Tíminn - 18.02.1994, Blaðsíða 2

Tíminn - 18.02.1994, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 18. febrúar 1994 Tíminn spyr... Hefur kvennahreyfingin gef- ist upp á ab andmæla fegurð- arsamkeppnum? Baldvin Jónsson: Svarið er já. Ég hef að minnsta kosti ekki oröiö var við að konur séu neitt aö mótmæla þeim núna. Þær hafa kannski ekki gef- ist upp heldur snúið sér aö öðru enda er þetta spuming um mannréttindi. Ef fólk hefur áhuga á aö taka þátt í fegurðar- samkeppnum á það að mega það eins og þeir sem hafa áhuga á fót- bolta mega taka þátt í honum. Tíöarandinn hefur líka breyst og mannlífið er orðið fjölbreyttara, þannig að fólk getur ekki eytt öll- um sínum tíma í aö gagnrýna þaö sem öörum þykir skemmti- legt en því ekki. Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi: Já, því miður heyrist ekkert frá konum núna um fegurðarsam- keppnir. Mér finnst það mjög miöur því í þessum keppnum birtast ákveðin tákn um þaö hverjir veröleikar kvenna séu. Ég lít á þetta sem afturhvarf tU fyrri tíma og hluta af þeirri lægð sem kvenréttindabaráttan er í núna. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir alþingismaðun Baráttan gegn fegurðarsam- keppnum var fyrst og fremst háð á tímum rauðsokkanna. Þær þóttu arisi róttækar á sínum tíma og það er oft nauðsynlegt tjl að vekja athyglí á málum. Síðan þá hefur heUmikið áunnist í kvennabaráttunni. Konur em ekki lengur metnar eingöngu eft- ir því hversu faUegar og góöar þær em og því tel ég ekki að við þurfum að berjast gegn fegurðar- samkeppnum. Að sumu leyti em þær af hinu góöa, þær byggja stúlkumar upp í framkomu og auka sjálfstraust þeirra. Fiskvinnslan treg til ab gera nýja kauptryggingarsamninga vegna minnkandi þorskafla. Húsavík: Fjarar undan samning- um fiskvinnslufólks? Amar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að vegna samdráttar og þá sér- staklega í þorskafla, hafi gætt ákveðinnar tregöu meðal for- svarsmanna fiskvinnslufyrirtækja að gera nýja kauptryggingar- samninga viö starfsfólk. Hann segist ekki halda annað en að for- ystumenn verkalýðsfélaga við sjávarsíöuna geri sér alveg grein fyrir því að samningamir geta verið íþyngjandi og þá sérstaklega þegar verið sé að bæta við nýjum á samninga. Aðalsteinn Baldursson, starfandi formaður Verkalýðsfélags Húsa- víkur og stjómarmaður í fisk- vinnsludeild VMSÍ, gagnrýnir hinsvegar atvinnurekendur í fisk- vinnslu fyrir að gera ekki kaup- tryggingarsamninga við starfs- fólkiö. Hann segir aö fiskvinnslu- fólk sé nánast orðið að annars flokks fólki og atvinnurekendur haldi launum þess niöri meö því aö gera ekki við þaö kauptrygg- ingarsamninga. „ A einum stað þóttust yfirmenn- imir ekki vita að þaö ætti aö gera kauptryggingarsamning við starfsfólkiö," segir Aöalsteinn. Amar Sigurmundsson segir að þegar samið var um þessa kaup- tryggingarsamninga á sínum tíma viö Verkamannasambandiö þá hafi þeir verið mikiö framfara- spor fyrir fólkiö. Þá hafi þorskafli verið nálægt 400 þúsund tonnum upp úr sjó en stefnir í að verða innan við helmingur þess í ár. „í sumum tilfellum hafa fyrir- tækin ekki viljað bæta við fleiri fastráðnum starfsmönnum og þar af leiöandi hefur dregist að ganga frá slíkum samningum. Þetta kerfi er Iíka orðið dálítiö dýrt fyrir marga þegar mikið er um hráefn- islausa daga," segir formaður Samtaka fiskvinnslustööva. Amar segir að ef atvinnurekandi neitar að gera kauptryggingar- samning við starfsmann geti við- komandi litið á það sem uppsögn. „í núverandi atvinnuástandi þegar atvinnurekandinn segist því miöur ekki geta fjölgaö á þess- um samningum og segist vilja hafa fleira lausráðiö fólk, þá hefur kannski minna gerst. Fólk hefur einfaldlega sætt sig við það." Hann segir að þrátt fyrir þessa tregðu við aö gera nýja samninga þá sé eldri samningum ekki sagt upj). „I sumum tilfellum segja menn bara einfaldlega að þeir geti ekki gert kauptryggingarsamning og fólk verður bara að taka því eins og það kemur fyrir," segir