Tíminn - 10.12.1994, Qupperneq 1

Tíminn - 10.12.1994, Qupperneq 1
SIMI 631600 Brautarholti 1 STOFNAÐUR 1917 78. árgangur Laugardagur 10. desember 1994 234. tölublað 1994 Sveitarstjórn Hvammstanga: Vilja ekki borga meb- lög annarra Sveitarstjórn Hvammstanga telur það með öllu ólíðandi að 23% þjóðarinnar verði látin greiða vanskil á meðlagsgreiðslum til Innheimtustofnunar sveitarfé- laga, en 77% þjóðarinnar taki ekki þátt í þeim kostnaði. Eins og kunnugt er þá jókst fjár- vöntun Innheimtustofnunarinnar um nær helming í framhaldi af þeirri ákvörbun ríkisstjórnar að hækka meðlagsgreiðslur um 36% á sínum tíma. Hækkunin hefur leitt til mikilla vanskila á meðlags- greiðslum og af þeim sökum verður fjárvöntun stofnunarinnar um 520 miljónir króna í ár. í ályktun sveitarstjórnar Hvammstanga og raunar fleiri sveitarfélaga um þjónustuframlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, sem send hefur verið félagsmálaráð- herra, fjármálaráðherra og Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga er þess krafist að ríkisstjórnin standi þegar í stað við gefin fyrirheit um 220 mi- ljón króna aukafjárveitingu til Jöfn- unarsjóðsins, svo ekki þurfi að skerða tekjujöfnunarframlög sjóbs- ins til sveitarfélaga vegna fjárvönt- unar Innheimtustofnunar sveitar- félaga vegna vangoldinna meðlags- greiðslna. ■ Vilja 10 þús. kr. hækkun „Ég auglýsi eftir einhverjum sem vill mótmæla því að laun geti ekki verið undir 53 þúsund krónum á mánuði. Ég vil endi- lega fá að sjá framan í þann gaur," segir Sigurður Tr. Sigurðs- son formaður Verkamannafé- lagsins Hlífar í Hafnarfirði. I kröfugerð félagsins fyrir næstu kjarasamninga er þess m.a. krafist að lægstu laun hækki um 22% eða um 10 þúsund krónur, þann- ig að lægsta taxtakaup hækki úr 43.116 krónum í 53.116 krónur á mánuði. ■ Blysfor SJUkrallöa. Sjúkralibar fjölmenntu íblysför nibur Laugaveg og um mibbce Reykjavíkur í gœr.Peir stoppubu m.a. vib Stjórnarrábib og hittu forsœtisrábherra, sem sagbist œtla ab reyna ab leysa deiluna á næstu dögum meb abstob formanns Sjúkralibafélagsins. Þá hittu sjúkralibar einnig borgarstjórann og myndubu hring umhverfis Austurvöll. Ábur um daginn hafbi Félagsdómur úrskurbab ab 40 sjúkralibar í verkfalli skuli halda til vinnu. Helsta orsök umferöartafa viö Þingvelli 17. júní: Mistök við umferðarstjóm Umferðarvandamál á þjóðhá- tíðardaginn sl. sumar orsökuð- ust einkum af því að faglegum undirbúningi var ábótavant, eiginleg umferðaráætlun var ekki gerö og flutningsgeta vega var ofmetin. Mestu tafir urðu á leiðum austan Þing- vallavatns og má rekja þær til þess ab ekki var rétt stabib ab skipulagningu og stjórnun umferbar inn á bílastæbi á Þingvöllum. Nefnd, sem skipuð var á veg- um forsætisráöuneytisins vegna umferðar á Þingvöllum þann 17. júní sl., hefur skilað af sér skýrslu. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að 50-55 þúsund manns hefðu komist á Þingvelli þann 17. júní en 12-15 þúsund manns sem lögðu af stað hafi aldrei komist á leiöarenda. Ein helsta orsök vandans sem skapabist er ab undirbúningi var stórlega ábótavant. Engin eigin- leg umferðaráætlun var gerð, hugmyndir sem stuðst var við Innkaupaferöirnar aö breytast í skemmtiferöir aö mati Magnúsar Finnssonar hjá Kaupmannasamtökunum: Erum aö ablagast samkeppninni „Þetta segir ekkert um ab inn- kaup landsmanna erlendis séu ab aukast. Þab er mín skobun ab þessar ferbir séu í vaxandi mæli ab verba skemmtiferbir fyrst og fremst," sagbi Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna. En hann var spurbur hvort 13% aukning á utanferbum í októ- ber/nóvember bendi ekki til ab innkaupaferbir séu enn ab aukast, þrátt fyrir átak sam- takanna „verslum heima". „Viö vonumst til að þetta átak hafi