Tíminn - 19.10.1993, Blaðsíða 5
7
Saga Bretlands og Irlands
The Cambrfdge Historfcal Encyclopedia
of Great Britaln and Ireland. Rltstjórf:
Christopher Halgh. Cambrídge Univers-
Ity Press 1990.
Ritstjórinn hefur sér til ráðgjafar
G.R. Elton, auk hans eru tíu aðrir
fræðimenn ráðgefandi um hin ýmsu
tímabil sögunnar. England er
þungamiðja þessarar sögu, en Skot-
land, írland og Wales mynda síðan
heildarsöguna sem sögu Stóra-Bret-
lands. Persónusagan telur 840 upp-
flettinöfn, prentuð í bókarlok. AIls
eru 930 uppflettiorð yfir helstu við-
burði og tímabil. Ljósmyndir, kort
og töflur eru 300, auk 70 litmynda.
Söguþráðurinn fylgir tímaröð. Höf-
undamir rekja söguþráðinn og jafn-
framt birta þeir útlistanir sínar á at-
burðum, orsökum og afleiðingum.
Christopher Haigh skrifar formála
þar sem segir: „Mannleg reynsla er
ótæmandi viðfangsefni í öllum sín-
um margbreytileika og víxltengslun-
um. Saga Bretlands er óvinnandi
verkefni fyrir einn höfund. Til þess
að geta komið fortíðinni til skila,
verður að skipta atburðarásinni upp
í tímabil og einfalda og jafnvel al-
hæfa á stundum, þótt það sé ekki
góður kostur. Við höfum skipt at-
burðarásinni í tilbúin tímaskeið og
með því getum við einangrað efnis-
þætti til þess að draga fram það, sem
mestu máli skiptir, úr hinu yfir-
þyrmandi atburðaflæði... Ritið á að
vera uppflettirit og útskýringarrit:
Saga Bretlands og sagnfræðiorða-
bók.“
Sagan spannar tímann frá því fyrir
55 f.Kr. allt til 1975.
Höfundum hefur tekist að rekja
meginþætti enskrar sögu á þann
hátt að orsök atburða, atburðir og
persónur skýrast og skapa heildar-
myndir, gerð og menning samfélags-
ins er samferða. Myndefnið er mjög
vel valið. í bókarlok er ítarlegt reg-
istur.
Þjóðfélagsskipan miðalda
Heinrfch Fichtenau: Lebensordnungen
des 10. Jahrhunderts. Deutscher Ta-
schenbuch Veriag 1992.
Lykilhugtak þessarar bókar er
„ordo“ eða regla. Höfundurinn fjall-
ar um þá stefnu innan kirkjunnar,
fjölskyldunnar, aðalsins og konunga,
að koma á reglu, koma lögum yfir
allar stéttir, sem þá hétu lögstéttir,
og kerfa þjóðfélagið niður í hópa, þar
sem hver hafði sitt hlutverk. „Orare,
pugnare, laborare", biðja, berjast og
vinna. Manngrein var einkenni þjóð-
félaga á 10. og 11. öld, en um þær
aldir og þær Iífsreglur og hegðunar-
reglur sem þá giltu, fjallar höfundur-
inn. Ættin var sverð og skjöldur ein-
staklingsins og væri ættin tengd
„gæfunni" eða dularfullum tengsl-
um við ósýnileg öfl, þá bjó hún yfir
afli, sem ekki var af þessum heimi.
Biskupar í Evrópu á miðöldum urðu
að vera af aðli, sem bjó yfir þessum
dularfulla mætti. Nýjustu rannsókn-
ir í miðaldasögu Mið-Evrópu sýna
hvemig hlutar ríkis Karls mikla voru
mótaðir af stefnu og aðgerðum ætt-
föðurins; þetta gilti um Þýskaland,
Frakkland, Norður-Ítalíu og Kata-
lóníu á Spáni.
Þetta rit er hliðstæða við rit anna-
listanna, LeGoffs, Dubys og Dumez-
ils, O.G. Oexle, Ottavia Niccoli o.fl.
o.fl. Mynd miðalda hefur tekið mikl-
um breytingum fyrir rannsóknir og
gleggri viðhorf til efnisins, sem þess-
ir höfundar hafa skýrt með rann-
sóknum sínum. Það er nauðsynlegt
að íslensk miðaldasaga sé rannsökuð
frá víðara sjónarmiði en viðgengist
hefúr hingað til. Hér hefur þessum
efnum lítið verið sinnt, að undan-
skildum ritum Einars Pálssonar, sem
hefur sett saman „Rætur íslenskrar
menningar" í tíu bindum, þar sem
brotið er blað í fjölbreytileika að-
fanga og þekkingar á hugmynda-
fræðilegum grundvelli íslenskrar
sögu. Þetta safn Einars Pálssonar er
encyklópædiskt hvað varðar þekk-
ingu og skilning á heimildum, sem
snerta þessi efni.
