Tíminn - 17.11.1993, Qupperneq 5
Miðvikudagur 17. nóvember 1993
Reykjanes-
skóli áfram
lokaður
Menntamálaráðherra fellst ekki á tillögu
um að gera héraðsskólann á Reykjanesi
að skóla fyrir unglinga sem eiga í
félagslegum erfiðleikum
Nefnd sem skipuð var til að
gera tillögu um framtíð héraðs-
skólans á Reykjanesi leggur til
að skóli verði rekinn á Reykja-
nesi fyrir böm á aldrinum 14-16
ára sem eiga í sérstökum félags-
legum erfiðleikum. Mennta-
málaráðherra segir að tillögur
nefndarinnar gangi gegn gild-
andi skólastefnu og verði því
ekki að veruleika nema ákveðið
verði að breyta um stefnu.
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra ákvað árið 1991
að fella niður skólastarf í hér-
aðsskólanum á Reykjanesi
vegna þess hvað nemendur
vom fáir. Petta var harðlega
gagnrýnt af Vestfirðingum.
Menntamálaráðherra skipaði í
framhaldi af því nefnd sem falið
var að gera tillögur um framtíð
skólans. Nefndin skilaði áliti í
vor og lagði til að skólahald yrði
áfram á Reykjanesi. Þar yrði
rekinn grunnskóli fyrir börn
sem ættu í sérstökum félagsleg-
um erfiðleikum. Nefndin aflaði
sér stuðnings fyrir tillögu sinni
meðal ýmissa stofnana í
menntakerfinu.
Ólafur G. upplýsti á Alþingi í
svari við fyrirspum frá Jónu Val-
gerði Kristjánsdóttur alþingis-
manni að hann myndi ekki beita
sér fyrir því að tillögunni yrði
hrint í framkvæmd. Tillagan
væri ekki í samræmi við gild-
andi menntastefnu. Menn teldu
að betra væri að leysa félagsleg
vandamál nemenda á heima-
slóðum frekar en að taka þá úr
sínu umhverfi.
Petta sjónarmið gagnrýndu
þingmenn Vestfirðinga, ekki síst
flokksbræður ráðherrans, Matt-
hías Bjarnason og Einar K. Guð-
finnsson, og sögðu að það gæti
einmitt bætt stöðu þessara
bama að komast í annað um-
hverfi. Jóna Valgerður benti
einnig á að yfirvöld hefðu
neyðst til að taka böm úr um-
ferð með æmum kostnaði og
setja þau á meðferðarheimili, en
verið er að stofna slíkt heimili í
Skagafirði.
Menntamálaráðherra sagði að
Alþingi þyrfti að taka afstöðu til
tillögu um sérstakan skóla fyrir
unglinga sem eiga í félagslegum
erfiðleikum, í frumvarpi um
framhaldsskóla og þegar grunn-
skólalögum verður breytt og
gmnnskólirm færður til sveitar-
félaga.
-EÓ
Iðnneminn
60 ára
Iðnnemar fagna því um þessar
mundir að 60 ár em liðin frá út-
gáfu fyrsta Iðnnemans, málgagni
samtaka þeirra.
Tímamótanna er m.a. minnst
með stærstu útgáfu málgagnsins
til þessa, sem telur um 120 síður.
Pað eru tvöfalt fleiri síður en
nokkru sinni áður og gefið út í 6
þúsund eintökum.
í afmælisútgáfunni er m.a. saga
Iðnnemans rakin að hluta og ým-
islegt rifjað upp sem á dagana
Innbrot í
tvo sumar-
bústaði
í fyrrinótt var brotist inn í tvo
sumarbústaði í landi Kárastaða í
Þingvallasveit og stolið þaðan
talsverðu af innbúi. Upp komst
um innbrotið í gærmorgun þegar
eigandi annars bústaðarins fór til
að vitja hans. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglunnar á Selfossi er
unnið að rannsókn málsins og er
hún á lokastigi.
Brotnar vom rúður í bústöðun-
um og stolið úr þeim hlutum eins
og myndbandstækjum, örbylgju-
ofnum og fleiri verðmætum, auk
þess sem talsverðu af áfengi var
stolið, en báðir bústaðimir em
ríkulega búnir.
hefur drifið. Auk þess er rætt við
fyrrverandi forystumenn samtak-
anna og margt fleira.
