Tíminn - 11.01.1995, Side 9
Miðvikudagur 11. janúar 1995
fljfattflMttf
9
UTLÖND
UTLÖND
UTLÖND
UTLÖND . . . UTLÖND
UTLÖND . . . UTLÖND . . . UTLÖND
Mun rólegra í Grosní eftir umsamib vopnahlé Rússa og Téténa:
Stund á milli stríba
Moskvu - Reuter
Rólegra var í gær Grosní en um
langt skeið eftir að samkomulag
náðist í fyrrakvöld um tveggja
daga vopnahlé. Svo virðist sem
báðir aðilar virði vopnahléið að
mestu en ráðamenn í Kreml
höföu upptökin að vopnahléinu.
íbúar borgarinnar voru í gær
fegnir þessari stund á milli stríöa
en mjög hart var barist í fyrradag
og dagana á undan.
Téténskur byltingarsinni sagði
í samtali í gær við Interfax aö eina
leiðin fyrir rússneska herinn til að
ná yfirráðum í stríðinu væri að
sprengja borgina í loft upp,
Téténar myndu aldrei gefast upp.
Hann sagði íbúa nota vopnahléið
til að koma sér á öruggari staði og
sanka að sér vistum en á meðan
reyndu vopnfærir menn að bæta
vígstöðu sína sem best.
Vopnahléiö var boðað til
tveggja sólarhringa og hefur
stríðsöldur lægt á flestum stöðum
í borginni öðrum en en í mið-
borginni fyrir utan Forsetahöllina
þar sem skothvellir eru tíðir. Fæst-
ir telja að vopnahléiö verði lang-
líft, enda lítill sáttahugur i Tétén-
um, sem m.a. af trúarástæðum
hyggjast berjast til síðasta manns.
Óstaðfestar ’heimildir sögðu í
gær aö fréttaflutningur rússneska
sjónvarpsins af atburðunum í
Grosní væri hlutdrægur og drægi
taum Jeltsíns Rússlandsforseta.
Hann hefur verið gagnrýndur
mjög fyrir misheppnaða sókn
sína gagnvart Téténum.
Alvarlegur almœmisfaraldur í Kambódíu:
90% vændiskvenna meb alnæmi
Phnom Penh - Reuter
Meira en 90% vændis-
kvenna í norðausturhluta
Kambódíu, Banteay Meanc-
hey, eru smituð alnæmisveir-
unni og 21% hermanna að
sögn þarlends dagblaðs í gær.
Niðurstöðurnar eru unnar
Rándýrar
góðgerðir
Los Angeles - Reuter
Góðgerðasjóður sem George
Bush, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seti, kom á fót áriö 1992 hefur
varið 22 milljónum dala í launa-
kostnað og annan rekstur á með-
an hann hefur aöeins veitt 4
milljónum dala í líknarstörf.
Þetta kemur fram í Los Angeles
Time dagblaðinu í gær.
Heiti sjóðsins mætti þýöa sem
„Ljósglætu" en hún skín ekki
skært ef tekið er tillit til fjármála-
óreiðunnar. Samkvæmt dagblað-
inu fékk sjóðurinn um 26.6 millj-
ónir frá hinu opinbera á síðasta
ári en sjóðurinn gerir greinilega
ekki annað en að éta upp sjálfan
sig. George Bush var það mikið
kappsmál að stofna sjóðinn án
þess að skýrt yrði staðiö að fram-
haldinu. L.A Times segir þetta
dæmigerða „kostnaðarsama ein-
hliöa Washington aðgerð". ■
Dýrkeyptur
laumufarþegi
Stokkhólmi - Reuter
Bandarísk mús var í sviðsljósinu í
fyrradag eftir að hafa notið fyrstu
flugferöar sinnar í farþegarflugi
Boeing 757 með flugfélaginu SAS.
Tilraunir til að losa sig vin hinn
óboðna gest reyndust árangurs-
lausar og varð af þeim sökum að
breyta flugáætlun.
Samkvæmt talsmanni SAS
fannst laumufarþeginn í miðju
áætlunarflugi félagsins frá New
York til Stokkhólms. Eftir lend-
ingu reyndu starfsmenn á jörðu
niðri að lokka músina með osti og
öðru dýrindi í gildrur sínar en allt
kom fyrir ekki. Því var afráðiö að
vélin færi ekki aftur til Bandaríkj-
anna, þótt fullbókuð væri, heldur
var henni flogið farþegalausri til
viðgerðaskýlis félagsins í Kaup-
mannahöfn. Litla músin reyndist
flugfélaginu því dýrkeypt, enda
veltir lítil þúfa stundum þungu
hlassi. Engum sögum fer af örlög-
um músarinnar eftir komuna til
Kaupmannahafnar.
