Tíminn - 27.10.1994, Side 1
SIMI
631600
Stakkholti 4
Inngangur frá
Brautarholti
78. árgangur
Fimmtudagur 27. október 1994
202. tölublað 1994
Brotist inn
í átta sumar-
hús
Brotist var inn í átta sumar-
bústa&i í landi Vatnsenda í
Skorradal í fyrrinótt. Litlar
skemmdir voru unnar á bú-
stöbunum og innbúi þeirra en
talsvert rótab í leit ab verb-
mætum.
Sex bústaðanna em í eigu fé-
lagasamtaka og tveir í eigu ein-
staklinga. Búið var að hafa uppi
á bifreið þrjótanna í Reykjavík í
gær og RLR tekið í vörslu sína
„góðkunningja" sem eru grun-
aðir um verknaðinn. ■
Ekki forseta
ab vísa mál-
inu frá
Salóme Þorkelsdóttir um
vantraustiö:
Salóme Þorkelsdóttir, forseti
Alþingis, kannast ekki við að
hafa fengiö fyrirspurnir er-
lendis frá um frávísun van-
trauststillögunnar á ríkis-
stjórnina. Hún segir ekki hafa
verið á valdi forseta að vísa
henni frá, burtséb frá því
hvaða skoðun forseti hafði á
_ - -/ _ f ■ Tímamynd: CS
jKQUtQSVelllO I LQUQQíQQl hefur nú verib opnab, unglingum og öbrum skautaunnendum til mikillar ánægju. Ekki er annab
aö sjá en krakkarnir, sem brugöu sér á skauta í Laugardalnum í gœr, hafi skemmt sér konunglega.
tillögunni sem slíkri.
„Forseti hefur ekkert með að
gera hvað þingmenn leggja
fram í tillöguformi í þinginu,"
segir Salóme. „Það kemur ekki
til kasta fyrr en tillagan á að
takast á dagskrá, hvort ab for-
seti lítur á að hún sé óþingleg,
en það var ekki í þessu tilfelli.
Eftir vandlega athugun taldi
forseti ekki hægt að úrskuröa
þessa tillögu óþinglega." ■
„Vopnaðrán"
í íslandsbanka
Bankarán þriggja vopnaðra
ræningja var sviðsett í íslands-
banka í Lækjargötu í gær.
„Bankaránið", sem framkvæmt
var af vörðum laganna, var liö-
ur í æfingu á vegum bankans
og var tilgangurinn ab æfa við-
brögb starfsmanna hans við
slíkum atburbum. ■
Erlendu aöilarnir sem buöu í Hvalfjaröargöngin meö Hagvirki/Kletti:
Biðja um að Hagtak komi
í stað Hagvirkis/Kletts
Tvö erlend byggingarfyrir-
tæki, sem buðu í gerb jarb-
ganga undir Hvalfjörö í sam-
vinnu vib Hagvirki/Klett hf.,
hafa óskað eftir að Spölur hf.
samþykki fyrirtækið Hagtak
sem samstarfsaðila á íslandi í
stab Hagvirkis/Kletts. Hagtak
átti um 25% í Hag-
virki/Kletti.
Hagvirki/Klettur, sænska
byggingarfyrirtækið NCC og
norska byggingarfyrirtækið Eeg
Henriksen myndubu sam-
steypu sem sendi inn tilboð í
Hvalfjarðargöngin. Hlutur
Hagvirkis/Kletts í þessari sam-
steypu var 25%. í samstarfs-
samningi þessara þriggja fyrir-
tækja var ákvæði um að ef eitt
þeirra yrði gjaldþrota yrði það
útilokað úr samstarfinu og hin
fyrirtækin yfirtækju þess hlut. í
útboðsgögnum frá Speli hf.
voru hins vegar ákvæði um að
allar samsteypur sem byðu í
verkib skyldu hafa íslenskan
þátttakanda. Frá upphafi var
gert ráð fyrir að samsteypan
yrði sérstakt fyrirtæki í einu
hinna þriggja.
