Tíminn - 01.06.1995, Side 11
Fimmtudagur 1. júní 1995
11
/
I tilefni sjómannaverkfalls
í íslenskri orðabók Menningar-
sjóðs má sjá að ríki sé „tiltekið
byggt landsvæði með föstu
stjórnskipulagi". Þessi skýring er
rétt, svo langt sem hún nær.
Helstu annmarkar hennar eru
þeir, að með því aö skilgreina ríki
sem tiltekið landsvæði er fyrir-
bærið hlutkennt um of. Því þegar
til lengdar lætur, fær ekkert ríki
staðist nema um það ríki sæmileg
sátt þegnanna. Ríki er m.ö.o. að
vissu leyti hugtak eða ástand.
Til þess að ríki geti dafnað, þarf
að ríkja sátt meðal þegnanna um
ákveðin grundvallaratriði. Sé um
lýðræðisríki að ræða, viðurkenna
flestir að staða þeirra, sem eiga at-
vinnutæki, sé sterkari stöðu
hinna sem hjá þeim starfa. Flestir
eru þeirrar skoðunar, að jafna
beri þessi styrkleikahlutföll svo
sem kostur er. Öflugasta tækið til
þeirrar jöfnunar er verkfallsrétt-
urinn. Hann er því einn af mátt-
arstólpum borgaralegs lýðræðis.
Flestir vestrænir atvinnurek-
endur, þ.e.a.s. kapítalistar, viður-
kenna verkfallsréttinn, sé honum
ekki beitt í annarlegum tilgangi,
að þeirra mati. Því hvað sem um
kapítalismann
má segja, þá er
hann horn-
steinn borgara-
legs lýðræðis og
verkfallsréttur
telst til lýðræðis-
legra mannrétt-
inda. Þeir at-
vinnurekendur á
Vesturlöndum,
sem ekki viður-
kenna verkfallsréttinn í reynd,
hafa því stígið út fyrir mörk borg-
aralegra samskiptahátta. Þeir hafa
m.ö.o. tileinkað sér það sem á
mannamáli kallast fasismi.
í ár er þess minnst með fögnuði
um heimsbyggð alla, að hálf öld
er liðin frá því grófustu fasista-
böðlum mannkynssögunar var
steypt af stóli í lok síðari heims-
styrjaldar. Þó er vofa fasismans
enn víða á kreiki. Hún byltir sér á
Balkanskaga og kraumar í Okla-
hóma, svo dæmi séu tekin af
handahófi. Og svo undarlega
sem það nú kann að hljóma, þá
hefur hún einnig gert vart vib sig
á jafn friðsælum stab og Akur-
eyri, noröur undir pól, og jafnvel
SPJALL
PJETUR
HAFSTEIN
LÁRUSSON
víbar á landinu.
Hér á ég vitan-
lega við þær ráð-
stafanir fárra út-
gerðarmanna í
yfirstandandi
sjómannaverk-
falli, aö leigja
togara sína út
fyrir verkfalls-
svæðið, m.a. til
útlanda. Búum
okkur til einfalda hliðstæðu.
Hvað skyldi fólk hafa sagt í kenn-
araverkfallinu, ef menntamála-
rábherra hefði leigt einkaskólum
húsnæði ríkisskóla, til ab tryggja
áframhaldandi nýtingu atvinnu-
tækja, þ.e. skólahúsnæðis og þess
búnaðar sem þar er ab finna?
Svari hver fyrir sig.
Auðvitað er ég ekki ab líkja
þeim útgerbarmönnum, sem í
sjómannaverkfallinu hafa álpast
til að stíga út fyrir mörk borgara-
legs lýðræðis, við böbla Hitlers.
Slíkt væri fásinna, enda eru þetta
sjálfsagt vænstu menn inn vib
beinið. En athafnir þeirra bera
þess eigi ab síður vott, að þeir
setja samasemmerki milli styrk-
leika og réttar. Þeir afsaka gerðir
sínar með því, að þeir séu að
forða fyrirtækjum sínum frá
greiðsluerfibleikum og jafnvel
gjaldþroti. Til þess að geta „lifað"
þurfi þeir meb öðrum orðum lífs-
rými umfram þab sem megin-
þorra fólks finnst að þeim beri.
