Tíminn - 11.01.1995, Blaðsíða 10

Tíminn - 11.01.1995, Blaðsíða 10
10 Mi&vikudagur 11. janúar 1995 Upprunavottoröin og innheimtan til Búnab- arfélagsins: Talsverðar skuld- ir útistandandi Þegar hross eru flutt úr landi, þarf ab fylgja þeim uppruna- vottorö. Þar koma fram ættir viökomandi einstaklings, aldur o.fl. Vottoröiö er staöfest af Búnaöarfélagi íslands og er þaö hrossaræktarráöunautur sem þaö gerir. Því aöeins er vottorö- iö gilt aö slík undirskrift fylgi. Þegar kynbótahross eru seld úr landi, þarf seljandinn aö greiöa gjald í svonefndan Stofnvernd- arsjóö. Hlutverk sjóösins er, eins og nafniö bendir til, aö vernda íslenska hrossastofninn meö því aö geta stuölaö aö kaupum á kynbótahrossum, sem menn vilja ekki aö fari úr landi. Þannig hefur sjóöurinn bæöi veitt styrki og lán til slíkra kaupa. Hrossaræktarsam- böndin hafa forkaupsrétt og geta því gengiö inn í kauptil- boö. Sé um 1. verölauna hross aö ræöa, er skylt aö láta vita af sölunni og geta þá samböndin gengið inn í kaupin, sem fyrr segir, ef áhugi er fyrir hendi. Utgáfa upprunavottoröanna hefur verið á vegum Félags hrossabænda og er gamall arf- ur frá því að Gunnar Bjarnason var útflutningsráðunautur. Af þessu hefur félagið haft nokkr- ar tekjur. Nú hefur hins vegar verið ákveöið aö útgáfa vott- oröanna veröi alfarið í hönd- um Búnaöarfélags íslands, svo og innheimta sjóöagjaldsins. Hallveig Fróðadóttir, sem verið hefur starfsmaður Félags hrossabáenda og séö um upp- runavottorðin, flyst yfir til Búnaöarfélagsins og verður starfsmaður þess fyrst um sinn. En fyrir dyrum stendur, eins og menn vita, endurskipulagning á félagssamtökum landbúnaö- arins. Búnaöarfélagiö tekur viö þessu verkefni 15. janúar næst- komandi. Nokkur meiningarmunur hefur verið meö mönnum um uppgjör á Stofnverndarsjóðn- um. Vitað er aö verulegar skuldir eru viö sjóðinn af hálfu einstakra viðskiptavina. Ekki hefur fengist uppgefið hverjir skuldararnir eru, en því hefur veriö haldið fram að hrein skil hafi ekki veriö gerð á sjóðnum síðan 1988. Um það hefur nú náöst fullt samkomulag milli Félags hrossabænda og Búnaö- arfélags íslands aö endurskoð- unarfyrirtækiö Stoö fari yfir þetta mál, fái frumgögn í hend- Spáb í hrossin. HEJTA- MOT KARI ARNORS- SON ur til endurskobunar og geri jafnframt innheimtumat. Þá er þess að vænta aö deilur, sem risiö hafa innan Félags hrossabænda út af þessu máli, veröi til lykta leiddar. Aukinn útflutningur Fleiri hross voru flutt út á síðasta ári en áriö áöur. Tala seldra hrossa mun vera nálægt 2700. Enn er ekki komið fulln- aöaruppgjör milli einstakra hópa, þ.e. hve margir gelding- ar voru seldir, hve margar hryssur og hve margir stób- hestar. Hrossasalan hefur auk- ist ár frá ári, en ekki er vitað hvort verömætaaukningin er aö sama skapi, því lágt verb hefur veriö á mörgum þeirra hrossa sem fariö hafa úr landi. Sala á stóðhestum hefur heldur dregist saman. Þeir hestar, sem frést hefur aö farnir séu úr landi, eru Gulltoppur frá Þverá, sem er Gassasonur, og Töggur frá Eyjólfsstöðum, sem er und- an Mána frá Ketilsstöðum. Þessir hestar fóru til Danmerk- ur. Þá mun Álmur frá Sauöár- króki vera seldur til Þýska- lands. ■ Hafa skal það sem sannara reynist Athugasemd blabamanns í Tímanum 28. des. s.l. tekur Árni Gunnarsson blabamabur tali Jó- hann Þorsteinsson, hrossaræktanda og tamningamann í Mibsitju í Skagafirbi. Vibtalib ber yfirskriftina „Keppni í B-flokknum