Tíminn - 24.12.1993, Qupperneq 2

Tíminn - 24.12.1993, Qupperneq 2
2 tíinlnn Föstudagur 24. desember 1993 LEIÐARI VETTVANGUR Hátíð Ijóss ogfriðar /'■"1 jaldan verða mótsagnimar í mannlegu samfélagi eins himinhrópandi og í kringum jólahátíðamar. Fréttir af metsölu á hinum og þessum hlut- L 3 um, sem em vinsælir til jólagjafa, fylgja fréttum af sístækkandi hópi fólks sem leitar á náðir hjálpaistofnana vegna nauðþurfta. í erli jólaundirbún- ingsins er enginn tími fyrir grundvallarumræðu og við látum hjá líða að taka á þeirri breytingu sem virðist vera orðin á íslensku samfélagL Hvað er jullveldi? Glansandi yfirborð neyslusamfélagsins getur villt okkur sýn um skeið, en þegar fréttir síðustu vikna em skoðaðar nánar fer ekki á milli mála að útlitið er dekkra en oftast áður. Atvinnulausum fer fjölgandi og kaupmáttur rýmar. Þegar við horfum til nágrannalandanna sjáum við að atvinnuleysið hér getur enn átt eftir að aukast og hvorki er að heyra né sjá að við íslendingar höfum einhveijar þær lausnir á takteinum sem geta forðað okkur frá hlutskipti Norðurlandaþjóðanna, en hjá þeim er atvinnuleysið á milli 10 og 20%. Það er staðreynd að fáar þjóðir em skyldari innbyrðis en íslendingar. Og það verður heldur ekki véfengt að við gengum Kristi á hönd án teljandi átaka og í dag em nær allir íslendingar í þjóðkiriqunni. Okkur hefur frá upphafi fs- landsbyggðar verið það ljóst að öriög þjóðarinnar byggjast á því að við höld- um friðinn hveijir við aðra. Það stefnir því í óefni ef hér verða til tvennskonar samfélög. Þeirra sem hafa nóg af lífsins gæðum og öreiga. Merid örbirgðar hafa breyst frá því sem áður var og ekki er líklegt að við eigum eftir að sjá fólk búa í hreysum eða bröggum á borð við það sem sást allt fram á sjöunda áratug aldarinnar. Við erum aftur á móti að rekast á Iitlu stúlkuna með eldspýtumar á hveijum degi án þess að sjá hana. Þegar iðnaðarmenn og iðnrekendur blása í lúðra og skora á landsmenn að velja íslenskt tekur þjóðin kallinu þó að valið sé stundum dým verði keypt Og í skoðanakönnun sem gerð var fyrir skemmstu kom í ljós að helm- ingur þjóðarinnar er tilbúinn að sætta sig við hærra verð á landbúnaðarafurð- um frekar en að flytja þær inn frá útlöndum. Það verður samt ekki fram hjá því litið að alltof stór hluti þjóðarinnar á engra kosta völ. Fjöldi fólks verður að sætta sig við að kaupa aldrei nema það ódýrasta og annimar hjá Rauða krossinum, Hjálparstofnun kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd segja sína sögu. Okkur væri hollt að nota frið jólanna til að hugleiða það hvemig samfé- lagi við viljum búa í bæði við guð og menn. Það nægir ekki að jánka boðskap jólanna um kærleika og frið ef vanhugsaðar gerðir okkar kljúfa þjóðina og út- hýsa Jesúbaminu úr hjörtum okkar. Flestum þykir umhugsunin um þurfalinga og sveitarómaga liðinnar tíðar meir en ógeðfelld. Þær em fleiii myndir fortíðar sem við viljum helst vera laus við að sjá annarstaðar en á tjaldi eða skjá. Um leið getum við tregað það að samtakamáttur fólks hefur farið dvínandi og trúin á betri heim sömuleiðis. Það veitist mörgum erfitt að veita þurfandi fólki af kærieika sínum nema með ópersónulegum peningagjöfum. Og eins og hátíðahöldin á 75 ára afmæli full- veldisins 1. desember síðastliðinn sýndu, þá eigum við líka orðið erfitt með að bera tilfinningar okkar til fullveldisins á, torg. Ef vel er að gáð þá gæti frumleiki Krists hjálpað okkur til að finna nýjar leiðir til að efla með okkur náungakær- leika og trúna á önnur gildi en þau sem við höfum hlaupið hraðast á eftir að undanfötnu. Þó að fáir virðist kæra sig um að undirselja jólin lögmálum markaðariris þá gerist það einfaldlega. Það er áf því að við veljum ekki þá leið sem við förum. Við látum leiðast. Vilhjálmur Amason kemst svo að orði í jólahugleiðingu sinni hér í Tím- anum á miðvikudaginn: ,Að fylgja Kristi í fijálsum kærleika felur það í sér sem hveijum manni er erfiðast að ná, að láta af þeini eigingjömu kröfu að at- burðir lúti hans eigin vilja. Þakklætið greiðir öðm fremur fyrir þessari afstöðu, því það losar hug manns og vilja úr viðjum eigin sjálfs og beinir