Tíminn - 25.08.1993, Qupperneq 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 25. ágúst 1993
... MTK Búdapest sem eru
andstæöingar KR-lnga I Evrópu-
keppnf félagsliöa í knattpyrnu,
hafa leikið tvo leiki f ungversku 1.
deildinni. Þeir hefa gert eitt jafrrt-
efli og tapað einum, um sföustu
helgi 3-1 fyrir Raba ETO. MTK er f
fjóröa neðsta sæti deildarinnar af
sextán liðum.
... fatlandsmótiA f handknattfeik
hefst 23. september næstkom-
andi og þá mætast eftirfarandi liö:
Stjarnan-Haukar, KR-Vfkingur, KA-
fBV, FH-Selfoss, Valur-(R, UMFA-
Þór Ak. Þessi fyrsta umferö fer
fram á fimmtudegi en annars
veröur 12 sinnum leikiö á miöviku-
dögum og nlu sinrtum á sunnu-
dögum. Alltaf veröa ieiknar heilar
umferöir og f öilum tilvikum hefjast
ieikirnir klukkan20.
... Þýska tonnlsstjaman,
Steffi Graf, hefur hlotið hæstu fjár-
hæöirnar fyrir aö spila tennis á
stórmótum. Vinningsupphæð
hennar er 1900 þúsund banda-
rikjadalir. Arantxa Aanchez Vicarío
frá Spáni kemur næst með tæpa
miiljón doilara og þriöja er önnur
spænsk stúlka, Conchita Martinez
rneö tæpa 700 þúsund dali f verö-
launafé.
... Davtd O’Laary getur ekki
leikiö meö landsliði íra (knatt-
spyrnu þegar það mætir Litháum
þann 8. september. Leary, sem er
35 ára, meiddist f leik meö nýja
félaginu sfnu, Leeds, gegn Nor-
wich á dögunum. Paul McGrath
er f leikbanni og getur þvf ekki
leikiö með og þvf er taliö liklegt aö
landsliösþjálfarinn Jack Charlton
velji hinn 37 ára gamla Kevin Mor-
an tii leiks fyrir Irlands hönd f 67.
skiptiö. Moran mun þá leika við
hliöina á Alan Kemaghan f vörn-
inni en sá ieikur með Middles-
boro. Andy Townsend hefur ekki
getað leikið með Aston Villa í sfð-
ustu tveimur leikjum vegna
meiðsla svo það er spurning hvort
hann verði meö gegn Litháum svo
og Niall Quirm.
... Paui Gascoigne er greini-
iega meira til lista lagt en að spila
knattspyrnu meö Lazio á Itallu.
Gascoigne hefur nefnilega samíö
Ijóð sem verður gef ið út f næsta
mánuði. Ljóöiö sem heitir á ensku
.Just Me“ eða .bara ég“ samdi
Gascoigne eftir bíkarúrslitaleik á
Wembley 1991 þegar hann
meiddist ilia á hné en það varð
upphafið aö langri sjúkrasðgu
hans. Meiösiin voru dýr fyrir
Gascoígne því hann missti f kjöl-
fariö aö milljón punda samningi
við Lazio. Ef einhver gróði verður
af útgáfu Ijóösins þá mun harm
renna til góðgerðarmála. Þeir
gagnrýnendur sem hafa séð Ijóðið
hafa mismunandi skoöanir á
skáldskap knattspyrnumannsins
en einn þeirra sagöi Gascoigne
vera betri f Ijóöasmíði en Ijóðskáld
I fótbolta!
... Danlr mæta Litháum f kvöld f
Kaupmannahöfn f undartkeppni
HM og er beðið eftir leiknum meö
mikilli eftirvæntingu. í fyrsta lagi
þá mun Michael Laudrup lelka
meö danska landsliöinu eftir nær
þriggja ára bið en Laudrup var
óánægður meö stjómun landsliös-
ins sem er f hðndum Richard Moll-
er Nielsen. Laudrup lék sföast
meö Dönum gegn Júgóslavfu f
tapleik áriö 1990. (ööru lagi þá er
mikil spenna f riðlinum þar sem Ir-
ar eru efstir, svo koma Spánverjar
og þvf næst Danir en tvö lið kom-
ast áfram.
