Tíminn - 19.08.1993, Blaðsíða 1

Tíminn - 19.08.1993, Blaðsíða 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn-..68-76-48—Frétta-Tíminn...Frétta-síminii—68-76-48... Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-48 HrainH 19. ágúst 1993 154. tbl. 77. árg. VERÐí LAUSASÖLU KR. 125.- Halldór Ásgrímsson um misvísandi ummæli sjávar- og utanríkisráðherra á undirbúningsstigi samninga við Norðmenn: Nánast bann- orð sem veikir okkar stöðu „Það er afar óheppilegt þegar ráðherrar tala sitt á hvað í milli- ríkjadeilum. Það er nánast bann- orð og veikir okkar stöðu,“ segir Halldór Ásgrímsson og vísar til misvísandi ummæla sjávar- og utanríkisráðherra um skipti á veiðiheimildum við Norðmenn. Halldór hefur farið fram á að sjávarútvegsnefnd Alþingis verði kölluð saman. Haft var eftir Þorsteini Pálssyni sjáv- arútvegsráðherra að ekki kæmi til greina að veita Norðmönnum veiði- heimildir f íslenskri fiskveiðilögsögu. Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra hefur sagt að samningavið- Lögreglan í Kefiavík: Klippti af 20 bílum Lögreglan á Stór- Reykjavíkur- svæðinu og á Suðumesjum keppist nú við að færa bíla til skoðunar og klippa númerin af þeim sem við á. Lögreglan í Keflavík var búin að klippa af 20 bílum í gær og þykir henni það heldur mikið. -CKG. Disiiiipinri í Svíþjóð Biskup fslands, herra Ólafur Skúlason, er nú í Svíþjóð f tál- efni af því að 400 ár eru síðan Svíar ákváðu að leggja biblíuna, trúarjátningar kirkjunnar og Augsborgarjátningu Lútherssið- ar tit grundvallar kenningu og boðun kirkju sínnar. Hátfðahöld af þessu tiiefhi hafa staðið mestallt þetta ár og fer iokaþáttur þeirra fram í Uppsöi- um 20.-23. ágúst Cestir verða frá öilum kirkjum Norðurland- anna og víðar að. Þannig verður Desmond Tutu, biskup f S-Afr- slands tekur þátt f flutníngi sérstakrar hátíðar- guðsþjónustu í dómkirkjunni í Uppsölum á sunnudag. Þátttak- endur í henni verða m.a. fúlltrú- : ar grísku rétttrúnaðaikirííjunn- ar og þeirrar katólsku. Biskup fslands messar í norsku kírkjunni í Gautaborg fyrir ís- lendinga sem þar búa sunnu- daginn 29. ágúst kl. 14 en hann og kona hans, Ebba Sigurðar- dóttir, munu auk þess heim- sækja íslenska sjúklinga á Sahlgranska sjúkrahúsinu sem þar gangast imdir líffæra- ræður við Norðmenn muni meðal annars snúast um gagnkvæm skipti á veiðiheimildum ríkjanna. Aðspurður um þennan skoðana- ágreining sjávar- og utanríkisráð- herra segir Halldór: „Það er afar óheppilegt þegar ráðherrar tala sitt á hvað í milliríkjadeilum. Það er nánast algjört bannorð og veikir okkar stöðu. Mér vitanlega höfum við enga fiskistofna til að láta af hendi. Við er- um þegar með fúllnýtta stofna,“ segir Halldór. Þá bendir hann á að Norðmenn hafi nú þegar viss réttindi í lögsögu ís- lendinga hvað varðar sameiginlegan loðnustofn við Jan Mayen. „Ég tel ekki að það komi til greina að við lát- um eitthvað af hendi á móti veiðum í Smugunni. Hins vegar kæmi til greina að ræða skipti á þessari loðnu og veiðum innan 200 mílna lögsögu Norðmanna," segir Halldór. „Menn hljóta að verða að koma sér saman um samningsumboðið og hafa vit á því að vera ekki að tala um það í fjölmiðlum og rífast um það sín á milli áður en til samninga er gengið. Þá hafa menn nú litla samningsstöðu en það væri nú eftir öðru hjá þessari ríkisstjóm," segir Halldór. Um afstöðu sína til samningavið- ræðna segir Halldór: „Ég sagði í upp- hafi þessarar deilu að það væri rétt að leita lausna á henni með samningum við Norðmenn," segir Halldór og kveðst sáttur við þá niðurstöðu. Hann telur að búast megi við mjög erfiðum samningaviðræðum. „Ég legg áherslu á að menn reyni að hafa sem best samráð um þá samninga. Ríkisstjómin hefur fram að þessu ekki haft neitt samband við nefndir þingsins um málið,“ segir Halldór en hann hefur farið fram á að sjávarút- vegsnefnd Alþingis komi saman til að ræða málið. „Ég