Tíminn - 20.01.1995, Qupperneq 1

Tíminn - 20.01.1995, Qupperneq 1
STOFNAÐUR 1917 79. árgangur Föstudagur 20. janúar 1995 14. tölublað 1995 Börnin skynja líka sorgina Eins og önnur börn í þessu landi hafa börnin í leikskólanum Hjalla í Hafnarfirbi tekib þátt í sorginni sem hefur gagntekib alla landsmenn undanfarna daga vegna atburöanna í Súba- vík. En hvaða augum líta börnin slíkar hörmungar? Hrund Guð- mundsdóttir sem starfar á Hjalla sagði um þetta í samtali við Tím- ann: „Strax og fregnin barst á mánu- dagsmorgun safnaði ég hópnum mínum saman og sagði frá því sem gerst hafði. Líka að á staðnum væri fullt af björgunarfólki sem væri aö reyna að hjálpa fólkinu og nú skyldum vib reyna ab gera það sem við gætum. Og svo héldumst við í hendur, lokuðum augunum og sendum allar góðu hugsanirnar okkar vestur til þeirra sem þarna voru í neyð." Hrund sagði ab í framhaldi af þessari stund hefðu börnin látib í ljós margvíslegar tilfinningar. Nokkuö hefði borið á því að sum þeirra væru hrædd og þá heföi til- hneigingin verið sú að fullvissa sig um ab húsin sem við sjálf ættum heima í væru svo sterk að ekkert snjóflóð ynni á þeim. Hrund sagði þó ab þörfin fyrir að skapa sér ör- yggiskennd væri misjafnlega mikil hjá börnunum. „Viö sögðum þeim líka frá litlu börnunum sem dóu í snjóflóðinu og líka að ein mamman væri búin að missa öll börnin sín, þau væru öll dáin. Þá sagði einn drengjanna aö þá yrði hún að eignast ný börn, en um leið var því bætt við að þab yrðu ekki sömu börnin," sagði Hrund Guömundsdóttir. Biskupinn yfir íslandi hefur farið þess á leit ab prestar sinni sérstak- lega börnum, bæði í skólum og á dagheimilum. Ragnheiður Sverris- dóttir í Fræðslu- og þjónustudeild kirkjunnar sagöi að prestar hefðu veriö í sambandi við Biskupsstofu vegna þessara tilmæla biskupsins, þannig að ljóst væri að þeir væru að sinna sálgæslu, sérstaklega vegna atburðanna í Suðavík. A fundi sem fræðslustjórinn í Reykjavík hélt með skólastjórum grunnskólanna í gær bar á góma hve mikilvægt væri að ræða afleið- ingar snjóflóöanna undanfarna daga við börnin og kom fram ab margir kennarar hefðu þegar rætt þessi mál við nemendur sína. ■ Snjóflóö taka enn sinn toll: Maður lést á Reykhólum Aldrabur mabur lést í snjóflóbi sem féll á útihús vib bæinn Grund skammt frá Reykhól- um í fyrrakvöld, en sonur mannsins sem einnig lenti í flóbinu komst lífs af. Björgun- arsveitarmenn frá Reykhólum leitubu í alla fyrrinótt í aftaka- vebri og fundu mennina tvo í morgunsárib. Um 30 björgunarsveitarmenn frá Reykhólum hófu strax leit vib mjög erfibar aðstæbur, en mjög hvasst var á stabnum og mikill skafrenningur. Svo hvasst var á köflum ab leitarmenn urðu ab leggjast nibur í snjóinn til ab hreinlega fjúka ekki í burtu í verstu vindhviðunum. Þab var síðan klukkan 7.30 í gærmorgun sem björgunarsveitarmenn fundu mennina tvo og var eldri maburinn þá meb lífsmarki, en sonur hans betur á sig kominn. Þyrla Landhelgisgæslunnar -var kvödd til og fór hún frá Reykjavík kl. 9.40 og lenti á Reykhólum um kl. 11.00, en