Amar. Hann segir að þrátt fyrir þennan drátt á gerð kauptryggingarsamn- inga þá sé yfirleitt gengið frá hon- um í tengslum viö starfsfræöslu- námskeið fiskvinnslufólks, sem eru oftast haldin einu sinni á ári og þá um þetta leyti. En forsenda þess aö geta sótt þessi námskeið er að hafa gildan kauptryggingar- samning, auk þess sem viökom- andi hækkar dálítið í launum að afloknu námskeiðahaldinu. Arnar segir að á síðustu tveimur og hálf- um mánuði hafi yfir 500 manns lokið starfsfræðslunámskeiðum í fiskvinnslu. -grh Ætli þessir ungu menn muni heillast svo af launakjönjm fiskvinnslufólks ab þeir velji sér fiskvinnu sem framtíbarstarf? Tímamynd CS Hugur karla kannaöur Ráðgjafamefnd Jafnréttisráðs sem hefur það hlutverk að auka þátt karla í jafnréttisum- ræðunni hefur tekið til starfa. Nefndinni er einkum ætlað að afla upplýsinga um viöhorf ís- lenskra karla til jafnréttismála og kanna samspil fjölskyldu- og atvinnulífs karla. Nefndin er stofnuð vegna ábendingar frá nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins sem skilaði skýrslu um stöðu karla í breyttu samfélagi á síðasta ári. Siguröur Svavarsson, ritstjóri og formaöur ráögjafarnefndar- innar, segir að skortur á upp- lýsingum um viðhorf karla hafi háö fyrri nefndinni í starfi. „Við ætlum að kanna hug íslenskra karla til jafnrétt- ismála og eins hvernig at- vinnurekendur bregðast við þegar karlar þurfa að axla fjöl- skylduábyTgð. Til dæmis ef þeir em frá vinnu vegna veik- inda bama eöa hafa áhuga á að taka fæöingarorlof. Það er skilyrði þess að hægt sé að hefja baráttu karla t.d. fyrir rýmri rétti til fæðingaroríofs að við vitum hvort þeir hafi áhuga á að nýta sér þann rétt." Nefndin mun einnig fjalla um félags- og tilfinningaleg vandamál drengja og karla. I því sambandi stefna nefndar- menn aö því að leiða barátt- una gegn ofbeldi jafnvel með skipulagðri herferð. Ráðgjafamefndin á að starfa í tvö ár og Sigurður segist von- ast til að frá henni muni heyr- ast reglulega á þeim tíma. Hann segir að svipaðir hópar starfi annars staðar á Norður- löndunum og að íslenska nefndin muni fylgjast með umræðunni þar og læra af henni. -GBK Sjómannasamband ísiands: Kvótabraskib til saksóknara Reykjavíkurdeild Barnaheilla stofnub Sjómannasamband íslands hefur óskað eftir því við emb- ætti ríkissaksóknara að fram fari opinber rannsókn á meintu skjalafalsi útgerðar Alberts Ólafssonar KE vegna þátttöku nokkurra fyrrver- andi áhafnarmeðlima í kvótakaupum útgerðarinnar. Bragi Steinarsson vararíkissak- sóknari staöfestir að erindi þessa efnis hafi borist embætt- inu fyrir tíu dögum eða svo. Hann segir þetta trúlega vera í fyrsta skipti sem ríkissaksókn- ari sé beðinn að rannsaka meint kvótabrask. Bragi segir að í framhaldi af erindi Sjómannasambandsins hafi embættið óskað eftir um- sögn og upplýsingum frá sjáv- arútvegsráðuneytinu. „Við fengum bara bráða- birgðalögin og tillögur ráðu- neytisstjóranna," segir Bragi. Hann segist halda að það verði litla lausn að fá á þessum ágreiningi sjómanna og út- vegsmanna á lögreglusviðinu. „Ég held að lögreglan leysi ekki þessi ágreiningsefni," segir vararikissaksóknari og segir að deiluaðilar geti sótt sín mál fyr- ir dómstólunum. „Þeir þurfa ekki lögregluna til þess." -grh Stofnfundur Reykjavíkurdeildar Bamaheilla verður haldinn í samkomusal Réttarholtsskóla næstkomandi þribjudag klukk- an 20.30. Verið er að stofna deildir samtakanna Bamaheilla í öllum kjördæmum landsins um þessar mundir en meölimir em nú um eitt þúsund talsins. Arthur Morthens, formaður Bamaheilla, flytur ræðu á fund- inum þar sem hann gerir grein fyrir starfi samtakanna og fram- tíöarverkefnum og einnig verða almennar umræður. Þá verður kynnt fmmvarp til laga fyrir deildina og kosin stjóm og hill- trúar á landsþing Bamaheilla sem haldið verbur laugardaginn 19. mars. Meðlimir samtakanna í Reykjavík em hvattir til að sækja fundinn á þriðjudaginn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.