Tíminn - 10.09.1993, Side 9
Föstudagur 10. september 1993
Tíminn 9
B DAQBÓK
Félag eldri borgara í
Reykjavik og nágrenni
Nó spilum við líka félagsvist á föstudög-
um. Hún hefst f Risinu, Austursal, f dag
kl. 14.
Lögfræðingur félagsins er til viðtals á
þriðjudögum. Panta þarf tíma í s. 28812.
Heldri borgarar í Súlnasal
Hótel Sögu í kvðld
Það verður sannkölluð gleðistemmning
rfkjandi f Súlnasal í kvöld, föstudag, f til-
eftii af ári eldri borgara f Evrópu.
Þar gefst öllum heldri borgurum í
Reykjavik og nágrannabyggðum kostur á
að hittast og skemmta sér í hópi valin-
kunnra skemmtikrafta og freista gaef-
unnar f happdrætti kvöldsins þar sem
m.a. verður dregið um glæsilegan ferða-
vinning með Ferðaskrifstofunni Úrval-
Útsýn.
Skemmtunin hefst kl. 20 og miðaverð
er aðeins kr. 600.
Sérstakur gestur kvöldsins er Flosi Ól-
afsson leikari, en auk hans koma fram
Kór Félags eldri borgara í Kópavogi og
Kvennakór Kópavogs undir stjóm Krist-
fnar Pétursdóttur. Einnig verður boðið
upp á tfskusýningu eldri borgara. Kynn-
ir verður Rósa Ingólfsdóttir, en um tón-
listarflutning sjá hinir vinsælu Gleði-
gjafar með söngvarana André Bachmann
og Ellý Vilhjálms í broddi fylkingar.
Hljómsveitina skipa Carl Möller og Þórir
Baldursson á hljómborð, Ámi Scheving
á bassa og Jón Björgvinsson á trommur.
Sigrún Hjáhntýsdóttir á
Ijóóatónleikum Geróubergs
Ijóðatónleikaröð menningarmiðstöðvar-
innar Gerðubergs hefst með söng Sig-
rúnar Hjálmtýsdóttur, sópran, laugar-
daginn 11. september kl. 17. Meðleikarar
hennar verða Jónas Ingimundarson á pí-
anó og Sigurður Ingi Snorrason á klarin-
ett A efnisskránni verða ljóðasöngvar
eftir S. Rachmaninoff, F. Poulenc, F.
Schubert, 0. Respighi, G. Rossini og ís-
lensk lög.
Sigrún Hjálmtýsdóttir hóf söngnám sitt
við Tónlistarskólann í Reykjavík. Síðan
lá leiðin til Lundúna, þaðan sem hún
lauk prófi firá Guildhall School of Music
& Drama. Framhaldsnám stundaði hún
á Ítalíu. Áður hafði hún getið sér gott orð
með Spilverki þjóðanna og f sjónvarps-
leikritum, -þáttum og -myndum. Hún
hefur einnig leikið í kvikmyndum.
Að námi loknu kom hún fyrst fram sem
„Olympia" í „Ævintýrum Hoffmanns" í
Þjóðleikhúsinu og hefur síðan sungið
ýmis hlutverk hjá íslensku Óperunni og
erlendis. Þá hefur Sigrún einnig komið
fram sem einsöngvari með hljómsveit-
um og kórum hér heima og erlendis, auk
þess að halda tónleika með pfanósam-
leik. Fjöldi hljómplatna hafa verið gefnar
út með söng Sigrúnar, bæði sfgild og
dægurtónlist
Sigrún er á Ieið til Gautaborgar til að
taka við hlutverki „Gildu" í „Rigoletto"
og munum við því ekki njóta söngs
hennar næstu 6-12 mánuði.
Eftirtaldir söngvarar munu koma fram
auk Sigrúnar í vetun
Garðar Cortes tenór, laugardaginn
27.11.
Michael Jón Clarke baritón, laugardag-
inn 15.1.1994.
Katrín Sigurðardóttir sópran, laugar-
daginn 12.3.
Björk Jónsdóttir sópran, laugardaginn
14.5.
Eftirtaldir listamenn munu koma fram
á Einleikstónleikum Gerðubergs í vetur.
