Tíminn - 11.01.1995, Blaðsíða 3
Mi&vikudagur 11. janúar 1995
IWiw
3
✓
Omar Ragnarsson aftur til Sjónvarpsins eftir sex og hálft ár hjá Stöö 2:
Ráðinn á abalskrif-
stofu Sjónvarpsins
Ómar Ragnarsson, fréttamaö-
ur og skemmtikraftur, kemur á
ný til starfa hjá Sjónvarpinu
um næstu mána&amót, eftir aö
hafa veri& hjá Islenska út-
varpsfélaginu í sex og hálft ár.
Gengiö var frá rá&ningu
Ómars og starfslokum á Stöö 2
um mána&amótin ágúst-sept-
ember á sl. ári.
Hjá Sjónvarpinu mun Ómar
vinna á aöalskrifstofu sem starfs-
maður Péturs Guðfinnssonar
framkvæmdastjóra en ekki á
dagskrár- eöa fréttadeild. Þar
Omar Ragnarsson meö farsímann og hljóönemann. Fyrsta verk hans hjá RÚV mun hann hafa aðstöðu til að
veröur aö stjórna spurningakeppni framhaldsskólanna „Cettu betur". sinna þeim verkefnum sem þyk-
ir henta a& hann vinni á hverj-
um tíma, en fyrst og fremst inn-
lendri dagskrárgerð. Aöspur&ur
hvort hann væri rá&inn sem
nokkursskonar „Nestor" til Sjón-
varpsins sagöi hann að þaö
maetti alveg eins líta á þaö þann-
ig. í þaö minnsta hefði þetta fyr-
irkomulag aö ráöningu hans gert
þab að verkum ab mjög fáir fjöll-
uöu um endurkomu hans til
Sjónvarpsins og því vissu ekki
margir af þeirri ákvörðun á sín-
um tíma.
Ómar segir að helsta ástæöan
fyrir því aö hann ákvað aö snúa
aftur til starfa hjá Sjónvarpinu sé
þörfin fyrir aö breyta til, en
hann fullyrðir aö hann hafi aldr-
ei unniö í mörg ár á sama staö.
Auk þess hefði hann skilið eftir
hjá Sjónvarpinu mörg verkefni
sem hann náöi ekki aö ljúka viö
áöur en hann hóf störf hjá Stöð
2. Þessi verkefni vill hann klára
og hrinda öðrum í framkvæmd.
Hann neitar því að hann sé að
hverfa frá Stöð 2 vegna ósam-
komulags um kjör sín og laun.
Þvert á móti þá lofar hann fráfar-
andi samstarfsmenn og stjórn-
endur og segir ab tíminn á Lyng-
hálsi hafi bæöi verið góður og
lærdómsríkur. ■
Eyjólfur Sveinsson.
um þorskinn. Þar hafi kannski
verið veöjaö á rangan hest, en
benda mætti á að Vestfiröing-
um hefði verið stýrt inn á þessa
braut.
„Þaö breytir hins vegar engu
hver ástæöan var. Verkefnið
núna er aö tryggja að sjá til þess
aö þarna þrífist blómlegt at-
vinnulíf sem styðji og styrki
fólkið sem á svæðinu býr," sagði
Eyjólfur Sveinsson.
Starfshópurinn sem unnið
hefur að Vestfjarðaaðstoö er
skipuð eftirtöldum: Eyjólfur
Sveinsson formaður, Brynjar
Sigtryggsson, skipaður af félags-
málarábuneytinu, Einar Mat-
hiesen sveitarstjóri í Hveragerði,
skipaður af fjármálaráðuneyt-
inu, Ægir Hafberg sparisjóðs-
stjóri á Flateyri, skipaöur af
Byggðastofnun, en auk þess hef-
ur Guðmundur Jóhannsson,
viðskiptafræðingur í fjármála-
ráðuneytinu, starfað sem ritari
nefndarinnar. ■
Vestfjaröaaöstoö: 200 milljónir í pottinum og óvíst hvort þœr ganga út. Eyjólfur Sveinsson,
formaöur starfshóps um aöstoöina:
Skammtíma deyfilyf
eru ekki á boðstólum
100 miHjónum króna af opin-
beru fé hefur verið varið til
uppbyggingar á Vestfjöröum
undanfarna mánuði, - 200
milljónir eru enn í pottinum,
og raunar nokkru meira þar
sem ekki hefur allt verið greitt
út meðan vissum skilyrðum er
ekki fullnægt. Eftir rúman
mánuð kemur í ljós hvort 300
milljónirnar ganga yfirleitt
út.
Starfshópurinn sem unnið
hefur að Vestfjaröaaðstoð hefur
ekki beinlínis slegið um sig með
milljónunum og sumum Vest-
firðingum þykir sem þeir séu
fastir á fé, félagarnir að sunnan,
undir stjórn Eyjólfs Sveinsson-
ar, aðstoðarmanns Davíðs
Oddssonar forsætisrábherra.