Þetta þýddi að samsteypan
uppfyllti ekki skilyrði Spalar
þegar Hagvirki/Klettur varð
gjaldþrota. Eftir viðræbur við
framkvæmdastjóra Hagtaks rit-
Vilja rannsókn á Össuri
Fimm þingmenn stjórnarand-
stöðunnar, með Hjörleif Gutt-
ormsson í broddi fylkingar,
vilja að skipuö verði rannsókn-
arnefnd Alþingis til þess að
kanna embættisfærslu Össurar
Skarphébinssonar umhverfis-
ráberra gagnvart starfsmönn-
um embættis veibistjóra.
Þetta kemur fram í tillögu til
þingsályktunar sem Hjörleifur
hefur lagt fram ásamt Finni Ing-
ólfssyni, Jóni Helgasyni, Kristínu
Ástgeirsdóttur, Kristínu Einars-
dóttur og Svavari Gestssyni. í til-
lögunni er farið fram á að skipub
verði sérstök rannsóknarnefnd
samkvæmt 39. grein stjórnar-
skrárinnar. Þar segir ab Álþingi
geti skipað nefndir alþingis-
manna til ab rannsaka mikilvæg
mál er almenning varða.
Tilefnið er fyrirhugaður flutn-
ingur embættis veiðistjóra frá
Reykjavík til Akureyrar. í greinar-
gerð með tillögunni segir ab hún
sé flutt að gefnu alvarlegu tilefni.
í fylgiskjölum frá Páli Hersteins-
syni kemur fram að ákvörbunin
var tekin fyrirvaralaust og án
nokkms minnsta samrábs við
starfsmenn veiðistjóraembættis-
ins, sem fyrst fengu vitneskju um
ákvörðun rábherra eftir að hún
hafði verið tekin. í greinargerb-
inni segir jafnframt:
„Ástæba er einnig til ab ætla að
þessi ákvörbun eigi rætur í per-
sónulegum árekstri ráðherra við
starfsmenn embættisins á
óskyldum vettvangi. Upplýsing-
ar sem styðja þetta komu fram af
hálfu starfsmanna embættisins í
umhverfisnefnd Alþingis á 117.
löggjafarþingi." Samkvæmt
heimildum Tímans tengjast
árekstrarnir sem um ræðir and-
mælum gegn rjúpnaveiðibanni
sem Össur Skarphéðinsson um-
hverfisrábherra setti fyrir ári síð-
an.
Flutningsmenn telja að hér sé
um mjög alvarleg málsatkvik að
ræða sem hugsanlega gætu varð-
ab vib lög stjórnarskrárinnar,
ákvæði stjórnsýslulaga um rétt-
indi og skyldur starfsmanna rík-
isins og alþjóðlegar skuldbind-
ingar samkvæmt félagsmálasátt-
mála Evrópu. ■
uðu erlendu aðilarnir Speli
bréf, þar sem óskað er eftir að
Hagtak verbi samþykkt sem ís-
lenskur aöili í samsteypunni í
stab Hagvirkis/Kletts.
Að sögn Aðalsteins Hallgríms-
sonar, framkvæmdastjóra Hag-
taks, er líklegt að hlutur Hag-
taks verði innan við 25% ef
samþykki fæst frá Speli. Verbi
tilboöi samsteypunnar tekib er
gert ráb fyrir að Hagtak sjái
fyrst og fremst um fram-
kvæmdir utan ganganna, auk
þess að miðla af þekkingu sinni
á íslenkum aðstæðum og hér-
lendum vinnumarkaði.
Hagvirki/Klettur var undir-
verktaki fyrir Hagtak við fram-
kvæmdir við Þjóbarbókhlöð-
una og við byggingar á undir-
göngum og vegbrú milli Vest-
urlandsvegar og suðurlands-
vegar. Hagtak hefur þegar lokið
vegaframkvæmdunum.
Hagvirki/Klettur var m.a. jafn-
framt aðili að verksamningi
um virkjanaframkvæmdir á
Fljótsdal og byggingu flugvall-
ar á Vestur- Grænlandi. Ekki
hefur verið rætt sérstaklega um
að Hagtak eða annað íslenskt
fyrirtæki yfirtaki þau tilboð.