á L.H. var ólögleg". Landssamband hestamannafé- laga telur sér skylt ab leibrétta ákvebnar rangfærslur sem koma fram í vibtalinu. Fyrirsögnin ab vibtalinu er lítt skiljanleg, en sennilega átt vib keppni á LM '94, en þab er skamm- stöfun fyrir landsmótib 1994, en L.H. er skammstöfun fyrir Lands- samband hestamannafélaga. Þessi brenglun er þó lítib mál í saman- burbi vib fullyrbingu um ab keppn- in hafi verib ólögleg, þar sem ekki hafi verib fariö eftir settum reglum. Þessari staöhæfingu er mótmælt, því hún er einfaldlega röng og raunar óskiljanleg. Á landsþingi L.H. á Húsavík 1990 lá fyrir þingskjal flutt af gæöinga- og unglinganefnd þar sem gerö er tillaga um m.a. úrslitakeppni í B- flokki. Þar segir orörétt: „í upphafi úrslitakeppni í B- flokki skulu eftirfarandi atriöi lesin upp fyrir keppendur: Urslit í B-flokki skulu fara þannig fram: Sýna skal hægt tölt, einn hring til hvorrar handar. Síban hægt tölt, meö hraöamun, upp aö milliferö, einn hring til hvorrar handar. Brokk skal riöib meb hrabamun, allt ab tvo hringi til hvorrar handar. Aö lokum skal sýna greitt tölt, einn hring til hvorrar handar. Á milli atriba, og þegar skipt er um hring, skulu keppendur hægja hesta sína niöur á fet, jafna bilin og bíöa frekari fyrirmæla frá stjórn- anda." í meöferb málsins á þinginu er þessu breytt í gæbinga- og ung- linganefnd og breytingartillaga flutt af nefndinni sem ársþingib samþykkti. Breytingin er svohljób- andi: „Úrslit í B-flokki skulu fara þann- ig fram: Sýna skal hægt tölt, einn hring til hvorrar handar. Síöan hægt tölt, meb hraöamun, upp ab milliferb, einn hring til hvorrar handar. Brokk skal riöiö meö hraöamun, allt ab tveim hringjum til hvorrar handar. Ab lokum skal sýna greitt tölt, allt aö tveim hringjum til hvorrar handar. Á milli atriba og þegar skipt er um hring, skulu keppendur hægja hesta sína nibur á fet, jafna bilin og bíöa frekari fyrirmæla frá stjórn- anda." Jóhann talar um „feil í þinggerö- inni". Feillinn, sem hér um ræbir, er aöeins sá, aö ekki var um þaö get- ib í þinggeröinni, hvernig atkvæbi féllu, en sagt ab breytingin hafi ver- ib samþykkt. Af þessu má ljóst vera ab keppni í B-flokki á Landsmótinu á Hellu 1994 var í fyllsta samræmi vib lög og reglur L.H. og því lögleg á allan hátt. Eftir þessum reglum hefur því verib keppt frá því voriö 1991 án at- hugasemda. Þab er því undarlegt aö staöhæf- ingar um ólögmæti skulu koma fram fyrst nú, fjórum árum eftir aö reglurnar tóku gildi. Jóhann Þor- steinsson var framsögumabur gæö- inga- og unglinganefndar á ársþing- inu á Húsavík, sem samþykkti þess- ar breytingar á úrslitakeppninni. Vegna ummæla Jóhanns um stjórnanda B-flokkskeppninnar á LM '94, Sigrúnu Siguröardóttur, má vísa í grein, sem hún skrifaöi og birt var á bls. 24 í 5. tölublaöi „Hestur- inn okkar". Þar gerir hún grein fyrir sínu máli varöandi úrslitakeppnina og er engu vib þab aö bæta. Á myndbandi frá Landsmótinu kemur fram ab Sigrún notar „greitt tölt" en ekki „yfirferbartölt" eins og fram kemur hjá Jóhanni í viötalinu. Á ársþingi L.H. á Hvolsvelli 28. og 29. október s.l. var samþykkt tillaga þess efnis aö stjórn L.H. skipi nefnd sem skuli endurskoöa í heild reglu- gerö um gæöingakeppni, svo og reglugerb um bama- og unglinga- keppni. Nefnd þessi skili áliti eigi síöar en fyrir ársþing 1995. Gefst þá kostur til ab breyta m.a. úrslitakeppninni; þar til þab hefur veriö gert, gilda eldri