Tíminn - 10.12.1994, Side 2

Tíminn - 10.12.1994, Side 2
2 ISttwtww Laugardagur 10. desember 1994 Guöni Ágústsson segir aö á sama tíma og skuldir fyrirtœkja minnki aukist skuldir heimilanna um milljarö á mánuöi. Guöni á Alþingi í gœr: „Eins og stór hluti þjóbarinnar hafi orbið undir strætisvagni" Fjölmargir þingmenn allra flokka og flokksbrota á Al- þingi tóku til máls í utandag- skrárumræbu um fjárhags- vanda heimilanna í landinu í gærmorgun. „Fullyröa má ab lánastefna og svik á forsendum til íbúbakaup- enda af hálfu stjórnvalda sé þess eðlis ab íslenska þjóbin er og hefur verib á hrabri Færeyjaleib undanfarin ár. í engri verbbólgu eru skuldir heimila ab vaxa um meira en einn milljarb á mán- t’ði. Skuldsetning heimilanna er ógnvænleg," sagbi Gubni Ág- ústsson alþingismaður, máls- hefjandi umræbunnar. Sagbi þingmaðurinn ab sér virtist ab skuldir heimilanna yxu ekki hvab síst í húsnæbislána- kerfinu, en þar eru fyrir hendi gífurleg vanskil, milli 8 og 9 þús- und manns eru þar með lán í vanskilum. „Mér finnst staða þessara mála þab alvarleg að þab er eins og stór hluti þjóðarinnar hafi oröið undir strætisvagni. Sá strætis- vagn er auðvitað efnahagsstefna ríkisstjórnar Davíös Oddssonar," sagði Guðni Ágústsson. Hann benti á að á sama tíma og heimilin safna skuldum, ein- um milljarði á mánuði, minnka skuldir fyrirtækjanna, enda hafa skattar þeirra verið fluttir yfir á heimilin. „Á sama tíma og hæstvirtur forsætisrábherra segir að hægt sé að bæta kjörin, er barist gegn öll- um kjarabótum til láglaunafólks- ins. Ríkisstjórnin fellir niöur há- tekjuskatt og skerðir bætur til ör- Rannveig. Cuöni. Bandalag íslenskra listamanna skorar enn á stjórn- völd aö afnema vsk. af bókum: Engum til gagns en öllum til ópurftar yrkja og atvinnulausra," sagbi Guðni Agústsson í ræbu sinni. Guðni gat um úttekt sem hann lét vinna um heildarútlán Húsnæðisstofnunar. í lok síbasta árs var skuldin komin í 182 milljarða og hafði aukist um 80 milljarba á fjórum árum. Á sama tíma höfðu skuldir einstaklinga vib banka og sparisjóði vaxið úr 46 milljörðum i 55 milljarða. Lán námsmanna höfðu vaxið um 5 milljarba á þessu tímabili og voru 32 milljarðar í lok síð- asta árs. Ástæbur þessarar þróun- ar í skuldasöfnun sagði Guðni vera samdráttarstefnu og gjald- þrotaleið ríkisstjórnarinnar, sem leitt hefur af sér alvarlegasta at- vinnuleysi á landinu í áratugi. Kaupmáttur launa hefur hrapað, yfirvinna minnkað og skattar hækkað á allan almenning auk þess sem skattleysismörk hafa lækkaö. „Mér sýnist að höggið, sem verst lék heimilin, séu brostnar vonir og svikin fyrirheit og að auki galopið lánakerfi þar sem rangar forsendur rébu því að ungt fólk fékk lán án þess ab eiga nokkuð eigið fé til að fjárfesta með," sagbi Gubni Ágústsson og kallabi þetta kerfi „opna svikam- yllu" og láglauna- og samdráttar- stefnuna „hagfræði hellisbúa". Beindi hann ýmsum spurning- um til félagsmálaráðherra. Ráðherra félagsmála, Rann- veig Guðmundsdóttir, sagbist ekki gera lítið úr fjárhagsvanda heimilanna. Hins vegar væri umræðan, eins og stjórnarand- staðan hefði sett hana fram, full- komlega á villigötum. Sagbi hún að tal um mestu skuldbreytingu Islandssögunnar, sem menn töl- uðu um að þyrfti að koma til, svo og að helmingur þjóðarinnar lifði undir hungurmörkum vera meginfirru. „Tal af þessu tagi er fullkom- lega óábyrgt," sagði ráðherrann. „Eg geri ekki lítið