Tíminn - 23.10.1993, Page 7
Laugardagur 23. október 1993
Tíminn 7
* FT'
1 H : i t pH |S ; Pil
Jif. II
hie! Wm
m.§i ;j
hifitr ejlífu
pmmiðar
/^- Upprunaleg hæð 146.7 m
Núverandi hæ& 137 m
Keópspíramíðinn |
KonungsklefinrvQ^^Stóri salurír,
* (47 m) i
Drottninaarklefinn rv-
Stóri salurinn
Neðanjarðarklefi
Blindgöng Gryfja
) - pajzA
Fyrir 4.500 árum var þessi bátur
smíðaður. Ef til vill var hann notaður
til að flytja lík Keóps konungs til
hinstu hvflu. Nú er báturinn á safni á
bak við grafhýsi hans, Keóps-pira-
míðann. önnur kenning er sú að Ke-
óps ætti að sigla honum um himin-
hvolfiö ásamt sólarguðinum Ra.
Píramíðarnir í Giza. Stóri salurinn
ásamt grafklefa Keóps eru einhver
frægustu verk úr byggingarsögu
hins Gamla konungdæmis. Veggir
hins 46 metra langa gangs eru úr
sléttpússuðum kalksteinshellum,
sem felldar eru svo þétt saman að
ekki má koma fingurnögl á milli.
Gangakerfi Keóps-píramlðans er
óvenju flókið og hefur valdið vanga-
veltum um dulspekilegar og trúar-
legar merkingar. Konungsklefinn var
gerður fyrir Keóps og I drottningar-
klefanum átti trúlega myndastytta af
kónginum aö standa. Efstu klefamir
fimm eru byggingarfræðilegt snilld-
arverk til þess aö koma í veg fyrir að
konungsklefinn láti undan þrýstingi
hinna þungu steina. (Teikning: Stieg
Larsson/TT)
um þeirra hurfu þó löngu fyrr og í
uppnáminu á tímum sjöunda ætt-
liðar — fyrir um það bil 2350 til
2180 árum — voru grafimar rænd-
ar í fyrsta sinn.
Keóps í ölið?
Hvað varð um Keóps konung? Það
veit enginn. Ef til vill drakk bjór-
þyrstur Norðurlandabúi hann á
miðöldum.
Frá því segir að egifskar múmíur
hafi verið fluttar út og muldar til
nota í læknislyf. Meðal annars
munu múmíur hafa verið notaðar í
hina vinsælu teriak-blöndu, sem
einn af trúnaðarlæknum Nerós
gerði uppskriftina að og var talin
allra meina bót; átti til dæmis að
taka inn við eitrun. Bestu ölgerðar-
menn á Norðurlöndum á miðöld-
um eru sagðir hafa bragðbætt bjór-
inn með fingri af múmíu.
En þeirri frásögn ber að trúa var-
lega, því að hún hefur allt að
geyma, sem prýða má góða þjóð-
sögu.
Tcxti og ljósmyndir: Hans Öhrn/TT
Laus staða
Staða forstöðumanns við Tilraunastöð Háskóla (s-
lands í meinafræði að Keldum er laus til umsóknar.
Forstöðumaður er jafnframt prófessor við lækna-
deild Háskóla Islands með takmarkaðri kennslu-
skyldu samkvæmt nánari ákvörðun háskólaráðs.
Forstöðumaður skal hafa lokið háskólaprófi í lækn-
isfræði dýra eða manna, líffræði eða öðrum skyld-
um greinum sem eru á rannsóknarsviði stofnunar-
innar. Forstöðumaður er ráðinn til sex ára í senn,
en hann getur haldið prófessorsembætti þótt hann
láti af störfum forstöðumanns. Laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember 1993. Um-
sækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um vísindastörf þau, er þeir hafa unnið, rit-
smíðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og
störf. Með umsókninni skulu send eintök af vísinda-
legum ritum og ritgerðum umsækjenda, prentuðum
og óprentuðum.
Umsóknir skulu sendar til stjómarformanns Til-
raunastöðvarinnar, Þórðar Harðarsonar prófess-
ors, Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að
Keldum.
Stjórnarformaður veitir nánari upplýsingar um starf
forstöðumanns.
Tilraunastöð Háskóla íslands í meinafræði að
Keldum við Vesturlandsveg, 112 Reykjavík.
Starf á eiturefnasviði
Hollustuvemd ríkisins óskar eftir að ráða tíma-
bundið efnafræðing, efnaverkfræðing eða aðila
með hliðstæða háskólamenntun. Starfið felst m.a.
í ráðgjöf, fræðslu og eftirliti með merkingum og
innflutningi eiturefna og vörutegunda sem inni-
halda skaðleg efni. Einnig f verkefnum tengdum
löggjöf á eiturefnasviði, m.a. í tengslum við Evr-
ópskt efnahagssvæði.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri
störf skal skila til Hollustuvemdar ríkisins fyrir 10.
nóvember nk. Æskilegt er að umsækjandi geti haf-
ið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir Sigur-
björg Gísladóttir, forstöðumaður eiturefnasviðs, í
síma 688848.
Hollustuvemd ríkisins
Ármúla 1a, pósthólf 8080,128 Reykjavfk
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til
starfa á neðangreinda leikskóla:
Sunnuborg v/Sólheima, s. 36385
Völvuborg v/Völvufell, s. 73040
Eingöngu í 50% starf e.h. á leikskólann:
Rofaborg v/Skólabæ, s. 672290
Þá vantar starfsmann með sérmenntun í 50% stuðn-
ingsstarf e.h. á leikskólann:
Njálsborg v/Njálsgötu, s. 14860
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
Umsjónarmaður
Félagasamtök í Reykjavík óska eftir umsjónarmanni
til starfa við húseign sína. Um er að ræða fullt starf.
Launakjör skv. samningum opinberra starfsmanna.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 1. nóvember
1993 á auglýsingadeild blaðsins, merkt umsjónar-
maður.