honum að því sem okkur er gefið, því sem við þiggjum. Þegar allt kemur til alis á þetta við um nánast allt, því við erum ekkert af eigin rammleik. Þetta sjálf, sem hvert okkar er, og takmarkar alla okkar sýn á heiminn, er ekki nema angi af öllu sköpunarverkinu og þiggur allt sitt af því. Lífið höfum við þegið að gjöf. Krist- in kenning segir að Guð hafi með Kristi gefið okkur möguleika til nýs lífs og trúin felist í því að þiggja þessa möguleika. Jólin em til þess að þakka þá gjöf og hugleiða þá möguleika." GUÐMUNDUR HÁLFDANARSON dósent í sagnfræði við Háskóla ís- lands Þann 1. desember 1918 varð ísland fijálst og full- valda ríki í sambandi við Danmörku ,um einn og sama konung" eins og segir í dansk-íslensku sambands- löguniun. Með þessum samningi var sjálfstæðisbaráttu ís- lendinga lokið í raun, af því að þrátt fyrir að Danir fæm á- fram með utanríkismál okkar var það gert í umboði íslensku þjóð- arinnar, en ekki með tilvísun í skýlaus réttindi dönsku stjómar- innar. En þrátt fyrir mikilvægi þessa dags fyrir sögu okkar var lít- ið um hátíðahöld í tilefni 75 ára afmælis fullveldisins nú fyrir skemmstu, og virtist þjóðin al- mennt veita því takmarkaða at- hygli. Reyndar hefur fullveldis- dagurinn ætíð liðið fyrir það að hann ber upp á þann tíma er skammdegið er að verða sem svartast hér á hjara hins bygKÍlega heims og landsmenn eru í óða önn að undirbúa sig undir önnur hátíðahöld sem skipa hærri sess í meðvitund þeirra. En ég held að hér komi einnig til sú staðreynd að menn gera sér almennt ekki grein fyrir því hvað gerðist þenn- an dag fyrir 75 árum einfaldlega vegna þess að þeim er ekki ljóst hvað býr í hugtakinu fullveldi. Einnig má benda á að litlar sem engar breytingar urðu í íslensku stjómarfari með sambandslögun- um — við höfðum áfram þriggja manna ríkisstjóm sem var ábyrg gagnvart Alþingi, æðsta yfirvald íslendinga var áfram í Kaup- mannahöfn, konungur gat áfram stöðvað íslenska lagasetningu með neitunarvaldi sínu, æðsta dómsstig íslendinga fluttist ekki inn í landið fyrr en 1920, o.s.frv. Gmnnur fullveldis íslensku þjóðarinnar var lagður með af- námi frönsku einvalds-stjómar- innar á tímum byltingarinnar miklu í Frakklandi seint á 18. öld. Með aftöku Lúðvíks 16. snemma árs 1793 mfu Frakkar þá taug sem stjómspekingar höfðu talið Iiggja á milli almættisins og stjómarherrans og valdið var endanlega flutt til þjóðarinnar. Þessi tímamót vom aðeins loka- punktur þróunar sem átt hafði sér stað árin á undan, þar sem íbúar Frakklands skilgreindu sig annars vegar sem þjóð, og þjóðina hins vegar sem hina einu sönnu upp- sprettu valdsins í ríkinu. Full- veldið var eitthvað sem þjóðin átti í sameiningu, eitthvað sem enginn einn meðlimur þjóðarinn- ar átti meira tilkall til en annar. Á þessari sömu hugmynd byggjum við enn þann dag í dag. Allt ríkis- vald á sér upptök í þjóðinni og lögin sömuleiðis, jafnframt því sem þjóðin öll er skyldug til að lúta lögum og vilja ríkisins — a.m.k. svo fremi sem ekki er brot- ið gegn grundvallarréttindum okkar eins og þau em skilgreind í stjómarskrá eða þeim alþjóða- samþykktum sem við eigum aðild að. Vandamálið við þessa hug- mynd hefur alla tíð verið að skil- greina hvað átt er við með orðinu þjóð. Þetta hefur aldrei vafist neitt sérstaklega fyrir íslending- um, enda eru landamæri okkar skýrt afmörkuð og menningin til- tölulega einlit. Fyrir Frökkum var þetta ekki svona einfalt — og skil- greiningarvandinn er jafnvel enn erfiðari á svæðum eins og Balkanskaga nútímans. Og það sem verra er, smám saman hefur þjóðin yfirtekið fullveldishugtak- ið, þótt í upphafi hafi hún ein- ungis átt að vera hentugur ramini fyrir fullveldi einstaklinganna. Það að franska þjóðin var valin sem uppspretta fullveldisins í byrjun, en ekki íbúar hvers hér- aðs fyrir sig, eða íbúar Evrópu allrar, á sér engar rökrænar skýr- ingar, heldur studdist einungis við staðreyndir þess tíma sem fullveldið var fært þegnunum. í raun væri á margan hátt skyn- íraun væri á margan hátt skynsamlegast og réttlátast að heimurinn allur lyti sömu lögum og sömu heildarstjóm, enda hefur komið í Ijós að skipting