl. 16: The Birds (1963) með
Rod Taylor, Tippi Hedren, Jessica Tandy,
Suzanne Pleshette.
Sýningar verða í sal Ameríska bóka-
safnsins að Laugavegi 26 (bílastæði og
inngangur frá Grettisgötu). Sem fyrr er
aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Bergþór Pálsson meó tónleika
í Logalandi
Þriðjudagskvöldið 16. mars kl. 21 mun
Bergþór Pálsson óperusöngvari syngja
með undirleik Jónasar Ingimundarsonar
í félagsheimilinu Logalandi í Reykholts-
dal á vegum Tónlistarfélags Borgarfjarð-
ar.
Efnisskráin er fjölbreytt og skemmtileg
og er þess vænst að sem flestir Borgfirð-
ingar, Mýramenn og aðrir góðir gestir
komi og hlýði á Ijúfan söng.
-------------------------\
Móðir okkar og tengdamóöir
Dýrleif Árnadóttir
Sauöárkrókl
lést á Sjúkrahúsi Skagfiröinga aöfaranótt mánudagsins 8. mars.
Útför hennar fer fram frá Sauöárkrókskirkju laugardaginn 13. mars kl.
14.00.
Sigurbjörg Guömundsdóttir
Sveinn Guðmundsson
Anna Pála Guömundsdóttir
Ámi Guðmundsson Hjördis Þóröardóttir
Hallfriöur Guömundsdóttir Egill Elnarsson
Stefán Guömundsson Hrafnhlldur Stefánsdóttlr
_______________
—
n*
Elskulegur eiginmaöur minn,
faöir, tengdafaöir, afi og langafi
Egill Bjarnason
fornbóksali
Kópavogsbraut 1a
lést 7. mars sl.
Gyöa Slggeirsdóttlr
Hrafnkell Egilsson Anna Sigurjónsdóttir
Ólafía Egilsdóttir Jóhann Gunnar Friðjónsson
Soffía Stefanfa Egilsdóttir Gunnar Haraldsson
bamaböm og bamabamaböm
John Hurt búinn aö hlaupa af sér hornin:
Hamingjusamur
fjölskyldu-
faðir á Irlandi
Flestum þykja janúar og febrúar
þungbærustu og erfiðustu mán-
uðir ársins. Leikarinn John Hurt
hefur séð við því, hann hefur gert
þá mestu hátíðamánuðina á sínu
heimili.
Fyrir þrem árum í janúar hélt
hann brúðkaup með Jo sinni, sem
hefur haldið áfram að gefa fjöl-
skyldunni tilefni til að gleðjast um
þetta leyti árs.
Sonurinn Sasha fæddist 6. febrú-
ar sama ár, og á þessu ári fæddist
sonur nr. tvö daginn fyrir þriggja
ára afmælisdag eldri bróðurins. Sá
litli fékk nafnið Nicholas Dalton,
en afí Jos hét Nikolai og móður-
bróðir Nicholas og sá litli fæddist
einmitt á afmælisdegi hans.
Jo er fædd bandarísk (fjölskyldu-
nafnið er Dalton), en af rússnesk-
um og írskum ættum. Heimili
Hurt-fjölskyldunnar er á endur-
reistu bændabýli í Kildare-sýslu á
írlandi.
John Hurt er enskur og þó að
hann sé ekki nema 53ja ára á hann
mörg líf að baki. Inn á milli leiksi-
granna hefur'verið smjattað á
taumlausu lífemi hans, sem hefur
náð yfirhöndinni hjá honum
stundum. En nú er að sjá sem það
sé að baki og hann er innilega
sáttur og glaður með fjölskylduna
sína, enda vill hann helst ekki vera
fjarri henni stundinni lengur.
Hann treysti sér þó ekki til að taka
þau mæðgin með, þegar hann er
nú staddur í Moskvu að leika á
móti Vanessu Redgrave í kvik-
mynd um Stríð og frið. En því
meiri er tilhlökkunin að koma aft-
ur heim.
Dolly Parton lætur yngja sig upp:
aðdáendurna“
látið á sjá á þessum 47 árum og þar sem hún vill ekki
vaida aðdáendum sínum vonbrigðum, lagði hún það á sig
fyrir skemmstu að gangast undir víðtæka fegrunarað-
gerð. Ellefu og hálfa klukkustund var hún á skurðstofu
læknisins og nú er hún að jafna sig heima hjá sér í Holly-
wood.
Fjarlægðir voru fituvefir af mitti og mjöðmum, örlitla
andlitslyftingu þurfti og því var strekkt á húðinni á hálsi
og höku. Umhverfis augun þurfti að fjarlægja hrukkur og
slétta úr enninu. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Dolly hef-
ur látið hressa upp á útlitið.
Vinir Dollyar segja hana hafa látið þau orð falla, þegar
hún kom heim af spítalanum, að allar þjáningarnar, sem
hún hefúr orðið að umbera vegna aðgerðarinnar, eigi eft-
ir að hverfa eins og dögg fyrir sólu þegar hún standi aftur
á sviði. „Þegar aðdáendur mínir hafa borgað með dollur-
unum, sem þeir hafa haft svo mikið fyrir að vinna sér inn
fyrir aðgöngumiðann til að sjá mig og heyra mig syngja,
ætla ég að láta þá fá það sem þeir hafa borgað fyrir.“
Núna er í efsta sæti vinsældalistans þar vestra lag Dolly-
ar frá 1974 „I Will Always Love You“, sungið af Whitney
Houston í kvikmyndinni „The Bodyguard".
Nú eiga aödáendur Dolly Parton gott í vaendum,
þegar stjarnan þeirra birtist næst á sviöi. Hún tetur
ekki eftir sér þjáningarnar, sem hún hefur gengist
undir til aö líta sem best út.
Dolly Parton yngist ekki, frekar en við öll hin.
Hún er orðin 47 ára og hefur í 27 ár verið gift
sama manninum, Carl Dean. Auðvitað hefur hún
„Allt fyrir
John og Jo Hurt meö synina tvo, Sasha og Nicholas Dalton.