tel það mikilvægt að mál eins og þetta sé rætt í trúnaði við þingnefnd- ir og við stjómarandstöðu," segir Halldór. -HÞ bráðliggi á að komast að: „Aðstandendur þeirra sem eru á biðlista hafa hringt f okkur nærri skelfingu lostnir eftir að fréttist að deildin yrði ekki opnuð. Það er mjög skiljanlegt því hér er um að ræða aldraða einstaklinga sem geta ekki dvalið lengur í sínu eðlilega umhverfi,“ segir Gréta Guðmundsdóttir, forstöðumaður hjúkrunarheimilisins Eir. Meðalaldur- þeirra sem vistaðir em á heimilinu er 80-90 ára og sá elsti er 95 ára. Deild með 25 rúm- um var tekin í notkun fyrr á árinu og stóð til að taka jafn stóra deild í notkun 1. október. Eins og Tím- inn hefur greint frá var óskað eft- ir að því yrði frestað og samning- ar yrðu endurskoðaðir. Kristjana Sigmundsdóttir, for- stöðumaður vistunar hjá Félags- málastofriun Reykjavíkurborgar, segir þá sem þyrftu að komast á hjúkmnarheimili eins og Eir vera hátt á annað hundrað. „Stór hluti þeirra dvelur ó öldr- unarlækningadeildum sjúkra- húsanna sem leiðir til þess að þeir sem þurfa að komast þar að í endurhæfingu t.d. eftir beinbrot geta ekki notíð hennar. Heilabil- aðir sjúklingar verða þó verst úti og við sjáum ekki fyrir endann á þessu ástandi," segir Kristjana. Hún segir jafnframt að fjölskyld- ur þeirra sem þurfa að komast að á sjúkraheimiíum búi við mikið álag sem fari sífellt versnandi. „Böm sumra sjúklinga verða að sofa hjá þeim ti) skiptis og leysa upp eigin heimili á meðan. Það em yfirleitt alltaf dæturnar sem lenda í umönnunarhlutverkinu og verða oft á tíðum að fórna vinnunni sökum þessa. Mál aldr- aðra tengjast fyrst og fremst kon- um þvf þær lifa lengur en karlar. Þær geta líka verið ótrúlega seig- ar að hugsa um sjúka eiginmenn heima við þótt þær séu sjálfar farnar að tapa heilsu," segir Kristjana. „Ekki var búið að ákveða hverjir ættu að komast inn á Eir enda fannst okkur það ótímabært meðan þessi óvissa ríkti“, segir Gréta. „Margt af því fólki sem bíð- ur eftir plássi er nú vistað á sjúkrahúsum sem er mun dýrari kostur fyrir ríkið en vistun á hjúkmnarheimili. Ég veit að margir treystu á að komast í þessi 25 rými sem bjóða átti upp á í október." Gréta segir formann fram- kvæmdastjómar Eirar eiga von á fúndi með heilbrigðisráðherra í vikunni þar sem málið verður rætt -GKG. Hluthafafundur Mótvægis hf. í gær: w NY STJORN UTGAFU- FÉLAGS TÍMANS Á hluthafafundi Mótvægis hf, út- gáfufélags um dagblaðið Túnann, var kosin ný stjórn félagsins í stað fyrri stjórnar. Flest atkvæði í stjóm- arkjöri hlaut dr Jón Sigurðsson kennari á Bifröst, 17.680. Næstur honum kom Steingrímur Gunnarsson, leiðsögumaður og kennari, með 17.490 atkvæði, þá Bryndís Hlöðversdóttir lögfræðingur með 17.030 atkvæði, Bjami Þór Osk- arsson lögfræðingur með 16.980 og Steingrímur Hermannsson með 8.910 atkvæði. Aðeins munaði 30 þúsund atkvæðum milli Steingríms og Bárðar Halldórssonar sem hlaut 8.880 atkvæði en hver króna hluta- fjár jafngildir einu atkvæði. Bárður Halldórsson náði kjöri í varastjóm ásamt Sveini Finnboga- syni framkvæmdastjóra og Hrafni Magnússyni, framkvæmdastjóra SAL. Til fundarins var boðað til þess að gera hluthöfum grein fyrir gangi hlutafjársöfnunar sem staðið hefur yfir um skeið, til að afla heimildar hluthafa til að auka hlutafé félagsins í 30 milljónir króna, auk stjómar- kjörsins. A fundinum kom fram í ræðu fráfar- andi stjómarformanns, Steingríms Hermannssonar, að inngreitt hlutafé næmi um 20 milljónum króna sem skiptist milli tæplega 200 hluthafa. —sá 207 afmæli Reykjavík átti 207 ára af- mæli í gær og var ýmis- legt gert til aö halda upp á þaö. Meðal annars hengdi Markús Öm An- tonsson borgarstsjóri upp sérstakt skilti á Lækjargötu 2 sem er eitt af tíu húsum sem valin hafa verið af Árbæjar- safni sem söguleg hús. Tfmamynd Áml BJama

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.