Tíminn - 25.08.1993, Síða 3
Miðvikudagur 25. ágúst 1993
Tíminn 3
Heildarstuðningur til landbúnaðarins minnkað úr um 17 milljörðum árin 1988—1992 niður í 13 milljarða í ár:
Fjórðungur sparnaðarins
rauk út í veður og vind
Vonbrígöi Tímamanns urðu ekki lítil þegar nærrí fjórðungur þess
255 þús. kr. spamaðar sem Hagfræðistofnun HÍ lofaði honum og
hans fjölskyldu nýlega, virtist allt í einu rokinn út í veður og vind.
Nýjar upplýsingar Hagfræðistofn-
unarmanna sýna nefnilega að út-
reiknaður heildarstuðningur til
landbúnaðar, sem var 16,7 millj-
arðar árið 1988, hefur minnkað í
„aðeins" 13 milljarða á þessu ári,
eða um hátt í 60 þúsund krónur á
hans fjögurra manna fjölskyldu.
Og þar með er ekki allt talið, því í
„spamaðinum“, matarinnkaupum
á heimsmarkaðsverði einhvers
staðar í útlöndum, er ekkert tillit
tekið til kostnaðar af flutningum
til landsins. Má td. benda á að
matvæli sem flutt voru inn í fyrra
hækkuðu um rúmlega 16% á leið-
inni til landsins, úr 7,1 milljarði
fob í 8,3 milljarð cif. Sighvatur
Björgvinsson boðaði til frétta-
mannafundar í gær til að svara fyr-
ir þá háværu gagnrýni sem komið
hefúr fram á skýrsluna „Landbún-
aðarstefnan og hagur heimil-
anna“. Vegna hennar skrifaði Sig-
hvatur Hagfræðistofnun HÍ og
óskaði eftir umsögn hennar um
aðfinnslur við skýrsluna. Sömu-
leiðis óskaði hann eftir að stofnun-
in tæki tillit til „þeirra breytinga
sem kunni að hafa verið gerðar á
stuðningi við íslenskan landbúnað
frá þeim tíma sem talnalegar upp-
lýsingar í skýrslunni miðast við og
upplýsi hver verður niðurstaða að
teknu tilliti til þeirra breytinga."
Máli sínu til stuðnings um áreið-
anleika talnanna benda Hagfræði-
stoftiunarmenn á, að þeir byggi
útreikninga sína á gögnum „úr
sjálfu Landbúnaðarráðuneytinu."
Varðandi úreltar tölur frá 1988
benda þeir á, að meðfylgjandi
mynd „sýnir glöggt, að árið 1988
er alls ekki afbrigðilegt og óhæft
til viðmiðunar, því heildarstuðn-
ingurinn er nánast óbreyttur þar
til áhrifa Búvörusamningsins fer
fyrst að gæta árið 1993. Að sjálf-
sögðu geta skýrsluhöfúndar Bú-
vörusamningsins og áhrifa hans í
umfjöllun sinni um ísland, þótt
hann hafi ekki verið kominn til
framkvæmda við gerð skýrslunn-
ar,“ sögðu hagfræðingarnir. Þess-
um áhrifum virðast þeir samt hafa
„gleymt" við kynningu á skýrsl-
unni. Því í fréttatilkynningu til
fiölmiðla þann 4. ágúst s.l. gerðu
þeir alla sína sparnaðarútreikn-
inga út frá gömlu (1988) tölunum
og lofuðu landsmönnum eftirfar-
andi: „Könnunin sýndi að heildar-
stuðningur íslenskra neytenda við
landbúnaðinn nemur samtals 16,7
milljörðum ísl. kr. á verðlagi þessa
árs. Þetta jaftigildir um 255 þús.kr.
á hverja fiögurra manna fiöl-
skyldu, eða sem samsvarar um 7%
heildarútgjalda heimilanna. Með
því að spara neytendum þessa upp-
hæð mætti lækka heildarútgjöld
heimilanna til matvælakaupa um
rúm 40%“.
Þetta var einmitt það atriði sem
hvað best var tíundað í fréttatil-
kynningunni um skýrsluna, í um-
fiöllun fiölmiðla um hana og
gagnrýninni á hana. En eins og
meðfylgjandi mynd Hagfræði-
Slghvatur Björgvlnsson.
stofnunar sýnir einmitt glöggt þá
hefur útreiknaður heildarstuðn-
ingur við landbúnaðinn þegar
lækkað um fiórðung á þessu ári og
sparnaðarmöguleikamir sem lofað
var þá væntanlega samsvarandi.
Heimsmarkaðsverð á landbúnað-
arvörum, sem sparnaðurinn var
miðaður við, er annað atriði sem
deilt hefur verið um. Fræðingar
Hagfræðistofnunar segja stuðning
við landbúnað í alþjóðlegum hag-
skýrslum flokkaðan í tvennt, þ.e.
annars vegar beinan fiármagns-
stuðning stjórnvalda og hins vegar
svonefndan markaðsstuðning.
„Markaðsstuðningurinn er í stuttu
máli munurinn á heimsmarkaðs-
verði eða m.ö.o. sá verðmunur
sem lendir á neytendum vegna
innflutningsvemdar." Það heims-
markaðsverð sem notast sé við í
skýrslunni sé fengið frá OECD,
sem miði tölur sínar við staðfest
Sr. Þórarinn Þór
prófastur látinn
Sr. Þórarinn Þór, fyrrum prófastur
í Barðastrandarprófastsdæmi, lést
síðastliftinn laugardag, 71 árs að
aldri. Sr. Þórarinn fæddist 13.
október 1921 á Akureyri og lauk
hann stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum þar í bæ árið 1943. Hann
nam guftfræði við Háskóla íslands
og lauk embættisprófi árið 1948.