Amaldur Amarson gítarleikari, laugar-
daginn 13.11.
Kolbeinn Bjamason flautuleikari, laug-
ardaginn 12.2.1994.
Gunnar Kvaran sellóleikari og Gfsli
Magnússon pfanóleikari laugardaginn
16.4.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Gerðu-
bergs í síma 79166.
BLAÐBERA VANTAR
HRAUNBÆR
neðri hluti
\
Blaðburður
er holl og
góð hreyfing
iUIUJi-y
nminn
Lynghálsi 9. Sími 686300 - kl. 9
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
Gríms Stefáns
Runólfssonar
Álfhólsvegi 8A
Alúðarkveöjur til allra sem önnuðust
hann á sjúkrabeöi.
Elginkona,
sonur, tengdadóttir
og bamaböm
lolanda Quinn hefur veriö gift manni sfnum 129 ár og horft f gegnum fingur með ýmis vfxlspor hans. Hún er mikil
skapkona og var nóg boöiö þegar sonur þeirra tjáöi henni aö Anthony heföi gengist viö þriggja vikna gamalli dótt-
ur einkaritara síns, sem stendur hér fyrir miöju. Anthony hlustar á hana meö athygli, en lolanda talar út og suður á
kné sonar Anthonys, Francescos.
Anthony Quinn í ónáð hjá eiginkonunni:
Gengst viö barni
einkaritara síns
Anthony Quinn er ekki laus við að
vera svolítið montinn yfir að hafa
sannað karlmennsku sína einu sinni
enn, 78 ára gamall. Hann er nýbú-
inn að gangast við dóttur 29 ára
gamallar stúlku, Kathy Bevin, sem
var einkaritari hans í 9 ár.
En viðbrögð konu hans, Iolöndu,
komu gamla manninum svolítið á
óvart. Iolanda brást hin versta við,
þó að hún hafi alla tíð vitað um
kvensemi bónda síns og m.a.s. æv-
intýri hans og einkaritarans, sem
hún hegndi með því að virða Kathy
ekki viðlits. En Iolanda vissi ekki
um barneignina fyrr en sonur
hennar og Anthonys, Lorenzo, til-
kynnti henni að faðir hans hefði op-
inberlega gengist við baminu.
Iolanda rauk burt í fússi og nú hef-
ur auðmýktin tekið við hjá Anthony.
Hann vill blíðka konu sína og hefur
ráðið sérstakan aðila til að annast
almannatengsl fyrir sína hönd, svo
að Iolanda geti aftur rifjað upp betri
hliðar bónda síns, svo sem auð og
frægð. Hún lagði nefnilega ekki svo
lftið á sig til að ná honum á sitt vald
úr hjónabandinu með Katherine
DeMille á sínum tíma og hefur sfð-
an gert sitt besta til að halda hon-
um frá freistingunum. Það hefur
t.d. vakið athygli að hafi Anthony
sést á tali við gimilega konu, hefur
alltaf mátt sjá Iolöndu eða Kathy á
sveimi í grenndinni.
Anthony Quinn hefur lagt sitt af
mörkum til að fjölga mannkyninu.
Með fyrri konu sinni, sem eins og
áður greinir var Katherine DeMille,
dóttir leikstjórans fræga Cecil De-
Mille, eignaðist hann fjögur böm
sem nú eru uppkomin, reyndar eitt
látið. Með Iolöndu á hann þrjú og
borgar meðlög með tveim sonum til
viðbótar með ónafngreindri konu.
Fyrir þrem árum gekkst Anthony
undir stóra hjartaaðgerð þar sem
kransæðamar fjórar reyndust stífl-
aðar.
Kathy var aldrei fjarri þegar Ant-
hony var annars vegar. Hér situr
hún viö hliö dóttur hans Christinu f
75 ára afmælishófi Anthonys, sem
skellir kossi á munn dóttur sinnar.
Kathy Bevin var einkaritari Ant-
honys Quinn f 9 ár. Þegar hún
sagöist vilja eignast barn meö hon-
um, hún bæri svo heita ástfbrjósti
til hans, þurfti hún ekki aö ganga á
eftir honum. Hann segir nú, ekki
laus viö stolt: „Ég vissi ekki hvort
ég gæti þaö. En ég gat þaö!“