Tíminn - 04.03.1995, Side 10
10
Laugardagur 4. mars 1995
Stríb Perús og
Ekvadors um
umdeilt frum-
skógasvœöi
ógnar stööug-
leika í ríkjum
þessum og eyk-
ur vandrϚi
Rómönsku Am-
er'iku út af
gjaldeyris-
kreppunni í
Mexíkó
Herir rómanskamerískra
ríkja hafa yfirleitt frem-
ur verið þungvopnað
lögreglulið en herir í t.d. evr-
ópskum skilningi orðsins og
hlutverk þeirra eftir því verið
fremur að bæla niður upp-
reisnir innanlands og halda
landsfólki „hæfilega" hræddu
við stjórnvöld en að berjast
við heri annarra ríkja. Er það í
samræmi við það, að í Róm-
önsku Ameríku hefur yfirleitt
verið meira um átök milli að-
ila innan ríkja en milliríkja-
átök. Stríð milli ríkja eru þó
síður en svo óþekkt í sögu
heimshlutans og nú er eitt
slíkt hafið á milli Suður-Amer-
íkuríkjanna Perú og Ekvadors.
Ríki þessi tvö eru áþekk um
margt, skiptast eftir landslagi í
strandlengju, fjallahéruð þar
inn af og frumskóga í austur-
hlíöum fjallanna og austur af
þeim. íbúar beggja eru fyrst og
fremst indíánar og kynblend-
ingar þeirra og hvítra manna,
sem flestir eru af spænskum
ættum. Spænska er opinbert
mál í báðum löndum og
menning af spænskum upp-
mna ríkjandi, þar á meðal kaþ-
ólska.
Stríb 1941
Rótanna að stríði þessu er að
leita til upphafs landanna sem
sjálfstæöra ríkja á fyrri hluta
19. aldar. Þeim tókst þá ekki
aö ná samkomulagi um hvern-
ig skipt skyldi á milli þeirra
fmmskógasvæðinu austur af
fjalllendi Ekvadors. Ekvador
(landið er kennt við miðbaug-
inn, sem liggur um það) hélt
svæði þessu lengi vel, en erjur
um það héldu áfram og 1941
kom til stríbs út af því milli
ríkjanna tveggja. Fréttir af því
stríði hurfu á bak við annað
stríð, sem þá geisabi í heimin-
um, en Bandaríkin, sem fyrir
hvern mun vildu halda Subur-
Ameríku rólegri undir þeim
kringumstæðum, knúbu
stríbsaöila til friðar með að-
stoð þriggja myndarlegustu
ríkja heimshlutans, Brasilíu,
Argentínu og Chile. Perú,
stærra og sterkara en Ekvador,
hafði haft bemr í stríðinu og
fannst málamiðlumnum
þægilegast að láta fyrrnefnda
ríkið hafa þab fram sem þaö
vildi, þar eb að öðmm kosti
hefði þurft ab senda her til
Perúanskur hermabur og alþýba: herforingjar kvíba minnkandi fjárveitingum til hersins.
Stríð í frumskógi
ilum hafa brugðist við hart til
að reyna ab stilla til friðar.
Ætla mætti að þau hefðu
sæmilegar vonir um það, því
að hvorki Ekvador né Perú
hafa efni á stríði. Ríkin hafa
bæði verið heldur á uppleið í
efnahagsmálum undanfarið,
en þab gæti snúist vib af völd-
um stríöskostnaðar. Þar að
auki sjást þess þegar merki að
stríð fæli frá löndunum túrista
(sem eru farnir að verða Perú
talsverb gjaldeyrislind) og er-
lenda fjárfesta. Þeir síðar-
nefndu hafa þegar ærnar
áhyggjur af gjaldeyriskrepp-
unni í Mexíkó og eru gjarnir á
ab setja alla Rómönsku Amer-
íku undir einn hatt. Með hlið-
sjón af því er Ameríkuríkjum
yfirleitt kappsmál að illdeilu
þessari ljúki sem fyrst. Að öðr-
um kosti er talið að hún gæti
haft alvarlegar afleiðingar ekki
einungis fyrir efnahag deiluað-
ila, heldur og Rómönsku Am-
eríku allrar. Enn er þess að geta
að hætt er við að ólga af völd-
um ófriðarins leiði til minnk-
andi stöðugleika yfirleitt í
stríöslöndunum, þar á meðal
valdarána og uppreisna sem
aldrei eru langt undir yfirborð-
inu þar.