áhrif á innkaup fólks, en búumst þó ekki við að breyta verslunarvenjum þess í einni andrá. En íslensk verslun hefur að mínu mati stabib sig vel, hef- ur verið að aölagast þessari sam- keppni og er að gera góða hluti. Við óskum fólki bara góðrar skemmtunar og bjóðum þab velkomið heim úr þessum ferð- um," svaraði Magúns. Menn skyldu samt ekki gleyma því, ab þeir séu æði margir sem hafa lífsframfæri sitt af verslunarstörfum og ab marg- ir þeirra sem stundað hafa versl- unarstörf séu núna atvinnulaus- ir. „Líklega er stærsti hópur þeirra sem ekki njóta vinnu úr verslunargeiranum. Með þessu átaki okkar erum við að vekja at- hygli á þessu og hvað mikla þýbingu þab hefur að fólk versli í heimabyggð og geri sín inn- kaup hér innanlands. Vib telj- um ab íslensk verslun hafi brugðist vib þessari auknu er- lendu samkeppni á þann hátt að bjóða vömr á sambærilegu og stundum betra verði en þarna úti. Og gæðin þurfum viö ekki að spyrja um, við erum ekki að keppa vib sömu gæbi. íslenskir neytendur vilja fá góða hluti þegar þeir kaupa þá hérna heima. En þarna úti er mikið um ódýran fatnað, sem uppfyll- ir ekki þær gæðakröfur sem við almennt gerum," sagði Magnús Finnsson. um flutningsgetu vega voru óraunhæfar og flutningsgetan stórlega ofmetin. Sem dæmi má nefna að sam- kvæmt „punktum" sem fram- kvæmdastjóri þjóðhátíðarnefnd- ar setti fram í desember 1993 er rætt um að koma megi 15 þús- und bílum yfir Mosfellsheiði „helst á ca. 2-2,5 klst." Sam- kvæmt niðurstöbum nefndar- innar hefði að lágmarki þurft ab reikna með fimm klukkustund- um til ab koma þessum fjölda bifreiba á áfangastab. Mestu umferðartafirnar á leið til Þingvalla urðu á leiöum aust- an Þingvallavatns. Áætlað er að áöur en umferð sunnan Gjá- bakka stöðvabist að fullu hafi þrjú til fimm þúsund manns lent í u.þ.b. einnar klukkustundar töf á þessari leið. Eftir að bílaröðin stöbvaðist lentu þrjú til fjögur þúsund manns í 4-5 klukku- stunda bib á þessari leib og urðu ab mestu af hátíbarhöldunum. Nefndin fullyröir ab tafir á þess- ari leið hafi ekki skapast vegna of mikils álags á vegi heldur vegna þess að bílar komust ekki inn á bílastæði. Nefndin telur aö ef rétt hefði verið staðið aö skipulagn- ingu og stjórnun umferðar inn á bílastæði hefði ekki þurft að koma til tafa. Áætlanir um nýt- ingu stæba voru ófullnægjandi og urðu til þess ab ekki reyndist unnt að nýta bílastæði á besta stab, sem hefðu átt að rýma alla þá bíla sem sátu fastir á veginum. Meginástæða þeirra tafa sem urðu á leið um Miklubraut, Vest- urlandsveg og Mosfellsheiði er að mati nefndarinnar sú að veg- urinn er aðeins einbreiður frá Höfðabakka til Mosfellsbæjar. Ætla má að 20 þúsund manns hafi ab meðaltali bebið í 30- 60 mínútur eftir að komast þessa leið. Nefndin telur reyndar að hefði umferbin gengib greiðar þessa leib hefbi þab leitt til enn meiri vandræða á Þingvalla- svæðinu þar sem tafirnar voru mestar. Öngþveitis skapaðist er gestir hugðust halda heim á leib frá Þingvallasvæðinu. Helstu tafirn- ar urðu við að koma bílum út af stæðum og brott af svæðinu. Þá var vegurinn yfir Mosfellsheiði lokaður í rúma eina og hálfa klukkustund á meðan fylgdir þjóðhöfðingja fóm þar yfir. Nefndin telur að þurft hefði ab kanna aðrar leiðir fyrir fylgdir þjóðhöfðingja, jafnvel að flytja þá með þyrlu. Áætlað er að 25 þúsund manns hafi í heild beðið brottfarar frá Þingvöllum að meðaltali í um 2-4 klukkustund- ir. Bent er á ab hvorki lögregluyf- irvöld í Reykjavík né Árnessýslu né þjcðhátíöarnefnd töldu sig bera heildarábyrgð á skipulagi umferðar. Ef halda á álíka fjöl- mennar hátíðir á Þingvöllum í framtíðinni telur nefndin mikil- vægt að skýra betur hver beri ábyrgb á hverju. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.