Og þessa lífsrýmis hyggjast þeir
afla á kostnað þeirra, sem minna
mega sín. Sögufróðir lesendur
átta sig væntanlega á því við
hvað er átt.
{ hópi atvinnurekenda hafa
engir barist jafn hatrammlega
gegn aöild íslands að Evrópu-
bandalaginu eins og einmitt út-
gerbarmenn. Þeir tala jafnvel um
að við munum glata frelsi okkar,
ef Evrópubandalagsríkin fái aö
nýta fiskimið okkar í einhverjum
mæli. Væntanlega þýðir þaö að
íslenska ríkið færi fjandans til.
Má vera að rétt sé. En meb leyfi
að spyrja: Hvert er frelsi þess
manns, sem ekki fær notið
grundvallarmannréttinda, t.d. af
þeirri ástæðu einni að hann sé
sjómaöur á dekki en ekki útgerð-
armaöur á kontór?
William Z. Foster
The Life of William Z. Foster, eftir Ed-
ward P. johanningsmeier. Princeton Uni-
versity Press, 433 bls., S 29,95'
Höfundur bókar þessarar er
prófessor í sagnfræði við Há-
skólann í Delaware, en í ritdómi
um hana í New York Times Book
Review 12. júní 1994 sagði:
„Foster var fæddur 1881 af kaþ-
ólskum trskum foreldrum, og
hóf 10 ára gamall að vinna full-
an vinnudag. Með götuflokki
unglinga, sem kaliaður var
„Bolabítar", reisti hann götuvígi
í fæðingarborg sinni, Philadel-
phia, tii stubnings flutninga-
verkamönnum í verkfalli. Af
þeim fyrstu kynnum sínum af
stéttabaráttu fékk hann trú á
mátt verkalýösfélaga, þegar þau
væru fjölmenn og vel skipu-
lögð."
„Foster hóf árið 1900 ab ferb-
ast með járnbrautarlestum, að
taka sér vinnu um skeið og að
herða hug verkamanna, illa
haldinna og illa launaðra, hvar
sem hann kom. Hann var fædd-
ur skipuleggjandi og snjall höf-
undur áróöursbæklinga. Og
innan American Federation of
Labour varð hann brátt helsti
málsvari syndikalisma — þeirrar
byltingarkenndu kenningar, að
öflug verkalýðsfélög myndi í
sjálfu sér kjarna ab nýju þjóðfé-
lagi. Hann hafði 1919 forystu
fyrir allsherjarverkfalli 350.000
stáliðnaðarmanna. Það var
mesta verkfall fram til þess tíma
í Bandaríkjunum. Það var eftir
að þab verkfall mistókst, ab
hann gekk til liðs við Kommún-
istaflokkinn."
„Foster haföi ávallt haldiö því
fram, að einungis „baráttufús
minnihluti" hinna virku gæti
talið þorrann af hinum vansæla
fjölda á að hrista af sér slenið.
Og eftir sigur bolsévíka í Rúss-
landi, sem í hávegum höföu
hreysti og aga, gat hann alið
með sér von um fall hinnar kap-
ítalísku samfélagsskipanar, en
alla þætti hennar fyrirleit hann,
föðurlandshyggju sem aðra."
„Foster hitti 1912 Esther Abr-
amowitz, sem síðar varð eigin-
kona hans, í sambýli stjórnleys-
ingja við Puget Sound, þar sem
Fréttir af bókum
hún átti í „frjálsum astum". í
æsku hafbi hann hafnað hinni
kaþólsku trú móður sinnar, en
nokkru áður en hann lést, sendi
hann eftir presti. Aö lífsháttum
var hann alla tíð guðlaus far-
andmunkur. Hann gekk alltaf í
fötum keyptum á fornsölu ... og
fjölskylda hans gætti þess, að
meö höndum heföi hann ekki
peninga, því að hann var vís til
að gefa þá."
„Johanningsmeier hefur viðaö
að sér skjölum úr skjalasafni sov-
éska kommúnistaflokksins. Síöu
eftir síðu rekur hann átök um
stefnumörkun í verkalýðshreyf-
ingunni, Kommúnistaflokki
Bandaríkjanna og Alþjóbasam-
bandi kommúnista." ■
DAGBÓK
Fimmtudaqur
1
• /
jum
152. daqur ársins - 213 daqar eftir.
