Tíminn - 12.03.1993, Qupperneq 12

Tíminn - 12.03.1993, Qupperneq 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 V I K L«TT* .. alltaf á ímðvikudögmn NÝTT OG FERSKT DAGLEGA gjg reiðholtsbakarí VÖLVUFELL113 - SÍMI73655 HOGG- DEYFAR Verslió hjá fagmönnum GS varahlutn K _ lanarsbolða 1 - s. 67-67-44 TVOFALDUR1. vinningur Timinn • FÖSTUDAGUR12. MARS 1993 Bílar og bílavörur hafa hækkað um 99% á s\. 5 árum en búvörur háðar verðlagsgrundvelli bara 43%: Búvörur hækkuðu minnst Búvörur sem háöar eru verðiagsgrundvelli hafa hækkaö langminnst allra helstu kostnaðarliöa á grundvelli framfærsluvísitölunnar. Á myndinni eru þeir Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsam- bands bænda og Jóhannes Kristjánsson, form. Landssambands sauöfjárbænda, við kjötafgreiðslu í Hagkaupum í Kringlunni skömmu fyrir síðustu jól. Hækkun á vísitölu vöru og þjón- ustu, (þ.e. hækkun framfærsluvísi- tölunnar að frátöldum húsnæðis- kostnaði) skipt eftir eðli og uppruna í tíu liði, er sem segir hér til hliðar. Auk þess að búvörur háðar verð- lagsgrundvelli hafa hækkað allra minnst vekur það sérstaka athygli, hvað aðrar matvörur, bæði innlend- ar og þær innfluttu, hafa hækkað miklu minna en aðrar vörur. í annan stað sýnist athyglisvert hvað verðhækkanir virðast hafa ver- ið áþekkar í hverjum flokki, hvort sem um innlendar eða erlendar vör- ur er að ræða. Þannig hafa verð- hækkanir haldist í hendur á bæði erlendum og innlendum matvörum, öðrum en búvörum. Og það sama á við um aðrar vörur, hvort sem þær eru innlendar eða innfluttar. (Spumingin er hins vegar af hverju þær hafi þurft að hækka langt um- fram matvörurnar?) Verð á þjónustu hefur síðan hækk- að töluvert meira en almennt vöru- verð. Og það á einnig jafnt við um almenna (frjálst verðlagða) þjón- ustu sem og þá þjónustu, og vörur sem það opinbera sér um verðlagn- inguna á. í algerum sérflokki kemur svo einkabíllinn, bensínið og varahlut- irnir. Þar er eingöngu um innflutn- ing að ræða og verðhækkanirnar verið langt umfram alla aðra kostn- aðarliði í heimilisútgjöldunum. Þessi liður hefur nærri því tvöfaldast í verði á tæpum fimm ámm, á sama tíma og íslensku búvömmar hafa aðeins hækkað um rúmlega 43%. -HEI Búvörur háðar verðlagsgrundvelli hafa undanfarin ár hækkað langminnst allra helstu kostnaðarliða í grundvelli framfærsluvísitölunnar. Verð þessara íslensku landbúnaðarvara hefur aðeins hækkað um 43,5% að meðaltali á nærri fímm árum (frá maí 1988). Á sama tíma hafa aðrar matvörur hækk- að 15-20% meira en verðlagsgrundvallarvörurnar, verð flestra annarra vörutegunda í kringum 50% meira og verð á ýmis konar þjónustu jafnaðar- lega hækkað nærri 70% meira. Metið á kostnaðarliðurinn: Innfluttur bfll, bensín og varahlutir sem hefur nánast tvöfaldast í verði á sama tímabili og þar með sem sagt hækkað nærri 130% meira en verðlagsgrundvallarvör- uraar. Færeyingar í atvinnuleit „Það eru margir Færeyingar sem eru að leita sér að vinnu bæði á landi og sjó,“ segir Sím- on Hansen, umsjónarmaður færeyska sjómannaheimilisins í Reykjavík. Hann veit um allt að 40 færeyskar ,4»u-pair“ stúlkur í Reykjavík. Þess má geta að at- vinnuleysi í Færeyjum er nú um 20% og fer vaxandi. Hann segir að Færeyingar hafí sótt í vaxandi mæli til íslands í atvinnuleit undanfarið ár. „Fjöldi þeirra hefur vaxið und- anfarna tvo mánuði," bætir Sím- on við. Hann giskar á að í Reykjavík einni séu um 40 stúlkur í vist eða við sjávarútveg sem Færey- ingar sækja í og til marks um það vinna hátt í 20 stúlkur í frystihúsum, flestar á Austur- landi. Þá séu allt að 30 sjómenn í skipsrúmi á línubátum og við beitingar. Þá segir Símon að talsvert sé um Færeyinga í störfúm í heil- brigðiskerfinu. -HÞ Síðan nýr grundvöllur framfærslu- vísitölu var tekinn í gagnið í maí 1988 hefur Hagstofan m.a. fylgst með verðlagsþróun, eftir eðli og uppruna ákveðinna liða vöru og þjónustu. Búvörur háðar verðlags- grundvelli voru þá 7,4% af heildar- útgjöldum vísitölugrundvallarins. En þar sem þessar vörur hafa allan tímann hækkað minna en aðrar hef- ur þetta hlutfall stöðugt farið lækk- andi ár frá ári. Það hafði t.d. lækkað niður í 7% í maí 1990, áfram niður í 6,8% í maí 1992 og enn niður í 6,4% miðað við sama mælikvarða núna í marsmánuði. Hækkun vöru og þjónustui988—1993 Hækun: Búv. háðar verðlagsgrundv. 