Tíminn - 12.03.1993, Qupperneq 2

Tíminn - 12.03.1993, Qupperneq 2
2 Tíminn Föstudagur 12. mars 1993 70 manns á Akureyri missa vinnuna: K. Jónsson gjaldþrota Sljórn K, Jónssonar & Co. hf. hefur samþykkt að óska eftir því að félagiö verði tekið til gjald- þrotaskipta. Fyrirtækið hefur átt í erfiðleikum um nokkurt skeið. Það var rekið með um 100 miilj- óna kr. tapi á síðasta ári. í árslok var eigið fé neikvætt um 25 tniiij- ónir. Um 70 manns starfa hjá K. Jónssyni og blaslr ekkert annað en atvinnuleysi við þessu fóiki. Bæjarstjórinn á Akureyri lýsti því yfir í gær að bærinn myndi ekki leggja fjármuni í fyrirtækið, en hann vonaðist eftir að aðilar á Akureyri myndu bindast samtök- um um að haida áfram þeim rekstri sem K. Jónsson hefur haft með höndum. K. Jónsson var stofnað á Akur- eyri 1947. Fyrirtækið hefur aila b'ð framleitt niðursuðuvörur, bæði fyrir innaniandsmarkað og til útflutnings. Á síðustu árum hefur fyrirtækið einnig framleitt frosna rækju og kavíar úr grá- sleppuhrognum. í mörg ár voni Sovétríkin langmikilvægasti markaðurinn fyrir afurðir fyrir- tækisins. Sá markaður lokaðist fyrir þremur árum. Að undan- förau hcfur England verið stærsti markaðurinn ásamt Frakklandi, Þýskalandi og Skandinavfu. K. Jónsson hcfur um skeið átt í verulcgum rekstrarerfiðleikum, sem stafað hafa af hækkandi til- kostnaði á sama tíma og afurða- verð hefur staðið í stað eða lækk- að. Háir vextir hafa einnig valdiö fyrirtældnu miklum erfiðleikum. Að mafi stjórnenda fyrirtælrisins eru möguleikar til að fjármagna reksturinn ekki lengur fyrir hendi og félagið er því komið í greiðslu- þrot. Sú niðurstaða sé rökrétt að óska eftir gjaldþrotaskiptum til að firra lánadrottna frekara tjónL Aðalmarkmið nýrra samkeppnislaga er m.a. að efla virka sam- keppnl f viðskiptum og vinna gegn takmörkunum á frelsi til at- vinnurekstrar og stuðla þannig að efnahagslegum framförum. Á myndinni eru f.v. Sigfús Jónsson aðstoðarmaður viöskiptaráð- herra, Georg Ólafsson forstjóri Samkeppnisstofnunar, Jón Sig- urðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Atli Freyr Guðmunds- son varaformaður samkeppnisráðs. Tlmamynd Áml BJama Viðskiptalífið fær nýjar leikreglur til að fara eftir með nýjum samkeppnislögum sem marka þáttaskil. Unnið að úttekt á íslenska markaðnum í Ijósi nýrra laga: Ný og haldbetri nevtendavernd Um síðustu mánaðamót gengu í gildi ný samkeppnislög sem leysa af hólmi lög um verölag, sam- keppnishömlur og óréttmæta við- skiptahætti. Þá hefur Verölags- stofnun verið aflögð en í hennar stað hefur verið sett á fót Sam- keppnisstofnun og samkeppnis- ráð sem eiga að sjá um fram- kvæmd hinna nýju laga. Þótt lögin hafi ekki verið í gildi nema í nokkra daga er þeirra þegar farið að gæta og hafa þegar verið gerðar athugasemdir við gjald- skrár lögfræðinga, arkitekta og tannlækna svo dæmi séu nefnd. Þá er viðbúið að kaup Hagkaupa á Bónus hefðu sérstaklega verið skoðuð ef sá gjömingur ætti sér stað um þessar mundir. Að mati Jóns Sigurðssonar við- skiptaráðherra marka þessi nýju samkeppnislög viss þáttaskil í ís- lensku viðskiptalífi með nýjum leikreglum, en ekki síst tryggja lögin neytendum mikilvæga vernd. Þá eru í lögunum nýjar reglur um auglýsingar til vemdar bömum og íslenskri tungu. Sam- keppnisyfirvöld fá heimild til að fylgja ákvörðunum sínum eftir með sektum, ef önnur úrræði duga ekki til og til að tryggja réttarör- yggi aðila er ákvæði í lögunum um áfrýjunamefnd sem Hæstiréttur tilnefnir til að fjalla um mál sem kunna að rísa vegna aðgerða sam- keppnisyfirvalda. Helstu nýmæli samkeppnislag- anna eru m.a. að bannað er að hafa samráð um verð, afslætti og álagn- ingu og fyrirtækjum er bannað að skipta mörkuðum á milli sín. Þá er í lögunum kveðið á um eftirlit með starfsemi greiðslukortafyrirtækja. Upplýsingamiðlun til neytenda verður efld, hert verður á fyrir- mælum til fyrirtækja að birta upp- lýsingar um verð, kjör og gæði ofl., eftirlit verður aukið með því að fyr- irtæki beiti ekki hvort annað og neytendur ósanngimi í viðskipt- um. Skipuð verður sérstök auglýs- inganefnd til að fylgjast með að ekki verði veittar rangar, ófull- nægjandi eða villandi upplýsingar í auglýsingum. Til að koma í veg fyrir að fyrirtæki misnoti aðstöðu sína á markaðn- um fá samkeppnisyfirvöld heimild til að ógilda