Meb aðgerðunum er verið aö
freista þess að efna til hagræb-
ingar sem leiða eiga til varan-
legra áhrifa. Skammtíma deyfi-
lyf eru ekki á matseðlinum.
„Markmiðið er að ná fram
styrkingu á atvinnu- og þjón-
ustusvæðunum með samein-
ingu fyrirtækja, en við horfum
mjög stíft til þess ab fyrirtækin
geti staðið viö skuldbindingar
sínar til lengri tíma. Að öðrum
kosti er styrkingin auðvitað
engin eba í besta falli tíma-
bundin," sagbi Eyjólfur í viðtali
við Tímann í gær.
Sameining ekkert
töfraorb
Eyjólfur sagði að sameining
fyrirtækja væri ekkert töfraorð
út af fyrir sig. Alþingi hefði
ákvebið í maí síðastliðnum ab
reyna þessa leið og hefði starfs-
hópurinn sem að málinu kom
sett sér stífar vinnureglur í því
skyni að ná sem bestum árangri.
„Þessi upphæð, 300 milljón-
ir, er í raun smáupphæb í sam-
anburði vib vandamálin sem er
að finna á svæðinu. í upphæð-
inni sjálfri felst ekki lausnin.
Við höfum hvatt menn til að-
geröa, við höfum aðstoðaö viö
að ryðja hindrunum úr vegi, við
höfum hjálpað fyrirtækjunum í
samningum við lánardrottna og
vib höfum gert þeim kleift að
fara þessa leið. Það er aðalgagn-
ið af þessari Vestfjarðaaðstoð,
ekki þeir fjármunir sem við höf-
um undir höndum, sem eru
auðvitaö smámunir mibað við
stærðargráðu vandamálsins,"
sagði Eyjólfur.
Fyrirtækin kvarta
undan hörkunni
„Fyrirtækin hafa sum hver
kvartað yfir því ab við séum svo-
lítið harðir við þau. Á okkur
strandar hins vegar ekki. Fyrir-
tækin þurfa að koma með málin
fullunnin til okkar og við höf-
um bæbi aöstoðað fyrirtækin,
lagt þeim til ráðgjafa á okkar
kostnab og unnið með þeim í að
fullklára málin. Aðstoð til
þriggja hópa hefur verið sam-
þykkt. Þau voru mjög langt
komin þegar lögin voru sett í
maí í fyrra og fimm hópar til
viðbótar eru í vinnslu og við
höfum sett okkur það markmið
að sjá fyrir endann á því innan
mánaðar, eða um eða upp úr
miðjum febrúar," sagði Eyjólfur
Sveinsson.
Mikill vilji til aö
stokka upp
Eyjólfur sagði að hluti af
vandamálum rekstrarins á Vest-
fjörðum stafaði af því hversu
fastheldnir Vestfirðingar heföu
verib á sitt rekstrarmynstur
gegnum tíbina. Þetta fyrir-
komulag hefur reynst vel allt
þar til nú á tímum skerts kvóta
og erfiðra ytri aðstæðna. Því
hefði það komið sér og starfs-
hópnum á óvart hversu mikill
vilji til uppstokkunar hefur
komiö fram.
Eyjólfur sagbi aðspurður að
rétt væri að Vestfirðingar hefðu
vissulega verið mjög einhæfir í
framleiöslunni og mest hugsaö
Austurbœjarskólamálib:
Samkomulag
um málsmeo-
feröina
Ólafur G. Einarsson átti fund
meö Áslaugu Brynjólfsdóttur
fræbslustjóra í gær að ósk
fræöslustjóra vegna Austur-
bæjarskólamálsins. Eins og
á&ur hefur komið fram hér í
Tímanum taldi menntamála-
ráðherra fræðslustjórann ekki
hafa fariö ab lögum þegar
hann veitti skólastjóranum
leyfi frá störfum.
Ekki var þó talin ástæða til að
áminna fræbslustjórann. Á
fundinum kom fram ab ráð-
herra og fræðslustjórinn eru
sammála um að nauðsynlegt
hafi verið — til að tryggja skóla-
starf — ab skólastjórinn kæmi
ekki til starfa. í samtali blabsins
við Áslaugu Brynjólfsdóttur í
gær kom fram að Fræðsluskrif-
stofan mun á næstu dögum
skila ráðuneytinu lokaskýrslu
um málið og menn séu sam-
mála um í hvaða farveg eðlileg-
ast sé að máliö fari. Hún vildi
hins vegar ekkert tjá sig um
málið frekar en sagði að fundur-
inn hefði verið góður og vel far-
ið á með sér og ráðherranum.
■
„Afkvœmiö" tekur á sig mynd
„Afkvœmi" Laugardalshallar er nú að taka á sig mynd, en vibbyggingin var sú lending sem nábist
eftir margra mánabapjark um húsncebismál Heimsmeistarakeppninnar í handknattleik, sem fram fer
í maí nœstkomandi. I dag þykir ekkert annab benda til en ab vibbyggingin verbi tilbúin fyrir 7. maí,
en hún hýsir vibbótaráhorfendapalla. Tímqmynd cs