Bók Fichtenaus, en hann var lengi
prófessor í miðaldasögu við Háskól-
ann í Vínarborg, er rúmar 600 blað-
síður og tilvitnanimar, sem eru neð-
anmáls, eru fjölmargar og myndu
líkast til fylla um hundrað blaðsíður.
Siglaugur Brynleifsson
Þriðjudagur 19. október 1993
Sökkti ástarævintýri ráð-
herra Rainbow Warrior?
Bölvunin, sem hvílir yfir sögunni af Rainbow Warrior sem Frakkar geta
aldrei gleymt, er enn komin á kreik til að gera Francois Mitterrand for-
seta lífið leitL í nýrri ævisögu er því haldið fram að varnarmálaráðherr-
ann, sem ákvað að sprengja upp flaggskip Grænfriðunga, hefði tapað átt-
um svo gersamlega vegna nýrrar ástkonu að hann hafi ekki getað tekið
skynsamlega ákvörðun.
Sá möguleiki að einhver skammar-
legustu diplómatísk mistök Frakka
hafi verið gerð vegna geggjaðs ástar-
ævintýris ráðherra opnar aftur öll
gömlu sárin. Mitterrand hefur alltaf
neitað því að hann hefði vitneskju
um öll smáatriði í aðgerð leyniþjón-
ustunnar, sem sökkti skipi mót-
mælamanna og varð portúgölskum
ljósmyndara að bana fýrir átta árum.
En nú, þegar Frakkar tilkynna und-
irbúningsaðgerðir til að taka aftur
upp kjamorkusprengjutilraunir eftir
að Kínverjar sprengdu nýlega kjam-
orkusprengju, gæti tímasetningin á
þessum nýjustu uppljóstrunum orð-
ið afdrifarík fyrir franska forsetann,
sem sótt er að úr öllum áttum.
Ástin blindaði — og
dómgreindin ruglaðist
í ævisögu Charles Hemu, vamar-
málaráðherrans fyrrverandi og náins
vinar Mitterrands, er því haldið fram
að hann hafi verið svo heillaður af
Martine Borg, líflegri dökkhærðri
konu sem átti eftir að verða fimmta
eiginkona hans, að hann hafi van-
rækt pólitísk skyldustörf. í augum
Hemus var nýja ástin hans fullkom-
inn kvenleikinn holdi klæddur og
uppfylling drauma hans.
Þegar tíminn rann upp til að beita
faglegri dómgreind frekar en róm-
antískri — sérstaklega varðandi
hvemig meðhöndla skyldi fyrirhug-
aða ferð Grænfriðunga til að tmfla
kjamorkutilraunir Frakka á kóralrif-
inu Mumroa á Kyrrahafi — mistókst
Hemu illilega, er niðurstaðan í bók-
inni.
Jean-Claude Lesquer ofursti, yfir-
maður utanríkisöryggisþjónustunn-
ar (DGSE), lagði fyrir Hemu þrjár
mögulegar aðgerðir, og Hemu valdi
þá erfiðustu — sem í bókinni er full-
yrt að yfirmenn í öryggisþjónust-
unni hafi talið til „valkosta heimsk-
ingja" sem þeir hefðu aldrei búist við
að yrðu teknir alvarlega. Hemu
hafði oft lýst gerðum Grænfriðunga
sem „hættulegum plágum", sem
ekki virtust framkvæmdar af nægri
ákveðni.
Fýrsta tillagan, að sögn Jeans Gu-
isnel, höfundar bókarinnar, var end-
urtekin gömul DGSE-brellaað reyna
að sýkja einhvem úr áhöfninni af
smitandi sjúkdómi sem hefði í för
með sér að allir yrðu settir í sóttkví.
Henni var hafnað vegna tæknilegra
örðugleika. Önnur áætlunin var að
eyðileggja skrúfur Rainbow Warrior,
sem myndi kyrrsetja skipið í a.m.k.
hálft ár. Sú þriðja var að sprengja
skipið í Ioft upp með því að festa á
það sprengjur.
