Tíminn - 12.03.1993, Page 8

Tíminn - 12.03.1993, Page 8
8 Tíminn Föstudagur 12. mars 1993 FUNDIR OG FÉLAGSSTÖRF Sigrföur Anna Hafsteinn Ingvi Valgeröur Hvernig menntastefnu vilt þú? Fundur um þetta málefni veröur haldinn i Veitingastaönum Mömmu Rósu, Hamraborg Kópavogi, þriöjudaginn 16. mars kl. 19.30. Frummælendur veröa: Sigrlður Anna Þóröardóttir alþingismaöur, formaöur nefndar menntamálaráöherra um mótun menntastefnu; Hafsteinn Karisson skólastjóri, formaöur Samtaka fámennra skóla; Valgeröur Sverrisdóttir alþingis- maöur, formaöur málefnahóps Framsóknarflokksins um menntamál; Ingvi Þorkelsson kennari, fulltnji Framsóknarflokksins I skólanefrid Kópavogs. Fundurinn er öllum opinn. Súpa og brauö á vægu veröi. Landssamband framsóknarkvenna og Freyja, félag framsóknarkvenna I Kópavogl Valgeröur Jóhannes Geir Halldór Guömundur Þingeyingar Almennur stjómmálafundur veröur haldinn aö Ýdölum þriöjudaginn 16. mars klukk- an21. Þingmennimir Halldór Asgrimsson, Guðmundur Bjarnason, Valgeröur Svenisdóttir og Jóhannes Geir Sigurgeirsson mæta á fundinn. Fjölmennum! Framsóknarflokkurlnn Framsóknarfélögin í Hafnarfirði Opiö hús aö Hverfisgötu 25 alla þriöjudaga kl. 20.30. Komiö og fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö. Framsóknarfélögln Kópavogur — Opið hús Opið hús er alla laugardaga kl. 10.00-12.00 aö Digranesvegi 12. Kaffi og létt spjall. Siguröur Geirdal bæjarstjóri veröur tíl viötals. Framsóknarfélðgln Selfoss — Framsóknarvist Þriggja kvölda keppni. Spilum þriöjudagana 16., 23. og 30. mars kl. 20.30 að Eyr- arvegi 15. Framsóknarfélag Selfoss VELKOMIN TIL U.S.A. Sértilboö frá bandarísk- um stjórnvöldum Bandarisk stjómvöld gefa þér kost á að sækja um og öölast varanlegt dvalar- og atvinnuleyfi samkvæmt áætlun AA-1. Dregið veröur úr umsóknum og þú getur þannig hreppt tæki- færi til að setjast að I Bandarfkjunum og stunda þar vinnu. (orðið handhafi „græna kortsins”). Umsóknarfrestur um dval- arieyfi rennur út 31. mars nk. og því nauösynlegt að bregð- ast viö strax, svo umsókn þín nái fram I tíma. Allir þeir, sem eru fæddir á (slandi, Bretlandi eða (riandi og/eða eiga foreldri eða foreldra af sömu þjóöemum, hafa rétt til að sækja um þetta leyfi. Sendið 45 Bandarikjadala greiðslu fyrir hvem umsækjanda til okkar ásamt nafni umsækjanda, fæðingardegi, fæðingar- stað, nafni hugsanlegs maka og nöfnum og dvalarstaö ógiftra bama undir 21 árs aldri. Heimilisfangið er: VISA USA, P.O. Box no. 822211 Dallas, Texas, 75382, USA. Fjörbrot frjáls- hyggj unnar Það er í frásögur ferandi — og reynd- ar merkilegt rannsóknarefrii—að þrír fyrrum kommúnistar haía mótað stefnu Sjálfstæðisflokksins í efnahags- málum um fjögurra áratuga skeið, 1950-1990. Þeir eru Benjamín HJ. Ei- ríksson, Jónas Haralz og Ólafur Bjömsson. Hinn fyrstnefndi hafði doktors-próf í hagfræði, annar fékk doktors-titil og hinn þriðji varð próf- essor. Allir höfðu kúvent stuttu eftír seinni heimssfyijöld og gengið tíl liðs við þann arm Sjálfstæðisflokksins, sem lengst er tíl hægri og kenndur er við frjálshyggju. Nú hefir frjálshyggjan runnið sitt skeið og mennimir þrír raunar líka. Þeir eru aldnir orðnir og að mestu horfnir af pólitíska sviðinu, einn þeirra (Jónas) farinn af landi brott Uppeldis- bam þeirra þremenninganna, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, situr einn uppi með frjálshyggjuna. Fyrir jólin settí hann á markað mörg hundruð blaðsíðna doðrant um kaupsýslumann á fyrstu áratugum aldarinnar, er sá sér hag í stjómmálaþátttöku, varð borgar- stjóri og ráðherra. Fyrirtæki hans blómgaðist, en sjávarútvegur á íslandi riðaði til falls af völdum gengisbreyt- ingar, sem hann stóð fyrir. Hannes Hólmsteinn fór hamförum í út- breiðslu ritsins, enda átti söguhetjan að vera tákn einkaframtaks og afreka við skilyrði samkeppni og viðskipta- frelsis. Eigi að síður liggur bókin enn f haugum á búðarhillum. Þegar í janúar lagði Hannes land und- ir fót og stefndi vestur um haf. Ætla má að söluandvirði Jóns Þorlákssonar hafi dugað