læknir var meb í förinni. Þyrlan tók yngri manninn og flutti hann á slysadeild Borgarspítal- ans í Reykjavík, en faðir hans var þá látinn og var hann fluttur burt meb flóabátnum Baldri til Stykkishólms. Um borð í flóabátnum var einnig snjóbíll og björgunar- sveitarmenn sem voru á leið í Gufudalssveit, þar sem íbúar hafa verib sambands- og vista- lausir í nokkra daga. í gærkvöldi voru þeir enn á leið í Gufudal- inn og sóttist þeim ferbin seint, enda snjóbíllinn ekki meb snjó- tönn. ■ Fóstrurnar Sóley og Hrund ásamt hópnum sínum á Hjalla. „ Héldumst í hendur meö lokuö augu og sendum allar góöu hugsanirnar vestur," TimamYnd cs segir Hrund. Bondadagur €r l dag,ensvonefnistfyrstidagurþorra. Til þess er œtlast aö konur séu venju fremur góöar viö bœndur sína í dag og mun þaö raunar vera nokkuö útbreiddur siöur. En ídag hefst líka ver- tíÖ þorrablótanna, þar sem þorramatur er í öndvegi. Hér má sjá þá Þór- arin Guömundsson og Guöjón Haröarson íMúlakaffi í Reykjavík hampa tveimur girnilegum þorrabökkum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri þegar fjárhagsáœtlun Reykjavíkurborgar var lögö fram í gœr: „Skepnan hefur snúist gegn skapara sínum" „Gobsögnin um hina styrku fjármálastjórn rann líka sitt skeib á enda þegar blákaidur veruleikinn um vibskilnab Sjálfstæbisflokksins í Reykja- vík þrengdi sér fram í dagsljós- ib. Vib tökum bara Ián, var lausnarorb sjálfstæbismanna og skuldir borgarinnar jukust úr 4,5 milljörbum króna í árs- lok 1990 í 12,4 milljarba í árs- lok 1994," sagbi Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri mebal annars í ræbu sinni í borgarstjórn í gær þegar hún lagbi fram og skýrbi fyrstu fjárhagsáætlun nýs meirihluta borgarstjórnar í Reykjavík. „Skepnan hefur snúist gegn skapara sínum," sagði Ingibjörg Sólrún eftir ab hafa farib yfir helstu þætti fjárhagsáætlunar- innar. Hún sagbi ab þvert á hrakspár minnihluta sjálfstæðis- manna hefði fjárhagsáætlunin veriö unnin í mikilli sátt og sam- lyndi í borgarstjórnarflokki fé- lagshyggjuaflanna í Reykjavík. Bobskapur sjálfstæðismanna um' sundurlyndi þeirra afla hefbi nú snúist upp í andhverfu sína og skepnan snúist gegn skapara sínum. Sundurlyndiö væri mest meðal sjálfstæðismanna sjálfra. Reykjavíkurborg er stórt „fyr- irtæki" eins og sjá má af því að á tekjuhlið rekstrarreiknings er reiknab meb rúmlega 10 millj- arða innkomu. Reiknað er með ab rekstrargjöld ársins endi í 10.630 milljónum og fari þann- ig 524 milljónir fram úr fjárveit- ingum ab viðbótarfjárveitingum mebtöldum. „Hinn nýi meirihluti er sam- hentur og pólitískt ábyrgur. Hinn nýi meirihluti hefur beitt sér fyrir siðbót á borbi en ekki bara í orði. Hinn nýi meirihluti hefur bjartsýnan framkvæmda- vilja og ætlar aö gera þab sem í hans valdi stendur til að gera Reykjavík aö betri borg til að búa í," sagbi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í lok ræbu sinnar í gær. Nánar verður sagt frá fjár- hagsáætlun Reykjavíkurborgar í blaðinu á næstu dögum. ■

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.