22. vika
Sóiris kl. 3.24
sólarlag kl. 23.29
Dagurinn lengist
um 4 mínútur
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Brids, tvímenningur, í Risinu
kl. 13 í dag.
Subway faerir út kvíarn-
ar á íslandi
Stjarnan hf., einkaleyfishafi
Subway á íslandi, opnar nýjan
Subway- veitingastað í Austur-
stræti 3, í dag, fimmtudag.
Stjarnan hf. opnaði fyrsta Sub-
way staöinn á íslandi að Suður-
landsbraut 46 í september síð-
astliðnum. Nýi Subway-stabur-
inn er á tveimur hæöum með
sætum fyrir 36 gesti. Á þriðju
hæð verða skrifstofur Stjörn-
unnar hf. Mikið verður um ab
vera í tilefni opnunarinnar. Á
Ingólfstorgi verða tónleikar frá
kl. 16 til 18, þar sem fram koma
hljómsveitirnar Sálin hans Jóns
míns, GCD og Kirsuber. EM-
MESS- ÍS hf. mun verða með
glaðning fyrir börnin og 200
fyrstu gestirnir á Subway fá frí-
miða á frumsýningu myndar-
innar „Little Big League" í Regn-
boganum.
Það er von forsvarsmanna
Subway, aö nýi veitingastaður-
inn verði lyftistöng fyrir veit-
ingastaðaflóruna í miöbænum
og kærkomin viðbót fyrir þá
sem kjósa ferskan og hollan
skyndibita.
Helgarskákmót í Taflfé-
lagi Reykjavíkur
Taflfélag Reykjavíkur gengst
fyrir helgarskákmóti frá
fimmtudegi til mánudags (hefst
í dag). Tefldar verba sjö umferð-
ir eftir Monrad- kerfi. Fyrstu
tvær umferðirnar verða með 30
mín. umhugsunartíma, en
fimm síðari með 1 1/2 klst. á 30
leiki og síðan 30 mín. til viðbót-
ar til að ljúka skákinni.
Umferðataflan verður þannig:
1.-2. umferð fimmtudag kl.
20-22; 3. umferð föstudag kl.
19.30-23.30; 4. umferð laugar-
dag kl. 10-14; 5. umferð iaugar-
dag kl. 17-21; 6. umferð sunnu-
dag kl. 14-18; 7. umferð mánu-
dag kl. 14-18.
Verðlaun: 1. Kr. 20.000. 2. Kr.
12.000. 3. Kr. 8.000.
Verðlaun verða hækkuð, ef
þátttaka verður góð.
Öllum er heimil þátttaka í
helgarskákmótinu og fer mótið
fram í félagsheimilinu aö Faxa-
feni 12.
Sumarsýning Nýlista-
safnsins
Laugardaginn 3. júní kl. 16
verður sumarsýning Nýlista-
safnsins 1995 opnuð. Sýningin
ber yfirskriftina „New York —
Nýló / 10 eyjaskeggjar í Amer-
íku". Eftirfarandi myndlistar-
menn taka þátt í sýningunni:
Ana Rosa Rivera Marrero,
Annex Burgos, Arnaldo Mora-
les, Carmen Olmo, Charles Ju-
hasz-Alvarado, Hrafnliildur
Arnardóttir, Ingibjörg Jóhanns-
dóttir, Kristín Hauksdóttir,
Magnús Sigurðarson og Stefán
Jónsson.
Sýningin er samsýning 5 ís-
lenskra myndlistarmanna og 5
myndlistarmanna frá Puerto
Rico, en þau eiga þaö sameigin-
legt að vera öll búsett í New
York. Sýningin er sjálfstætt
framhald sýningar, sem haldin
var í Puerto Rico 1994. Form og
efnistök eru margbreytt, en
myndlistarmennirnir vinna
með innsetningar, skúlptúra og
málverk.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 14-18 og lýkur henni sunnu-
daginn 25. júní. Nýlistasafniö er
til húsa við Vatnsstíg 3b í
Reykjavík.
50 ára afmæli
Guðmundur Guðmundsson,
sveitarstjóri á Hvammstanga,
verður 50 ára n.k. laugardag, 3.
júní. Eiginkona hans er Guðrún
Þ. Jónsdóttir. Þau taka á móti
gestum á heimili sínu að Mela-
vegi 18, Hvammstanga, á af-
mælisdaginn kl. 15-19.
