Tíminn - 25.08.1993, Page 7
Miðvikudagur 25. ágúst 1993
Tíminn 7
Endurmenntunarstofnun býður upp á nám í
fjölskyldumeðferð:
Mið tekið af
íslendingum
16 hestartil Bandaríkjanna:
Stóriækkun á flutningskostnaði
Endurmenntunarstofnun Háskóla
íslands býður upp á tveggja ára nám
í Qölskyldumeðferð næsta haust
fyrir fagfólk f félagsmála- og heil-
brigðisþjónustu.
Ráðgjafa- og fræðsluþjónustan
Tengsl hf. skipuleggur námið í sam-
vinnu við „Institut för Fimiljeterapi“
í Gautaborg.
Tekið verður mið af aðstæðum,
menningu og sérstöðu íslensku fjöl-
skyldunnar. Aðalkennarar verða
Nanna K. Sigurðardóttir MSW og fil.
dr. Sigrún Júlíusdóttir frá Tengslum
en ráðgjafar og gestakennarar verða
Kristín Gústavsdóttir og Karl Gustaf
Piltz.
-GKG.
16 hestar fóru á föstudaginn til
Bandaríkjanna með Eimskipi í sér-
smfðuðum gám í eigu Jóns Frið-
rikssonar, bónda á Vatnsleysu í
SkagafirðL Hestamir eru aðallega í
eigu Jóns og Sigurðar Sæmunds-
sonar, bónda og tamningamanns í
Holtsmúla í LandsveiL
Akaflega dýrt hefur verið að flytja
hesta til Bandaríkjanna og hefur það
háð útflutningi mjög mikið. Þó eru
aðrar þjóðir á kafi í þessum útflutn-
ingi og Þjóðverjar fremstir. Fyrir
sæmilegan töltara borgar Banda-
ríkjamarkaður um 5 til 6 þúsund
dollara eða um fjögur hundruð þús-
und krónur. Þó má ætla að góðir
reiðhestar fari á miklu hærra verði,
enda er mjög mikil reiðmennsku-
hefð í Bandaríkjunum, en almenn-
ingur á mjög erfitt með að kaupa og
annast hina stóru og dýru amerísku
hesta, t.d. kúrekahestinn svokallaða.
Að sögn Víðis Aðalsteinssonar hjá
flutningasviði Eimskips, þá hefur fé-
lagið núna teygt sig jafti langt og
mögulegt er til að lækka flutnings-
kostnað á hrossunum og er óstað-
fest tala í því sambandi, skv. heim-
ildum blaðsins, um kr. 38 þúsund á
hesL Ofan á það kemur svo fastur
kostnaður í Bandaríkjunum um
1300 dalir, þegar hrossin eru sett í
sóttkví og blóðprufur. Sóttkvíin er
fjórir dagar fyrir hesta frá íslandi, en
hross sem koma frá Þýskalandi
þurfa að vera í 8 daga í sóttkví.
Áður fyrr sló Eimskip þessum
kostnaði saman í eina tölu og var þá
flutningskostnaður óheyrilega dýr.
Núna hefur tekist að fá innfutnings-
aðilana úti til þess að takast á við er-
lenda kostnaðinn og er flutningur-
inn þá skv. heimildum blaðsins dott-
inn niður í kr. 38 þúsund á hest sem
áður segir.
Að sögn Víðis taka útflytjendur
nokkra áhættu með þessari send-
ingu, en eðlilegt hefði þótt að láta
reyna á alla þætti málsins í Banda-
ríkjunum og senda hestana úr landi.
Því hefði Eimskip teygt sig langt í
samkomulagsátt með lækkun far-
gjaldanna. Þama væri svo sannar-
lega mikill markaður fyrir hendi ef
Bandaríkjamönnunum líkuðu hest-
arnir. Eðlilegt væri líka að réttir að-
ilar reyndu að hafa áhrif á að hið op-
inbera félli frá sóttkvíakostnaði á ís-
lenskum hestum til Bandaríkjanna,
þetta væri bara dýrt formsatriði sem
varla væri réttlætanlegt að krefjast á
hrossum frá íslandi. Þar í landi væri
þetta þó stórpólitískt mál og ekki
leyst eftir öðrum leiðum. Verðlags-
eftirlit o. fl. spilaði einnig inn í þetta
og væm Bandaríkjamenn ákaflega
fastir fyrir með svona atriði.
