Tíminn - 23.10.1993, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur 23. október 1993
Verkamannasamband íslands:
Boltinn hjá
ríkisstjórn
Þórarínn V. Þórarínsson, framkvæmdastjórí VSÍ, segir aö þaö muni
skýrast á næstu tveimur vikum í viðræðum launanefnda aöila
vinnumarkaöaríns viö ríkisstjóm, hvort heimildir verða fýrír upp-
sögn kjarasamnings. Hann segir að bæöi forsætisráöherra og ut-
anríkisráðherra hafi lýst yfir vilja til viðræðna og mikilvægi þess að
samningunum verði ekki sagt upp.
„Þannig að mér virðist vera fullt
tilefni til að ætla að það eigi að nást
einhver sameiginleg niðurstaða í
málinu. Það hlýtur að grundvallast
á viðræðum og sameiginlegu mati
um það, hvaða breytingar og að-
gerðir séu helst til heilla. Eins og ég
skil það, þá leggur VMSÍ-þingið
höfuðáherslu á atvinnumálin, vexti
og opinberar framkvæmdir og auð-
vitað er þetta eitthvað sem verður
að ræða.“
Eins og kunnugt er, þá hefur VMSÍ
ályktað að segja beri upp gildandi
kjarasamningum við endurskoðun
þeirra þann 10. nóvember n.k. að
öllu óbreyttu.
Framkvæmdastjóri VSÍ segir það
afar mikilvægt fyrir aðila, sem
koma að málinu, að ofmeta hvorki
né vanmeta eigin stöðu eða ann-
arra. Hann segir að fyrir ríkisstjórn-
ina hljóti það að skipta gríðarlega
miklu máli að geta áfram byggt á
því öryggi, sem bundnir kjarasamn-
ingar gefa, og hið sama megi segja
um afstöðu atvinnurekenda.
Hann segir að fyrir verkalýðshreyf-
inguna sé það auðvitað stóra spurn-
ingin hvort líklegt sé að menn bæti
atvinnuástandið og kjörin með því
að segja upp samningum og afsala
sér þá um leið þeim ávinningum,
sem íylgja bundnum samningi, s.s.
lækkun matarskatts, hækkun á des-
emberuppbót og orlofsuppbót.
-GRH
Sameining Landakots og Borgarspítalans náðarhöggið:
Það er Ijóst að við
eigum að deyja
„Nú er ljóst að við eigum að deyja,"
segir heimildarmaður á Landa-
kotsspítala um sameiningu spítal-
ans og Borgarspítalans, sem stefnt
er að um áramót. Þar vísar hann til
þess að nú eru tvær deildir lokaðar
á spítalanum og þriðja deildin
tæmist þegar bamadeildin flytur
Tíminn flytur
Tíminn flytur nú um helgina of-
an af Lynghálsinum í nýjan
samastað í hjarta borgarinnar, að
Hverfisgötu 33 þar sem ritstjóm
blaðsins, afgreiðsla og auglýs-
ingadeild verða frá og með
mánudeginum 25. október.
Við flutninginn breytast síma-
númer blaðsins. Aðalsími í aliar
deildir blaðsins framvegis verður
618300. Auglýsingasími verður
618322 og bréfsími verður
618303.
yfir á Borgarspítala.
Heimildir herma að enn sé í raun
ekki búið að ákveða hvort bama-
deild Landakots muni flytjast á
Borgarspítalann eða Landspítal-
ann.
Eins og kunnugt er, er stefnt að
sameiningu Borgarspítala og
Landakotsspítala um áramót. Þá
hefur komið fram að bamadeildin
eigi að flytjast á Borgarspítala, en
öldmnarsjúklingar flytjist þaðan á
Landakotsspítala.
Heimildarmaður blaðsins segir
samt að ekki sé hægt að gagnrýna
þessa ráðstöfun. Þar vísar hann til
þess að niðurskurðurinn á spítal-
anum hafi verið hroðalegur fyrir
og því sé betra að fá einhverja
starfsemi á spítalann heldur en
enga. Þegar bamadeildin fer,
standa eftir skurðstofa fyrir biðl-
istaaðgerðir og augndeild.
Á spítalanum hefur verið ágrein-
ingur um þrjár leiðir, þ.e. hvort
spítalinn ætti að vera sjálfstæður
eða sameinast annað hvort Land-
spítalanum eða Borgarspítalanum.
Samkvæmt heimildum blaðsins
líta starfsmenn samt á þetta sem
besta mál, úr því sem komið er.
Það kemur þeim samt á óvart að
sameina eigi þessa spítala með
stuttum fyrirvara, þ.e. um áramót.
Þar vísa þeir m.a. til samþykktar
læknaráðs, en þar var ekkert
minnst á sameiningu, en kveðið á
um að samræma ætti rekstur spít-
alans heildarstefnu í heilbrigðis-
málum.
Þá herma sömu heimildir að í
raun standi harður slagur um
barnadeildina milli Borgarspítala
og Landspítala. sem hýsir barna-
spítala Hringsins. Á Landspítala
telja menn sig geta yfirtekið deild-
ina án nokkurs tilkostnaðar. Borg-
arspítalamenn benda á að þar sé
fyrir háls-, nef- og eymadeild
ásamt slysadeild og telja sig því
verða að hafa barnadeild.
Egill Ólafsson, leikari og hljómlistarmaður, að slá
í gegn í þýsku sjónvarpi?
