Tíminn - 01.09.1994, Side 13
Fimmtudagur 1. september 1994
13
Útför systur okkar
Ingigerðar Þorsteinsdóttur
frá Vatnsleysu
Jörfabakka 22
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. september n.k. kl. 13.30.
Steingerður Þorsteinsdóttir
Sigurður Þorsteinsson Einar Geir Þorsteinsson
Kolbeinn Þorsteinsson Bragi Þorsteinsson
Sigríður Þorsteinsdóttir Viðar Þorsteinsson
________________________ J
FRÁ GRUNNSKÓLUM
REYKJAVÍKUR
Grunnskólar Reykjavíkur hefja starf í byrjun september.
Kennarafundir verða í skólunum kl. 9:00 árdegis
fimmtudaginn 1. september.
Nemendur komi í skólana þriðjudaginn 6. september
sem hér segir: 10. bekkur (nem.f. 1979) kl. 9:00
9.bekkur (nem. f. 1980) kl. 10:00
8. bekkur (nem. f. 1981) kl. 11:00
7. bekkur (nem. f. 1982) kl. 13:00
6. bekkur (nem. f. 1983) kl. 13:30
5. bekkur (nem. f. 1984) kl. 14:00
4. bekkur (nem. f. 1985) kl. 14:30
3. bekkur (nem. f. 1986) kl. 15:00
2. bekkur (nem.f. 1987) kl. 15:30
Nemendur 1. bekkjar (börn fædd 1988) hefja skólastarf
skv. stundaskrá fimmtudaginn 8. september, en verða
áður boðaðir til viðtals með foreldrum, hver í sinn skóla.
w
Utboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í staurareis-
ingu fyrir 66 kV háspennulínu frá aðveitustöð við Flúðir,
Hrunamannahreppi, Árnessýslu að aðveitustöð við
Hellu, Djúpárhreppi, Rangárvallasýslu.
Alls er um að ræða 241 staurastæður úr tré. Lengd línu
32.5 km.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagnsveitna
ríkisins, Dufþaksbraut 12, 860 Hvolsvelli, og Laugavegi
118, 105 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 1. sept-
ember 1994 og kosta kr. 2500,- hvert eintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Dufþaksbraut 12, Hvolsvelli, fyrir kl. 14:00, mánudaginn
26. september n.k. og verða þau þá opnuð í viðurvist
þeirra bjóðenda, sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu:
„RARIK-94011, 66 kV háspennulína Flúðir-Hella,
staurareising".
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118,
105 REYKJAVIK.
FAXNÚMERIÐ
ER 16270
___________
UMFERÐAR
RAÐ
Hoganhjónin fyrír framan glœsilega villu sína í Beverlyhœbum.
Miklar breytingar á högum ástralska leikarans Pauls Hogan eftir
ab hann flutti til Hollywood:
Starfaði ábur sem lík-
snyrtir og verkamaður
Margir muna eftir leikaran-
um ástralska, Paul Hogan,
sem gerði hlutverk sitt í
myndinni Krókódíla Dundee
svo eftirminnilegt aö bíó-
gestir grétu af hlátri þegar
myndin gekk í bíóhúsum
borgarinnar. Þetta var
myndin sem fleygði hon-
um í hæstu hæbir, jafnt í at-
vinnulegu tilliti og í einka-
lífinu.
Paul Hogan, sem fram að
þessu hafði aðeins verið
þekktur í heimalandinu, sló
eftirminnilega í gegn og í
kjölfarið fylgdu gylliboð frá
Hollywood. En þar er ekki
nema hálf sagan sögö:
hann varð einnig ástfang-
inn af mótleikkonu sinni í
Krókódíla Dundee, Lindu
Kozlowski, og hafa þau bú-
ið saman í hamingjusömu
hjónabandi í fjögur ár síð-
an. Paul Hogan var reyndar
gagnrýndur nokkuö á sín-
um tíma fyrir samband sitt
við Lindu, en hann kastaði
34 ára hjónabandi fyrir
róða og yfirgaf þáverandi
konu sína.
Það er langur vegur frá
högum Pauls Hogan nú og
fyrrum. Hann býr nú með
Lindu í lúxusvillu í Beverly-
hæðum og smjör drýpur af
hverju strái í lífi þeirra
hjóna. En hvernig skyldi
„búskmanninum" Paul
Hogan hafa gengið að að-
lagast þotulífinu í Holly-
wood? „Mjög vel, ég hef
alltaf haft mikla aðlögunar-
hæfileika og það var ekkert
mál fyrir mig. Það er mér
mikil hvatning að Ástralir
eru stoltir af mér og heima
fyrir er ég nokkurs konar
þjóðhetja. Enda er það víst
svo að margir vita það eitt
um Ástralíu að Paul Hogan
bjó þar í 50 ár," segir hann
og glottir.
Hefur frægðin ekki að
neinu leyti stigið honum til
höfuðs?
„Nei, ég tek mig alls ekki
alvarlega. Ég hef ekki getað
stöðvað hungursneyðina í
veröldinni, ég hef ekki
„£g er ekki merkilegur mabur. Þab eina sem ég geri er ab koma fólki til
ab hlœja."
í SPEGLI
TÍMANS
gamall, kvæntist 18 ára og
átti þrjú börn um tvítugt.
Hann vann um 100 mis-
munandi störf til að brauð-
fæða fátæka fjölskyldu sína,
m.a. var hann líksnyrtir og
vegavinnuverkamaður. Síð-
ar uppgötvuðust hæfileikar
hans sem leikara og eftir
„Krókódílinn" hefur allt
breyst með undraverðum
hraða.
Að lokum, hver er lykill-
inn að gæfuríkri framtíð?
„Að taka hlutina ekki al-
varlega, ég tek ekkert of al-
varlega. Hér í Hollywood
eru menn sem vinna hin
ýmsu störf, en ná aldrei að
njóta lífsins af því að þeir
ná aldrei að slaka á, eru
meb fullar hendur af
ímynduðum vandamálum.
Ég aftur á móti hef lent í
lífsháska og m.a. verið hárs-
breidd frá dauðanum er ég
fékk heilablóðfall árið
1986. Eftir það tek ég lífinu
eins og það er, og reyni að
gera það besta úr því. Ein-
föld hugsun, en virkar.vel."
Þab vakti mikla athygli þegar
Paul yfirgaf konuna sína eftir 30
ára hjónaband og fluttist til
Bandaríkjanna meb Lindu
Kozlowski.
fundið lækningu gegn
eyöni, ég kem bara fólki til
að hlæja. Það er allt og
sumt."
Hogan viðurkennir þó að
um margt svipi seinni tíma
lífshlaupi hans til sögunnar
um Öskubusku, nema hvað
hann sé af gagnstæðu kyni.
Hann hætti í skóla 15 ára