Tíminn - 10.12.1994, Blaðsíða 7
Laugardagur 10. desember 1994
&§fNÍ9Hl
7
Keyptu þrotabú Stálvíkur af ríkisfyrirtœki í góbri trú — sitja nú uppi meb stœrstu skipalyftu
landsins þar sem ríkisvaldib sveik samninga. Rcett vib Sœvar C. Svavarsson í Norma hf. í
Carbabœ sem segir:
Sœvar G. Svavarsson telur sig sárt leikinn eftir ab hafa keypt skipaiyftu sem ekki er hœgt ab koma skipum ab.
Tímamynd: CS
Sævar G. Svavarsson, eigandi
fyrirtækisins Normi hf. í
Gar&abæ, telur sig sárt leikinn í
vibskiptum sínum vib ríkis-
valdib. Hann situr uppi meb
nær fullbúna skipalyftu og
skipasmíbastöb, sem getur tek-
ib á móti flestum stærstu skip-
um íslenska flotans. En hann
nýtur mótbyrs frá ríkisstjórn,
samtökum skipasmiba og nú
síbast frá Samkeppnisstofnun.
Hann segir þetta abför ab
frjálsu framtaki einstakling-
anna.
200 milljónir tapast
„Vib keyptum þrotabú Stálvík-
ur haustib 1992, 4 þúsund fer-
metra húsnæbi og 3 þúsund
þungatonna dráttarbraut sem þá
var óuppsett. Síban höfum vib í
Norma varib 100- 200 milljón-
um króna til ab setja upp lyftuna
og eigum abeins eftir ab fjár-
magna lítinn hluta verksins,"
sagbi Sævar í samtali vib Tím-
ann. Hann sagbi ennfremur ab
dýpkun þyrfti ab fara fram í
Garbabæjarhöfn, og telur hann
ab fyrsti áfangi kosti sáralítiö fé.
Varla hefbi þaö verib meining
stjórnvalda aö sú hafnargerb yröi
látin danka, eins og nú er gert, og
verbi fáum til gagns.
Sævar segir ab forsendur allar
hafi verib þrautkannabar þegar
þrotabú Stálvíkur var keypt af
Framkvæmdasjóöi. Allt virtist
benda til þess aö þarna væri
grundvöllur fyrir arösamt og
sterkt fyrirtæki í skipaibnabi.
Flotkví fyrir almannafé
„Viö vomm viö kaupin full-
vissabir af ráöherra og þab var
samþykkt í ríkisstjórn, aö ekki
væri fyrirhugaö aö veita opin-
bem fé til afkastaaukningar á
upptökumannvirkjum á íslandi
á næstu ámm. Þab var líka for-
senda kaupanna," segir Sævar.
Þá gerist þaö ab ríkissjóöur og
AkureyTarbær ákveba aö hjálpa
Odda (Slippstööinni) á Akureyri,
eign Landsbankans, meb því ab
koma þar upp flotkví, sem ætl-
unin mun vera aö kaupa frá út-
löndum fyrir talsvert á annaö
hundrab milljónir króna.
„Hér var auövitaö veriö ab
nota skattpeninga almennings á
íslandi í þágu eins fyrirtækis.
Flotkvíin á ab þjóna sama hlut-
verki og abstaöan okkar getur
gert fyrir miklu minna fé. Þarm-
eb vom nánast allar okkar for-
sendur brostnar og allt fjármagn
tapab. Þaö segir sig sjálft aö þegar
önnur fyrirtæki fá viögeröaraö-
stööuna greidda úr opinbemm
sjóbum, þá getum viö ekki keppt
á sama markabi," sagöi Sævar.
Sævar sagbist vel geta skilib ab
reynt sé ab halda uppi atvinnu
utan höfuöborgarsvæöisins og
ab stutt sé viö illa stödd fyrir-
tæki. Normi hafi aftur á móti
ekki sótt í opinbera sjóöi en gert
allt fyrir eigiö fé til ab halda
áfram starfsemi í þessari grein í
Garöabæ, iönabi sem hafi verib
þar um áramga skeiö vib góöan
oröstír.
Vibræbugóbur rábherra
svarar ekki bréfum
„í sumar ræddi ég í síma viö
Halldór Blöndal, samgönguráö-
herra, og spuröi hann hvort vilji
ráöuneytisins væri aö jafna ab-
stööumuninn og jafnframt hvort
framkvæmdir viö slipp í Garba-
bæ yrbu samþykktar sem styrk-
hæfar. Halldór var viöræöugóöur
og tók mér vel. Hann baö mig aö
skrifa sér bréf meö þessum fyrir-
spurnum og myndi hann þá
svara innan fárra daga. Þetta var
11. ágúst síöastliöinn, og ekki er
svariö komið enn," sagbi Sævar.
