Tíminn - 05.02.1994, Blaðsíða 2
Laugardagur 5. febrúar 1994
Atvinnurekendur
Norræn ungmenni á aldrinum 18-26 ára óska eftir
vinnu á Islandi í sumar á vegum NORDJOBB.
Ef ykkur vantar starfskraft í styttri eða lengri tíma og
hafið áhuga á norrænu samstarfi, hafið þá samband
við Nordjobb hjá Norræna félaginu í Reykjavík, s. 91-
19670, eða Norrænu upplýsingaskrifstofuna á ísafirði,
s. 94-3393.
Bændur
Viljiö þið ráða norræn ungmenni á aldrinum 18-26 ára í
sumarvinnu? Hafið samband við NORDJOBB hjá Nor-
ræna félaginu í Reykjavík, s. 91-19670, eða Norrænu
upplýsingaskrifstofuna á ísafirði, s. 94-3393.
Ert þú á aldrinum
18-26 ára?
NORDJOBB er samnorrænt verkefni sem stuðlar að
vinnumiðlun ungs fólks á Norðurlöndum. Ef þú hefur
áhuga á að vinna sumarvinnuna þína á Norðurlöndum,
getur þú nálgast umsóknareyðublöð fyrir Nordjobb í öll-
um framhaldsskólum, hjá Norræna félaginu í Norræna
húsinu, 101 Reykjavík, og Norrænu upplýsingaskrif-
stofunni í Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði.
Allar nánari upplýsingar fást hjá Norræna félaginu í
síma 91-19670.
Viltu skipta á sumarstarf-
inu þínu?
NORDJOBB er vinnumiðlun ungs fólks á Norðurlönd-
um. Ef þú getur útvegað þér sumarstarf í þínu landi, þá
bjóðum við þér að skipta á þínu starfi og Nordjobb
starfi. Allar nánari upplýsingar hjá Norræna félaginu í
Reykjavík, sími 91- 19670.
Fómarlamb
pólitískrar
valdníöslu?
Þegar Arthúr Björvin
Bollason gekk inn á
Mokka til fundar vib
blabamann Tímans gáfu
menn sig á tal viö hann hver
eftir annan og lýstu yfir
stubningi. Þegar vib vorum
sestir nibur sneri mabur á
næsta borbi sér vib og sagði.
„Viö erum héma fjórir sem
stöndum meb þér Arthúr."
Þaö kom fjótlega í ljós ab
ekki var hægt aö taka viðtal-
ib á Mokka og á leiðinni út í
bíl var Arthúr Björgvin enn
truflabur af fólki, sem stapp-
abi í hann stálinu.
Hvers vegna? Arthúr Björgvin
skrifaði formanni Stéttarsam-
bands bænda bréf sem skipu-
lags- og dagskrárráðgjafi út-
varpsstjóra. Bréfið var gagn-
rýnið á Ríkissjónvarpið og
skrifað á bréfsefni þess. Forsæt-
isráöherra kallaði útvarpsstjóra
á sinn fund og í kjölfarið var
Arthúr Björvin Bollason rek-
inn.
„Heimir Steinsson falaðist
eftir mér í þetta starf síðasta
HJALPUM OKKUR SJALF
veljum íslenskt
0STA- 0G SMJÖRS ALjVN /^\ ps. Bitruhalsi Z Reykjavik f \ 691600 W ÍDAGSBRONl VERKAMANNAFÉLAGIÐ DAGSBRÚN
KJARNAFÆÐI hf.
Fjölnisgötu 1B, Akureyri
MJÓLKURBÚFLÓAMANNA
IJjDUfi
Immm oi
Sími 631600 - Fax. 16270 BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
TIMINN
SPYR . . .
ARTHÚR BJÖRGVIN
BOLLASON
vor og lagði áherslu á að ég
tæki það," segir hann. „Þannig
stóð reyndar á, að fýirst þegar
hann ámálgaði þetta við mig
var ég ekki hrifinn af því. Ég
hafði engan áhuga á því ab
verða skrifstofumaður og ég
hafði líka unnið undir „stjórn"
Hrafns Gunnlaugssonar sem
dagskrárgerðarmaður og tekið
þátt í þeim fíflasirkus, sem var
í kringum hann og Baldur
Hermannsson. Svo gerist það
að Heimir rekur Hrafn eins og
frægt er og þá endurskoða ég
mína afstöðu, fellst á að sækja
um þetta starf og þiggja það.