sameiningu fyrirtækja eða kaup þeirra á öðrum. Þá ber sömu yfirvöldum að gera sérstaka athugun á hvort hérlendis sé að finna alvarleg einkenni hringa- myndunar, óæskileg tengsl eða samþjöppun valds sem felur í sér skaðlegar samkeppnishindranir. Þeim er jafnframt gert að gera at- hugasemdir ef lög og stjómvalds- fyrirmæli torvelda frjálsa sam- keppni, koma í veg fyrir að fyrir- tæki geti notað fé sem þau afla sér í skjóli einkaleyfis eða opinberar verndar, til að niðurgreiða annan rekstur sem er óvemdaður og í frjálsri samkeppni, svo nokkur dæmi séu nefnd. -grh SIGUR GEGN UNGVERJUM Eiginkonur, unnustur, böm og vinir kappanna í fslenska hand- knattleikslandsliðinu söfnuö- Steingrímur Hermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, sagðist ekki gera athugasemd við þá málsmeðferð að bókunln komi til umræðu á Alþingi síðar f þess- um mánuði. Fyrir sig skipti ekki öllu máli hvort EES- samningur- inn taki gildi 1. júlí eða um næstu áramót. Meirihluti Alþingis hafi þegar tekið þá ákvörðun að ísland gerist aðili að þessum samningi þrátt fyrir þá annmarka sem á honum séu og það valdaframsal sem í honum felst. „Það er mikilvægast nú að marka stefnu f samskiptum okkar við ust saman heima hjá Þorbergi Aðalsteinssyni í gær til að fylgj- ast með leiknum gegn Ungverj- Evrópubandalagið til framtíðar. Þess vegna höfum við Halldór Ás- grímsson lagt fram tillögu um að Alþingi marki þá stefnu að leita skuli tvíhliða samninga við EB. Mikilvægast er að eyða þeirri óvissu sem virðist ríkja um fram- tíðartengsl okkar við EB og að þeirri stefnu verði hafnað að ganga í EB, eins og td. Verslunarráð er að dekra við,“ sagði Steingrímur. Steingrímur sagði að þessi stefnumörkun sé meira aðkallandi en áframhaldandi þrætur um EES. -EÓ um og eins og sjá má er fylgst með atburðum af tilfinningu. Tlmamynd Áml Bjama Sýknaðuraf ákæru um íkveikju Hallgrímur Marinósson, fyrr- um eigandi Sportklúbbsins, var í gær sýknaður í undirrétti af að hafa verið valdur að íkveikju. Eins og kunnugt er var Hall- grímur ákærður þar sem grun- samlegt þótti að hann hafði keypt rekstrarstöðvunartrygg- ingu sem var miklu hærri en rekstrartekjur Sportklúbbsins gáfu tilefni til, skömmu áður en húsnæði klúbbsins brann. í því var áður vinsæll skemmtistaður sem gekk undir heitinu Klúbb- urinn. í niðurstöðum dómsins segir m.a.: „Þrátt fyrir töluverðar líkur fyrir sekt ákærða er varhugavert að slá því föstu að gegn eindreg- inni neitun hans og einnig vegna ýmissa vafaatriða að nægilega margt sé komið fram til að dæma hann sekan.“ Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins: Mikilvægast nú að ákveða framtíðar- tengslin við EB Dómsmálaráðherra segir að lög um mannanöfn verði endurskoðuð: Mannanafnanefnd hefur sagt af sér Mannanafnanefnd hefur í bréfi til Þorsteins Pálssonar dómsmála- ráðherra sagt af sér. Ástæðan er óánægja með starfsaðstöðu. Ágreiningur hefur verið um fram- kvæmd mannanafnalaga, m.a. hefur Mannanafnanefnd neitað foreldrum að skrá nöfn baraa sinna í þjóðskrá. Þorsteinn lýsti því yfir á Alþingi í gær að hann hygðist beita sér fyrir endurskoð- un mannanafnalaga. Mál þetta var rætt á Alþingi í fyr- irspumartíma að frumkvæði Hjálmars Jónssonar, varaþing- manns (Sjfl.). Hjálmar spurði hvort ráðherra fyrirhugi að endur- skoða lög um mannanöfn. Þorsteinn svaraði fyrirspuminni játandi. Hann upplýsti jaftiframt að Mannanafnanefnd hafi sagt af sér og taki afsögnin gildi 15. mars. Þorsteinn sagðist hafa óskað eftir tilnefningum frá Háskólanum í nýja nefnd. Nefndin segir í bréfi til ráðherra að slæm starfsaðstaða sé orsök af- sagnarinnar, en Þorsteinn sagðist telja að ágreiningur um fram- kvæmd mannanafnalaganna hafi einnig átt þátt í að nefndin sagði af sér. Ingibjörg Pálmadóttir (Frfl.) nefndi dæmi um árekstra varðandi framkvæmd mannanafnalaga. í nóvember var barn skírt nafninu Sveinberg og var það skráð í kirkjubækur. Hagstofan neitaði hins vegar að skrá það í þjóðskrá og þannig stendur málið í dag. Geir H. Haarde (Sjfl.) sagði að fleiri dæmi væm um erfiðleika við framkvæmd laganna. Hann sagði að það hafi sýnt sig að efasemdir um ágæti ýmissa ákvæða laganna, sem settar vom fram fyrir tveimur ámm þegar þau vom samþykkt, hefðu átt rétt á sér. -EÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.