Tíminn - 10.03.1993, Síða 12
AUGLYSINGASIMAR
& 686300
Askriftarsími
Tímans er
686300
NÝTT OG
FERSKT
DAGLEGA
86
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELU 13-SlMI 73655
riell
s/ij HÖGG-
DEYFAR
Versiið hjá fagmönnum
varahlutir
Hanursböfða I - s. 67-6744
]
Tlniinii
MIÐVIKUDAGUR10. MARS 1993
Atvinnuleysi og
kreppa eyðileggja
ekki ferðagleö-
ina:
Bretar voru nœrrí því fjóröung-
ur allra erlendra ferðamanna
sem komu hingaö tíl lands í
febrúar, eða um 1.030 manns.
Þetta er um 50% fjölgun frá
sama mánuði í fyrra og yfir
100% flölgun fra febrúarmán-
uði nœstu tvö ár þar á undan.
Um 4.550 útíendingar lögðu
hingað teið sfna í febrúar, sem
er nánast sanii fjöldi og siðustu
þrjú árin. Erlendir ferðamenn
voru tæplega tíu þúsund fyretu
tvo mánuði ársins, sem er 2%
Qölgun frá í fyrra.
Ekki verður séð að atvinnu-
leysi og kreppa hafi þjarmað svo
að landsmönnum að þeir hafi
dregið úr utanferöum. Um
6.600 fslendingar komu til
landsins í febrúar, sem er 3%
og 16% fjölgun m.v. febrúar-
mánuð 1991.
Um 13.200 íslendingar komu
heim firá útíöndum fyrstu tvo
mánuði ársins, sem er smáveg-
is fjölgun frá síðasta ári, eða
rúmlega þúsund manns fleira
heldur en á sama töna 1991.
Botnfiskvinnslan rekin með 6,5% halla eða sem nemur 2 milljörðum á ári. Af-
urðaverð í ísl. krónum hefur lækkað um 2,7%. Samtök fiskvinnslustöðva:
Raun- og nafnvextir
þurfa að lækka um 3%
Arnar Sigurmundsson, for-
maður Samtaka fískvinnslu-
stöðva, segir að raun- og
nafnvextir þyrftu að lækka
um 3% að meðaltali. Hann
segir að sú lækkun mundi
hafa gríðarlega mikla þýð-
ingu fyrir sjávarútveginn í
heild sinni, eða sem nemur
einum milljarði króna.
„Menn eru orðir ansi óþolin-
móðir yfir þessum rólegheitum
um lækkun vaxta, en þó vongóðir
um að eitthvað fari að rofa til.
Helsta skýringin á því að banka-
kerfið er svona seint að taka við
sér er einkum sú að bankarnir
eru að reyna að safna á afskrifta-
reikninga til að mæta töpuðum
útlánum. Það gera þeir m.a. með
því að viðhalda þeim vaxtamun
sem er, til að geta varist þeim
áföllum sem þeir búast við að
verða fyrir. En einhvers staðar
eru takmörk fyrir því í tíma og
þótt lækkun raun- og nafnvaxta
komi til með að hafa áhrif á inn-
lánsvexti, þá er það grundvallar-
atriði fyrir alla að hjól atvinnu-
lífsins snúist og fólk hafi vinnu.“
Samkvæmt afkomumati Sam-
taka fiskvinnslustöðva er botn-
fiskvinnslan rekin með 6,5%
halla að meðaltali, eða sem nem-
ur tveimur milljörðum króna á
ársgrundvelli. Það þýðir að best
stöddu fyrirtækin í atvinnugrein-
inni
eru á sléttu, en þau verst stöddu
með allt að 15% halla, þrátt fyrir
síðustu efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar, s.s. 6% gengisfell-
ingu og niðurfellingu aðstöðu-
gjaldsins.
„Við náðum ekki núllinu eftir
aðgerðir ríkisstjórnarinnar."
Formaður Samtaka fiskvinnslu-
stöðva segir að þessi hallarekstur
stafi einkum af lækkun afurða-
verðs, sem er afleiðing af þeirri
efnahagskreppu sem er báðum
megin Atlantsála. Hann segir að
frá lokum nóvember í fyrra hafi
afkoma botnfiskvinnslunnar
versnað um heil 4%.
„Á síðasta 12 mánaða tímabili
hefur verð á afurðum botnfisk-
vinnslunnar í íslenskum krónum
lækkað um 2,7%. í öðrum grein-
um er ástandið mun dekkra, s.s. í
rækju og hjá frystitogurum sem
selja á Bretlandsmarkað. í sögu-
legu samhengi er afurðaverðið þó
enn frekar hátt. Hráefnisverðið er
í jafnvægi og vinnulaunin hafa
staðið í stað, eins og kunnugt er.
