Tíminn - 25.08.1993, Síða 9
Miðvikudagur 25. ágúst 1993
Tíminn 9
r
BLAÐBERA VANTAR
Dalbraut - Kleppsveg -
Laugarásveg - Laugateig
Blaðburður
er holl og
góð hreyfing
:; ] | { limto
[__ -00^0 cw'ao ®®oo-
Iiminn
Lynghálsi 9. Sími 686300 - kl. 9 til 17
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI
Laus læknisstaöa
Staða heilsugæslulæknis er hér með auglýst laus til
umsóknar. Stöðunni fýlgir 25% aðstoðarlæknisstaða hjá
FSÍ.
Umsækjandi þarf að vera sérfiræðingur í heimilislækn-
ingum.
Umsóknarfrestur er til 30. september 1993 og umsókn-
um skal skila á þar til gerðum eyðublööum.
Staðan er veitt frá 1. nóvember 1993 eða eftir nánara
samkomulagi.
Nánarí upplýsingar veitir Einar Axelsson, yfirlæknir HFí,
í símum 94-4500 og 94-4307.
Heilsugæslustööin (safirði.
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn í Borgarnesi skorar hér með á gjaldend-
ur í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu, sem ekki hafa staðið
skil á tekjuskatti, útsvari, eignaskatti, sérstökum eigna-
skatti, kirkjugarðsgjaldi, gjaldi í ffamkvæmdasjóð aldr-
aðra, sérstökum skatti á verslunar- og skrifstofuhús-
næði, iðnaðarsjóðs- og iönaðarmálagjaldi, slysatrygg-
ingu skv. 36. gr. almannatryggingalaga, slysatrygginga-
gjalda vegna hemilisstarfa, útflutningsráðsgjaldi,
launaskatti, bifreiðaskatti, slysatryggingagjaldi öku-
manna, þungaskatti skv. ökumælum, tryggingargjaldi,
vinnueftirlitsgjaldi, atvinnuleysistryggingagjaldi, slysa-
tryggingagjaldi atvinnurekenda, aðflutningsgjöldum,
virðisaukaskatti, þ.m.t. viðbótar- og aukaálagningu virð-
isaukaskatts vegna fýrri tímabila og staðgreiðslu opin-
berra gjalda, verðbótum af tekjuskatti og útsvari, sem
voru álögð 1993 og féllu í gjalddaga 1. ágúst 1993, að
gera þegar skil.
Án frekari fyrirvara verður krafist fjárnáms fýrir ógreidd-
um eftirstöðvum gjaldanna, með áföllnum verðbót-
um/vöxtum og kostnaði að liðnum 15 dögum frá birt-
ingu greiðsluáskorunar þessarar.
Athygli er vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnáms-
gerð í för með sér verulegan kostnað fýrir gjaldanda.
Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að kr. 10.000 fýrir hverja
gerð. Þinglýsingargjald er kr. 1.000 og 1,5% af heildar-
skuldinni greiðist í stimpilgjald, auk útlagðs kostnaðar
eftir atvikum. Eru gjaldendur því hvattir til að gera fuli
skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Borgamesi 23. ágúst 1993.
Sýslumaöurinn í Borgarnesi.
Bob og Dolores eiga sextíu ára brúðkaupsafmæli I febrúar á næsta ári, en engir pappirar finnast til að staðfesta
hjónabandið.
Bob Hope hinn gamansami glettist á gamals aldri:
Kannast ekki
við að hafa
kvænst henni
Grace
Gátan um giftingu Bob Hopes og
Grace nokkurrar TVoxell fyrir 59 ár-
um í staðinn fyrir konu hans til
næstum sextíu ára, hennar Dolores,
stendur ennþá óráðin. Þau hjón
Bob og Dolores voru að undirbúa
sextíu ára brúðkaupsafmælið sem
átti að verða í febrúar næstkom-
andi, þegar farið var að leita að gift-
ingarvottorðinu. Hið furðulega
kom í Ijós að Bob hafði hreint ekki
gifst Dolores í Erie Court, Pennsyl-
vanniu þann 19. febrúar 1933, eins
og hann hefur alltaf haldið, heldur
er hann ennþá, samkvæmt réttar-
bókum í Erie sýslu, giftur Grace, og
athöfnin ku hafa farið þar fram í
janúar ári áður.
Grace þessi Troxell var skemmti-
kraftur í farandleikhúsi og kabarett,
þar sem Bob skemmti einnig i upp-
hafi ferils síns og þau voru elskend-
ur frá árinu 1929 og þar til þau
komu í fyrsta sinn fram á Broadway
f New York. Stuttu síðar sá Bob
Dolores syngja í næturklúbbi þar í
borg og grínistinn og söngkonan
breska urðu yfir sig ástfangin hvort
af öðru. Parið hefur síðan verið eitt
hið séstæðasta í leikarastétt Holly-
wood, vegna þess hve þau hafa verið
samrýmd og trú hvort öðru alla tíð
og hjónabandið ákaflega sterkt og
traust, þrátt fýrir að alla nauðsyn-
lega pappíra vanti. Hvað hefur orðið
um hina raunverulega eiginkonu er
væntanlega enn önnur gátan.
Fyrir skömmu hélt gamanleikar-
inn frægi upp á níræðisafmæli sitt
og um hann var gerður þriggja
klukkustunda sjónvarpsþáttur af til-
efninu. Þar fór gamli maðurinn enn
og aftur fögrum orðum um konu
sína Dolores.
Talsmaður hjónanna segir hins
vegar að málið sé allt hið undarleg-
asta og verði svo væntanlega áfram.
Bob er vlst ennþá giftur Grace sem lék og söng með honum I kabarett
þegar hann var að stíga fyrstu sporin í skemmtanabransanum fyrir meira
en hálfri öld slðan.
Vandinn að
vera pabbi
í einni og sömu vikunni gerðist tvennt í
lífi Roger Moore, hins eina sanna dýr-
lings og James Bond, — hann horfði á
eldri son sinn hefja efnilegan söngferil á
Gala-góðgerðarballi í París og fékk send-
an heim svimandi háan reikning eftir
skemmdir þess yngri á leiguhúsnæði
hans í Oxford. Ef að líkum lætur mun
leikarinn halda stillingu sinni.