Tíminn - 13.03.1993, Blaðsíða 9
Laugardagur 13. mars 1993
Tíminn 9
Tölvumál bænda:
Fjárhagsbókhald
fyrir bændur
Bændur eru æ meir að vakna til vitundar um hve tölvutæknin
getur nýst á býlum og hefur tölvueign bænda stóraukist á síð-
ustu misserum. En hveraig geta tölvur nýst þeim? Hugbún-
aðarfyrirtækið Kora hf. hefur hannað fullkomin en sáraeinföld fjár-
hags-,viðskipta- og birgðabókhaldsforrit sem nýtast bændum að
fullu. Um er að ræða fullkomið fjárhagsbókhald sem sérstaklega er
sniðið að þörfum bænda. Þá er hugbúnaðurinn upplagður fyrir
ferðaþjónustubændur.
Korn hf. býður upp á pakka sem
inniheldur fjárhagsbókhald, við-
skiptabókhald, sölukerfi og
birgðabókhald og dugar það öll-
um venjulegum bændabýlum. Sá
pakki kostar um 19 þúsund krón-
ur.
Það kann að vaxa mörgum nokk-
uð í augum, sem sjá fyrir sér
mikla vinnu við innslátt og þar
frameftir götunum, en Guðjón
Magnússon framkvæmdastjóri
benti á að á hefðbundnum býlum
væri vinnan við innfærslu á bók-
haldi og fleira uppundir ein
klukkustund á degi hverjum.
Tölvuvinnsla sparaði mikla papp-
írsvinnu og kostnað við endur-
skoðun.
Hugbúnaðurinn býður uppá að
hægt sé að gera uppgjör með til-
liti til virðisauka, hvort sem er á
tveggja eða sex mánaða fresti,
eins og flestir bændur þurfa að
Bændur þrýsta á ríkis-
valdið að standa við
lögbundin framlög
vegna jarðabótafram-
kvæmda:
Skuldar
71 milljón
vegna
jarðræktar
Nærri 800 bændur hafa ekki fengið
greidd lögbundin framlög vegna
jarðabótaframkvæmda á árinu
1992. Um er að ræða upphæð sem
nemur 71 milljón króna. Engum
fjármunum er ætlað til að greiða
þessi framlög á fjárlögum þessa árs
og engin fyrirheit hafa verið gefin
um hvenær þau verði greidd. Bún-
aðarþing samþykkti í vikunni álykt-
un þar sem þess er krafist að Al-
þingi og ríkisstjóm verji fjármun-
um á fjárlögum til jarðabótafram-
kvæmda í samræmi við
jarðræktarlög.
Nokkur umliðin ár hefur orðið
verulegur dráttur á greiðslu fram-
laga vegna jarðabótaframkvæmda.
Þess eru dæmi að bændur hafi þurft
að bíða eftir greiðslum í tvö til þrjú
ár.
Flestir sem rétt eiga á jarðræktar-
framlögum eiga það vegna túnrækt-
ar og framræslu túna. Búnaðarþing
bendir á að fimm framkvæmdaliðir,
þ.e. gróðurhús, áburðarhús, garð-
ávaxtageymslur, hlöður og vatn-
sveitur, sem eiga að njóta samtals 25
milljóna króna framlags, hvíla mjög
þungt á viðkomandi bændum.
Búnaðarþing leggur jafnframt
áherslu á að allar jarðabætur séu
teknar út með því að ganga frá
skráningu þeirra svo að bændum sé
ekki mismunað við greiðslu jarða-
bótaframlags. -EÓ
gera. Guðjón segir að búnaðurinn
sé mjög einfaldur í notkun og
með honum fylgi vandaðar leið-
beiningar á íslensku. Hann sagði
ennfremur að fyrir óvanan mann
tæki það um tvær til fjórar kvöld-
stundir að læra á búnaðinn.
Guðjón sagði að með notkun
þessa hugbúnaðar ættu bændur
mun auðveldara með að fylgjast
með kostnaði. Þeir gætu mjög
auðveldlega aðgreint hvern þátt
búskaparins og á þann hátt fylgst
með kostnaði og arðsemi hverrar
greinar fyrir sig.
ggNÝ 94
w nn
LINA FRA
FIATAGRI
Nýtt íburðarmeira, rúmgott ökumannshús með farþegasæti.
Nýir gírkassar með samhæfðum vendigír og skriðgír. 20 gírar áfram og 12 aftur-
ábak. Ökuhraði 0,4-40 km/klst.
Hi-Lo gírkassi með samhæfðum vendigír, 24 gírar áfram og 12 afturábak, vökva-
skiptum yfirgír (overdrive). Ökuhraði 1,6-40 km/klst.
Nýtt 3ja hraða aflúttak með spamaðargír og stafrænum snúningshraðamæli.
Nýjar vökvadriflæsingar á öllum hjólum, 100%, með einum takka í mælaborði.
Ný vökvainnsetning á fjórhjóladrifi.
Nýr bremsubúnaður á öllum hjólum.
Nýtt ytra útlit og rafgalvanhúðuð yfirbygging.
Allar nánari upplýsingar
hjá sölumönnum okkar
og umboðsmönnum um land allt.
Gbbus$
Lágmúla 5, s:681555