Tíminn - 25.10.1994, Síða 3

Tíminn - 25.10.1994, Síða 3
Þri&judagur 25. október 1994 3 Verk fyrir 400 milljónir án útboðs Verkefnum fyrir um fjögur hundruö milljónir króna hefur veriö úthlutaö framhjá stjórn Innkaupastofnunar Reykjavík- urborgar, á árinu 1993 án þess aö verk væru boöin út, eins og reglur kveöa á um. Aö beiöni Innkaupastofnunar vinnur Borgarendurskoöun nú aö út- tekt á innkaupum og útboöum á vegum borgarinnar. Niöur- stööu er aö vænta í byrjun næstu viku. Einkum hafa þau verkefni sem hér um ræöir veriö á vegum Hitaveitu Reykjavíkur, fyrir næstum 280 milljónir, en einn- ig á vegum annarra veitustofn- ana, að því er heimildir Tímans segja. Nokkur brögö munu vera aö því að reglur Innkaupastofnun- ar Reykjavíkurborgar um útboð séu beinlínis sniðgengnar þann- ig aö verktakar og viðskiptaaöil- ar sitji ekki við sama borð. Formabur bœjarrábs um greibslur vegna Listahátíb- ar Hafnarfjarbar: Engin spurning að Guðmundur Árni gaf fyrirmæli „Þaö er engin spurning, það var auövitað þáverandi bæjarstjóri, Guðmundur Árni Stefánsson, sem gaf fyrirmæli um þessar greiöslur til Arnórs Benónýs- sonar," segir Magnús Gunnars- son, formaöur bæjarráös í Hafn- arfirði. „Bæjargjaldkeri heföi heföi aldrei greitt þessa peninga án þess aö hafa um þaö fyrir- mæli frá sínum yfirboðara, sem var bæjarstjórinn," segir Magn- ús. Ákvörðun um framhald máls- ins hefur enn ekki veriö tekin, aö sögn Magnúsar, en stjórn bæjarins er nú aö láta athuga lögformlegar forsendur þess. í því sambandi er ábyrgö Arnórs Benónýssonar, sem ráðinn var af Guðmundi Árna Stefánssyni til þess að sjá um listahátíð fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar, ekki eini flötur málsins, heldur kem- ur líka til ábyrgö hlutafélagsins Listahátíð í Hafnarfirði, sem gagngert var stofnað til þess að sjá um framkvæmd hátíöarinn- ar. Friðrik fær verðlaun og viðurkenningu Friörik Erlingsson rithöfundur hefur hlotiö verðlaun í hand- ritasamkeppni Evrópskra sjón- varpsstöðva, svo og sérstaka viöurkenningu dómnefndar í keppninni. Friörik er í Genf til að veita þessum viöurkenning- um móttöku, en í fyrra hlaut hann starfslaun ásamt níu öðr- um ungum handritshöfundum. Starfslaunin vom 25 þúsund svissneskir frankar, en verö- launin sem Friörik hlýtur nú nema 5 þúsund frönkum, eða andviröi 165 þúsund íslenkra króna. Þaö var Manuela Fresil frá Frakklandi sem að þessu sinni hlaut aðalverðlaun í handrita- keppni þessari, en hún fer þannig fram að tíu höfundar hljóta starfslaun til ab fullvinna handrit aö sjónvarpsleikriti eöa leiknum sjónvarpsþáttum. Að ári liðnu eru síöan veitt verö- laun fyrir besta handritiö af þessum tíu. Frá BSRB-þinginu ígœr. Tímamynd cs Allar kerfis- og skipulagsbreytingar veröur aö skoöa meö tilliti til at- vinnustigsins. 37. þing BSRB: Hafnar tilrauná hyggjunnar þátttöku í ibúi frjáls- Ögmundur Jónasson, formabur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, varaöi viö bobubum kerf- isbreytingum ríkisins í málefn- um opinberra starfsmanna í setningarræöu sinni viö upphaf 37. þings bandalagsins í gær. Hann sagöi að samsvarandi breyting sem framkvæmd hefði veriö í Svíþjóö, hefði haft í för meö sér aukið atvinnuleysi meöal opinberra starfsmanna, aukinn launamun og aukið bil á milli karla og kvenna. Þess í stað þyrfti að huga að nýj- um leiðum í samningum til að tryggja betri kjör fyrir taxtavinnu- fólk almennt. Jafnframt þyrfti aö finna leiöir sem sameinuöu kosti miðstýröra samninga og vald- dreifingar. Hann sagbi að BSRB legði höfuðáherslu á að allar kerf- isbreytingar og skipulagsbreyt- ingar yröi að skoöa með tilliti til atvinnustigsins og það þyrfti aö ráðast í kerfisbreytingar sem stuöluöu ab aukinni atvinnuþátt- töku. Ögmundur sagði að það væri vegið aö verkalýðshreyfingunni í heild sinni og þeim gildum sem hún vildi hafa í heiðri. Hinsvegar ættu samtök launafólks framtíö- ina fyrir sér, einfaldlega vegna þess að þau væm hornsteinn nú- tímaþjóðfélaga sem byggja á fjöl- þáttalýbræði. Aftur á móti væri þaö