Hinsvegar gæti orðið erfitt
um vik ab stilla til friðar, vegna
stríösæsinganna sem hiaupnar
eru í báða aðila. Þar ab auki eru
á kreiki sögusagnir um að á
hinu umdeilda frumskóga-
svæði, þar sem fátt manna býr,
sé í jörbu mikill auður í gulli,
úrani og olíu. Um það er þó
fátt vitað með vissu, því ab
svæðib er lítt kannað.
Varla þarf ab taka fram að
hvor aðilinn um sig kennir
hinum um upptök stríðsins.
Ekki er laust við að heimsfjöl-
miðlar fjalli um þab eins og
einskonar „óperettustríð", en
líklega er það ekki eintómt
grín fyrir hermennina, sem elt-
ast hver við annan og reyna að
drepa hver annan í frumskóg-
inum, þar sem mönnum óvön-
um þeim gróðri er villugjarnt.
Af þeim hafa þegar fallið ein-
hverjir tugir. ■
Perúanskir hermenn á landamœrunum umdeildu: þeir eru sterkari abilinn í stríbinu.
hjálpar Ekvadorum.
Var því með samningi, gerð-
um í Rio de Janeiro 29. janúar
1942, ákvebið að Perú fengi
allt hið umdeilda svæði, eba
næstum helming Ekvadors.
Ekvadorar sættu sig aldrei við
þá útkomu og lýstu samning-
inn ógildan 1960. Síðan hefur
verib árvisst að hitnab hafi í
kolunum milli ríkjanna kring-
um 29. jan. og þá gjarnan ver-
ið skipst á skotum á landa-
mærum, en ekki soðib veru-
lega upp úr fyrr en nú.
Ekvadorar munu ekki form-
lega krefjast alls þess svæbis, er
þeir misstu 1941-42, heldur
heitir þaö svo að deilt sé að-
eins um fremur lítið svæði á
landamærunum. Þegar ný
landamæri voru dregin upp
milli ríkjanna eftir Rio-samn-
ing 1942, tókst ríkjunum aldr-
ei ab ná samkomulagi um
hvar landamærin ættu að
liggja á svæði þessu.
BAKSVIÐ
DAGUR ÞORLEÍFSSON
Herforingjar undir
grun
Mikill vígamóður og föbur-
landsást hefur hlaupið í báða
aðila út af viðureign þessari.
Menn í bábum löndum flykkj-
ast undir fánana sem sjálf-
boðaliöar, í perúönskum blöð-
um em Ekvadorar sjaldan kall-
aðir annað en apar og Perú-
menn hænsn í ekvadorskum.
Perúmenn þykja sigurvæn-
legri. Þeir eru miklu fjölmenn-
ari en Ekvadorar, í her þeirra
síbarnefndu em tæplega
60.000 manns og hann kvað
vera illa búinn og þjálfunin ab
því skapi. Her Perú er helm-
ingi fjölmennari og stríðs-
reyndur nokkub eftir hálfs
annars áramgs borgarastríð
við maóistahreyfinguna Skín-
andi stíg og fleiri vinstriskæru-
liba.
Líklegar ástæöur til ab stríð
braust út á landamærum þess-
um einmitt nú em einna helst
taldar að herir beggja telji sér
nauðsyn að gera sig mikilvæg-
ari í augum landsfólks og ekki
síst stjórnmálamanna. Vinstri-
skæruliðar í Perú eru nú að
sögn fjölmiðla því sem næst
sigraðir og óttast herforingjar
þar að af því muni leiða að
stjórnvöld dragi úr fjárveiting-
um til hersins. Sixto Dúran-
Ballén, forseti Ekvadors, hafbi
boðað niðurskurð fjárveitinga
til síns hers, herforingjum þar
til lítils fagnabar.
Túristar og
fjárfestar flýja
Ríkin, sem stóðu að Rio-
samningnum, ásamt stríðsaö-