Þótt samdráttur í þorskafla geri
það að verkum að reksturinn sé
allur óhagstæðari, þá lá það alveg
fyrir í nóvember og er ekkert
nýtt.“
Heildarskuldir sjávarútvegsins
eru taidar nema um 100 milljörð-
um króna og þar af eru skuldirn-
ar í erlendri mynt um 65 millj-
arðar króna og 35 milljarðar í ís-
lenskum krónum.
-grh
Fiskvinnslan á undir högg aö sækja. Hún er nú rekin með 6,5%
halla aö meðaltali, að mati Sambands fiskvinnslustöðva. Þessi
skólabörn voru að kynna sér fiskvinnslu á dögunum, en spum-
ing er hvort þau muni fá vinnu í fiskvinnslu þegar þau komast
á starfsaldur. Verður einhver fiskvinnsla eftir?
Tímamynd Ámi Bjama
...ERLENDAR FRÉTTIR...
SARAJEVO
S.þ. flytja til og frá
Austur- Bosníu
Flutningalest S.þ. fórfrá Belgrad áleiöis
til umsetinna byggöa múslima i austur-
hluta Bosnlu meö læknisaöstoö. Hún
ætlar aö flytja burt særöa og alvarlega
sjúka.
FRANKFURT — Flugvélar Bandaríkja-
manna vörpuöu niöur meira en 40 tonn-
um af vamingi yfir bænum Srebrenica
aö næturlagi. Þetta var niundi loftleið-
angurínn til austurhluta Bosnfu aö sögn
talsmanna bandariska hersins.
MOSKVA
Jeltsín leitar stuðn-
ings héraðshöfðingja
Bórís Jeltsin Rússlandsforseti hitti
valdamikla héraöshöföingja aö máli til
að reyna aö tryggja sér stuöning í upp-
hafi omistu viö ihaidssamt æösta þing
Rússlands.
LÚANDA
Hótanir á báða bóga
Rlkisstjóm Angóla varaöi við þvl að ný,
löng og blóöug umferö borgarastriös
væri hafin og uppreisnarmenn UNITA
hótuöu því aö „gera hlutlausar* mikil-
vægar ollustöóvar i noröurhluta lands-
ins ef her stjómarinnar geröi tilraun til
aö ná þeim aftur á sitt vald.
KABÚL
42 særðir f bardögum
Bardagar milli stjómarhermanna Afgan-
istan og fylgismanna minnihlutaflokks
leiddu til meiðsla á 42 manns, aö sögn
talsmanna sjúkrahúsa, en uppreisnar-
mennimir sögðu vopnahlésnefnd aö
þeir myndu viröa friöarsamning sem
leiötogar þeirra undirríta I þessari viku.
LONDON
Maastricht verður
staðfestur
Breska stjómin reyndi aö gera litiö úr
ósigri slnum vegna nánari tengsla viö
Evrópu og hélt þvl fram aö þessi „minni
háttar afturkippur' myndi ekki hindra að
Bretar staöfestu Maastricht-samninginn.
NANTES, Frakklandi
Fiskimenn láta enn
illa
Sjö lögreglumenn hlutu meiðsl I átök-
um viö um 1.000 tryllta fiskimenn, sem
eru bálreiöir vegna innflutnings á ódýr-
um fiski aö sögn lögregluyfirvalda.
LONDON — Reiöir skoskir fiskimenn
helltu ollu I lestir rússnesks skips til aö
mótmæla innflutningi á ódýrum fiski, og
verkamenn I ensku hafnarborginni
Grimsby hindmöu affermingu á frönsk-
um fiski, aö sögn lögreglunnar.
RÓM
Forsætisráðherrann
kvartar undan stuðn-
ingsleysi samstarfs-
flokka
Italski forsætisráöherrann, sem er undir
þrýstingi um aö segja af sér vegna tiF
rauna til aö halda I skefjum skaöanum
af geysilegu spillingarhneyksli I landinu,
hefur kvartað undan þvi aö samstarfs-
fiokkar hans i rikisstjóm hafi svikiö
hann.
BAGDAD
Erfið leit að kjam-
orkuvemm
Vopnasérfræöingar, sem grannleita aö
falinni kjamorkustarfsemi i Irak, hafa
skipt sér I marga hópa til aö skoða eins
marga staði og mögulegt er, herma
heimildir innan Sameinuöu þjóðanna.
ANTANANARIVO, Madagaskar
Nýr forseti eftir 17 ára
valdatíð forvera
Bundinn hefur veriö opinberíega endir
á 17 ára stjóm Didier Ratsiraka, forseta
Madagaskar, þegar æösti dómstóll
landsins útnefndi Aibert Zafy sigurveg-
ara i sögulegum kosningum.
DENNl DÆMALAUSI