Hann varð sóknarprestur að Reyk-
hólum árið 1948 og síðan á Patreks-
firði árið 1969 til ársins 1987. Hann
var prófastur í Barðastrandarpró-
fastsdæmi frá 1960 til ársins 1987.
Auk þessa gegndi hann aukaþjón-
ustu í öðmm prestaköllum. Sr. Þór-
arinn var skólastjóri Iðnskólans á
Patreksfirði, formaður fræðsluráðs
A-Barðastrandarsýslu og formaður
skólanefndar í Reykhólaskólahverfi.
Hann sat í sáttanefnd á Reykhólum
og á Patreksfirði og einnig í stjórn
Eyrarsparisjóðs. Þá sá Sr. Þórarinn
Þór um áratugaskeið, um gerð
krossgátunnar í Tímanum.
Kona Þórarins, Ingibjörg Þór Jóns-
dóttir, lést árið 1978.
Milljónir
króna
20.000 -
18.000 -
16.000 -
14.000 -
12.000 -
10.000 -
8.000 -
6.000 -
4.000 -
2.000 -
111%
0
Heildarstuöningur til íslensks landbúnaöar
Á föstu verölagi ársins 1993
StuOningur scm % af
Milljónir
króna
20.000
1988
1992
Glænýir útrelkningar Hagfræöi-
stofnunar HÍ sýna aö heildar-
stuðningur til íslensks landbúnað-
ar hefur f ár minnkað um fjórðung
frá því sem hann hefur verið á
undanfömum ámm. Mestu munar
þar um nærri 4 milljarða króna
lækkun á stuðningi stjómvalda.
útflutningsverð afurða frá útflutn-
ingslöndum landbúnaðarvara. Það
sé hins vegar rétt að íslenskir neyt-
endur verði að fara til útlanda til
þess að eiga möguleika á að kaupa
á heimsmarkaðsverði. „Við tökum
ekki tillit til flutningskostnaðar
hingað til lands, en samkvæmt
gögnum frá innflytjendum gæti sá
kostnaður numið 4—5% af út-
söluverði innfluttra landbúnaðar-
vara.“
Að þetta breyti nær engu um
hlutfallslegan samanburð á milli
landa, þar sem heldur ekki er tekið
tillit til flutningskostnaðar í gögn-
um fyrir hin Norðurlöndin, er ef-
laust rétt hjá skýrsluhöfundum.
En samkvæmt skýrslunni áttu all-
ar frændþjóðimar möguleika á að
spara a.m.k. helming og allt upp í
3/4 þess sparnaðar (á mann) sem
okkur íslendingum stóð til boða ef
við hefðum hætt öllum styrkjum
til landbúnaðarins og keypt allar
landbúnaðarvörur á heimsmark-
aðsverði árið 1988.
Aftur á móti hlýtur þetta líka að
breyta þó nokkru þegar kemur að
útreiknuðum spamaði í krónum
talið (255.000 kr. sem þeir sögðu
íslensku fiögurra manna fiölskyld-
una geta sparað við það að allar
landbúnaðarafurðir væm keyptar
á heimsmarkaðsverði, flutta til ís-
lands), árið 1993. - HEI
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi skorar hér með á þá
gjaldendur í Snæfells- og Hnappadalssýslu, sem ekki
hafa staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda með
gjalddaga 1. ágúst 1993 og fýrr, virðisaukaskatti með
gjalddaga 5. ágúst 1993 og fyrr, og tekjuskatti, útsvari í
eignarskatti, sérstökum eignarskatti, gjaldi í fram-
kvæmdasjóð aldraðra, skatti af skrifstofu- og verslunar-
húsnæði, iðnaðarsjóðs- og iðnaðarmálagjaldi, slysa-
tryggingagrjaldi v/heimilisstarfa, launaskatti og trygg-
ingargjaldi, vinnueftiriitsgjaldi, atvinnuleysistryggingar-
gjaldi, slysa-tryggingargjaldi atvinnurekenda,
aðflutningsgjöldum, skráningargjaldi skipshafna, skipa-
gjöldum, lesta- og vitagjaldi, bifreiðagjöldum og þunga-
skatti með gjalddaga 1. júlí 1993 og fyrr, að gera þegar
skil.
Án frekari fyrirvara verður krafist fjámáms fyrir ógreidd-
um eftirstöðvum gjaldanna, með áföllnum verðbót-
um/vöxtum og kostnaði að liðnum 15 dögum frá birt-
ingu greiðsluáskorunar þessarar.
Athygli er vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnáms-
gerð í för með sér verulegan kostnað fýrir gjaldanda.
Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að kr. 10.000 fyrir
hverja gerð. Þinglýsingargjald er kr. 1.000 og 1,5% af
heildarskuldinni greiðist í stimpilgjald, auk útlagðs
kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur því hvattir til að
gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostn-
að.
Stykkishólmi 20. ágúst 1993.
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi.
VELADEILD FALKANS • VELADEILD FALKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS
DRIFSÚNÁÐUR ER SÉRGftEIN
optibelt kílreimar - viftureimar - tímareimar
i FARARBRODDI
•' CJÖRUTÍU
og OPTIBELT eru leiðandi merki á heimsmarkaði
fyrir drif- og flutningskeðjur og reimar.
Vörur frá þessum framleiðendum eru
þekktar fyrir gæði. Eigum á lager
allar algengar stærðir af keðjum,
tannhjólum, reimum og reimskífum.
með skömmum fyrirvara
allar fáanlegar stærðir og gerðir.
Veitum tæknilega ráðgjöf
við val á drifbúnaði.
RENOLB
keðjur og tannhjól
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8-108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84
• VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS •