Tíminn - 13.03.1993, Side 12
12Tíminn
Laugardagur 13. mars 1993
Laugardagur 13. mars 1993
Tíminn 13
- HEYÞYRLA
- SLÁTTUÞYRLA
Ingvar
I I | | Helgason hf- vélasala
-= -_r Sævarhöföa 2
---- sími 674000
Hagstætt verö og greiöslukjör
M iilfp .V
BUVELAR
marcireyndar við
góðan orðstírá Islandi í áratugi.
KUHN heyvinnuvélarnar hafa löngu áunnið sér traust íslenskra bænda.
KUHN 6f 5000 T heyþyrla, dragtengd, 5,4 m
KUHN GF 5000 M heyþyrla, lyftutengd, 5,4, m
KUHN GA 402 N stjörnumúgavél, 2ja stjörnu, 4,0 m
KUHN GMD 55-diskasláttuvél, 2,0 m
KUHN GMD 66-diskasláttuvél, 2,4 m
Jjft Kverneland
JÚIÍUS Vífill Ingvarsson Tfmamynd Aml Bjama
Júlíus Vífill Ingvarsson, framkvæmdastjóri Ingvars Helgasonar hf. og Bílheima hf:
erum tilbúnir í slaginn
Það hafa orðið miklar breytingar hjá Ingavari Helgasyni hf. á undanförnum
mánuðum því fyrirtækið keypti bifreiða- og búvéladeild Jötuns hf. Tíminn
ræddi við Júlíus Vífd Ingvarsson á þessum tímamótum.
Hvers vegna tekur Ingvar Helgason sig
til og ákveður að hefja starfssemi í bú-
véla- og vinnuvélageiranum?
„Fyrirtækið Ingvar Helgason var stofnað
árið 1956 og hefur undanfarin 30 ár verið
í innflutningi á bifreiðum og frá 1972 á
japönskum bifreiðum. Þessi innflutning-
ur hefur gengið mjög vel og hefur fyrir-
tækinu vegnað vel. Það flutti árið 1989 í
nýtt húsnæði að Sævarhöfða 2. Það hýsir
alla starfsemina sem var áður í tvennu
lagi. Þar fer fram sala á nýjum Nissan og
Subaru bflum, notuðum bflum og vara-
hlutum, auk heildsölu með gjafavörur og
leikföng. Ingvar Helgason hf. hefur hins
vegar á undanfömum árum haft augun
opin fyrir möguleikum til að auka fjöl-
breytni þeirra vömtegunda sem fýrirtæk-
ið selur og þjónustar. Það hefur í gegnum
tíðina ýmislegt komið upp á borðið í því
sambandi en þegar sú staða kom upp í lok
síðasta sumars að Sambandið hefði áhuga
á því að selja sínar eigur, þar með talinn
rekstur Jötuns eða fýrirtækið í heild,
vaknaði áhugi okkar. Við athuguðum það
nokkuð gaumgæfilega og komumst að
þetta húsnæöl að Sævarhöfða 2 verður véladeiid Ingvars Helgasonar flutt
því að kaup á véla- og bifreiðadeild Jötuns
myndu henta Ingvari Helgasyni mjög vel.
Undir véladeild heyra stærstu og bestu
umboð á sviði landbúnaðar- og þunga-
vinnuvéla sem völ er á.
Nú eru landbúnaðartæki og þungavinnu-
vélar nýr og óþekktur þáttur fyrir ykkur í
rekstrinum. Renna menn ekki blint í sjó-
inn?
„Það er rétt að þetta er algerlega nýr
þáttur hjá okkur því við höfum ekki selt
landbúnaðartæki en höfum á hinn bóg-
inn haft geysilega mikil samskipti við
bændur því sá hópur er okkar stærsti við-
skiptahópur. Bændur hafa verið mjög
hrifnir af Subam bflunum okkar, auk
jeppa frá Nissan, þannig að við teljum
okkur þekkja þennan viðskiptahóp. Marg-
ir bændur em okkar persónulegu vinir og
við sáum fram á að með því að takast á við
landbúnaðargeirann væmm við ekki í
nokkurri mótsögn við það sem við vomm
að gera áður heldur væri um hreina við-
bót að ræða. Okkar nýju húsakynni að
Sævarhöfða 2 geta auðveldlega rúmað
landbúnaðar- og þungavinnuvélasölu, án
þess að hafa áhrif til þrengingar á starf-
semi hússins.
Hvemig verður sölu þeirra bifreiðateg-
unda sem bifreiðadeild Jötuns hafði um-
boð fyrir háttað?
,3ifreiðadeild Jötuns hafði umboð fyrir
bfla frá General Motors, Izusu og Opel,
sem em reyndar öll samtengd fyrirtæki.
Við höfum séð ýmsa framtíðarmöguleika
hér á landi. Opel er einn af mest seldu bfl-
um í Evrópu og General Motors stærsti
bflaframleiðandi í heiminum. Upprisa
þessara umboða mun kannski ekki gerast
á einum degi en með tíð og tíma teljum
við okkur sjá ýmsa vaxtarmöguleika. Auk
þess höfum við með þessum breytingum
fengið í okkar rekstur bifreiðaframleiðend-
ur frá fleiri en einni heimsálfu og teljum
okkur þar með hafa fleiri egg í körfunni."
