Tíminn - 17.03.1994, Side 2

Tíminn - 17.03.1994, Side 2
2 WWmmw Fimmtudagur 17. mars 1994 íslenskar rannsóknir á beit hrossa og sauöfjár: Blönduð beit erbetri Blöndub beit hrossa og saub- fjár kemur betur út heldur en ef þessum búfjártegundum er beitt hvorri í sínu lagi. Lömb sem ganga undir mæör- um sínum á mýrlendi þrífast betur ef þeim er beitt meö hrossum, heldur en ef fénu er beitt einu sér. Sama er aö segja um hrossin, en ávinningurinn er minni hjá þeim. Þetta kom fram í nýlegu erindi Ólafs Guö- mundssonar hjá Rannsóknar- stofnun landbúnaöarins um fóörun og beit hrossa. Ólafur segir aö við blandaða beit virð- ist atferli hrossanna ekki hafa mikil áhrif á féö og báöar teg- undir bíti sama landiö, en hafi aöskilin svæöi til hvíldar. Rétt sé aö hafa í huga aö þaö getur veriö hagkvæmt aö hafa hross meö sauöfé á beit eöa skiptast á að beita sauðfé og hrossum, til aö láta hrossin hreinsa upp þaö sem sauðféð bítur ekki, nýta þannig gróöur- inn betur og hleypa nýgræð- ingi aö. -ÁG Fram að Uruguay umferð GATT-samninganna hefur landbúnaðurinn verið með- höndlaður á sérstakan hátt innan GATT ásamt fataiðn- aðinum. Þegar Uruguay um- ferðin hófst árið 1986, þá töldu ráðherrar aðildarlanda GATT mikla nauðsyn á að ná landbúnaðinum með. Markmiðið var að gera heimsverslun með búvörur skipulagðari og ná fram stöðugara verðlagi. Endanleg niðurstaða land- búnaðarkaflans felur í sér lækkun opinberra stuðnings- aðgerða við landbúnaðinn á- samtþví m.a. að innflutn- ings bann verður „sýnilegt" í formi tollígilda. N íandbún- aðarkafla samningsins eru- þrír meginkaflar: innri stuðningur, útflutningsbæt- ur og markaðsaðgangur. í sérstökum kafla er fjallað um heilbrigðisreglur sem einnig geta virkað sem tæknilegar hindranir. Samn- ingurinn nær yfir 6 ár og tekur að líkindum gildi þann 1. júlí 1995. Hér verður fjall- að nánar um helstu atriði hans: 1. Markaðsaðgangur Öllum innflutningshöml- um, þar með taldar beinar innflutningstakmarkanir, á aö breyta í fasta tolla (krón- ur eða %), svokallað tollí- gildi. 1. Tollígildin eiga að lækka að meðaltali um 36% miðað við meðalinnflutningsvemd á viðmiðunarárunum 1986 - 1988. í einstökum tegund- um á tollígildið að lækka um 15% aö lágmarki. Hér er ekki reiknað með vegnu meðal- tali heldur flötu meðaltali. Fyrir utan almenna lækkun innflutningshindrana skuld- binda aðildarlöndin sig til að tryggja innflutning að lágmarki um 3% af inn- lendri neyslu. Þessi lág- marksaðgangur á síðan að stíga upp í 5% á sex ára tímabili. Þennan innflutn- ing á að tryggja meðþví að halda toll aígildunum al- mennt á því stigi að inn- flutningur verði mögulegur eða á þann hátt að fella toll- inn niður eða lækka hann á vissum tegundum. Lág- marksaðgangur verður reiknaður eftir tegundum helstu búvara. 2. Innri stuöningur Innri stuðningur við land- búnaðinn á að lækka um 20% í hlutfalli við meðal- talsstuðning á árunum 1986 - 1988. Lækkun styrkja mið- ast við heildarstuðning, sem þýðir að einstök lönd geta valið um úr hvaða tegund- um styrkja þau draga mikið og á hvaða tegundum ekki er dregið neitt úr styrkjum. Með innri stuðningi er átt við allan stuðning sem teng- ist búvöruverði og beinan stuðning við bændur að þeim stuðningi undanskyld- um sem tengist framleiðslu- takmarkandi aðgerðum. Styrkir sem tengjast eftirfar- andi aðgerðum lenda einnig fyrir utan niðurskurðinn; al- menn þjónusta eins og rannsóknir, menntun, dýralæknaöjónusta og mark- aðssetning, birgðahald í varnarskyni, matvælaaðstoð, neyðaraðstoð, félagslegar að- gerðir og aðgerðir sem eiga að leiða til kerfisbundinna breytinga á landbúnaðinvim. Þær síðasttöldu mega ekki tengjast framleiðslunni á neinn hátt. Sú niðurstaða aö styrkir, sem tengjast á einhvem hátt aðgerðum til aö draga úr framleiðslunni, sleppi við 20% niðurskurð á samnings tímanum er árangur af samningaviðræðum og samningi milli USA og EB. þetta hefur í för með sér að á þessu 6 ára samningstímabili er hægt að breyta styrkja- kerfinu yfir í stuöning við framleiðslutakmarkandi að- gerðir og þannig uppfylla skilyrðin um 20% samdrátt án þess að draga úr fjárveit- ingum til landbúnaðarins. Þau lönd, þar sem innri stuðningur er undir 5% af heildarverðmæti landbúnað- arframleiðslunnar, eru und- anþegin reglunni um 20% niðurfærslu innri stuðnings. í sambandi við innri stuðn- ing eru einnig settar reglur fyrir mismunandi stuðnings- form. Þar er fjallað um þrjú meginhugtök: 2.1. „Gulur stuðningur" er stuöningur sem tengist inn- flutningshömlum og öðrum stuðningi sem er í tengslum VORVINNUTÆKI I JOSVE hnífaherfi Mest seldu herfin á íslandi. Sex öxla, lyftutengd með 3 metra vinnslu- breidd. Einföld og ódýr í rekstri, auðvelt að skipta um hnífa. Josve hnífaherfi henta vel til að vinna plóastrengi fyrir endurvinnslu á túnum og til vinnslu á grænfóðursökrum. I notkun jafnar Josve sáðbeðið og skilar því hreinu. Flest búnaðarfélög nota Josve. Verð kr. 129.500,- án vsk. ELHO áburðardreifarar 700 lítra Nákvæmir, áreiðanlegir og auðveldir í notkun. Hleðsluhæð 95 cm. Dreifibúnaður úr ryðfríu stáliv Kapalstýring inn í ekilshús til stýringar á áburðarmagni. Kögglasigti. Áburðartrekt á löm. Auðvelt að þrífa og hirða. Verð aðeins kr. 85.000,- án vsk. ffaííð samband viö sölumenn okkar og kynniö ykkur verö og greiöslukjör. 04* ^ Globusp Lágmúla 5, s:681555 Cunnlaugur Júlíusson hagfrœöingur Stéttar- sambands bœnda: Landbún- abarkafli GATT-samn- inganna

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.