Tíminn - 11.01.1995, Blaðsíða 7
Mi&vikudagur 11. janúar 1995
Vínar-
tón-
leikar
Annab kvöld, fimmtudaginn
12. janúar, heldur Sinfóníu-
hljómsveit íslands Vínartón-
leika í Háskólabíói og hefjast
þeir kl. 20.00. Tónleikarnir
veröa endurteknir Iaugardag-
inn 14. janúar kl. 17 á sama
stab.
Hljómsveit-
arstjóri er Páll
P. Pálsson og
einsöngvari
Þóra Einars-
dóttir.
■ Á efnis-
skránni er Vín-
artónlist eftir
Johann Strauss,
Eduard Strauss, Franz Lehár,
Franz von Suppé, Richard Heu-
berger o.fl.
Þóra Einarsdóttir, sem kemur
nú fram í fyrsta sinn meö Sinfón-
íuhljómsveit íslands, hefur vakiö
veröskuldaða athygli fyrir söng
sinn. Aö loknu námi í Söngskól-
anum í Reykjavík fór Þóra til
náms í Guildhall School of Music
and Drama í London, þar sem
hún lýkur námi nú í vor. Hún
hefir tekið þátt í ýmsum óperu-
uppfærslum á vegum Söngskól-
ans, íslensku Óperunnar og Gu-
ildhall-skólans. M.a. söng hún
einsöngshlutverk í Sálumessu
Mozarts í Barbican Centre í Lond-
on í apríl sl.; einnig var hún ein-
söngvari á tónleikum með ís-
lensku Sinfóníettunni í Washing-
ton undir stjórn Osmos Vánská í
október sl.
Páll Pampichler Pálsson, sem
fæddur er í Graz í Austurríki, kom
hingað unglingspiltur til að taka
við starfi 1. trompetleikara við
Sinfóníuhljómsveit íslands árið
1950. Á þessum fjórum áratug-
um, sem liðnir eru, hefur Páll
komið víða við-í tónlistinni sem
kennari, tónskáld og hljómsveit-
arstjóri og hefur hann unnið ís-
lensku tónlistarlífi ómetanlegt
gagn. Páll er löngu orðinn ís-
lenskur ríkisborgari, en upprun-
inn leynir sér ekki, því eins og
segir í efnisskrá: „... í Páli finnum
við hinn ósvikna austurríska létt-
leika sem kemur fram í öllu hans
viðmóti og ekki hvað síst í túlkun
hans á Vínartónlistinni". Páll hef-
ur hlotið ýmsar viðurkenningar
fyrir störf sín, s.s. heiðursprófess-
orsnafnbót frá menntamálaráðu-
neyti Austurríkis, einnig hefur
hann verið sæmdur Riddarakrossi
hinnar íslensku Fálkaoröu.
Vínartónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar hafa frá upphafi not-
ið mikilla vinsælda og eftirspurn
eftir miðum fer vaxandi ár frá ári.
Þess eru dæmi að miðar séu pant-
aðir með ársfyrirvara. Uppselt er á
tónleikana. ■
fKwíiiw
Unniö er ab gerb tenginga framhjá nýjum mislœgum gatnamótum, svo mögulegt verbi ab vinna ab gerb brúar yfir Vesturlandsveginn. Þrátt fyrir ab um
brábabirgalausn sé ab rœba munu þessar framkvœmdir nýtast vib gerb nýrra gatnamóta. Tímamynd
Kostnaöur v/ð gatnagerö í Reykjavík á árinu svipaöur og áöur, en stóraukin framlög veröa úr vegasjóöi:
1600 mill j. til nýbygg-
ingar gatna í Reykjavík
Gatnamálastjóri hefur lagt
fram framkvæmdaáætlun
gatnamála á þessu ári og er í
heild um verulega aukningu
kostnaöar aö ræöa til nýbygg-
ingaframkvæmda. Hins vegar
ber á þaö aö líta aö stór hluti
kemur úr vegasjóöi og segist
Stefán Skarphéðinsson gatna-
málastjóri gera ráö fyrir aö
hlutur Reykjavíkurborgar
veröi svipaður til þessa mála-
flokks og áriö áöur, eöa á bil-
inu 700-800 milljónir króna.
Gera má ráð fyrir að hlutur
vegasjóðs til nýbygginga verði
svipaður og fer aö stærstum
hluta til áframhaldandi fram-
kvæmda við Vesturlandsveg og
gerð mislægra gatnamóta á
mótum Vesturlandsvegar og
Höföabakka.
Heildarkostnaður við viðhald
og rekstur er ráðgerður um einn
milljarður og kemur hluti þeirr-
ar fjárhæðar einnig úr vega-
sjóði.
Stefán segist ekki geta farið
ofan í einstaka þætti fram-
kvæmdaáætlunar sinnar, þar
sem hún hefur enn ekki verið
tekin til meðferðar borgar-
stjórnar og geti því enn tekiö
Nú stendur yfir útbob vegna gerbar mislœgra gatnamóta á mótum Höfbabakka og Vesturlandsvegar. Svona
koma þau til meb ab líta út, í grófum dráttum, þegar komib er vestur Vesturlandsveg.
breytingum í borgarkerfinu.
Nú stendur yfir útboð á gerð
mislægra gatnamóta á mótum
Höfðabakka og Vesturlandsveg-
ar og rennur frestur til að skila
tilboðum út þann 30. janúar
næstkomandi. Gert er ráð fyrir
að verkinu ljúki að hluta þann
4. september í haust og aö fullu
ekki síðar en 15. október 1995.
Nú er unnið að gerö tenginga
framhjá gatnamótunum, svo
hægt verði að loka þeim meðan
unnið er aö gerð brúar sem er
hluti af mislægu gatnamótun-
um. Stefán Skarphéðinsson seg-
ir að þó aö um bráðabirgða-
gatnamót sé að ræða, þá nýtist
þessar framkvæmdir aö stórum
hluta við ný gatnamót.
Caukshreiöriö í Þjóöleikhúsinu:
Helgi Skúla leikur Scanlon
Brátt hefjast sýningar á ný á
leikritinu Gaukshreiöriö eft-
ir nokkurra vikna sýningar-
hlé. Þær breytingar hafa nú
oröiö á hlutverkaskipan aö
Helgi Skúlason tekur viö
Halldóra Björnsdóttir sem Flinn
hjúkrunarkona og Erlingur G ísla-
son sem Scanlon.
hlutverki Scanlons, eins af
sjúklingunum á geösjúkra-
húsinu, af Erlingi Gíslasyni.
Gaukshreiörið var frumsýnt
á síðastliönu leikári, var tekið
upp aftur í upphafi þessa leik-
árs og hefur veriö sýnt síðan
við miklar vinsældir.
Sýningum fer nú fækkandi,
bæöi vegna þrengsla í leik-
mynda- og leikmunageymsl-
um Þjóöleikhússins og vegna
þess aö leikarar í Gaukshreiðr-
inu þurfa að snúa sér að öðr-
um verkefnum innan hússins.
Þaö fara því að veröa síðustu
forvöð að sjá þetta fræga verk
á fjölunum á Stóra sviðinu.
Fyrsta sýning á þessu ári er 13.
janúar. ■