Tíminn - 24.06.1995, Page 12
12
Vráfttm
Laugardagur 24. júní 1995
með jarðarberjum og
lrðarberjum og musli
Fyrsti bíHinn, sem afgreiddur var á nýju Skeljungsstöbinni, var afgerbinni Chevrolet Bel Air árgerb 1957. Á
myndinni erstarfsfólk Skaganestis, þau Bjarni Þór Sigurbsson, Cubrún Ingimarsdóttir og Harpa Hannesdóttir.
Akranes:
Skeljungur opnar þjónustustöð
Olíufélagib Skeljungur tók á
föstudag í notkun þjónustustöb
viö Skagabraut á Akranesi, en
þar hefur félagið starfrækt
bensínstöb um árabil.
Hin nýja þjónustustöð, sem
heitir Skaganesti, er 220 fer-
metrar að flatarmáli og þar
verður veitt öil sú þjónusta
sem bíleigendur þurfa að fá.
Einnig fást í Skaganesti grill-
vörur, matvæli, blöð og leik-
föng, svo eitthvað sé nefnt.
Sjóöstjórn Samhugar í verki sendir frá sér greinargerö:
73 millj. kr. veitt til bygg-
inga á Eyrardalssvæbi
Stjórn Samhugar í verki hefur
ákvebið ab verja 73 milljóna kr.
eftirstöbvum söfnunarfjár til
íbúbabygginga á nýju bygging-
arsvæbi Súbavíkurkauptúns á
svonefndu Eyrardalssvæbi.
Verba þessir styrkir inntir af
hendi í upphafi framkvæmda
og eru óhábir stærb fyrirhug-
abra fasteigna. Upphæbir verba
ákvebnar þegar fyrir liggur hve
margir hyggjast hefja fram-
kvæmdir. Þetta kemur fram í
greinargerb sem sjóbstjórnin
hefur sent frá sér.
í greinargerðinni segir að alls
hafi safnast 290 milljónir króna
undir merkjum Samhugar í verki.
Nú þegar hafi 189 millj. kr. verib
Hátt í sjö hundrub manns taka
þátt í 20. abalrábstefnu Sam-
taka norrænna búvísinda-
manna, sem hefst í Háskólabíói
á mánudagsmorgun kl. 9.45.
Slík abalrábstefna var síbast
haldin á íslandi fyrir 20 árum,
en þær eru haldnar á fjögurra
ára fresti. Gubmundur Bjarna-
son, landbúnabarrábherra, set-
ur rábstefnuna. .
Helsta umfjöllunarefni búvís-
indamannanna verbur nor-
rænn landbúnaöur í hinni nýju
Evrópu. Það er hald manna að
norrænn landbúnaður hafi
hreinni ímynd en landbúnaöur
úthlutað til einstaklinga og fjöl-
skyldna í Súðavík og tæplega
þremur milljónum til ýmissa
samfélagslegra verkefna þar
vestra. Ekki hafi hinsvegar verið
greitt vegna tjóns í atvinnurekstri
eða hjá sveitarsjóði. Þá hafi
nokkrum aðilum búsettum utan
Súbavíkur verið veittir styrkir
vegna tjóns af völdum náttúru-
hamfara um svipað leyti og Súða-
víkursnjóflóbin urðu þann 16.
janúar.
Varbandi þær 73 millj. kr., sem
eftir standa, segir sjóbstjórn ab er-
indi hafi borist frá sveitarstjórn
Súbavíkurhrepps þar sem þess
hafi verið óskab að úthluta hús-
eigendum ákvebinni upphæb til
sunnar í álfunni og kemur þar
margt til. ímyndin ein hrekkur
þó skammt. Rannsóknir í land-
búnaði snúast því nú um
stundir mjög um það hvernig
halda megi uppi góðri fram-
leiðslu með lágmarksnotkun
hjálparefna, og lögð áhersla á
að búfé sé umgengið með
mannúð og virðingu og nátt-
•úru sé ekki spillt fyrir skamm-
tímahag.
Rábstefna búvísindamann-
anna stendur fram á fimmtu-
dagskvöld. Formaður íslands-
deildar samtakanna er Ríkharð
Brynjólfsson. ■
greiðslu á kostnaði við gatnagerb
í nýrri Súðavík, þ.e. á svonefndu
Eyrardalssvæði. Við þessari beibni
ætlar sjóðstjórn að veröa; „...
enda er hún í samræmi við til-
gang hinnar almennu fjársöfnun-
ar vegna snjóflóbanna í janúar
sem skóku grundvöll samfélags-
ins í kauptúninu með svo afdrifa-
ríkum hætti." ■
Friörik Sophusson fjár-
málaráöherra:
Reglum um
vörugjald
verður breytt
í framhaldi af rökstuddri áiitsgerð
Eftirlitsstofnunar EFTA um að
álagning og innheimta vörugjalds á
íslandi standist ekki ákvæði samn-
ingsins um EES, hefur Friðrik Sop-
husson fjármálaráðherra lýst því yf-
ir að íslensk stjórnvöld muni breyta
reglum og jafnvel lögum um vöru-
gjaldib, en ekki komi til mála að
hverfa frá álagningu þess. Eftirlits-
stofnunin hefur veitt tveggja mán-
aba frest til að gera nauðsynlegar
lagfæringar áður en stofnunin held-
ur málinu áfram, en að óbreyttu
yröi næsta skref að öllum líkindum
aö vísa málinu til EFTA- dómstóls-
ins, en Eftirlitsstofnun EFTA telur
að vörugjald sé ekki óheimilt, feli
það ekki í sér mismunun.
Árlega renna um þrír milljarðar
króna í ríkiskassann vegna þessarar
skattheimtu. Að sögn fjármálaráb-
herra var vitað ab ágreiningur
kynni að verða um þetta atriöi þeg-
ar gengið var til samninga um EES,
en málið var tekið fyrir hjá Eftirlits-
stofnun EFTA í kjölfar kæru frá ís-
lenskum aðilum. ■
Hundruö norrœnna búvísindamanna á ráöstefnu í
Reykjavík:
ímynd hreins land-
búnabar er ekki nóg