reglumar. Sigurður Þórhallsson, framkvœmdastjóri L.H. Fyrirsögn viötalsins, sem vitn- aö er til, er þokkalega skiljan- leg þeim sem vilja skilja hana. Með skammstöfuninni L.H. er aö sjálfsögðu átt við landsmót hestamanna, en ekki Lands- samband hestamannafélaga. Fyrirsögnin er bein tilvitnun í Jóhann Þorsteinsson þar sem hann er aö tala um keppni í B- flokki gæöinga á XII. lands- móti hestamanna á Gadd- staðaflötum viö Hellu í suinar. Undirritaður veit muninn á landsmóti hestamanna og Landssambandi hestamanna- félaga, þó að hann hafi leyft sér að skammstafa landsmótið meö L.H. í fyrirsögn. Að kalla þessa skammstöfun brenglun eru útúrsnúnin^ar. Arni Gunnarsson Skyldleika- ræktun II í síöasta Kynbótahorni var fjallaö um skyldleika- ræktun og tekiö dæmi af Svaðastaðahrossum. En á fleiri stöbum hefur skyldleikinn verið stundaður. í Hornafirbi voru löngum gób hross og sérstak- lega voru þau annáluð fyrir vilja og mikinn dugn- aö. Þessi hross höfðu líka til ab bera mjög gott tölt. Hross af Hornafjarðarstofni dreifbust mikiö um landiö á ákvebnu tímabili og höfbu mikil áhrif. Þarna var um ab ræða hesta út af Blakki 129 og voru þeir feögar Skuggi 201 og Nökkvi 260 at- kvæðamestir í útbreiöslu hornfirskra áhrifa. En svo virtist eins og menn heima fyrir í Hornafirði fengju glýju í augun vegna þessara sterku hesta. Þeirfóru aö æxla þessum stofni mjög náiö saman. Hvaö mest kvab ab þessari skyldleikaræktun í Árnanesi. Stjarna 2911 frá Árnaneii þótti miklum kostum búin. Hún var reyndar ekki feguröarhross, en hæfileikarík. Hún var út af Blakki 129 í báðar ætt- ir. Móðir hennar var sonardóttir Blakks, en faðir- inn Hóla-Jarpur, var undan Nökkva 260, sem var undan Skugga 201, en hann var sonarsonur Blakks. En skyldleikinn fer fyrst ab vaxa ab ráði, þegar fariö er ab halda Stjörnu undir nána frændur sína. Stjarna fær vib Krumma 540, sem var út af Blakki í bábar ættir. Undan þeim var Hrafn 583. Meb Sörla frá Borgum eignaöist Stjarna Dúa- Brúnku 3214. Sörli frá Borgum var faöir Krumma frá Borgum, sem nefndur er hér aö framan. Dúa- KYNBOTAHORNIÐ Brúnka og Hrafn voru því systkini aö móöurinni og undan febgum. Þeim er síðan æxlab saman og þá fæöist Faxi 646 frá Árnanesi. Síban er Stjörnu 2911 haldiö undir Faxa, en hún var amma hans í bábar ættir. Undan þeim var stóbhesturinn Geys- ir 821. Greinilegt var aö vib þessa miklu skyldleikarækt- un kom fram ákvebin hnignun í stofninum. Hross- in uröu þykkvaxin og sum kútsleg, en verri galli var þó ab kergja ræktabist upp í kyninu og vill loba viö hross af þessum stofni, þó þau blandist öbrum stofnum. Þaö er athyglisvert, viö lestur „jódyns"-bóka Hornfiröinga um líf fyrri kynslóða í Hornafirði, ab þar er mikib fjallab um hross og greinilegt er ab þegar Hornfirðingarfengu sérstóðhesta til blönd- unar, bötnuöu alltaf hrossin. En þeir notuöu svo afkvæmin til innræktunar, eins og skynsamlegt er íhófi. Þekktastir af blöndubum hrossum af Horna- fjarbarstofni nú í seinni tíb eru Ófeigur frá Hvann- eyri undan Hrafni frá Árnanesi og Kirkjubæjar- hryssu, og svo sonur hans Flosi frá Brunnum, sem reyndar var Hornfirðingur að 3/4 hlutum. Þessir garpar eru nú bábir horfnir. Þess má til gamans geta ab einn þeirra hesta, sem hvaö best kom út fyrir dóm á afkvæmum í sumar leið, var Angi frá Laugarvatni. Hann er dóttursonur Faxa 646, en Kirkjubæjarhesturí föðurætt. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.