Tíminn - 19.08.1995, Blaðsíða 3
Laugardagur 19. ágúst 1995
mmmn
3
Noröurlöndin:
Harma
tilraun
Kínverja
Ríkisstjórnir Noröurlandanna
hafa sent frá sér sameiginleg
mótmæli vegna kjarnorkutil-
raunar Kínverja í gær. í yfirlýs-
ingu þeirra er minnt á að Kína
var í hópi þeirra 178 ríkja sem
beindu þeim tilmælum til
kjarnavopnaveldanna sl. vor að
forðast frekari tilraunaspreng-
ingar. Sendiráð Norðurland-
anna í Peking munu tilkynna
kínversku ríkisstjórninni við
fyrsta tækifæri að Norðurlönd-
in harmi þessa síðustu tilrauna-
sprengingu Kínverja. ■
ASÍ mót-
mælir
Miðstjórn ASÍ mótmælir þeim
vinnubrögðum sem fjármála-
ráðuneytið og ríkisskattstjóri
hafa viöhaft við þá breytingu að
reikna staðgreiðslu skatta af at-
vinnuleysisbótum. Mótmælin
eru sérstaklega vegna þess
skamma tíma sem gefinn er til
undirbúnings breytingarinnar
hjá þeim aðilum sem bera ábyrgð
á skattskilum og sjá um útborgun
atvinnuleysisbóta. Miðstjórnin
skorar á yfirvöld að taka sér þann
tíma sem þarf í undirbúning fyrir
þessa breytingu. ■
Járnblendiverksmiöjan á
Crundartanga:
Smábilun
olli talsverð-
um reyk
Smábilun í reykblásara í Járn-
blendifélaginu á Grundartanga
bilaði á dögunum og á meðan á
viðgerð stóð yfir varð að slökkva
á honum og af þeim völdum
slapp dálítill reykur út úr einum
af sex skorsteinum. Fengu starfs-
menn til þess leyfi frá Hollustu-
vernd ríkisins á meðan á viðgerð
stóð. Reykblásarinn er nú kom-
inn í lag, en vegfarendur í Hval-
firði urðu reyksins varir á meðan
á viðgerð stóð, en engri hættu
stafaði af. ■
Náðun Ól-
afs Frið-
rikssonar
Náðun og eftirmál er heiti þáttar-
ins í þáttaröðinni Nóvember '21
sem er á dagskrá á rás eitt á
sunnudagsmorgun. Í þættinum
er fjallað um náðun Olafs Frið-
rikssonar og liðsmanna hans.
Framsóknarflokkurinn gerði þaö
að skilyrði fyrir stuðningi við rík-
isstjórn Sigurðar Eggerz að Ólafur
og menn hans yrðu náðaðir en
þeir höfðu verið dæmdir til
þungrar refsingar. í þessum sein-
asta þætti koma fram meðal ann-
arra Auður Jónasdóttir en hún
hitti Nathan Friedman þegar
hann kom hingað til lands árið
1931. Vilmundur Gylfason les
frásögn Vilmundar Jónssonar
læknis. ■
NISSAN TERRANO II SLX
ARGERÐ 1996
5 dyra 4WD 2,4L SLX, 7 manna - 2400 cc - 12 ventla
- Bein innsprautun - Hátt og lágt drif - Byggður á stálgrind
Kr. 2.781.000. -
Einnig fáanlegur Diesel 2,7 Turbo
Breyttur bíll (auðveldur til breytinga)
Stadalbúnaður:
1 Vökvastýri 10 Stillanleg hæð öryggisbelta
2 Veltistýri 11 Utvarp - segulband
3 Samlœsingar í hurðum 12 4 hátalarar
4 Rafdrifnar rúðuvindur 13 Hœðarstilling á ökumannssœti
5 Rafdrifnir speglar 14 Stafræn klukka í mœlaborði
6 Sjálfvirkar framdrifslokur 15 Bremsuljós í afturglugga
7 75% driflœsing að aftan 16 NATS þjófavarnakerfi
8 Rafmagnsloftnet 17 Hiti í framsætum
9 Höfuðpúðar á aftursætum 18 Samlitir stuðarar
Öllum nýjum bílum frá Ingvari Helgasyni hf. fylgir frítt þjónustu - og smureftirlit í eitt ár
eða upp að 22,500 km., verksmiðjuryðvörn og íslensk ryðvörn ásamt hljóðeinangrun.
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000