Tveimur dögum seinna er
Hrafn rábinn aftur.
Heimir kaus fribinn
og niöurlæginguna
Þá þóttist ég skilja það, að nú
myndi hefjast einhvers konar
stríð. Heimir var móðgaður
herfilega með því ab endur-
ráða Hrafn. Það þarf að vera
bæði blindur maður og heyrn-
arlaus aumingi, sem ekki skil-
ur að þetta var gríðarleg ögr-
un. Milli þessara manna gat
ekki orðiö friður á yfirboröinu.
Enda var varla búið að semja
um yfirborðs frið þegar upp-
hófust kreppufundir í Útvarp-
inu vegna tilrauna Hrafns til
að þvinga útvarpsstjóra. Svona
eru vinnuaðferðir þessa manns
og hafa alltaf verið - ab reyna
að hafa eitthvað á menn og
klekkja á þeim með því.
Þaö var ákveðið að halda frið-
inn útávið. Ég var því alltaf
mótfallinn. Þetta var ekki
einkamál þeirra sem vinna hjá
Ríkisútvarpinu. Ríkisútvarpið
er í eigu almennings og al-
menningur á að fá að vita
hvað gerist þar innan veggja.
Þetta var hins vegar ekki sjón-
armið allra þar á bæ.
Heimdallarfundir
í Sjónvarpi
í kjölfarið upphófst þessi
dæmalausi vitleysis-fíflagang-
ur Hrafnsins, Heimdallarfund-
ir í Sjónvarpinu, sem þjóðin
fékk að hlægja aö í áramóta-
skaupinu."
- En Heimir fór ekki í stríð.
„Ja, hann var í stríði, án þess
þó að vera í stríði. Hann ákvað
að láta málin hafa sinn gang
og láta Hrafn komast upp með
það sem honum sýndist. Með-
al annars það að fara langt út
fyrir verksvið sitt, sem fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins
meb því að standa fyrir öflugri
dagskrárgerð í Sjónvarpinu.
Það hefur aldrei verib í þessum
mæli á könnu framkvæmda-
stjóra, enda er hann ekki dag-
skrárstjóri. Hrafn náttúrlega
var með kyndugt bréf þegar að
hann kom þarna inn - mér
skilst að það hafi verið undir-
ritað að menntamálaráðherra
- þar sem sagði að hann væri
einhverskonar yfirdagskrár-
stjóri. Hann stýrði dagskránni
og gerði það með miklum
glæsibrag, sjálfsagt í anda
ýmissa sem sitja í Stjómarráb-
inu, en í óþökk annarra sem
ekki sitja þar."
- Þú varst rekinn úr starfi í gær
fyrir að skrifa formanni Stéttar-
sambands boenda bréf þar sem
þú gagnrýnir Hrafn og hans
menn harðlega. Hvers vegna
skrifaðir þú bréfið?
„Eg var þreyttur, mig skorti
langlundargeð og ég var með
andlegt rasssæri að segja má af
Könnun
ATW
Áfengis og tóbaksverslun ríkisins
Stuðlahálsi 2
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins áformar að opna vín-
búð í Stykkishólmi í maí 1994. Hér með er auglýst eftir
húsnæði til verslunarrekstrarins og samstarfsaðila er
áhuga hefur á að veita versluninni forstöðu. Leitað er eft-
ir aðila sem nú þegar hefur rekstur með höndum sem
samrýmst getur rekstri áfengisverslunar.
Lýsing á þessu verkefni er fáanleg á skrifstofu Stykkis-
hólmsbæjar.
Þeir, sem áhuga hafa á samstarfi, sendi nafn og heimilis-
fang til ÁTVR eigi síðar en 15. febrúar 1994.
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins,
Stuðlahálsi 2,110 Reykjavík.