nauðsynlegt fyrir samtök launafólks að snúa bökum saman og standa vörð um þau gildi sem þau vilja varðveita. Formaður BSRB sagbi aö opin- berir starfsmenn óttuöust ekki nýjar hugmyndir en lagði jafn- framt áherslu á nauðsyn þess að pólitískar kenningar yröu skoöað- ar með rannsóknarljósi reynsl- unnar. Hann lýsti ennfremur yfir áhuga opinberra starfsmanna á aö finna nýjar lausnir, enda væru þeir reiðubúnir til að ganga for- dómalaust á vit nýrra tíma. Fjölmörg mál og ályktanir liggja fyrir þinginu og m.a. tillaga um breytingar á lögum BSRB. Þær breytingar miöa aö því ab opna bandalagib og abildarfélög þess fyrir starfsmönnum fyrirtækja eða stofnana sem kunna aö verða til vegna einkavæöingar í opin- berum rekstri. Meðal gesta sem voru við setn- ingu þings BSRB í gær var m.a. formaöur Stéttarsambands bænda, en þetta mun vera í fyrsta skipti sem forustumanni samtak- anna er boöiö aö vera vib setn- ingu BSRB-þings. ■ Hagfrœöideild Seölabanka spáir 7,5% hcekkun framfcersluvísitölu mifii ára 1993-94: Stööugleiki er staöfestur Hagfræöideild Seölabanka Islands spáir því aö fram- færsluvísitalan hækki aö meöaltali um 1.5% frá því í fyrra og ef mælt er frá upp- hafi ársins til loka ársins verbi hækkun vísitölunnar 1.3%. Hagfræbideildin telur í spá sinni aö verbstöbug- leikinn sem verib hefur hér á landi þetta árib sé stabfestur. Á fyrri hluta ársins spáöi hag- fræðideildin um 1,5% hækk- un framfærsluvísitölunnar á milli ára og um 1% hækkun yfir árið. Nú er útlit fyrir aö þessar spár muni standast í grófum dráttum, nema hvað hækkun framfærsluvísitöl- unnar yfir árið veröur íviö hærri en þá var spáö. Þaö má rekja til þess aö gengi krón- unnar er nú tæplega 0,9% lægra en það var seinni hluta síöasta vetrar, og að samið var um eingreiöslu til launafólks vegna bættra viöskiptakjara, sem greidd var í júní sl. Samkvæmt upplýsingum úr hagfræðideild Seðlabankans stefnir nú í að lánskjaravísital- an hækki um rétt tæplega 2% milli ára og tæplega 1,5% frá upphafi árs til loka þess. í þess- ari spá felst nokkuð frávik frá fyrri spám á árinu og er þetta frávik meira en það var varö- andi spár um framfærsluvísi- töluna. Þab kemur til af því ab gengissigið og eingreiðsla launa hefur meiri áhrif á láns- kjaravísitöluna en framfærslu- vísitöluna. Til viðbótar þessu hækkar lánskjaravísitalan meira en framfærsluvísitalan vegna ófyrirséðra hækkana byggingarvísitölunnar á vor- mánuðum. ■ © KÍSILIÐJAN VIÐ MYVATN NÝTING NATTÚRUAUÐLINDA I ÞÁGU ÞJÓDAR Framkvæmdastjóri Kísiliðjan hf. í Mývatnssveit óskar eftir ab rába fram- kvæmdastjóra Kísilibjan hf. starfrækir verksmibju, sem frameibir síunar- og fylli- efni úr kísilgúr, aballega til útflutnings. Sala og markabssetning á útflutningsmörkubum er í höndum Celite Corporation, stærsta framleibanda á kísilgúr í heiminum. Starfsmannafjöldi er 45-50. Afkoma félagsins er gób og eiginfjárstaba er mjög traust. Abal- eigendur Kísilibjunnar hf. eru Ríkissjóbur íslands (51 %) og bandaríska fyrirtækib Celite Corporation (48,56). Starf framkvæmdastjóra er fjölþætt og er aðallega fólg- ið í stefnumörkun, áætlanagerð og framkvæmd mark- miða vegna námavinnslu og frameiðslu, ásamt stjórn- un, framkvæmd og daglegum rekstri félagsins. Fram- kvæmdastjóri kemur fram fyrir hönd félagsins og gætir hagsmuna þess út á vib. Búseta í Reykjahlíð er skilyrði. Félagib leitar eftir aðila með haldgóða reynslu í fyrir- tækjastjórnun, sem er tilbúinn ab takast á við krefjandi stjórnunarstarf. Vibskiptafræbimenntun eða sambæri- leg menntun æskileg. Gób enskukunnátta er skilyröi. Skriflegum umsóknum um starf framvæmdastjóra, ásamt upplýsingum um starfsferil og menntun, skal skila á íslensku og ensku og merkja stjórn félagsins og berast Kísiliðjunni hf., 660 Reykjahlíð, fyrir laugardag- inn 12. nóvember 1994. Nánari upplýsingar um starfið veita: Friörik Sigurbsson, framkvæmdastjóri, sími 96-44190 og Pétur Torfason, stjórnarformaður, sími 96-22543. Farið verbur meb allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.