úr vanda þeirra sem lent hafa í erfiöleikum vegna breyttra aðstæðna, og þeirra sem lent hafa í atvinnu- leysi, veikindum eba alvarlegum tekjumissi. En ab halda því fram ab þjóðin öll sé á vonarvöl er ab misbjóba því fólki sem alltaf hef- ur stabið við skuldbindingar sín- ar." Mótmælti Rannveig því að skuldastaba heimilanna ætti rætur að rekja til húsnæðiskerfis- ins, það vissu þingmenn mæta vel. „Það eru vanskilin og of þung greiðslubyrði sem við eigum ab beina kastljósinu ab, en ekki skuldastaöan sem slík," sagði Rannveig Guömundsdóttir, fé- lagsmálarábherra. ■ Þar sem baráttan gegn virðis- aukaskatti á bækur hefur hingað til verið háð fyrir daufum eyrum stjórnvalda, skorar Bandalag íslenskra listamanna enn og aftur á stjórnvöld af afnema skattinn áður en verra hlýst af. í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi bandalagsins segir m.a.: „Þann tíma sem síðan er libinn þykir þeim sem til þekkja hafa ásannast ab þess konar skattlagning menningarstarf- semi sé engum til gagns, en öll- um til óþurftar þegar grannt er skoðað," segir í ályktun aðal- fundar bandalagsins. Bandalag íslenskra lista- manna harmar sömuleiðis þær þrengingar sem kvikmyndagerð í landinu hafi þurft að þola að undanförnu og lítur fyrirhugaö- an niðurskurð á lögbundnum framlögum til Kvikmyndasjóðs íslands alvarlegum augum, sem og úrræðaleysi menntamálaráð- herra í málefnum Menningar- sjóðs útvarpsstöðva. Abalfund- urinn hvetur ráðherrann til aö taka stefnu sína í málum ís- lenskrar kvikmynda- og sjón- varpsþáttagerbar til gagngerrar endurskoðunar. í þribju ályktun fundarins lýsa listamennirnir undrun sinni á þeirri ákvörðun mennta- málaráðherra að fella nibur lög- bundiö framlag til Listskreyt- ingasjóðs ríkisins á næsta ári. Framlag til sjóbsins hafi verið skert ár eftir ár og hafi á síðasta ári aðeins numið 12 milljónum, eba þribjungi þess sem þaö átti að vera lögum samkvæmt. Jóhanna og stuðningsmenn kynna áform sín á sunnudag Agúst Einarsson segir sig úr Alþýðuflokknum £G 3YSr V/O />Ð FA HSA JÓHÖmO, MÐ S£/V ÉG FÉKK EKK/ HJÉ JÓM BMDV/N! 30GG/ jóhanna Siguröardóttir opnar formiega skrifstofu Þjóövak- ans sö Hafnarstrœti 7 ídag, en hún var ásamt stuöningsmönnum aö undirbúa málin í gœr. Á myndinni erjóhanna í hópi nokkurra náinna samstarfsmanna, en þar má m.a. þekkja Ólínu Þorvaröardóttur, jón Sœ- mund Sigurjónsso, Sólveigu Ólafsdóttur, Allan Morthens úr Noröurlandi vestra Og fleiri. Tímamynd, cs Rafmagn í Hafn- arfiröi í 90 ár Þess verbur minnst mánu- daginn 12. desember að þá eru libin 90 ár síöan fyrsta rafstöðin var tekin í notkun í Hafnarfiröi. Það var Jó- hannes Reykdal trésmíba- meistari sem lét reisa 9 kíló- vatta vatnsaflsrafstöb á lób verksmibju sinnar við Ham- arskotslæk þar sem hús Dvergs stendur nú. í fyrstu tengdust 16 íbúbar- hús rafstöðinni en 1906 tók Jóhannes abra stöb í notkun, ofar vib lækinn, á Hörðuvöll- um. Hafnarfjarðarbær keypti báðar þessar stöðvar árið 1909. Rafveita Hafnarfjarðar var stofnuð 1938. Hjá fyrirtækinu eru nú 25 starfsmenn, en orkuveitusvæði Rafveitu Hafn- arfjarðar er Hafnarfjörður, Bessastaðahreppur og Garða- bær að hluta. Nú hefur verið skrifuð saga rafveitunnar, auk þess sem heimildarmynd hefur verið gerð um hana. Rafveita Hafnarfjarðar býður gestum að þiggja veitingar í Hafnarborg kl. 17-19 mánu- daginn 12. desember. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.