Tíminn - 13.03.1993, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Laugardagur 13. mars 1993
Birgðir land-
búnaðarvara
minnkuðu á
síðasta ári
B
Framlelðslc og sala helstu búvara innanlands í desember 1992.
% Breyting frá fyrra ári
Vörutegund kg Des. mánuður Síðustu 3 mánuðir Síðustu 12 mánuðir Des. mánuður 3 12 mán. mán. Hlutdeild kjötteg. % 12 mán.
Fraraleiðsla: Kindakjöt. 4.085 5.971.168 8.597.466 11,5 -6,9 -7,6 50,5
Nautakjöt 235.812 909.585 3.377.879 38,6 15,8 12,7 „ 19,9
Svínakjöt 266.521 759.579 2.643.327 0,6 4,2 1,9 15,5
Hrossakjöt 86.600 537.653 795.499 -38,9 -1,0 9,5 4,7
Alifuglakjöt 149.788 419.541 1.602.253 43,3 9,1 2,8 9,4
Samtals kjöt 742.806 8.597.526 17.016.424 8,5 -2,9 -1,0 100,0
Innvegin mjólk 8.296.577 23.818.156 99.722.142 2,6 -0,7 -5,5
Egg 196.598 618.229 2.425.253 -12,9 -3,4 4,8
Sala:
Kindakjöt 444.199 1.919.400 7.976.412 12,5 -7,8 0,4 49,0
Nautakjöt 272.893 857.508 3.355.303 27,9 16,8 7,5 20,6
Svínakjöt .290.135 765.077 2.645.460 7,3 2,7 2,1 16,3
Hrossakjöt 83.189 274.410 661.023 57,0 15,9 -0,2 4,1
Alifuglakjöt 180.157 450.252 1.632.517 16,8 -3,5 3,0 10,0
Samtals kjöt 1.270.573 4.266.647 16.270.715 17,0 , 0,0 2,3 100,0
Umreiknuð mjólk 9.901:409 26.491.999 99.226.082 3,5 -0,4 -1,1
Egg 234.190 651.594 2.391.214 9,8 4,9 1,5
irgðir landbúnaðarvara minnkuðu í flestum búgreinum á síð-
asta ári. Enn er hins vegar offramleiðsla í hefðbundnum bú-
greinum, mjólk, kinda- og nautakjöti. Sala á kjöti jókst að-
eins í fyrra, en eilítill samdráttur varð í sölu mjólkur. Um 7,6%
minna var framieitt af kindakjöti í fyrra en á árinu 1991. Sala stóð
hins vegar nánast í stað. Þrátt fyrir að meira samræmi ríki nú milli
framleiðslu og sölu kindakjöts en oft áður, var á síðasta ári framleitt
600 tonnum meira af kmdakjöti en seldist
Framleidd voru 8,6 þúsund tonn af
kjöti, en salan var um 8 þúsund
tonn. Birgðir kindakjöts um áramót
voru 519 tonnum minni en á sama
tíma fyrir ári.
Mjólkurframleiðsla síðustu tvö ár
hefur verið talsvert meiri en salan. Á
síðasta ári stóðst sala og framleiðsla
nokkurn veginn á, var rúmlega
99.000 þúsund lítrar. Birgðir mjólk-
urvara um áramót voru sem svarar
18.415 þúsund lítrum mjólkur, sem
er 2.314 þúsund lítrum minna en á
sama tíma árið áður.
Framboð á nautakjöti hefur verið
langt umfram eftirspurn allt síðasta
ár. Nautgripaframleiðendur brugð-
ust við með því að lækka verðið.
Enn eru sláturgripir of margir og
birgðir jukust einnig um 60 tonn á
síðasta ári.
Staðan á svínakjötsmarkaðinum er
góð. Framleiðsla og sala stenst á, er
um 2.600 tonn. Birgðir um áramót
voru aðeins um 2,6 tonn. Um ára-
mót voru birgðir hrossakjöts hins
vegar 250 tonn, sem er svipað og ár-
ið 1991. Birgðir alifuglakjöts voru
um áramót 117 tonn, sem er 30
tonnum minna en árið áður. Birgðir
eggja jukust hins vegar um 21 tonn
í fyrra og voru um áramót 54 tonn.
-EÓ
TfMANí > . /
Birgðir landbúnaðarafuröa hafa minnkaö f flestum búgreinum. 7,6% samdráttur varð á síðasta ári í kinda-
kjötsframleiðslu frá árinu á undan, en sala stóö nánast í stað. Á myndinni er Hilmar Jónsson matreiðslumaö-
ur aö matreiða lambakjöt. Tímamynd Árni Bjarna
FEUA
DISKASLÁTTUVÉLAR
Vinnslubreidd 2,4 m. Léttbyggðar, aðeins 375 kg.
' , ,/ ■>-; i'? J . V V,;' v V > >
: • • f mm •
Vökvatjakkur lyftir sláttuvélinni í flutningsstöðu án
þess að rýra framþunga dráttarvélarinnar.
Afköst allt að 2,7 hektarar á klst.
Lítil orkuþörf.
Bændur, athugið:
Sérstakt kynningarverð
G/obus?
Lágmúla 5, s.681555
ISLENSK DRATTARBEISLI
fyrir flestar gerðir bíla. Ásetning á staðnum. Samþykkt af Iðn-
tæknistgfnun og Bifreiðaskoðun íslands. Póstsendum.
Áratugareynsla. Gerið verðsamanburð.
Veljum íslenskt
Hestakerrur - vélsleðakerrur - jeppa- og fólksbílakerrur.
Allir hlutir í kerrur og vagna.
Veljum íslenskt
Traktorsvagnar - sturtuvagnar
Eigum til afgreiðslu okkar sterku og endingargóðu sturtuvagna,
sem eru hannaðir og smíðaðir fyrir íslenskar aðstæður. Gott
verð og greiðslukjör. Varahlutaþjónusta fyrir alla okkar framleiðslu.
Veljum íslenskt
VÍKUR-VAGNAR,
Laufbrekku 24 (Dalbrekkumegin),
símar 91-43911 - 91 -45270 - 91 -72087.