Mislukkuð aðgerð á
Nýja-Sjálandi
Þegar til kastanna kom, reyndist
aðgerðin, sem framkvæmd var í
höfninni í Auckland á Nýja-Sjálandi
10. júlí 1985, algert klúður. Sprengj-
umar urðu Femando Pereira, 33 ára
gömlum ljósmyndara, að fjörtjóni,
skemmdarverkamennimir misstu
sambandið við stjómendur sína í
París, og leyniþjónustumennimir
tveir voru teknir höndum, þegar þeir
ætluðu um borð í flugvél á leið aftur
til Frakklands.
Stjómmálahneykslið varði árum
saman, meðan æstar deilur stóðu
um framsal á Ieyniþjónustumönn-
unum (konu og karli) og skaðabæt-
ur. Þó að Frakkar og Ný-Sjálending-
ar hafi komist að samkomulagi 1991
um að loks væri málinu lokið, svífur
enn beiskja yfir vötnunum. Fyrir
tveim árum blossaði hún enn upp
um tíma, þegar Frakkar sæmdu ann-
an skemmdarverkamannanna heið-
ursmerki fyrir framúrskarandi þjón-
ustu í þágu föðurlandsins. Endur-
nýjaður Rainbow Warrior stríðir enn
oft Frökkum með því að vera á sigl-
ingu nærri kjamorkutilraunasvæð-
um þeirra.
{eftirleiknum fyrst eftir atburðinn
reiddist Mitterrand óðagotslegum
lygum Hemus um málið, að sögn
Guisnels. Hemu hélt áfram að neita
að hann hefði nokkum tíma gefið
skipun um Ieiðangurinn og hélt því
fram að hann hefði aðeins sagt leyni-
þjónustumönnum sínum að koma í
veg fyrir að skipið lyki verkefni sínu.
Það tók Hemu tvö ár að viðurkenna
að hann hefði stjómað aðgerðinni.
„Eins og Hernu er
skapi farinn
Þrátt fyrir að Mitterrand hafi að
lokum fómað ráðherra sínum, held-
ur forsetinn því enn fram að Hemu,
eins og hann sjálfur, hefði ekkert vit-
að um nákvæma útfærslu skemmd-
arverksins. „Ég er viss um að hann
vissi ekki um aðgerðina í smáatrið-
um,“ segir hann.
Mitterrand sagði líka við Guisnel:
„Eins og Hemu er skapi farinn,
myndi hann hafa sagt „haldið áfram,
ég skal skýla ykkur". En hann tók
ekki með í reikninginn ótrúlegan
klaufaskap þjónustumannanna í
verki. Þetta mál fór í ótrúlegan far-
veg og var greinilega glæpsamlegt.
Það var heimskulegt að hugsa ekki
um hag Frakklands og hvaða afleið-
ingar málið myndi hafa. Hann vissi
að það átti að framkvæma aðgerð, en
ekki að það yrði árás. Það er allt og
sumt sem ég veit.“
Þó að sumir innvígðir vísi á bug
uppljóstrunum um ástarævintýri
Hemus, sem svipti hann dóm-
greindinni, og segi það hrekkjabragð
leyniþjónustunnar sem sé að reyna
að koma sökinni af hrapallegri ævin-
týramennsku yfir á aðra, halda aðrir
því fram að ástarævintýri ráðherrans
hafi verið tímabil sem skipti sköpum
í lífi hans.
Áður en ár var liðið frá því málið var
„gert uppskátt" hafði Hemu tapað
eða hrakið í burt alla gömlu ráðgjaf-
ana sína, sem höfðu verið tilnefndir í
stöður sínar úr röðum gamalla vina
eða félaga úr frímúrarareglunni.
Fjórða kona Hernus, Dominique —
sem vinir og starfsfélagar litu á sem
mikilvægan áhrifavaid — yfirgaf
heimili hjónanna í ársbyrjun 1985
og gaf Hemu þannig lausan taum-
inn til að hella sér út í ástarævintýr-
ið.
„Nýi félaginn hans var hans al-
heirnur," sagði Guisnel. „Hann var
eins og gamall unglingur sem er að
kynnast ástinni að nýju og þar með
voru öll hans örlög endurráðin."
Tíminn 5
Flaggskipi Grænfriðunga, Rainbow Warrior, var sökkt með þvf að festa sprengjur á skipið. Háttsettir embættismenn f öryggisþjónustunnikölluðu þá leið„heimskulegasta kostinn". Það var kosturinn
sem Hernu valdi.