Tíminn - 19.08.1995, Blaðsíða 7
Laugadagur19.ágúst1995
rSrly'WWW'Fr
7
Mööruvellir í Hörgárdal:
Sóknarbörn vilja prestinn
Miklar deilur eru risnar á milli
sóknarprestsins í Mööruvalla-
klaustursprestakalli í Hörgárdal,
sr. Torfa K. Stefánssonar, og
sóknarbarna í hinum fjórum
sóknum prestakallsins. Ekki er þó
að öllu ljóst um hvaö deilurnar
snúast en einkum viröist þaö vera
persóna prestsins sjálfs og sam-
skipti hans viö íbúa sóknanna
sem fólk telur sig ekki geta viö
unað. Ekkert hefur komiö fram
um aö sóknarpresturinn sinni
helgihaldi eöa vinni önnur prest-
verk meö þeim hætti aö svo
magnaðar deilur sem nú hafa
blossað upp gefi tilefni til.
Sr. Torfa finnst framhjá
sér gengið
Sr. Torfi K. Stefánsson hefur
kosiö aö túlka samstarfsreglur
presta í Eyjafjarðarprófastdæmi
um aö prestar vinni ekki prest-
verk á starfssvæöi .hvors annars
nema meb samkomulagi sín í
milli mjög þröngt og þráfaldlega
neitab öörum prestum um aö-
gang aö kirkjum prestakallsins ef
eftir því hefur veriö leitaö. Á und-
anförnum vikum hafa komiö
upp nokkur mál þar sem leitað
hefur verið til annarra presta í
prófastdæminu um að sinna
prestverkum í Möðruvallaklaust-
ursprestakalli en þeim verið
meinað af hálfu sr. Torfa aö nota
kirkjur á viökomandi kirkjustöö-
um til að sinna þeim embættis-
verkum. í því liggja tildrög þess
að sóknarnefndir hinna fjögurra
sókna töldu sig knúnar að leita til
biskups um að hann hlutabist til
um viöræöur á milli þeirra og
sóknarprests.
Óánægja frá upphafi
Forsaga þessara deilna er þó
nokkuö löng og segja má aö hún
hefjist fyrir um sex árum þegar sr.
Torfi K. Stefánsson hafði verið
kjörinn til prestþjónustu í
Mööruvallaklaustursprestakalli
úr hópi fjögurra umsækjenda.
Mjög fljótlega tók aö bera á
óánægju meö hann á meðal
sóknarbarna og strax voru brögö
aö því að fólk leitaði til annarra
presta um ýmsa kirkjulega þjón-
ustu. Einkum var leitað til
tveggja fyrrverandi sóknarpresta
á Möðruvöllum, þeirra sr. Þór-
halls Höskuldssonar á Akureyri
og sr. Péturs Þórarinssonar í Lauf-
ási. í einhverjum tilfellum munu
ættartengsl eöa persónulegar vin-
skapur fólks viö þessa presta hafa
ráöiö því að leitáð var til þeirra en
fljótt varð meira um slík erindi en
eðlilegt veröur aö teljast þar sem
þeir voru fluttir burt og teknir til
starfa í öörum sóknum.
íbúarnir safna undir-
skriftum
Auk þess sem sóknarnefndir
hafa sent erindi til biskups og
vígslubiskups Hólastiftis, hefur
sr. Bolli Gústafsson í framhaldi af
því fengið það verkefni í hendur
að leita sátta meö presti og sókn-
arbörnum í Mööruvallaklausturs-
prestakalli. Hafa nokkrir íbúar í
Möðruvallasókn hafiö söfnun
undirskrifta þess efnis aö skora á
biskup aö leysa sr. Torfa K. Stef-
ánsson frá störfum. í máli tals-
manna þeirra kemur fram ab þeir
telji ástandið orbið svo alvarlegt
ab ekki verði við unað og engin
lausn muni finnast nema sr. Torfi
hverfi af staðnum. Talsmenn
undirskriftarmanna segja aö úti-
lokað sé ab taka prestinn í sátt
eftir þau sex ára kynni sem sókn-
arbörnin hafa af honum. Enn er
ekki ljóst hver viðbrögð sóknar-
barna viö undirskriftasöfnuninni
veröa. Undirskriftarmenn hafa
ekki gefib neitt upp um árangur
af nafnaleit sinni en látið ab því
liggja aö fólk hljóti aö skrifa und-
ir þegar til þess veröi leitað. Sr.
Torfi hefur hinsvegar látiö hafa
eftir sér aö fáir muni ljá þessum
lista rithönd sína. Þannig stendur
fullyrðing gegn fullyröingu á
milíi prests og undirskriftar-
manna.
