Tíminn - 17.03.1994, Page 6
6
Fimmtudagur 17. mars 1994
Atvinna
Staða framkvæmdastjóra Sláturfélags Suðurfjarða, Breiðdalsvík, er
laus til umsóknar.
Umsækjandi þarf að hafa góð tök á bókhaldi og í meðferð tölvu, hann
þarf að þekkja til í íslensku landbúnaðarkerfi og hafa innsýn í dagleg
störf í sláturhúsi.
Umsóknum skal skila til skrifstofu Sláturfélags Suðurfjarða, Fjarðar-
braut 41,755 Stöðvarfirði, fyrir 5. apríl n.k.
Allar nánari upplýsingar um starfið gefur núverandi framkvæmdastjóri,
Þórhalla Snæþórsdóttir, í s. 97-58885/58884, og stjórnarformaður,
Lárus Sigurðsson, í s. 97-56660/56791.
RAUTT Lafrvi RAUTT 1
LJOS rTL LJOSJ
Uráð J
JUGURHREINLÆTI
EFTIR MJALTIR
Juvelit
Það besta
sem þú get-
ur gert fyrir
kýrnar þínar!
Úðað á spena og
júgur eftir mjaltir.
Mýkir, sótthreinsar
og örvar blóðrás-
ina. Inniheldur kók-
osolíu. Juvelit
heldur auk þess
flugunum frá.
973116-05 51
Leitið nánari upplýsinga í ALFA LAVAL landbúnaðar-
vörulistanum eða hjá neðangreindum aðilum
Globus hf.
ALFA LAVAL þjónustufulltrúum Globus hf.
ALFA LAVAL umboðsmönnum um allt land
Gfobust!
Lágmúla 5, s:681555
Rannsóknarstofnun landbúnaöarins á
Hvanneyri:
Búvélapróf-
anir bútækni-
deildarinnar
Sögu tilrauna meö búvélar hér
á landi má rekja aftur til árs-
ins 1927, er Búnaðarþing sam-
þykkti tillögu um Verkfæra-
nefnd er skyldi „sjá um útveg-
un og tilraunir meö verfæri
hér á landi". í dag annast
bútæknideild Rannsóknar-
stofnunar landbúnabarins á
Hvanneyri rannsóknir. Fastir
starfsmenn deildarinnar eru
tveir sérfræðingar og einn
rannsóknarmaður.
Þessi starfsemi hefur lengi ver-
ið tengd Bændaskólanum á
Hvanneyri. í lögum frá Alþingi
nr. 64 frá 1940 er kveðiö á um
skipan Verkfæranefndar „til
þess að reyna ný verkfæri eða
breytingar á eldri verkfærum"
og tekið fram að tilraunir skluli
fara fram við skólann nema
annað þyki hennta. Það var síð-
an árið 1965 að lög um rann-
sóknir í þágu atvinnuveganna
komu til framkvæmda. Þá var
Verfæranefndin lögð niður og
verkefni hennar felld undir
Rannsóknarstofnun landbún-
aðarins. Bútæknideild þeirrar
stofnunar hefur síðan þá haft
með höndum prófanir búvéla
hér á landi, sem og aðrar rann-
sóknir, er að tæknimálum land-
búnaðarins snúa.
Búvélaprófunin hefur frá upp-
hafi veriö eitt meginverkefni
Bútæknideildar. Á síðari áram
hefur hún í vaxandi mæli unn-
iö að ýmsum rannsóknarverk-
efnum, er varða verktækni og
vinnuaðstöðu fyrir landbúnað-
arstörf.
Til prófunar koma flestar gerð-
ir nýrri búvéla, sem tengjast al-
mennum bústörfum hérlendis,
svo sem heyvinnuvélar, tæki til
meðhöndlunar og dreifingar á
áburði, jarðvinnsluverkfæri,
o.fl. Árlega berast 10-20 tæki til
prófunar og era gefnar út um
þau opinberar prófunarskýrslur.
Um 700 bændur era áskrifendur
að prófunarskýrslunum, auk
þess sem útdráttur úr þeim birt-
ist í búnaðarblaðinu Frey.
Hér á eftir era birtar niðurstöð-
ur úr prófunum á sjö bútækj-
um, sem vora til reynslu hjá
bútæknideildinni á Hvanneyri
síðasta sumar. Tilgangur bú-
vélaprófana er að fá úr því skor-
ið, hversu-vel ýmsar gerðir bú-
véla hæfa við hérlendar aöstæð-
ur, meta verkhæfni þeirra við
fjölbreytileg skilyrði, mæla af-
köst þeirra og aflþörf, svo og
fylgjast með slitþoli og end-
ingu. í því skyni era verkfærin
að jafnaöi notuð það mikiö í
prófuninni að samsvarar 2-3 ára
notkun á meðalbúi.
Þessi starfssemi ætti því aö vera
bændum mjög til halds og
trausts. Gríöarlegum fjármun-
um er varið á ári hverju tiL
kaupa á vélum, en gera má ráð
fyrir að bændur kaupi árlega bú-
vélar, dráttarvélar og aðrar afl-
vélar fyrir um 700 milljón krón-
ur á ári (meðaltalstölur frá
1984-1988, reiknað á verðlagi í
upphafi árs 1989)
REIME
mykjudreifari
Gerb: Reime 4350
Framleiðandi: Reime a.s. Noregi
Innflytjandi: Bújöfur hf.
Yfirlit
Reime mykjudreifarinn var
prófaður af Bútæknideild Rann-
sóknarstofnunar landbúnaðar-
ins voriö 1993. Á reynslutíman-
um, sem var skammur, var
dreifarinn notaður til dreifingar
á 180 til 200 tonnum af mykju.
Dreifarinn er ætlaður til flutn-
ings og dreifingar á þunnfljótandi
r ~ n
FISHER
DRYKKJARKER
afýmsum stæröum
og geröum fyrir
sauöfé, nautgripi,
hesta og svín
ÚRVAL VARAHLUTA
ÁRÆÐI HF.
Höfðabakka 9,112 Reykjavík.
Síml: (91)67 00 00. Fax: (91)67 43 00
búfjáráburði. Hann rúmar um 4
tonn og er léttbyggður m.a. vegna
þess að mykjutankurinn er geröur
úr trefjaplasti. Tómur vegur hann
um 860 kg. Framan við tankinn er
miðflóttaraflsdæla, tengd aflút-
taki dráttarvélar með drifskafti.
Hún dælir mykjunni út í tvo
dreifistúta aftast á dreifaranum.
Þunn mykja dreifist mjög vel en
þykk mykja fremur illa. Til að
lækka þurrefnismagnið svo með-
höndlunin gangi viðunandi vel er
algengt að þurfi auk þvagsins um
5-6 tonn af vatni á hvem grip í
fjósi. Losun á þunnri mykju úr
tankinum tekur 1,1 til 1,8 mín, en
lengri tíma tekur að tæma dreifar-
ann af þykkri mykju. Afköst viö
útakstur era mjög háð þykkt
mykjunnar en era oft á bilinu 6-
12 tonn á klst. Ætla verður 40-50
kW (55-68 hö) dráttarvél fyrir
dreifarann. Á prófunartímanum
komu ekki fram neinar bilanir eða
óeölilegt slit. Dreifarinn er auð-
veldur í notkun og viröist traust-
byggður.