APÓTEK
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apöteka (
Reykjavfk Irá 26. mal tll 1. júnl er I Brelðholts
apótekl og Apótekl Austurbæjar. Það apótek sem
fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að
kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl vlrka daga en kl. 22.00 á
sunnudögum. Upplýslngar um læknls- og lyfjaþjón-
ustu eru gefnar I sfma 18888.
Neyðs vaktTannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátiðum. Símsvari 681041.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apótek og Noróurbæjar apó-
tek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis
annan hvern laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl.
10.00-12.00. Upplýsingar í símsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek eru opin
virka daga á opnunartíma búda. Apótekin skiptast á sina
vikuna hvort aó sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á
kvöldin er opið í því apóteki sem sér um þessa vörslu, til kl.
19.00. Á helgidögum er opió frá kl. 11.00- 12.00 og 20.0'’-
21.00. Á öórum timum er lyfjafræðingur á bakvakt. Upptýs-
ingar eru gefnar í sima 2' 445.
Apótek Keflavlkur: Opfó virka daga frá kl. 9.00-19.00.
Laugard., helgidaga og almenna frídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opió virka daga frá kl. 8.00-
18.00. Lokaó i hádeginu miHi kl. 12.30-14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Opió er á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opð virka daga til kl. 18.30.
Á laugard. kl. 10.00-13.00 og sunnud. kl. 13.00-14.C .
Garðabær: Apótekk) er opið rúmhelga daga kl. 9.00-
18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
ALMANNATRYGGINGAR
1.júní1995
Mánabargrei&slur
Elli/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 12.921
1 /2 hjónalífeyrir 11.629
Full tekjutrygging ellilífeyrisþega 23.773
Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega 24.439
Heimilisuppbót 8.081
Sérstök heimilisuppbót 5.559
Barnalífeyrirv/1 barns 10.794
Meðlag v/1 barns 10.794
Mæbralaun/febralaun v/1 barns 1.048
Mæðralaun/febralaun v/ 2ja barna 5.240
Mæbralaun/febralaun v/ 3ja barna eba fleiri 11.318
Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaba 16.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaba 12.139
Fullur ekkjulífeyrir 12.921
Dánarbætur í 8 ár (v/ slysa) 16.190
Fasbingarstyrkur 26.294
Vasapeningar vistmanna 10.658
Vasapeningar v/ sjúkratrygginga 10.658
Daggreibslur
Fullir fæbingardagpeningar 1.102,00
Sjúkradagpeningar einstaklings 552,00
Sjúkradagp. fyrir hvert barn á framfæri 150,00
Slysadagpeningar einstaklings 698,00
Slysadagpeningar fyrir hvert barn á framfæri 150,00
GENGISSKRÁNING
31.maí 1995 kl. 10,57
Opinb. viðm.geng! Ge I
Kaup Sala skr.fundar
Bandaríkjadollar 62,91 63,09 6C,00
Sterlingspund ....100,99 101,25 101,12
Kanadadollar 45,85 46,03 45,94
Dönsk króna ....11,596 11,634 11,615
Norsk króna ....10,182 10,216 10,199
Sænsk króna 8,676 8,706 8,691
Finnskt mark ....14,692 14,742 14,717
Franskur franki ....12,868 12,912 12,890
Belgfskur franki ....2,2072 2,2148 2,2110
Svissneskur frankl. 54,96 55,14 55,05
Hollenskt gyllini 40,48 40,62 40,55
Þýskt mark 45,34 45,46 45,40
ítölsk líra ..0,03881 0,03898 0,03889
Austurrfskur sch ....1.6,445 6,469 6,457
Portúg. escudo ....0,4295 0,4313 0,4304
Spánskur peseti ....0,5205 0,6227 0,5216
Japanskt yen ....0,7597 0,7621 0,7609
írskt pund ....103,51 103,93 103,72
Sérst. dráttarr 99,12 99,52 99,32
ECU-Evrópumynt.... 83,67 83,95 83,81
Grfsk drakma ....0,2798 0,2808 0,2803
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í
KRINGUM LANDIÐ
MÍUNIÐ ÓDÝRU
HELGARPAKKANA
OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar