Tíminn - 12.03.1993, Síða 1

Tíminn - 12.03.1993, Síða 1
Föstudagur 12. mars 1993 49. tbl. 77. árg VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Helmingur þeirra fyrirtækja sem stofnuð hafa verið á síðustu sjö árum hafa verið stofnuð af konum og hafa enst betur en karlafyrirtækin: Konur betri forstjórar? Það sem af er hafa um 50 konur sótt námskeið fræðsludeildar Iðntækni- stofnunar, þar sem kennd eru hagnýt vinnubrögð við að stofna fyrirtæki og gera hugmynd arðbæra. Þegar hafa verið haldin námskeið í Reykjavík, Grindavík og á Vestfjörðum með þeim árangri að von bráðar verða þar sett á fót fyrirtæki á vegum kvenna sem munu skapa töluverðum fjölda kvenna ný störf, eða 20-40 á hveijum stað. Meðal þeirra hugmynda sem unnið er við að hrinda í framkvæmd eru tillögur á sviði ferðaþjónustu, minjagripagerðar, heimilisiðnaðar o.fl. í Reykjavík er td. í burðarliðn- um stofnun þriggja fyrirtækja sem munu sérhæfa sig í „nýrri þjónustu" sem markaður mun vera fyrir. Hansína B. Einarsdóttir, verkefha- stjóri námskeiðsins sem nefnist At- hafnakonur, segir að helmingur þeirra fyrirtækja sem stofnuð hafa verið á síðustu sjö árum, hafi verið stofnuð af konum. Auk þess bendir margt til þess að 70% fyrirtækja sem karlmenn veita forstöðu séu fallvölt á meðan það eru aðeins 30% fyrirtækja kvenna. Skýringin á þess- um mun er m.a. sú að þau fyrirtæki sem konur starfrækja eru einatt minni en karlanna, þær fara sér hægar í uppbyggingu og allri fjár- festingu en síðast en ekki síst virðast konumar greina sitt umhverfi betur en karlamir. Ástæða þess að farið er út í nám- skeiðahald sem þetta er m.a. vegna þess að konum bjóðast færri at- vinnutækifæri en körlum, atvinnu- leysi er víða meira meðal kvenna en karla og þá hefur konum fækkað til muna á landsbyggðinni og á nokkr- um svæðum er svo komið að það liggur við vandræðaástandi af þeim sökum. Þá er viðbúið að hlutfell kvenna á vinnumarkaði muni minnka tölu- vert en á móti er talið að konur verði eftirsóttar í ýmis stjórnunarstörf innan fyrirtækja. í lok apnl er gert ráð fyrir að búið verði að halda námskeið sem þessi í öllum kjördæmum landsins að und- anskildu Norðurlandi eystra. Félags- málaráðuneytið hefur styrkt nám- skeiðahaldið með þriggja milljón króna framlagi sem dugar engan veginn í ljósi þess að hver einstak- lingur verður að greiða 14.700 krónur fyrir tveggja daga námskeið. Auk kennslunnar er innifalið í gjald- inu, náms- og vinnugögn, kaffiveit- ingar og léttur málsverður. -grh Spilaðume VIKINGALOTTO var formlega opnað í gær í húsakynnum Iþróttasambands Is- lands. Það var Þorsteinn Pálsson sem fékk fyrsta miðann f lottóinu sem er sameiginlegt Lottó 23ja milljóna Norðurlandabúa frá Islandi, Finnlandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Tfmamynd Pjetur Þuríður Bernódusdóttir varaþingmaður gagnrýnir ríkisstjómina harðlega fyrir að stuðla að aukinni skuldasöfnun heimilanna. Hrafnkell A. Jónsson, varaþingmaður og verkalýðsforingi segir: „Skuldasöfnun heimilanna er að verða þjóðarharmleikur“ „Sfvaxandi skuldasöfnun heimilanna í landinu hjá venjulegu alþýðufólki