fyrir farmiðanum. Erindið var að ná fundi manna úr svonefndum Chicago-skóla. Milton gamli Fried- man er að vísu nánast með öllu gleymdur, en nemendur hans hafa lát- ið nokkuð á sér bera. Þannig hefir einn þeirra, Gary S. Becker, getíð sér orð Lesendur skrifa v V fyrir það að fera hagfræðina inn á svið mannlegs atferlis, sem verið hafa um- fjöllunarefni annarra greina, jieirra á meðal félagsfræði, lýðfræði og afbrota- fræði. Hlaut hann Nóbelsverðlaun í hagfræði 1992 fyrir frumkvæðið, en þau verðlaun eru fjármögnuð af Sví- þjóðarbanka. Skv. Becker er einstak- lingurinn sjálfúm sér samkvæmur og velur jafnan skynsamlegasta kostínn. Markaðsöflin stýra jafnvel gerðum af- brotamannsins og ofdrykkjumanns- ins. Hinn fyrmefridi fremur ekki afbrot vegna afbrotahneigðar, heldur af því að afbrotin borga sig fyrir hann og nýta hæfileika hans betur en heiðarleg störf. Á sama hátt verður ekki sagt að áfengi eða eiturlyf séu óskynsamleg, ef hinn kosturinn væri sjáifsmorð. Hannes Hólmsteinn er feiknarlega Ólafur Björnsson. hrifinn af Becker, fékk viðtal við hann og birtir það í Lesbók Morgunblaðsins 27/2. Aðrir nemendur Friedmans hafa sett fram kenningu um „skynsamlegar væntíngar". Skv. henni er tilgangs- laust fyrir ríkisstjóm að ætla sér að örva eftirspum, td. með auknu pen- ingaframboði. Allir munu þá vænta verðhækkana og verja sig með kröfu Benjamfn H.J. Eiríksson. Jónas Haralz. um hærra kaup og/eða álagningu. Verðbólgan myndi vaxa í réttu hlut- falli, en áhrif á framleiðslu og atvinnu reynast engin. Niðurstaðan er sem sagt ævinlega hin sama hjá þessum herrum: Engin opinber afskipti, engar hömlur, markaðurinn einn á að ráða, jafnvel þótt þar gildi lögmál frumskóg- arins, frelsið til að ræna, frelsið tíl að stela. Félagshyggjumaður Bj argvættur Ég hef aldrei skrifað grein í blað fyrr. Það var maður hjá okkur um síð- ustu helgi sem var kominn til að fara á þorrablót. Hann gengur við tvo hækjustafi og er mjög bagaður í BÍLALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNIbÓDÝRU HELGARPAKKANA 0KKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS annarri hendinni en sterkur í þeirri hægri. Þetta var þriðja þorrablótið í röð sem hann kom á hér. Hann komst út á dansgólfið fyrir tveimur árum og fannst það svo gaman. Stúlkan sem dansaði við hann fyrst var systurdóttir eins bóndans hér í sveitinni. Það er margt gott fólk hér eins og víða annars staðar; svo er Lesendur slurifs Guði fyrir að þakka. Þessi maður sagði mér daginn eftir þetta síðasta þorrablót að það hefðu fjórar konur komið og boðið sér upp í dans. En ég verð að segja ykkur sögu sem hann sagði mér. (Hann á heima í Reykja- vík). Það var fyrir nokkuð löngu að hann fer niður í bæ ásamt vinum sínum að nóttu til. Svo dettur þeim í hug að ganga um miðbæinn sér til gamans. Þegar þeir eru búnir að ganga svolítinn spotta þá heyra þeir að það er einhver að hrópa. Þeir ganga á hljóðið og sjá að í húsasundi er karlmaður að fljúgast á við stúlku og ætlar greinilega að nauðga henni. Svo þeir slá hring um þau og hóta að hringja á lögregluna. (Þeir voru með bílasíma). Lamaði maður- inn fyrrnefndi sagðist mundu lemja ofbeldismanninn á ákveðinn stað með hækju sinni ef hann hypjaði sig ekki burtu eins og skot. Sá varð hræddur og hljóp í burtu. Við mig sagði sá lamaði. „Þessi nauðgari hefði getað eyðilagt líf stúlkunnar, að minnsta kosti kynlíf hennar." Ef við hugsum nú út í þetta þá hljóta einhverjar góðar vættir að hafa leitt þá félagana þarna á staðinn. Ég gæti sagt fleiri svipaðar sögur en ætla ekki að gera það að sinni. En ég bið góðan Guð að forða fólki frá svona hörmungum og vona að þessi litla grein verði birt og geti orðið ein- hverjum til hjálpar. Stúlkur og kon- ur! Verið ekki einar á ferð að nætur- lagi að nauðsynjalausu. Með fyrirfram þökk, Bóel Ágústsdóttir Tíminn hf. óskar eftir umboðsmanni í Vestmannaeyjum frá 1. maí 1993. Upplýsingar gefur Marta Jónsdóttir í síma 98-12192 interRent Europcar

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.