Tíminn - 04.08.1995, Blaðsíða 10
10
Föstudagur 4. ágúst 1995
Neil Young, nœstum fimmtugur, en aldrei betri en nú.
Neil Young er síungur
Rokkarinn Neil Young er
fæddur þ. 12. nóvember árib
1945 í Toronto í Kanada, en
flutti ungur meb móöur sinni
til Winnipeg, eftir skilnab for-
eldranna. Þar tók hann fljót-
Iega upp gítarinn og á
menntaskólaá mnum var
hann í ýmsum hljómsveitum.
Og áriö 1969 kom út hans
frumraun á plötumarkaön-
um, sem bar einfaldlega nafn-
ib Neil Young. Þar meb var
kominn af staö ferill sem staö-
iö hefur í meira en aldarfjórö-
ung og á þessum tíma hefur
hann gefiö út hvorki fleiri né
færri en 34 plötur.
Spegilkúlan
Nýjasta afurð Neils Young er
platan Mirrorball (sem er svona
spegilkúla sem maður sér á
diskótekum), og á henni spilar
hin gríðarvinsæla hljómsveit
Pearl Jam undir hjá honum, en
þeir eru frá Seattle í Bandaríkj-
unum. Platan var tekin upp
snemma á þessu ári í tveimur
stuttum lotum, enda segist Neil
Young alls ekki vilja taka upp
eitt Iag í einu, eins og sumir
listamenn gera. Hann vill af-
greiða hiutina fljótt og vel, ekki
vera með neitt hangs. Og um
Pearl Jam lét Young hafa þaö
eftir sér aö þeir væru í fínu
formi, góðir rokkarar.
En hvað á titill plötunnar að
segja okkur? „Platan er saman-
safn af ímyndum og hugmynd-
um sem flæddu fram. Þetta er
eins og með spegilkúluna, í
henni sérðu sífellt nýjar og nýj-
ar myndir. Þessi lýsing á ágæt-
lega við um það sem er að gerast
á plötunni. Hún var ekki skipu-
lögð í þaula, þannig að allir
vissu nákvæmlega hvað átti að
gerast á hverjum tíma, því ef
hlutirnir eru framkvæmdir
þannig, þá finnst mér engin á-
stæða til þess að gera þá."
Brjálaði hestur
Það var því ekki mikið að gera
fyrir Crazy Horse hljómsveitina
hans Neils Young á Mirrorball.
Tilurð Crazy Horse var þannig
að þegar Young var að gera sína
fyrstu plötu árið 1969, hitti
hann hljómsveitina The
Rockets, frá vesturströnd
Bandaríkjanna. Og hann tók sér
það bessaleyfi að endurskíra
hana þessu nafni, en Crazy Hor-
se var Síúx-Indíáni, stríðshöfð-
ingi og garpur mikill. Bandaríski
hershöfðinginn Custer féll á
sínum tíma fyrir hendi Crazy
Horse, en sjálfur féll hann fyrir
hendi bandarískra hermanna í
september árið 1877. Neil
Young sá því ástæðu á sínum
tíma til að skíra rokksveitina
sína eftir þessum mikla Indíana.
Erfiblelkar
En lífið hefur ekki alltaf verið
dans á rósum hjá Neil Young,
því dauði gítarleikara Crazy
Horse, Danny Whitten, af völd-
um eiturlyfja árið 1972 fékk
mjög á hann. Og ári síðar lést
annar vinur hans, rótarinn
Bruce Berry. Sjálfur er Young
flogaveikur og tveir synir hans,
sem hann á sinn með hvorri
konunni, eru lamaðir fyrir neð-
an mitti.
Og fráfall Kurts Cobain úr
Nirvana fékk einnig mjög á
hann, en milli þeirra hafði
myndast vinátta og segja sögu-
sagnir að Young hafi veriö að
reyna að ná í Cobain daginn
sem hann fyrirfór sér. Platan á
undan Mirrorball, Sleeping
with Angels, er tileinkuð minn-
ingu Cobains.
En þrátt fyrir mótlæti virðist
Neil Young vera óstöðvandi og
hefur nú sent frá sér enn eina
gæðaskífuna, þar sem fulltrúar
tveggja rokkkynslóða mætast og
úr verður mikið neistaflug.
Enda segir Neil Young: „Rokkið
má ekki deyja, það á að vera á sí-
felldu skriði. Og hér er ég og hef
það fínt." ■
Minnstu munaöi ab heilablóö-
fall Bills Berry, trommuleikara
R.E.M., í Sviss fyrr á árinu
gengi af sveitinni dauöri. í
samtali vib „New Musical Ex-
press" sagöi Michael Stipe
söngvari þetta hafa verib
hræöilega lífsreynslu og því
fleiri rannsóknir sem Bill hefbi
farib í, því meiri áhyggjur
hefbu hinir liösmennirnir haft.
„Viö hefðum sennilega hætt,"
segir Michael um möguleg áhrif
hins örlagaríka heilablóðfalls
trymbilsins á hljómsveitina. En
hann segir að heilablóðfallið hafi
ekki gert þá aö nánari vinum en
þeir eru: „Við erum nú þegar það
nánir vinir, að til þess að verða
nánari, þá þyrftum við að fara
inn í líkama hver annars!"
Gítarleikari sveitarinnar, Pet-
er Buck, segir að þeir hafi þurft
að neita óskum Bills um að
halda áfram með Evróputón-
leikaferð sína í maí s.l.: „Hann
vildi halda áfram, en vib töld-
um að það væri best ab bíða, þar
sem sá möguleiki var fyri hendi
að hann næði sér ekki að fullu.
Við myndum aldrei spila án
hans," segir Peter.
En nú er ljóst að Bill Berry og
R.E.M. eru I fínu formi og fyrir
skömmu skemmtu þeir 90.000
gestum Hróarskeldu, þ.á m.
fjölda íslendinga, vib góðan
orðstír. Þá hefur nýjasta afurð
þeirra, Monster, selst eins og
heitar lummur, eða í yfir 7
milljónum eintaka!
Bono, söngvari U2, í gervi Mac-
phisto frá Zooropa-tímabilinu,
meö horn og allar grcejur.
Nýjar
U2-plötur
á leiðinni
írska risarokkbandiö U2 er
núna í hljóöveri aö vinna
nýja plötu, sem hefur fengiö
titilinn „Music for Films" og á
hún ab koma út í nóvember.
Upptökustjóri plötunnar er
enginn annar en takkasnill-
ingurinn Brian Eno og athygli
vekur aö nýja U2-platan ber
sama heiti og plata sem Eno
hljóöritabi snemma á ferli
sínum. Brian Eno hefur unniö
mikiö meb U2 á undanförn-
um árum og veriö upptöku-
stjóri á þeirra bestu verkum.
Söngvari U2, Bono, segir að
tónlistin sé í neðanjarðarstíl og
beri keim kvikmyndatónlistar,
enda verði hún boðin kvik-
myndaleikstjórum til notkunar
í myndum sínum. Þetta er ekki
hefðbundið U2-rokk, því mikið
af efninu er hreinn spuni, sem
síðan var notabur til að klippa
saman í lög og stemmningar.
En þetta er ekki það eina sem
U2 eru ab bralla, því þeir eru
einnig að þrykkja inn á band
rokkplötu, sem ekki hefur verið
ákveðiö hvenær kemur út. Það
er því ljóst að engin lognmolla
er hjá U2 þessa stundina og
mikið af efni í vændum frá
þeim.