Þess má geta í framhjáhlaupi að
ráöherra hefur heldur ekki svarab
bréfi Samkeppnisráðs vegna
þessa máls. Afrit af þessu bréfi
fengu Davíö Oddsson, Ólafur G.
Einarsson, Sighvatur Björgvins-
son, Friðrik Sophusson, bæjar-
stjórinn í Garðabæ og þingmenn
Reykjaneskjördæmis.
Aður hafði ríkisvaldið tekið illa
í fyrirætlanir Norma hf. að end-
urvekja skipasmíöar í Garðabæ.
Þannig hafði Sighvatur Björg-
vinsson svaraö neikvætt og tjáði
þeim Normamönnum aö á ríkis-
stjórnarfundi 13. janúar á þessu
ári hafi verið ákveðið aö stjórn-
völd veittu ekki framlög til auk-
innar afkastagetu í skipasmíða-
iðnaði.
„Staöreyndin er sú aö þörfin
fyrir þennan iðnað á Reykjavík-
ursvæðinu er knýjandi. Það vant-
ar slippaðstöðu fyrir fyrirtæki
sem annast um hvers konar
skipaviðgeröir á svæöinu.
Þab má líka benda á að stærð
lyftunnar okkar í Garðabæ er slík
að ef hún kæmist í gagnið þyrfti
ekki lengur að senda fjölmörg ís-
lensk skip í viðgeröir erlendis.
Þar á meöal eru stærri togararnir
og minni fragtskip Eimskips og
Samskips, ásamt Herjólfi og fleiri
skipum," segir Sævar.
Samkeppnisráb
talar um bága stöbu
Eins og fyrr greinir hefur Sam-
keppnisráð kveöið upp sinn
„dóm" vegna kvartana forráöa-
manna Norma hf. sem telur aö
samkeppnislög og stjómsýslulög
hafi veriö brotin.
Álit ráðsins er ljóst. Ráöiö telur
að samkeppni sé ekki tryggö í
þessum viðkvæma og brothætta
iðnaði, sem nú berst í bökkum
um land allt.
En niðurstaðan er engu að síö-
ur sú aö þaö „verður ekki hjá því
komist að taka tillit til bágrar
stöðu skipasmíða um þessar
mundir og erfiðrar samkeppni ís-
lenskra skipasmíðastööva við er-
lendar stöbvar sem njóta niður-
greiðslna," segir í áliti Sam-
keppnisrábs. Og í framhaldi af
því: „Því er varhugavert að full-
yröa við þær aöstæður sem em í
greininni aö leiðrétting á þessu
atriði muni stuöla að hagkvæm-
ari nýtingu framleiðsluþátta
þjóöfélagsins samanber 1. grein
samkeppnislaga.
Af þessum sökum telur Sam-
keppnisráð ekki efni til þess aö
grípa til heimildar 2. málsgreinar
14. greinar samkeppnislaga og
mæla fyrir um fjárhagslegan að-
slcilnaö sér í lagi meö hliðsjón af
bágri stööu skipasmíðaiðnabar-
ins".
Varðandi þá kvörtun Norma
hf. um aö upptökumannvirki
skipa séu víöa um land í eigu
hafnaryfirvalda, sem aftur leigja
fyrirtækjunum búnaðinn fyrir
sáralítið gjald, segir:
„Þegar hafnarsjóðir leigja upp-
tökumannvirki til skipasmíða-
stööva á þeim kjömm aö leigu-
tekjur em langt undir kostnaöi
viö rekstur mannvirkjanna er
þab álit Samkeppnisrábs aö sam-
keppnisstaba einkarekinna
skipasmíöastööva raskist. Sam-
kvæmt niðurlagsorðum 2. máls-
greinar 14. greinar samkeppnis-
laga skal þess gætt ab samkeppn-
isrekstur sé ekki niðurgreiddur af
einkaleyfis eöa verndaöri starf-
semi."
Rábherra þarf ab
breyta lögum
Þá telur Samkeppnisráö aö
meðan hiö opinbera telur nauö-
synlegt aö styrkja framkvæmdir
viö nýsmíöi eöa viðhald upp-
tökumannvirkja, samanber 26.