er, að því er ég hygg, að verða þjóðarharmleikur. Við sem vinnum við þessi mál verðum í sífellt auknum mæli vör við að skuldasöfnunin er að leiða tU eignamissis og upplausnar í fjölskyldum. Það er kannski ekki talað eins mikið um það eins og erfiðleika í atvinnulífi en ég hygg að afleiðingarnar séu á margan hátt alvarlegri en tilfallandi gjaldþrot bjá fyrirtækjum,“ sagði Hrafnkeil A. Jónsson, formaður verkalýðsfélagsins Arvakurs á Eskifirði og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á Austuriandi. Hrafnkell sagði þetta í umræðum um skuldir heimilanna f landinu sem fram fóru á Alþingi að frum- kvæði Þuríðar Bemódusdóttur, varaþingmanns Framsóknarflokks- ins. Þuríður sagði að skuldir heimil- anna hafi aukist úr 101 milljörðum króna í ársbyrjun 1989 í 236 millj- arða í upphafi þessa árs. Aukningin sé 2,4 milljónir króna á hverja fjög- urra manna fjölskyldu í landinu. Skuldir heimilanna hafi aukist ár- lega um 15 milljarða á ári umfram spamað í tíð þessarar ríkisstjómar. Þuríður sagði að á ámnum 1986- 1990 hafi lántökur og spamaður heimilanna staðið nokkum veginn í stað, en síðan hafa heimilin stór- aukið lántökur. Þuríður sagði að núverandi ríkisstjóm hafi aukið á erfiðleika heimilanna með aðgerð- um sínum í skattamálum. Ríkis- stjómin hafi auk þess horft að- gerðalaus á atvinnuleysi aukast hér á landi. Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra sagði að vanskil Byggingarsjóðs verkamanna og Byggingarsjóðs ríkisins hafe aukist um 2% á einu ári, farið úr 35% í 37% miðað við stöðuna á gjalddaga 1. febrúar í ár saman borið við sama dag í fyrra. Jóhanna sagði Ijóst að aukið atvinnuleysi og minni yfir- vinna hafi leitt til aukinna vanskila hjá fólki, ekki síst í bankakerfinu. „Ég tel að nauðsynlegt sé að gera Þuríður úttekt á umfangi og eðli greiðslu- vanda heimilanna. Nú er í undir- búningi á vegum félagsmála-, fjár- mála- og viðskiptaráðuneytisins at- hugun á stöðu þessara mála. Ef gripið verður til aðgerða er mikil- Hrafnkell vægt að þær verði samræmdar með bönkum og lífeyrissjóðum," sagði Jóhanna. Jóhanna sagði að kanna þurfi hvemig vanskil hafa þróast í banka- kerfinu og hjá lífeyrissjóðum og hvort meira sé um nauðungarupp- boð á íbúðum en áður. Þegar þessar upplýsingar liggi fyrir verði málið rætt í ríkisstjóm. Hún sagði að helmingur skulda heimilanna væru frá opinberum húsnæðislánasjóðum. Hlutur þeirra hafi aukist á síðustu árum með tilkomu húsbréfakerfisins. Þetta sagði Jóhanna eðlilegt því að með húsbréfakerfmu hafi dregið úr skammtímalánum vegna húsnæð- iskaupa, en þessi skammtímalán hafi átt mikinn þátt í greiðsluerfið- leikum fólks. Þuríður gagnrýndi sérstaklega mikil afföll á húsbréfúm, einkum á árinu 1991. Á því ári vom gefin út húsbréf fyrir 16 milljarða og afföll voru mjög mikil. Þuríður sagði að fólk sem tók 4 milljónir að láni á því ári, hafi í reynd ekki fengið nema 3 milljónir vegna affallanna. Fólkið þurfi hins vegar að greiða afborgan- ir og vexti af 4 milljónum. Að erfið- leikum þessa fólks þurfi að huga sérstaklega.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.