Kirkjustarf í molum
En hver eru rök undirskriftar-
manna fyrir svo alvarlegum til-
mælum að presturinn verði aö
víkja. Talsmenn þeirra benda á aö
kirkjustarf sé í molum. Ekkert
æskulýðstarf sé aö finna í sókn-
um sr. Torfa. Við Möðruvalla-
klausturskirkju hafi kórstarf
næstum lagst af en áöur hafi öfl-
ugur kór starfað við kirkjuna. Erf-
FRETTA-
SKÝRING
ÞÓRÐUR INGIMARSSON
iðleikar hafi veriö í samstarfi
prestsins viö organista og hafi vel
hæfur organisti horfiö frá Mööru-
vallaklausturskirkju eftir aðeins
eins árs samstarf við sóknarprest-
inn. Þá benda þeir einnig á aö
enginn meðhjálpari sé starfandi
vib Möbruvallaklausturskirkju og
aö minnsta kosti tveir meöhjálp-
arar hafi hætt störfum á þeim
tíma sem sr. Torfi hafi þjónab
staðnum.
Sr. Torfi kveðst ætla að
opna kirkjurnar
Sr. Torfi K. Stefánsson hefur lít-
iö viljað tjá sig um þessi mál viö
fjölmiðla en þó hefur hann gefiö
yfirlýsingu þess efnis aö hann
muni túlka samstarfsreglur sókn-
arpresta í prófastdæminu með
rýmri hætti en hingað til og leyfa
öörum prestum framvegis aö
vinna prestverk í þeim fjórum
kirkjum er heyra undir Möbru-
vallaklaustursprestakall. Aö-
stendendur undirskriftanna telja
þá yfirlýsingu léttvæga og segja
ab honum geti snúist hugur á
augabragöi ef svo beri viö að
horfa. Nýveriö fór fjölskylda í
Mööruvallasókn þess á leit viö sr.
Þórhall Höskuldsson aö hann
jaröaöi aldraöa konu er verið
haföi nágranni hans er hann
þjónaöi á Möðruvöllum og haföi
óskaö þess fyrir alllöngu á meðan
hún hafði heilsu að hann myndi
annast útför sína. Sr. Torfi tók
þeirri málaleitan illa í byrjun en
féllst síðar á aö gera þessa undan-
tekningu.
Deilur um jarðvegstöku
blandast inn í máliö
Nýveriö bættist svo einn kafli
við þá framhaldssögu sem sam-
skipti sóknarprests og sóknar-
barna í Mööruvallakausturs-
prestakalli er oröin, þótt hann
tengist öörum samskiptaöröug-
leikum aðeins meb óbeinu móti.
Sr. Torfi K. Stefánsson mun hafa
gert samkomulag viö verktaka af
Svalbarðsströnd um efnistöku í
landi prestsetursjarðarinnar og
tilgangur efnistökunnar sá aö afla
fjármuna til aö annast vibhald á
húsakynnum prestsetursins.
Samkvæmt lögum hafa sóknar-
prestar ekki ákvörbunarvald í
slíkum málum heldur stjórn
Prestsetrasjóðs. Erindi varöandi
efnistökuna mun hafa borist for-
manni sjóösins en endanleg
ákvörðun ekki hafa verið tekin
þegar verktakinn hóf efnistöku
að því að hann taldi í umboöi
sóknarprestsins. Efnistaka á þess-
um staö er umdeild þar sem ab
henni er nokkurt umhverfislýti
og hún er einnig talin skapa skil-
yröi fyrir því aö vatnsskemmdir
geti orðiö á grafreit sem -er
skammt frá kirkjunni á Mööru-
völlum í miklum leysingum. Ekki
hefur fariö fram umhverfismat á
þeim staö sem efnistakan var fyr-
irhuguð og Umhverfisnefnd
Eyjafjarðar hafði lagst gegn
henni í fyrstu. Síðar var fariö
fram á þaö viö nefndina aö hún
legði blessun sína yfir mjög tak-
makaöa efnistöku á staðnum.
Klofnaöi nefndin þá í málinu og
vildu tveir nefndarmanna leyfa
efnistökuna en formaöurinn,
Bjarni Guðleifsson, náttúrufræö-
ingur hjá tilraunastöð RALA á
Mööruvöllum, lagðist eindregið
gegn henni. Svo vill til að Bjarni
á einnig sæti í sóknarnefnd
Mööruvallasóknar og þegar verk-
takinn mætti meö tæki sín síðast-
liðinn miðvikudag kvaddi Bjarni
til lögreglu frá Akureyri til þess aö
stööva verknaðinn í krafti þess aö
formlegt leyfi heföi ekki borist frá
Prestsetrasjóði.
Prestur bobar breytt
samskipti - vígslubiskup
bjartsýnn.
Hvort jarövegstökumáliö á eftir
aö hafa áhrif á deilur prests og
sóknabarna í Möðruvallaklaust-
ursprestakalli á eftir aö koma í
ljós en á fundi sem sr. Bolli Gúst-
afsson, vígslubiskup, hélt meb
deiluaðilum í Þelamerkurskóla á
miðvikudagskvöld hét sr. Torfi K.
Stefánsson því ab leggja sitt af
mörkum til þess að sættir náist.
Annar fundur sóknarprests og
sóknarnefnda er fyrirhugaöur þar
sem nánar á aö fjalla um á hvern
hátt samskiptum prests og sókn-
arbarna verbi háttab í framtíð-
inni. Eftir fundinn á miöviku-
dagskvöld lét vígslubiskup í ljós
bjartsýni um aö endi veriö bund-
inn á þetta deilumál.