Egill leikur
í þýskri sápu
Egill Ólafsson, leikari og tónlist-
armaður, leikur í unglingamynda-
flokki sem þýska sjónvarpsstöðin
RTL, stærsta einkastöðin í Þýska-
landi, gerir og sýndur verður eftir
áramót Þegar er búið að gera tvo
þætti, en til stendur að gera 10
þætti til viðbótar.
Upptökur fóru fram í Afríku í
haust. Þættimir gerast hins vegar í
Þýskalandi. Þættimir fjalla um há-
skólastúdenta, sem hætta námi og
fara niður að strönd og eyða tíman-
um við að sigla á seglbrettum. Eg-
ill leikur veitingamann, sem stúd-
entamir hafa mikil samskipti við.
Þetta er með stærri hlutverkum í
myndaflokknum. Egill tók fram að
hann sigldi ekki á seglbrettum í
myndunum.
Það má segja að leikur Egils í
myndinni Karlakórinn Hekla hafi
leitt til þess að hann tók að sér
þetta hlutverk í þýska mynda-
flokknum. Karlakórinn var tekinn
upp í Þýskalandi að hluta til. Hann
kynntist þar kvikmyndagerðar-
mönnum, sem bentu á hann þegar
leikarar vom valdir í hlutverk í
unglingamyndaflokkinn.
Ráðgert er að gera 10 þætti til við-
bótar og hefjast upptökur á þeim í
vor.
Egill lék einnig í sumar í sjón-
varpsmynd fyrir Norddeutsche
Rundfunk. Þar leikur hann íslend-
ing sem hefur verið búsettur í
Þýskalandi í átta ár. Þessi mynd
verður sýnd á næstu dögum í
þýsku sjónvarpi.
Egill sagðist vonast eftir að fá
fleiri tækifæri til að leika erlendis.
Hann sagði þetta vera mjög
skemmtilega reynslu. Hann sagði
ólíku saman að jafnan að vinna við
kvikmyndagerð í Þýskalandi og hér
heima. Kvikmyndagerðarmenn úti
hafi úr miklu meiri peningum að
spila og vinnubrögð öll séu mun
skipulagðari.
Þessa daga er Egill að vinna að
uppsetningu á leikritinu Eva Luna
í Borgarleikhúsinu, en hann semur
alla tónlist við leikritið. Frumsýn-
ing er ráðgerð í lok desember.
-EÓ
Stjórnsýsluhús
Frá Guttormi Óskarssyni, fréttarltara Tfmans f Skagafirði
I síðustu viku var vígt nýtt stjórnsýsluhús á Sauðárkróki og tekið i
notkun. Húsið var áður kjörbúð Kaupfélags Skagftrðinga, en Ámi
Ragnarsson arkitekt hefur hannað allar breytingar og faríst það
forkunnarvel úr hendi.
Byggingameistari var Bragi
Skúlason. Húsið mun nú kosta
um 100 milljónir króna. Eigend-
ur þess eru Sauðárkróksbær,
Héraðsnefnd Skagafjarðar og
Byggðastofnun, en stofnunin
opnaði einmitt útibú í húsinu
sama daginn og það var vígt.
Snorri Bjöm Sigurðsson bæjar-
stjóri setti samkomuna, bauð
gesti velkomna og rakti tildrög
þess að ráðist var í byggingu
hússins. Þorsteinn Ásgrímsson,
formaður héraðsnefndar, þakk-
aði hvað vel hefði verið staðið að
þessari framkvæmd og þá sér-
staklega verktökunum, TVé-
smiðjunni Borg.
Þá tók til máls Matthías Bjama-
son, formaður stjórnar Byggða-
stofnunar. Hann ræddi mikil-
vægi stofnunarinnar fyrir upp-
byggingu atvinnulífs í Iandinu
og svaraði einnig að nokkru leyti
þeim árásum, sem stofnunin
hefur orðið fyrir að undanfömu.
Þá afhenti Matthías einnig pen-
ingagjöf, kr. 300 þúsund, til
Heimilisiðnaðarsafnsins á
Blönduósi og sömu upphæð til
Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
Forráðamenn safnanna þökkuðu
þetta rausnarlega framlag
Byggðastofriunar.
Um 150 manns voru
vlflstaddir opnun stjómsýslu-
hússlns, sem var svo opið,
almennlngl tll sýnls.
á Sauðárkróki
Póstur og sími:
Símaskráin
í tveimur
bindum
Símaskráin, sem kemur út næsta
vor, verður í tveimur bindum, í stað
eins áður, og er breyting þessi gerð
til að gera notkun hennar þægilegri.
I fyrra bindinu verður nafnaskrá,
sem nær yfir alla símnotendur á
landinu og verður hún sem áður
skipt eftír svæðisnúmerum.
Síðara bindið verður í raun við-
skiptasímaskrá, sem í verður sérstök
atvinnusímaskrá auk gulu síðnanna,
sem verða endurbættar frá fyrri út-
gáfu. Ætlunin er að auðveldara verði
að leita að ákveðinni vöm eða þjón-
ustu. Þá verða í fyrsta sinn svokall-
aðar bláar síður með númeraskrá yf-
ir stjómsýslu ríkis og sveitarfélaga.
Einnig verður sú nýbreytni að far-
síma-, fax- og boðkerfanúmer verða
birt með rétthafa heimilissíma og
faxnúmer með atvinnusímanúmer-
um, í stað þess að hafa þau í sér-
staloi skrá. -PS