Víðir sagði að þeir Eimskipsfélags-
menn hefðu langa reynslu í að tak-
ast á við undarlegar kröfur og erfi-
leika í útflutningi á íslensku hest-
umnum. í Evrópu væri þetta þannig
að Evrópubandalagið setti ákaflega
flóknar reglur um innflutning á
hrossum inn á svæði þess, t.d. varð-
andi heilbrigðis- og uppmnavott-
orð, síðan krefðist hvert land líka
síns eyðublaðs og forms fyrir sín
vottorð, þau væm reyndar jafn mörg
og löndin þrátt fyrir að allir væm í
Evrópubandalaginu sjálfu. Á heims-
meistaramótinu í Hoílandi hefði svo
komið upp ákaflega fyndin staða
með hestana sem Eimskip sá um, at-
hugasemdir þarlends dýrlæknis um
hestana hefðu ekki verið teknar
gildar vegna þess að þær vom hand-
skrifaðar en ekki vélritaðar. Þetta at-
riði, sem leit út fyrir að verða stór-
mál, leystist þó fljótt þegar ritvél
kom í leitimar. Vonandi breyttist þó
þetta allt til batnaðar með EES
samningunum, sagði Víðir. - GTK
Búnaðarsamband Austuriands andvígt framkomnum
tillögum um breytingu Stéttarsambandsins:
Sameining Stéttarsam-
bands og Búnaðar-
er markmiðið
félags
Andsta&a við framkomnar tillögur um
breytingar í samþykktum Stéttarsam-
bands bænda kemur fram f samþykkt
a&alfundar Búna&arsambands Austur-
lands. Lagt er til að samþykktum SB
ver&i eldd breytt að svo stöddu, heldur
lögö höfu&áhersla á að heildarendur-
skoðun fari fram á félagakerfi bænda.
Við þá endurskoðun vill BA að haft verði
að leiðarljósi að Stéttarsamband bænda
og Búnaðarfélag íslands sameinist í ein
heildarsamtök sem haldi einn árlegan
landsfund. í öðru lagi að búnaðarsam-
bönd verði þungamiðja félagskerfisins
og vægi þeirra á landsvísu fari eftir fjölda
bænda á hverju sambandssvæði. Og í
þriðja lagi að hreppabúnaðarfélögin
verði áfram grunneiningar búnaðarsam-
banda, nema að bændur á viðkomandi
svæði kjósi annað fyrirkomulag sem
byggi á jöfhum atkvæðisrétti bænda.
Komi til þess að breytingar verði gerðar
á samþykktum Stéttarfélagsins á næsta
aðalfundi þess án meira samráðs við
bændastéttina þá óska aðalfundarfull-
trúar Búnaðarsambands Austurlands
eftir því að tillit verði tekið til tillagna og
athugasemda sem Stéttarsambandinu
hafi borist frá einstökum búnaðarfélög-
um á Austurlandi.
, ERTU
UTFLYTJANDI?
EÐA
VILTU FLYTJA ÚT?
GÓÐURÁRANGUR
Útflutningsráð íslands, í samvinnu við íslandsbanka, Iðnlánasjóð og
Stjórnunarfélag íslands, hefur ákveðið að bjóða á nýtil verkefnisins
ÚTFLUTNINGSAUKNING OG HAGVÖXTUR, vegna hins góða
árangurs sem náðst hefur ífyrri skiptin.
FYRIRTÆKI í FRAMLEIÐSLU OG ÞJÓNUSTU
Verkefnið er ætlað fyrirtækjum íframleiðslu og þjónustu sem framleiða
útflutningshæfa vöru eða þjónustu.
Ahugi á að hefja útflutning eða treysta þegar hafinn útflutning er
skilyrði og fjárhagslegur grundvöllur verður að vera fyrir hendi.
ÞRÍR DAGAR Á MÁNUÐI
Ef þú tekur þátt í þessu verkefni þarft þú að verja þremur dögum á
mánuði til aðgerða sem tengjast verkefninu. Tveir dagar í hverjum
mánuði fara í vinnufund í Reykjavík og einn dagur fer í starf innan
fyrirtækis þíns með ráðunauti. Þú þarft einnig að verja um það bil
einni viku til kynnisfarar á valið markaðssvæði.
SEPTEMBER ’93 - JÚNÍ ’94
Áætlað er að verkefnið hefjist í september 1993 og að því verði lokið
i júní 1994. Kostnaður hvers fyrirtækis er 340 þúsund,
sem greiðast í áföngum meðan á verkefninu stendur, en íslandsbanki,
Iðnlánasjóður og Útfltningsráð bera meginhluta kostnaðar.
Þeir sem áhuga hafa eru beðnir að snúa sér til Hauks Björnssonar, verkefnisstjóra
hjá Utflutningsráði ísiands, og veitir hann allar nánari upplýsingar.
/0
///
ÚTFLUTNINGSRÁÐ
ÍSLANDS
ÍSLENSKT VE/TÁ GOTT
LÁGMÚLA 5 108 REYKJAVÍK SÍMI 91 688777 MYNDSÍMI 91 689197
NYR
ÁSKRIFANDI
Nafn áskrífanda:
Póstnúmer:
Heimilisfang:
Simi:
Greiðslufyrirkomulag
MILLIFÆRSLUBEIÐNI
Kort nn
Gildir út
Ég undimtaður/uð óska hér með eftir að gerast áskrifandi að Tlmanum
Kennitala
Tíminn
Lynghálsi 9.110 Reykjavlk
Póstfax 68769. Pósthólf 10240