Blaðinu er dreift til allra iðn-
nema, alls 4500 talsins, til 1000
iðnfyrirtækja, allra skóla og bóka-
safna landsins, auk þess sem það
er til sölu á skrifstofu Iðnnema-
sambandsins. -GRH
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
5
Bestu íslensku fræði-
bækurnar
Bækumar „íslenskir fiskar" eftir Gunnar Jónsson og „Blómin okkar'
eftir Stefán Aðalsteinsson og Bjöm Þorsteinsson fengu viðurkenningar,
sem bestu fmmsömdu, íslensku fræðibækur ársins 1992, á afmælisráð-
stefnu Félags bókasafnsfræðinga í gær.
Bæði höfundar og útgefendur
bókanna fengu viðurkenningar
frá félaginu. „íslenskir fiskar" var
valin besta fræðibók ársins fyrir
fullorðna. Höfundur hennar er
Gunnar Jónsson fiskifræðingur
en Fjölvi gaf bókina út.
Bókin „Blómin okkar" var tfl-
nefnd besta fræðibókin fyrir
böm. Höfundur texta er Stefán
Aðalsteinsson og höfundur
mynda Bjöm Þorsteinsson. Út-
gefandi er Bjallan.
Við val bókanna var tekin hlið-
/-------------------------------
sjón af aðgengi upplýsinga og þá
sérstaklega hvort í þeim væm
hjálparskrár með efnisatriðum.
Við afhendingu viðurkenning-
anna sagði Guðrún Pálsdóttir,
formaður Félags bókasafnsfræð-
inga, að hugmyndin væri að hafa
jákvæð áhrif á höfunda og útgef-
endur og vekja athygli á nauðsyn
þess að gera fræðibækur vel úr
garði hvort sem markhópurinn
væri fullorðnir eða böm, al-
menningur eða sérfræðingar.
Hraðbát
stolið
Hvítum hraðbát með utanborðs-
mótor var stolið af svæði Snarfara
við Elliðavog í síðustu viku, en
þjófnaðurinn kom í ljós um helg-
ina þegar eigandinn fór að vitja
bátsins. Báturinn ber nafnið Ter-
hy, en ber auk þess áletrunina,
„Big fun 1600S".
Um er að ræða plastbát með 75
hestafla Suzuki utanborðsmótor
og er verðmæti bátsins eitthvað á
aðra mflljón króna. Báturinn stóð
á vagni með tveimur hásingum
og hafa þjófamir bírætnu tengt
vagninn aftan í bifreið sína og ek-
ið á brott. Þeir sem hafa orðið
bátsins og vagnsins varir em vin-
samlegast beðnir um að hafa
samband við Rannsóknarlög-
reglu rfkisins í síma 44000. -PS
S
TENDr
skipta máli
Breytt útlit, betra útsýni og
einstakur tæknibúnaöur
einkennir nýju FENDT 300 -
dráttarvélarnar
m+ vendigír meö forvalshnappi. 21 gír áfram, 21 gír afturábak. 40 km/h aksturshámark.
">+ framslútandi og fyrirferðarminni vélarhlíf eykur útsýnið fram fyrir vélina.
nirnt kröftugri, sparneytnari og hljóðlátari hreyfill með meiri seiglu (torki).
handhæg rafeindastýring á beislislyftu eykur verkhæfni og afköst.
þriggja hraða aflúttak með rafsegulstýrðu tengsli.
m+ sjálfvirk, álagsstillanleg framdrifslæsing.
m+ auka-stjórnbox aftan á afturbretti fyrir beislislyftu og aflúttaksás.
m+ hæöarstillanlegt veltistýri, betra mælaborð og loftfjaðrað ekilssæti auka þægindi
ökumanns.
Og ekki má gleyma aðalsmerki FENDT 300 dráttarvélanna, vökvatengsli
(Túrbómatik-kúpling) sem gefur vélunum aksturseiginleika sjálfskiptra bíla.
V
Hágœðavélar á hagstœðu verði - Pantið tímanlega
búvélar
SlÐUMÚLA 27, REYKJAVlK.
SlMI91-687050.
J
-PS