Getraunadeildin:
Tveir í bann
Á fundi aganefndar í gær voru Bald-
ur Bjamason og Salih Heimir Porca
sem leika með Fylki dæmdir í eins
leiks bann vegna 4ra gulra spjalda.
Þeir leika því ekki með Fylki gegn ÍA
4. september. Lárus Orri Sigurðsson
f Þór og Stefán Ómarsson Víkingi fá
einnig eins leiks bann. Sævar Jóns-
son tók út leikbann í gær gegn
Fram vegna brottvísunar gegn ÍBK
á föstudaginn var. Hreiðar Omars-
son í ÍR var sá eini sem var dæmdur
í leikbann.
Fram-Valur 3-2 (2-0)
Einkunn leiksins: 3
Uð Franu Birkir Kristinsson 3,
Kristján Jónsson 4, Ágúst ÓI-
afsson 2, Ómar Sigtryggsson 4
(Rúnar Sigmundsson lék of
stutt), Atli Einarsson 1, Steinar
Guðgeirsson 4, Ríkharður
Daðason 4, Guðmundur Gísla-
son 3, Valdimar Kristófersson
4, Heigi Sigurðsson 4, Kristirxn
R. Jónsson 2 (Sævar Guðjónss
76. mínúta iék of stutt).
Uð Vals: Bjami Sigurðsson 3,
Bjarki Stefánsson 2, Jón Grétar
Jónsson 3, Jón S. Helgason 3,
Sævar Pétursson 2, Kristinn
Lárusson 3, Ágúst Gylfason 5,
Steinar Adolfsson 1 (Guð-
mundur Brynjóifsson 46. mfn.
2), Sigurbjöm Hreiðarsson 3
(Ólafur Brynjóifsson lék of
stutt), Anthony Kari Gregory 1,
Hörður Már Magnússon 1.
Dómari: Þorvarður Bjömsson 3.
Gui spjöld: Kristinn Lárusson
fyrir mótmæii og Guðmundur
Brynjólfsson fyrir brot í fyrstu
snertingu.
Enska knattspyman:
Úrslit í gærkvöldi:
Úrvalsdeild
Arsenal-Leeds........2-1 (1-0)
Newsome (sjálfsmark) 2. Paul
Merson 57.-Gordon Strachan 70.
Man.City-Blackbum....0-2 (0-1)
Mike Neweli 10. Kevin Gallacher
50.
Oldham-Coventry......3-3 (1-1)
Paul Bemard 38. Andy Ritchie
víti 49. Olney 63.-Williams 9.
Ndlovu 74. Wegerle víti 84.
Sheff.UTD-Wimbledon .2-1 (1-0)
Flo 43. Falconer 58.-Clarke 59.
1. deild
Bamsley-Middlesboro........1-4
Charlton-TVanmere........3-1
C.Palace-Forest............2-0
Grimsby-Portsmouth.......1-1
íslenska kvennaknattspyraan:
1. deild
Þróttur Nes.-UBK.....0-2 (0-0)
Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Krist-
rún Daðadóttir. Breiðablik held-
ur því enn í vonina að verða ís-
landsmeistari. Liðið er þremur
stigum á efdr KR en KR á leik til
góða.
Fram sigraði Val 3-2 í getraunadeildinni í gærkvöldi:
Liðið ungt og brothætt
— sagði Kristinn Björnsson, þjálfari Vals
Það má segja að það hafí veríð
sannkallaður ágústmánuður á
Laugardalsvelli í gær þegar
Fram sigraði Val 3-2 þar sem
Ágústamir tveir, hvor í sínu
liði, skomðu þijú af fímm
mörímm leiksins og það meira
segja í ágústmánuði!
