Tíminn - 13.03.1993, Síða 3
Laugardagur 13. mars 1993
Tíminn 3
Bændur eru
langlífari
en aðrir
HENTU EKKIBILUÐUM HLUTUM ■ SPURÐU OKKUR FYRST
RENNISMIÐI
Viö viljum leysa vanda þinn
velkominn vertu vinurinn
FRÆSIVINNA - SLÍPUN - VÉLAVIÐGERÐIR
X Endurbyggjum bensín- og díselvélar.
X Slípum sveifarása, borum blokkir.
X Réttum af höfuðlegusæti í blokkum.
X Lögum legusæti og kambása í heddum.
X Breytum og endurnýjum drifsköft.
X Plönum hedd, blokkir o.fl.
X Rennum ventla og ventilsæti.
X Lögum legu- og slitfleti með stál-, kopar-,
keramikefnum o.fl.
X Margs konar nýsmíði.
Allt þetta og margt fleira
íslenskir bændur eru langlífari en
gengur og gerist og dauösföll vegna
illkynja æxla, hjarta- og æðasjúk-
dóma, öndunarfærasjúkdóma og
slysa eru fátíðari þeirra á meðal en
annarra. Rannsóknir á bændum í
öðrum löndum gefa svipaða niður-
stöðu. Þetta er niðurstaða Vil-
hjálms Rafnssonar og Hólmfríðar
Gunnarsdóttur, sem unnin var fyrir
nokkrum árum. Rannsóknin heitir
„Dánarmein bænda á íslandi 1977-
1985“.
Þó að bændur hafi lægri dánaror-
sakir en aðrir, þegar borið er saman
við heildina, þá eru til þeir sjúkdóm-
ar sem herja í meira mæli á bændur
en aðra. Fleiri bændur deyja úr hvít-
blæði og krabbameini í húð, maga
og blöðruhálskirtli en almennt ger-
isL
Langlífi bænda hefur verið reynt að
skýra á þann hátt, að þeir temji sér
hollari lífshætti en aðrir. Þeir deyi
síður úr hjarta- og æðasjúkdómum
vegna þess að þeir reyki og drekki
minna, en hreyfi sig meira en aðrir.
Þess ber að geta að þar sem starf
Beinar greiðslur til
bænda eru jafnháar
virðisaukaskatti af
búvörum:
Er hægt
aö afnema
vask. af
búvörum?
I ræðu við setningu Búnaðarþings
vakti Halldór Blöndai landbúnaðar-
ráðherra athygli á því að sú upp-
hæð, sem innheimt er vegna virðis-
aukaskatts af innlendum búvörum,
er nánast sama talan og fer í beina
framleiöslustyrki til bænda. Ef
virðisaukaskattur af búvörum væri
felldur niður, kostaði það ríkissjóð
rúmlega 4,5 milljarða, en beinir
framleiðslustyrkir til bænda vegna
framleiðslu yfirstandandi árs eru
ríflega 4,8 milljarðar króna.
Ráðherra sagði þetta án þess að
velta þeirri spumingu upp hvort
gerlegt sé að afnema virðisaukaskatt
af búvörum og afnema um leið bein-
ar greiðslur til bænda. Þessi spum-
ing getur þó vart talist óeðlileg.
Verði þetta gert, vinnst a.m.k.
tvennt: Neytendur fá búvömr á 25%
lægra verði, sem væntanlega yki
sölu þeirra. Jafnframt væri að ein-
hverju leyti slegið vopn úr höndum
andstæðinga íslensks landbúnaðar,
sem gagnrýna „styrki" til hans.
Landbúnaðarráðherra minntist á í
ræðu sinni að víða erlendis séu mat-
vömr undanþegnar virðisauka-
skatti. Hann nefndi England sér-
staklega í þessu sambandi. -EÓ
bóndans er erfitt, má ætla að þeir
sem ekki em heilsuhraustir hætti
búskap og snúi sér að öðmm störf-
um. Þetta hlýtur að hafa einhver
áhrif á niðurstöðuna þegar dánar-
mein bænda er skoðað. -EÓ
VELAVERKSTÆÐIÐ EGILL HF.
SMIÐJUVEGI 9A KÓPAVOGI - SÍMI. 91-44445
í BÆNDATRYGGINGU SJÓVÁ-ALMENNRA
SAMEINAST EINKATRYGGINGAR
FJÖLSKYLDUNNAR OG VÁTRYGGINGAR
SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM LANDBÚNAÐARINS
Bændatrygging SJÓVÁ-ALMENNRA er
nýjung sem gerir tryggingamál bænda bæði
einfaldari og hagkvæmari. Þar er sérstakt tillit
tekið til þeirrar sérstöðu sem skapast af því að
bændur stunda vinnu sína í mjög nánum
tengslum við heimili sitt — oftast með fjölskyldu
sinni. Atvinnurekstrartrygging vegna búsins
ásaint tryggingum sem fjölskyldan þarfnast em
settar saman á eitt tryggingarskírteini og
afhentar í einni möppu. Þannig fæst góð
heildarsýn yfir tryggingarmálin og þar með
ömggari og betri trygging.
SJOVAOdALMENNAR
Kringlunni 5, sími 91-692500