Tíminn - 13.03.1993, Síða 16
16 Tíminn
Laugardagur 13. mars 1993
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS
Laugavegi 120,105 Reykjavík
Sími 91-25444
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1994 þurfa aö berast Stofnlánadeild
landbúnaðarins fyrir 15. september næstkomandi.
Umsóknskal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þarsem meðal annars er
tilgreind stærð og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar og búrekstrarskýrsla, svo og veðbókar-
vottorð. Þá skal fylgja umsókn búrekstraráætlun til 5 ára og koma þarf fram hverjir
væntanlegir fjármögnunarmöguleikar umsækjanda eru.
Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1994 þurfa að senda inn
umsóknir fyrir 31. desember nk.
Allar eldri umsóknir falla úr gildi 15. september nk.
Það skal tekið fram, að það veitir engan forgang til lána þó að framkvæmdir séu hafnar
áður en lánsloforð frá deildinni liggur fyrir.
Sérstök athygli er vakin á því að Stofnlánadeild landbúnaðarins ér óheimilt lögum
samkvæmt að fara á eftir öðrum veðhöfum en opinberum sjóðum. Lántakendum er sérstak-
lega bent á að tryggja sér veðleyfi vegna væntanlegrar lántöku frá lífeyrissjóðum öðrum en
Lífeyrissjóði bænda og öðrum þeim aðilum, sem eru með veð í viðkomandi jörð.
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS
SÁÐVÖRUR
Eins og áður munum við flytja inn tvær teg-
undir af byggi og eru þær ræktaðar sérstak-
lega fyrir Globus hf., eftir margvíslegar prófan-
ir hjá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins.
BYGG TIL ÞROSKUNAR
Mari:
Þessi tegund er sænsk að uppruna og tilheyrir afbrigðið
Svalöf- fyrirtækinu í Svíþjóð. Þetta bygg er aðeins ræktað
fyrir Globus og hefur svo verið í fjölda ára. Mari er tveggja
raða bygg og er sú tegund sem reynst hefur að jafnaði
uppskerumest og hentar vel í íslensku veðurfari. Vegna
hagstæðra samninga við framleiðanda og lágs gengis
sænsku krónunnar er verðið nú aðeins:
Verð án vsk. 79 kr. pr. kg.
VOH 2845:
Hér er um að ræða sex raða bygg frá Norður-Noregi sem
gefiö hefur langmesta uppskeru á íslandi í tilraunum hjá
RALA og virðist það vera eitt það álitlegasta til ræktunar á
íslandi. Við fáum takmarkað magn af þessu byggi í vor.
Verð án vsk. 94 kr. pr. kg.
Það er uppskeran sem skiptir máli og þar hafa okkar af-
brigði sannað ágæti sitt við íslenskar aðstæður.
Þar sem um takmarkað magn er að ræða, vinsamlegast
gerið pantanir sem fyrst. Eigum einnig fyrirliggjandi Adda-
vallarfoxgras, sólhafra og vetrarhafra.
Globus hf.
Búvéladeild
Globusf
^Lágmúla 5 Reykjavík
Sími 681555i
Búnaöarþing ályktar um byggðaáætlun
Byggðastofnunar: ^
EKKI MA
DRAGA
ÚR ÞJÓN-
USTU
Búnaðarþing mótmælir, í ályktun
um stefnumótandi áætlun í byggða-
málum til næstu fjögurra ára, öll-
um hugmyndum um að dregið
verði úr þeirri þjónustu sem nú er
veitt á landsbyggðinni á ýmsum
sviðum.
Þingið telur óhugsandi að beita
slíkri aðgerð til þess að hraða því að
byggð leggist af á ákveðnum svæð-
um. Þingið telur hins vegar til bóta
að áætlun sé gerð til fjögurra ára
um framkvæmdir hins opinbera á
sviði samgöngumála, skólamála,
heilbrigðismála o.s.frv. út frá heild-
arsýn.
Búnaðarþing telur að við gerð
svona áætlunar hljóti að vera byggt
á þeirri stefnu sem mörkuð verður í
atvinnu- og framleiðslumálum.
Þjónustan hljóti að byggjast á því
hvar atvinnustarfsemin kailar á
þjónustu. Stefnumörkun á sviði at-
vinnumála sé því nauðsynlegur und-
anfari áætlanagerðar um ýmiss kon-
ar þjónustu.
Búnaðarþing bendir á þá staðreynd
í ályktun sinni að landbúnaðurinn
er annar stærsti atvinnuvegurinn á
landsbyggðinni. Þó sé hann vart
nefndur í skýrslu Byggðastofnunar
um byggðaáætlun til næstu fjögurra
ára.
Þá mótmælir Búnaðarþing hug-
myndum um að Framleiðnisjóður
landbúnaðarins myndi stóran hluta
af því fjármagni sem ætlað sé til at-
vinnumála og þróunarstarfsemi á
vegum Byggðastofnunar almennt
séð. Framleiðnisjóður gegni
ákveðnu hlutverki við atvinnuþróun
í sveitum og sé markaður tekjustofn
með samningi milli bænda og ríkis-
stjórnarinnar. -EÓ
-------------------\
Utboð
Vegmálun á Norður- og Aust-
urlandi
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum
í vegmálun á Norður- og Austurlandi.
Helstu magntölur: Akreinalínur
456.000 m og markalínur 57.800 m.
Verki skal lokið 15. september 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vega-
gerð ríkisins í Borgartúni 5, Reykjavík
(aðalgjaldkera), frá og með 17. þ.m.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir
kl. 14:00 þann 29. mars 1993.
Vegamálastjóri
ÚTBOÐ
Landgræösla ríkisins óskar eftir tilboöum I gerö 7 km langrar
rafgiröingar á Reykjanesi, frá Kleifarvatni að Sýslusteini.
Útboösgögnin fást afhent hjá Landgræðslu ríkisins í Gunnars-
holti og í héraösmiðstöö Landgræöslunnar i Reykjavik, Lauga-
vegi 120, gegn kr. 1.500,- gjaldi.
Tilboðum skal skila til Landgræöslu ríkisins, Gunnarsholti, 850
Hellu, fyrir kl. 14:00, þann 20. apríl 1993. Tilboöin verða opnuö I
Gunnarsholti kl. 14:15 sama dag.
Frekari upplýsingar eru veittar I slmum 98-75500 og 91-29711.
Landgræösla ríkisins, Gunnarsholti, 850 Hellu.
RAUTTUfcn, RAUTT1
uós r* ' mÉUMFERÐAR ^ Uráð UÓS/
—S