Kristinn Bjömsson var ekki mjög
glaður eftir leikinn. „Það hefur
ekkert lið efni á því að gefa Fram
tvö mörk í forskot. Við settum
okkur það fyrir leikinn að gefa
sóknarmönnum Fram ekki færi en
andartaks einbeitingarleysi í
seinni hálfleik orsakaði ósigur
okkar.“ Kristinn vildi ekki meina
að leikmenn hans hefðu verið
bundnir um of við Evrópukeppn-
ina, liðið væri bara ungt og brot-
hætt og því fór sem fór.
Leikurinn byrjaði mjög fjörlega
og fengu framherjar liðanna ákjós-
anleg tækifæri til að skora mörk
en það tókst ekki fyrr en á 17. mín-
útu leiksins. Það voru Framarar
sem urðu fyrri til að skora þegar
Ríkharður Daðason hirti boltann
af tánum af Jóni S. Helgasyni á
miðju valarins, brunaði upp völl-
inn og setti boltann glæsilega yfir
Bjarna í marki Vals. Gott mark hjá
Ríkharði sem lék sinn 100. meist-
araflokksleik fyrir Fram í gær.
Framarar bættu síðan öðm marki
sínu við á 37. mínútu þegar Ómar
Sigtryggsson skallaði í netið af
stuttu færi eftir að Guðmundur
Gíslason hafði sent boltann fyrir
frá hægri. Valsmenn fengu góð
færi eftir þetta mark og átti An-
tony Karl m.a. skot í slána og
Kristinn Lárusson skot rétt yfir
slána.
Seinni hálfleikur byrjaði með
miklum látum og Valsmenn náðu
að minnka muninn á 50. mínútu
með marki Ágústs Gylfasonar eftir
sendingu Kristins Lárussonar. Ág-
úst lét ekki þar við sitja heldur
jafnaði leikinn aðeins 40 sekúnd-
um síðar eftir mikil vamarmistök
Framara og skyndilega var staðan
orðin jöfti, 2-2. Framarar sóttu
mjög í sig veðrið í kjölfar jöfnun-
armarks Valsmanna og Ágúst Ól-
afsson náði að koma þeim yfir á ný
með marki af stuttu færi á 65.
mínútu eftir fasta fyrirgjöf frá
hægri kanti. Framarar héldu
áfram að sækja eftir þriðja mark
sitt og Atli Einarsson og Helgi Sig-
urðsson komust báðir einir í gegn
en tókst ekki að skora. Ómar Sig-
tryggsson átti góðan skalla fyrir
Fram sem fór rétt framhjá.
Framarar voru sterkari í leiknum
og áttu sigurinn skilið en þeir
náðu þó ekki að nýta fjölmörg góð
færi og með smáheppni hefðu
Valsmenn getað hirt stig af þeim.
Þríeykið Helgi, Valdimar og Rík-
harður voru bestir í liði Fram og
auk þess átti Ómar Sigtryggsson
góðan leik fyrir Fram. Ágúst Gylfa-
son var langbestur Valsara sem
léku ekki sannfærandi. P.S.
Skagastúlkur urðu sem kunnugt er blkarmelstarar í knattspymu eftlr góðan slgur á Stjömunnl, 3-1 á sunnudaginn
var. Þetta var 12. sigur ÍA f röð f blkamum og í þriðja slnn sem þær hampa blkamum og f öll skiptin þrjú hefur Jón-
ína Vfglundsdóttir, sem heldur á bikamum, veriö fyrirllðl f úrslitalelkjunum og séö um að lyfta blkamum eftlrsótta.
Kristján Bergur Helgason, heimsmeistari 21 árs og yngri í snóker:
„Vonandi fjalla fjölmiðlar meira
um snóker eftir þennan HM-titil“
og svo í öðru lagi þá hafði ég séð
Indika spila á HM í fyrra á Brunei og
þá spilaði hann mjög vel og hafði
tekið framförum frá því þá og ég
bjóst hreinlega ekki við að vinna
leikinn. Leikurinn sjálfúr var frekar
erfiður því það kom á daginn að
Indika var góður mótspilari eins og
ég hafði búist við.“
- Voru fleiri erfiðir andstæðingar
sem þú mættir aðrir en Indika?
