Tíminn - 25.10.1994, Blaðsíða 5

Tíminn - 25.10.1994, Blaðsíða 5
Þribjudagur 25. október 1994 5 mmmn Cissur Pétursson: Sjávarútvegsnám þarf ab efla, þar meb talib Fiskvinnsluskólann Starfsemi Fiskvinnsluskólans í Hafnarfirði er í uppnámi um þessar mundir vegna ákvörð- unar menntamálaráðherra um að fresta inntöku nýrra nem- enda í skólann um eitt ár með- an starfsemi hans er endur- skipulögð. Sú ákvörðun. er grunduð á þeirri staðreynd að skólinn hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að bregðast ekki nægilega við þróun fiskvinnsl- unnar og þörfum atvinnulífs- ins. Þessi gagnrýni kom frá fulltrúum atvinnulífsins, en ekki síst frá nemendum skól- ans, sem kvörtuðu yfir kennsluháttum og innra starfi skólans. Brautskráningum frá skólanum hefur ekki fjölgað hin síðari ár og er það ekki í samræmi við þá þróun, sem ætla mætti að sítæknivæddari atvinnugrein hefði þörf fyrir. Þessi ákvörðun mennta- málaráðherra er hugsuð vegna þess að skólinn er staðsettur í kjördæmi hans og ljóst að þessi ákvörðun myndi vekja mikið umtal og gagnrýni. Ní- els Árni Lund, deildarstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, gerði þessa ákvörðun að um- talsefni í grein í Tímanum ný- verið og sagði að þessi ákvörð- un menntamálaráðherra sýndi að hann hefði engan skilning á menntamálum í sjávarútvegi. Fleiri hafa lagt orð í belg með svipaðar skoð- anir. Margar ávirðingar hafa dunið á menntamálaráðherr- anum vegna starfa hans, en ég vil leyfa mér að taka upp hanskann fyrir hann í þessu máli. Nefnd um endur- skoðun sjávarút- vegsnáms Nýlega lauk vinnu nefndar, sem menntamálaráðherra skipaði í samráði við sjávarút- vegsráðuneytið, um endur- skoðun sjávarútvegsnáms. Greinarhöfundur starfaði fyrir nefndina við skýrslugerð og efnisöflun. Það er athyglisvert að í nefndinni, sem skipuð var sex mönnum, var aðeins einn úr menntamálaráðuneytinu — aðrir voru beint tengdir sjávarútveginum með einum eða öðrum hætti. Þetta var gert til þess að tryggja að þarf- ir greinarinnar, hvað mennt- un varðaði, væru vel tryggðar er til tillögugerðar kæmi. Róttækar tillögur Nefndin gerði fjölmargar rót- tækar tillögur um endurskoð- un sjávarútvegsnámsins — og ein þeirra fjallar m.a. um end- urskipulagningu og eflingu Fisk- vinnsluskólans í Hafharfirði. Sú leið hefur áður verið farin að loka skólum meðan uppstokk- un þeirra'fer fram. Það var gert í bændaskólanum á Hólum með góðum árangri. Sá skóli glímdi orðið við mikinn til- vistarvanda, þegar ákveðið var að gjörbreyta honum og leggja áherslu á nýjar námsgreinar, m.a. hestamennsku og tamn- ingar. Nú komast þangað færri en vilja. Ein megintillaga nefndar- innar er að boðið verði upp á sérstaka sjávarútvegsbraut á framhaldsskólastigi. Námsskrá slíkrar brautar verði mótuð þannig að nám brautarinnar nýtist nemendum hvort sem þeir hyggja á frekara nám í sér- skólum á sjávarútvegssviði eða til undirbúnings náms á há- skólastigi. Fagnám brautarinn- ar verði metið að fullu til stúd- entsprófs. Á höfuðborgar- svæðinu starfræki Stýri- mannaskólinn í Reykjavík, VETTVANGUR Vélskóli íslands og Fisk- vinnsluskólinn í Hafnarfirði sameiginlega slíka sjávarút- vegsbraut. ‘ Með öðrum orðum er verið að segja að með því að sækja nám á sjávarútvegsbraut nýt- ist tími nemandans að fullu, hyggi hann á frekara fram- haldsnám, en lendi ekki í menntunarlegum blindgöt- um. Staðreyndin er sú að starfsnám hefur ekki verið metið jafngilt ööru námi á framhaldsskólastigi og því hafa nemendur sótt mun meira í bóknám en eðlilegt getur talist. Nám á þessari sjávarútvegsbraut verður bæði bóklegt og verklegt. Kjósi nemandi, sem sjávarútvegs- brautina hefur valið, að halda áfram námi í almennum fram- haldsskóla, s.s. Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti, í stað þess að fara í fiskvinnslur-, stýri- manna- eða vélskólanám, á honum að vera það kleift og fagnámið verði metið að fullu til stúdentsprófs. Nefndin leggur til að innra og ytra gæðaeftirlit verði aukið til muna í skólum og sam- ræmd próf tekin upp í rétt- indanámi. Hún hlýtur að vera uggvænleg sú staðreynd, að víða er málum svo háttað að sami kennari semur námsefni, kennir, semur próf og fer sjálf- ur yfir. Aðrir koma þar hvergi nærri. Tryggt verður að vera að sá, sem lært hefur til lög- verndaöra starfsréttinda, búi yfir þeirri þekkingu og leikni sem gert er ráð fyrir í viðkom- andi námsskrá. Jafnframt verður að vera ljóst að sam- bærilegar kröfur séu gerðar í sama námi í öllum skólum. Þessu til viðbótar leggur nefndin m.a. til að áhrif aðila vinnumarkaðarins verði tryggð við stefnumótun og skipulag náms í sjávarútvegi. Stofnuð verð/ Frœðslumiðstöð sjávarútvegsins, sem standi fyr- ir sveigjanlegu starfsnámi og endurmenntun á sviði sjávar- útvegs fyrir fyrirtæki og ein- staklinga, en árangursríkt starf Starfsfræðslunefndar fisk- vinnslunnar er þar haft til hliðsjónar. Námsframboð á sviði sjávarútvegs verði eflt í grunnskólum og kannaður verði möguleiki á stofnun al- þjóðlegs sjávarútvegsskóla hér á landi. Vinna framundan Enn sem komið er, eru þetta aðeins tillögur á blaði. Tíma- bundin lokun Fiskvinnsluskól- ans í Hafnarfirði kallar hins vegar á að tillögunum verði sem allra fyrst hrint í fram- kvæmd. Endurskipulagður og öflugur skóli á að hefja þar starfsemi næsta haust. Sú erf- iða ákvörðun, að fresta inn- töku nýrra nemenda í skól- ann, fékk stuðning frá endur- skoðunarnefndinni og ég tel þessa ákvörðun sýna að vilji sé til breytinga innan mennta- málaráðuneytisins og það er vel. Það er hinsvegar mikil vinna framundan og nú reynir á kraft menntamálaráðuneyt- isins og hagsmunaaðila sjávar- útvegsins við að vinna úr til- lögunum og efla sjávarútvegs- menntun til þess vegar, sem slíkri menntun ber meöal þjóðar sem lifir á sjávarútvegi. Höfundur er verkefnisstjóri í sjávarút- vegsrábuneytinu. Hallur Magnússon: Ein þjóö í einu landi, ísland eitt kjördæmi Þegar horft er til framtíðar, er æskilegt að ísland verði gert að einu kjördæmi. Þannig er tryggt að atkvæði allra þegna landsins hafi sama vægi. Við eigum að starfa, lifa og kjósa sem ein samhent þjóð í einú landi, þar sem mannlífið byggist á samhug, réttlæti og heiðarleika. Alþingismenn eiga að vera þingmenn allrar þjóðarinnar og hafa heildar- hagsmuni hennar að leiðar- ljósi. Því á ekki að skipta máli hvaðan af landinu þingmenn- irnir koma. Gömlu einmenningskjör- dæmin hentuðu því þjóð- skipulagi sem þau voru mótuð í. Þau liðu undir lok á sínum tíma, vegna þess að þjóðfélag- < ið hafði breyst. Nýir tímar kölluðu á nýja kosningaskip- an. Lausnin var núverandi kjördæmafyrirkomulag og listakosning, sem hentaði „Því hlýtur framtíðin að felast íþvf að ís- land verði gert að einu kjördœmi. En það verður að gera með hið gamla slag- orð „íslandi allt" að leiðarljósi" VETTVANGUR hinu nýja samfélagi sem þá hafði mótast upp úr gamla bændasamfélaginu. Nú hafa aðstæöur enn breyst. Það er kominn tími til að móta kosn- ingafyrirkomulag nýrrar aldar. Það fyrirkomulag hlýtur að byggja á jöfnum kosningarétti og honum er best náð með því að gera landið að einu kjör- dæmi. Miklar samgöngubætur og ótrúleg bylting í upplýsinga- tækni gerir það að verkum að ísland nútímans er nú orðið sambærilegt og kjördæmin vom á þeim tíma sem núver- andi kjördæmaskipan var komið á fót. Það tekur einn dag að skjótast frá Reykjavík til Egilsstaða á fund. Það tekur 50 mínútur að fljúga til baka frá Egilsstööum til Reykjavík- ur. Og það tekur mann á Egils- stöðum sekúndubrot aö tengj- ast tölvukerfum í Reykjavík til þess að vinna að verkefnum sínum þar. Það er ekkert því til fyrirstöðu að menn vinni dag- lega saman í fyrirtæki, annar í Reykjavík, hinn á Egilsstöð- um. Búseta fólks á því ekki lengur að skipta máli, þegar litið er til tækifæra sem því bjóðast í lífinu. Því hlýtur framtíðin að felast í því, aö ísland verði gert að einu kjördæmi. En það verður að gera með hið gamla slagorð „íslandi allt" að leiðarljósi. Það er einfalt að tryggja að all- ir landshlutar eigi sína fulltrúa á Alþingi, þótt landiö sé eitt kjördæmi, með lagasetningu um uppröðun á framboðslista, ef þjóðin kýs það. En ég treysti íslenskum kjósendum fram- tíðarinnar til þess að ganga til kosninga með það í huga að íslendingar eru ein þjóð í einu landi og velji því á Alþingi fjölbreyttan hóp þingmanna, sem endurspegli búsetu og samsetningu íslensku þjóðar- innar. Slíkt Alþingi myndi tryggja hagsmuni landsbyggð- arinnar jafnt sem höfuðborg- arsvæðisins, ekki með tog- streitu kjördæmanna eins og í dag, heldur meb samhug þeirra sem kjörnir eru sem fulltrúar þjóðarinnar allrar. Höfundur er meb BA í sagnfræbi og þjóbfræbi og lýkur háskólanámi í rekstrarfræbum í vor.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.