43,5% Aðr. innL matvörur 50,1% Innfluttar matvörur 52,1% Aðrar innlendar vörur 65,9% Aðrar innfluttar vörur 66,4% Áfengi og tóbak 75,0% Innfl.iBQI/bensínArarahL 99,0% Þjón. háð opinb.verðákv. 74,7% önnur þjónusta 72,9% Alls vörur og þjónusta: 68,6% ...ERLENDAR FRÉTTIR... MOSKVA Jeltsín að tapa fyrir binginu I gær virtist Bóris Jeltsln stefria I auð- mýkjandi ósigur fyrir harölinumönnum eftir aö óviröingaroröum var æpt aö honum frá ræöustóli I rússneska þing- inu. Haröllnuandstæöingurinn Mikhail Tsélnakov kraföist þess aö Jeltsln yröi rekinn eftir aö hann haföi sagt þingfull- trúum aö forsetinn heföi eyöilagt efna- haginn og brotiö stjómarskrána. Ahyggj- ur vegna pólitiskrar framtlöar Jeltsins hækkuöu dollarann i þaö hæsta sem hann hefur veriö i 11 mánuöi gagnvart þýska markinu. SARAJEVO Krafist breytinga á friðarlandabréfi Alþjóöleg friöaráætiun fyrir Bosnlu var i hættu I gær þegar forystumenn tveggja af striöandi týlkingunum þrem I júgó- slavneska lýðveldinu fynverandi, kröfö- ust breytinga á markalinum f tillögunum. PARlS - Alþjóðlegu sáttasemjaramir Cyras Vance og Owen lávaröur reyndu aö auka þrýsting á Bosnlu-Serba um aö fallast á friöaráætlun þeirra meö þvi aö hitta Slobodan Milosevic Serbiuforseta aö máli. RÓM Amato varð fyrir áfalli Giuliano Amato, forsætisráöherra Italiu, á I vök aö verjast og I gær varö áætlun hans um aö bjarga efriahag landsins frá áhrifúm risastórs spillingarhneykslis fyrir áfalli I þinginu. Stjómarandstööuflokkar kröföust þess aö hann segöi af sér, gagnspillingarfögregla tók þrjá iönjöfra til viöbótar fasta og Amato komst aö þvi aö mikilvæg þingnefnd hefði sameinast gegn honum. PHNOM PENH 34 Víetnamar drepnir Byssumenn drápu a.m.k. 34 óbreytta borgara af vietnömskum ættum, þ.á m. konur og böm sem vom að horfa á myndband, I árás á ffjótandi þorp f norð- vesturhluta Kambódlu, aö þvi er Sam- einuöu þjóöimar skýröu frá I gær. KAlRÓ Nýjar hugmyndir um að höggva á hnútinn Sýriendirtgar og Egyptar útfæröu nýjar hugmyndir til aö reyna aö leysa krepp- una viö Israel vegna brottrekstrar415 Palestlnumanna ffá Israel, og aö hleypa nýju lifi I friöarviöræöur um Miö-Austur- lönd sem áætlaö er aö hefjist 20. april, aö sögn sýrfenska utanrlkisráöherrans i gær. HONG KONG Kínverjar stöðva ræöu Pattens Á sföustu stundu beittu Kinverjar sér varöandi pólitiska framtiö Hong Kong og komu i veg fyrir fyrirhugaöa yfirlýs- ingu frá Chris Patten rikisstjóra um að hann myndi halda áfram aö koma i gegn lagafrumvarpi sinu um lýöræöis- legar umbætur. MANAMA írakar neita aö geffa upplýsingar Háttsettur eftiriitsmaöur S.þ. sagöi i gær aö (rakar neituöu enn aö leggja fram mikilvægar upplýsingar um þá sem hafa séö þeim fyrir hlutum i kjamorkuáætiun sfna. En eftirlitsmaöurinn, griski vísinda- maöurinn Dimitri Penitos, sagöi frétta- mönnum að Irakar heföu fallist á aö skrá niöur á næstu 15 dögum þá aö- stööu sem nýtt er viö áætlunina. GAZA Hnífsstungur og berserksgangur Arabar særöu tvo Gyöinga meö hnífs- stungum og Palestinumenn sögöu Gyö- ingalandnema hafa gengiö berserks- gang I bæ á hemumda Gaza- svæðinu Igær. PEKING Sprenging drap 17 Sprenging i orkuveri f héraöinu Zheji- ang I austurhluta Klna varö a.m.k. 17 manns aö bana og særöi 25 segir I ffétt frá opinberu fréttastofunni Xinhua. DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.