.Jóhannes B. Jóhannesson var
mjög erfiður og í raun var leikurinn
við hann í undanúrslitum erfiðari
en úrslitaleikurinn sjálfur vegna
þess að við höfum spilað margoft
saman og þekkjum því kosti og galla
hvors annars."
- Þú hefur sagt að stefnan hjá þér sé
atvinnumennskan. Hvemig er líf at-
vinnumannsins og hvað þarf til að
gerast atvinnumaður?
„í raun og vem geta allir gerst at-
vinnumenn því það þarf einungis að
borga þátttökugjöldin inn á at-
vinnumannamótin sem fara einung-
is fram í Bretlandi þar sem Mekka
snókersins er. Þetta em talsverðar
fjárhæðir sem þarf að borga og nú er
bara að finna styrktaraðila sem geta
fjármagnað keppnina. Mér finnst
þetta mjög skemmtileg íþróttagrein
og lifi hreinlega fyrir hana og ég
ætla að gera allt til að verða at-
vinnumaður í henni."
- Hvernig fannst þér fjölmiðlar
gera snóker skil áður en mótið fór
fram?
„Þeir sinntu þessu lítið en eftir að
okkur íslendingunum gekk svona
vel þá kviknaði áhuginn hjá þeim og
vonandi Qalla íjölmiðlamir meira
um snóker eftir þennan HM-titil.“
- Hvað er svo á döfinni hjá þér í
snókemum á næstunni?
„Framundan er að fara til Pakistan
á heimsmeistaramót áhugamanna í
desember. Hvert land má senda tvo
spilara og ásamt mér fer Jóhannes
B. Jóhannesson á þetta mót,“ sagði
Kristján Bergur Helgason heims-
meistari að lokum.
Handknattleikur:
Revine til KR?
Alexander Revine sem lék í mark-
inu hjá Víkingum á síðasta tíma-
bili og með Gróttu þar áður er að
öllum lfidndum á leiðinni í Vest-
urbæinn á ný, en nú til að leika
með nýliðum KR í 1. deildinni.
Að sögn Ólafs Lárussonar, þjálf-
ara KR, þá hefur Revine mætt á
æfingar hjá KR-ingum að undan-
fömu en hefur ekki enn sent inn
félagaskiptin til HSÍ. Ef af þeim
yrði þá myndi Revine sjá jafnvel
um markmannsþjálfun hjá yngri
flokkum félagsins. Guðmundur
Pálmason hefur nú þegar skipt
yfir í KR úr HK en Ólafur sagði að
vegna anna í vinnu þá gæti Guð-
mundur ekki verið með í byrjun
keppnistímabilsins en íslands-
mótið hefst fimmtudaginn 23.
september.
Því má svo bæta við að unglinga-
landsliðsmaðurinn úr ÍBV, Davíð
Hallgrímsson, hefur verið orðað-
ur við KR-inga en Davíð er örv-
hentur og hefur bæði leikið sem
homamaður og skytta.
Eins og við greindum frá í blaðinu í
gær þá náði Kristján Bergur Helga-
son frábærum árangri í snóker-
íþróttinni þegar hann varð heims-
meistari spilara undir 21 árs. Mótið
fór fram í Reykjavík. Kristján sigr-
aði Sri Lanka-búann Indika Dod-
angoda í úrsiitum, 11-7 í spenn-
andi viðureign.
Tíminn náði sambandi við hinn
unga heimsmeistara í gær og spurði
fyrst hvort þessi árangur hefði kom-
ið honum á óvart.
„Sigurinn kom mér mjög á óvart. í
það fyrsta þá var markmiðið að
komast einungis í átta manna úrslit
UMSJÓN: KRISTJÁN GRÍMSSON
I kvöld:
Knattspyma
1. deild kvenna
ÍBA-KR............kl. 18.30
ÍA-Stjaman........kl. 18.30