Kjarnorkumálastofnun SÞ:
Ekkert bend-
ir til kjama-
vopna írana
Vín - Reuter
Kjarnorkumálastofnun Sam-
einuðu þjóðanna sagði í gær að
samkvæmt athugunum þeirra í
íran hefði landið ekki yfir
kjarnavopnum að ráða og ekk-
ert benti til aö það yröi á næst-
unni. Bæði bandarískir og ísra-
elskir forráöamenn skýrðu á
mánudag frá ótta sínum um að
aðeins 7-15 ár myndu iíða uns
íranir yrðu vígbúnir kjarna-
vopnum.
David Kyd, talsmaður stofn-
unarinnar, segir að þeir telji að
ekkert sé að óttast. „Við höfum
ekki fundið neitt sem bendir til
þess," segir Kyd. ■
samkvæmt blóðprufum úr
vændiskonum, hermönnum,
lögreglumönnum og jarðyrkj-
endum að sögn Eng Sophir-
um, læknis sem kannað hefur
í samráði við Skrifstofu Sam-
taka gegn alnæmi hiö ugg-
vænlega ástand á þessum slóð-
um.
Fyrst varð vart við alnæmi í
Kambódíu árið 1991. íbúar í
Banteay Meanchey eru um
300.000 talsins og hafa tæp
tvö prósent blóðgjafa við
Monkul Borei spítalann
greinst með HlV-veiruna.
Kambódísk yfirvöld telja að
um 3000-5000 manns séu
með veiruna í landinu en er-
lendar læknarannsóknir sýna
að raunverulegur fjöldi sé allt
að tíu sinnum hærri. ■
Oskaö
eftir friöi
Jóharmes Páll II páfi ræölr viö
Samuel Hadras, fyrsta rϚis-
mann ísraels, sem heimsœkir
Vatíkaniö. Páfi lofaöi friöarum-
leitanir araba og Israelsmanna
sem nú standa yfir og hvatti
leiötoga ríkja Miöausturlanda
til aö halda áfram á sömu
braUt. Reuter
MALÞING
um menningarmál
í Reykjavík
Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, boðar til
tveggja mólþinga um menningarmól og stefnu borgaryfirvalda í
þeim efnum.
Fyrra mólþingið fjallar um hagsmuni og aðstöðu listamanna í
borginni og hið síðara um list- og menningarmiðlun í Reykjavík.
Fyrra mólþingið, Listsköpun í Reykjavík - stefna og stjórnkerfi,
verður haldið í Róðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 14. janúar
1995. Mólþingið er öllum opið.
Dagskrá:
10.00 Skráning þátttakenda.
10.15 Setning málþings, ávarp
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra.
10.30 Guðrún Jónsdóttir, formaður menningarmálanefndar:
Lisfsköpun í Reykjavík -
stefna og sfjórnkerfi borgarinnar.
Umrœður og fyrirspurnir.
Matarhlé.
Hagsmunir og aðstaða til listsköpunar í Reykjavík - viðhorf lisfamanna:
Myndlisf: Þorvaldur Þorsteinsson.
Tónlist: Petur Jónasson.
Leiklist: Kolbrún Halldórsdóttir.
Kvikmyndir: Ásdís Thoroddsen.
Arkitektúr: Sigurður Harðarson.
Bókmenntir: Ólafur Haukur Símonarson.
Listdans: Auður Bjarnadóttir.
Kaffihlé
15.30 Almennar umrœður og fyrirspurnir.
16.30 Fundarstjóri gerir grein fyrir helstu niðurstöðum málþingsins.
16.50 Málþinginu slitið.
Fundarstjóri: Halldór Guðmundsson.
Vinsamlega tilkynnið upplýsingaþjónustu
Ráðhússins þótttöku í síma 632005.
Þátttökugjald til greiðslu á hádegisverði
og kaffi er kr. 1000.
Dagskrá seinna málþingsins, sem haldið
verður í Ráðhúsinu laugardaginn
18. febrúar, verður auglýst síðar.
Skrifstofa borgarsfjóra