íþjóðríki hefurskap- að óteljandi vandamál í al- þjóðasamskiptum. samlegast og réttlátast að heimur- inn allur lyti sömu lögum og sömu heildarstjóm, enda hefur komið í Ijós að skipting í þjóðríki hefur skapað óteljandi vandamál í alþjóðasamskiptum. Slíkt finnst mönnum erfitt að ímynda sér í dag og það var auðvitað óhugs- andi á 18. öld þegar samgöngur voru jafn vanþróaðar og raun bar vitni. Því létu menn sér nægja að takmarka þann hóp sem átti full- veldið í sameiningu við sæmilega viðráðanlega stærð, sem byggðist í mörgum tilvikum á þeirri ríkja- skipan sem þjóðríkin erfðu frá einveldunum gömlu. í dag er ástandið auðvitað allt annað. Á tímum greiðra flugsam- gangna, fjarskipta, sjónvarps, tölvuneta, o.s.frv., eru landamæri þjóða löngu hætt að hafa efna- hagslega þýðingu — í ýmsum til- vikum er óskorað fullveldi þjóða yfir afmörkuðum landsvæðum meira að segja stórhættulegt, ekki síst þegar kemur að vandamálum tengdum mengun og mengunar- vömum. En samt sem áður ótt- umst við allt afsal fullveldis þjóð- arinnar eins og pestina og við get- um ekki hugsað okkur neinn annan ramma fyrir fullveldi okk- ar en þá þjóð sem við tilheyrum nú. Að mínu mati byggir slíkur hugsunarháttur á misskilningi á því hvað felst í hugtakinu full- veldi. Ég tel þannig að það sem vannst með sjálfstæðisbaráttu ís- lendinga hafi ekki fyrst og fremst verið sjálfstæði þjóðarinnar sem slíkt, heldur réttindi þegnanna til að ráða yfir lífi sínu, tjá skoðanir sínar og hafa áhrif á lagasetningu. Ég er heldur ekki í nokkrum vafa um að sú staðreynd að íslending- ar klufu sig frá Dönum og sú bar- átta sem forfeður okkar og for- mæður háðu til að ná þessu marki var nauðsynlegur þáttur í því að tryggja okkur þessi réttindi, auk þess sem sú ábyrgð sem fylgir því að reka eigið ríki hafði mjög jákvæðar afleiðingar í för með sér fyrir íbúa landsins. En með þessu er ekki sagt að íslenskt þjóðríki sé eitthvert þúsundáraríki, eða stofnun sem okkur er skylt að viðhalda um aldur og æfi. Þátt- taka íslendinga í stærri ríkisheild er fjarri því að vera óhugsandi, og þá án þess að fullveldi einstak- linganna skerðist endilega við það. Skilyrði fyrir slíku væri auð- vitað að við gengjum ekki inn í annað þjóðríki, þ.e.a.s. að við gerðumst ekki einhvers konar viðhengi við ríki þar sem önnur þjóð réði öllu, heldur fremur að ísland yrði einhvers konar hérað í stærri ríkisheild og að íslendingar tækju þátt sem fullgildir þegnar í stjóra og lagasetningu þess ríkis sem þeir tilheyrðu. Þar yrðu rétt- indi þegnanna og menning að vera virt þannig að komið væri í veg fyrir að íbúar einstakra hér- aða kúguðu aðra, þótt sjálfsagt komi fjarlægð frá valdamiðju á- vallt til með að hafa í för með sér óánægju á jaðarsvæðum, eða eitt- hvað í líkingu við það sem gerist á íslandi nú á tímum. Ég vil taka það fram að þetta eru aðeins fræðilegar hugleiðing- ar og ég er alls ekki að boða með þessu að íslendingar eigi að sækja um aðild að Evrópubandalaginu. En hugleiðingar sem þessar era samt sem áður fjarri því að vera einhvers konar ójarðtengdir draumórar, þar sem þróun stjóm- arfars í heiminum er mjög hröð og um margt óútreiknanleg. Af- staða íslendinga til þessarar þró- unar verður að byggjast á þekk- ingu á þeim grunni sem við stöndum, þ.e. á sögu og tilgangi þeirra hugtaka sem ráða stefnu- mótun okkar í framtíðinni. Því verðum við að gera okkur fulla grein fyrir hvað átt er við með af- sah fuÚveldis áður en við tökum endanlegar ákvarðanir á grund- velli þess að afsal fullveldis komi aldrei til greina. Ritstjóri: Ágúst Þór Ámason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjóri: Stefán Ásgrímsson Útgefandi: Mótvxgi hf Stjómarformaður: Gunnlaugur Sigmundsson Skrijstofustjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson Ritstjóm og skrifstofur: Hvetfisgðtu 33, Reykjavík Póstfang: Pósthólf5210, 125 Reykjavík Aðalstmi: 618300 Póstfax: 618303 Auglýsingasími: 618322 Auglýsingafax: 618321 Setning og umbrot: Txknideild Ttmans Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrifi 1400 kr. Verð í lausasólu 125 kr.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.