Hvemig verður þjónustunni á landbúnað-
artækjunum og vinnuvélunum háttað?
Verða gerðar viðamiklar breytingar á
skipulagi þeirra mála frá því sem áður
var?
„Nei, við höfum ekki hugsað okkur að
gera neinar stórvægilegar breytingar á
umboðsmannakerfi því sem var við lýði
hjá Jötni. Við höfum sjálfir hjá Ingvari
Helgasyni hf. fullkomið umboðsmanna-
kerfi í kringum landið. Við munum hins
vegar ræða vandlega við þá umboðsmenn
sem voru hjá Jötni og það er mögulegt að
einhveijar breytingar verði gerðar. Þær
breytingar verða ekki gerðar nema að
vandlega athuguðu máli. Við lítum svo á
að Jötunn, sem hefur haft mikla og góða
markaðshlutdeild í sölu á landbúnaðar-
tækjum, njóti mikillar velvildar hjá bænd-
um og mikilvægt sé að þeir hafi tengiliði
inni í fyrirtækinu og þjónustugeira þess.
Það er mikilvægt í viðskiptum að samband
sé persónulegt og að menn geti snúið sér
til þeirra manna sem þeir þekkja og hafa
gert viðskipti við gegnum árin. Þetta vilj-
um við leggja mikla áherslu hjá hinni nýju
véladeild Ingvars Helgasonar hf. Með því
að halda að mestu leyti áfram því starfi
sem unnið var hjá Jötni vonumst við til
þess að bændur verði fyrir sem minnstri
Framhald á næstu bls.
Gæöavara sem allir bændur þekkja
TIL AFGREIÐSLU SAMDÆGURS
KVERNELAND UNDERHAUG SILAWRAP
rúllupökkunarvélin með filmutengi hefur valdið bylt-
ingu í pökkun þurrheys og votheys. Á öllum vélun-
um er nú snúningsborðið opnara, svo ekki er hætta
á að hey safnist fyrir.
SILAGRIP baggagreipin fer
betur með baggana við lestun og
hleðslu og hlífir umbúðunum.
; TT Ingvar
| | | I Helgason hf. vélasala
~T_IÍ—=—Sævarhöfða 2
sími 674000
CLAAS R46 rúllubindivélin er algengasta rúllubindivélin á
íslandi. íslenskir bændurþekkja vel CLAAS þjónustuna.
CLAAS R46 hentar íslenskum aðstæðum sérlega vel,
fíngerðu og fremur þungu heyi.
Meðalþess útbúnaðar, sem er
innifalinn í verði þessara véla en
telst gjarna til aukabúnaðar hjá öðr-
um, má nefna:
I Búnað í ekilshúsi dráttarvélar
sem gefur Ijós- og hljóðmerki þegar
bagginn er tilbúinn, svo stjómandi
geti byrjað að binda.
0 Vökvalyftu á sópvindu.
0 Matara fyrir sópvindu, sem m.a.
kemur í veg fyrir að hey fiækist
eða stöðvist í aðfærslustokki.
0 Sérstakan búnað, sem kemur i
veg fyrír að smágert hey slæðist
með.
0 Sjálfsmurðar keðjur afyfirstærð.
0 Breið dekk, 15.5/55X17.
0 Baggasparkara.
0 Landhjól á sópvindu.
0 Tvöfaldan bindibúnað.
0 Baggahólf, sem haldið ersama
með vökvaþrýstingi en ekki læs
ingu, svo ekki er hætta á
skemmdum þótt oftroðið sé i
vélina.
PZ eru nú mest seldu heyvinnu-
tækin á íslandi.
Þau eru viðurkennd gæðavara á góðu verði og endingin er frábær.
Tegund
PZCM 135 Sláttuþyrla, 1,35 m
PZCM 164 Sláttuþyrla, 1,65 m
PZCM 165 Sláttuþyrla, 1,65 m
PZ CM 184 Sláttuþyrla, 1,85 m
PZ CM 186 Sláttuþyrla, 1,85 m
*PZ TK 186 Knosari
*PZ CM 212 Sláttuþyrla, 2,10 m
*PZ TK 212 Knosari
*PZ CM 265 Sláttuþyrla, 2,65 m
*PZ TK 265 Knosari
PZ FANEX 400E Heyþyrla, dragtengd, 4,0 m
*PZ FANEX 400D Heyþyrla, lyftutengd, 4,0 m
PZfANEX 500A Heyþyrla, dragtengd, 5,0 m
PZ FANEX 500D Heyþyrla, lyftutengd, 5,0 m
*PZ FANEX 641D Heyþyrla, lyftutengd, 6,4 m
*PZ FANEX 730A Heyþyrla, dragtengd, 7,3 m
*PZ FANEX 730D Heyþyrla, lyftutengd, 7,3 m
PZ ANDEX 331, Stjörnumúgavél, 3,3 m
PZ ANDEX 381, Stjörnumúgavél, 3,8 m
PZ CZ 340 Súperrakstrarvél, 3,3 m
PZ CZ 450 Súperrakstrarvél, 4,5 m
*PZ HAYBOB 300, Snúnings- og rakstarv. 3,0 m
* merkt þýðir að vélarnar þarf að sérpanta.
- STJÖRNUMÚGAVÉL