grein hafnalaga, sé eðlilegt aö
fyrirtæki sitji viö sama borö varö-
andi aðgang aö slíkum styrkjum,
óháð eignarhaldi." Bent er á aö
hlutafélög einkaaðila geti ekki
fallið undir hafnalögin og notið
fyrirgreiðslu ríkissjóös viö hafn-
arframkvæmdir á sama hátt og
þegar upptökumannvirki eru í
eigu hafnarsjóöa. Er það mat
ráðsins aö ákvæði hafnalaga
stríði aö þessu leyti gegn mark-
miði samkeppnislaga og séu til
þess fallin ab torvelda frjálsa
samkeppni í skipaiðnaði. Er sam-
gönguráðherra bent á nauðsyn
þess aö hlutaðeigandi ákvæði
hafnalaga verði endurskoðuð
með það fyrir augum að mis-
munun varöandi aðgang að
styrkjum byggð á eignarhaldi
veröi afnumin. Þannig verði
samkeppni virkari og nýjum
samkeppnisaðilum auðveldaður
aðgangur að skipasmíöamark-
aðnum. En samt, vegna hinnar
bágu stööu skipasmíða, hefur
erindi Norma hf. verið ýtt út af
borðinu. ■
Stjóm Veitustofnana Reykjavík-
urborgar hefur samþykkt sam-
komulag Hitaveitu Reykjavíkur
og Háskóla íslands um aö stofna
tímabundna stööu prófessors eöa
dósents í vélaverkfræöi. Sam-
kvæmt samningnum greiöir
Hitaveitan allan launakostnaö
vegna stööunnar.
Fulltrúi sjálfstæðismanna í Stjórn
Veitustofnana gagnrýndi samn-
ingsgeröina, m.a. í ljósi bágrar fjár-
hagsstöðu borgarinnar og stofnana
hennar.
Samkvæmt bókun fulltrúa R-list-
ans á samningurinn hins vegar að
hafa óverulegan útgjaldaauka í för
Glit hf.
flutt til
Ólafs-
fjarbar
Frá Þóröi Ingimarssyni, fréttaritara Tím-
ans á Akureyri.
Glit hf. mun hefja starfsemi í
Ólafsfiröi fljótlega eftir næstu
áramót, en Ólafsfjarðarbær
hefur fest kaup á fyrirtækinu
Fossnes, sem áöur var rekiö
undir heitinu Glit hf. Bærinn
hefur einnig keypt rétt á aö
nota nafnið Glit og veröur fyr-
irækiö rekiö undir því fyrir
noröan. Auk framleiðsiufyrir-
tækisins í Ólafsfirði veröur rek-
iö útibú í Reykjavík sem eink-
um mun annast sölu- og mark-
aösmál. Þá er fyrirhugaö aö
taka upp samstarf viö Mynd-
lista- og handíöaskólann og
einnig einstaka listamenn um
hönnun og framleiöslu á leir-
munum, en fyrirtækiö starfaöi
áöur í náinni samvinnu viö
ýmsa listamenn og hönnuöi.
„Við vomm búnir aö skoða
þennan möguleika um nokkurn
tíma áöur en ákvöröun um kaup-
in var tekin og teljum að hér sé
um góöan kost að ræöa fyrir Ól-
afsfirðinga, einkum þegar horft
er til erlendra samskipta og út-
flutningsmöguleika sem þessi
starfsemi býður," sagöi Hálfdán
Kristjánsson, bæjarstjóri í Ólafs-
firöi, í samtali viö Tímann en
þegar hefur veriö unnið nokkuö
að útflutningsmálum og vænt-
anlega takast samningar viö er-
lenda aðiila innan tíðar.
Nú er unnið aö því aö taka
tækjabúnað fyrirtækisins í
Reykjavík niöur, þar á meöal
stóran leirbrennsluofn sem ekki
hefur veriö í notkun að undan-
förnu og þarfnast nokkurrar við-
geröar og flytja hann til Ólafs-
fjaröar en stefnt er að því að hefj-
ast handa viö gerð keramikmuna
fljótlega eftir áramót. Hálfdán
Kristjánsson sagbi að auk hönn-
unar og framleiöslu keramik-
muna væri hugmyndin aö bjóöa
einstökum listamönnum ab nýta
þá aðstöðu sem skapast mun til
leirbrennslu, einkum með því að
nýta stóra ofninn sem ekki hafi
verið í notkun aö undanförnu.
Stofnkostnaður viö kaup og
flutning fyrirtækisins til Ólafs-
fjaröar er talin nema allt að 20
milljóum króna og hefur Ólafs-
fjarðarbær þegar lagt fram sex
milljónir í stofnfé en fyrirhugað
er að auka hlut bæjarins í um ell-
efu milljónir króna. ■
meö sér. Verkþekking sé undirstaða
veitustarfsemi. Tryggur aögangur
Hitaveitunnar aö upplýsingum og
ráögjöf sé því mikilvægur. Hitaveit-
an hafi til þessa greitt Háskóla ís-
lands fyrir þann abgang, sem er
hins vegar innifalinn í samningn-
um.
Ýmiss fordæmi eru fyrir því aö
stöbur í Háskóla íslands séu til-
komnar meö svipuðum hætti. Járn-
blendiverksmiðjan hefur t.d. fjár-
magnað prófessorsstööu við Raun-
vísindadeild í mörg ár, en fleiri
stöður eru fjármagnabar meö
svipuðum hætti í öömm deildum
HÍ. ■
Hitaveita Reykjavíkur:
Kostarstöðu
prófessors í HI