Tíminn - 19.08.1995, Blaðsíða 6

Tíminn - 19.08.1995, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 19. ágúst 1995 Atvinnuleysi tvöfalt meira meöal kvenna en karla í júlí: Um 73% atvinnulausra í júlí í R-kjördæmunum Atvinnuleysi reyndist heldur Vinnumálaskrifstofan hafbi eba 3,8% af mannafla í stab minna í júlímánubi en spáb í byrjun mánabarins, 3,9% til 4,6% samkvæmt Steingrímur J. Sigfússon segist ánœgöur meö aö varaformaöur veröi kosinn á landsfundinum Oheppilegt fyrirkomu- lag aö kjósa samtímis í bæði embættin spánni. Munurinn er því allt ab 1.100 manns. Eigi ab síbur „í grundvallaratribum snúast kosningarnar um ab fólk geri upp vib sig hvorum þessara einstak- linga þab treystir til ab sinna hlutverki formanns flokksins. Ég legg fyrst og fremst fram störf mín og reynslu og þab sem ég hef stabib fyrir í stjórnmálum og geri enn," segir Steingrímur J. Sigfús- son alþingsmabur um frambob sitt til formanns Alþýbubanda- lagsins. Steingrímur hefur ferbast talsvert um landiö ab undanförnu og rætt viö flokksmenn á óformlegum vet- vangi. Hann segist verða var við meðbyr og aukinn áhuga flokks- manna á formannskjörinu. Þó segir hann að vibbrögð fólks við því að kjósa formann með almennum kosningum meðal flokksmanna séu blendin. Fólki finnist aöferðin spennandi en sé einnig kvíðib þar sem sú hætta sé fyrir hendi ab bar- áttan fari úr böndunum. Steingrím- ur kveðst þó bjartsýnn ab svo fari ekki heldur standi flokkurinn sam- hentur og sterkur eftir kjörið. Um stöbu sína segir hann: „Ég er ágætlega bjartsýnn. Ég finn fyrir miklum stuðningi og margir eru tilbúnir til aö leggja sitt af mörkum. Ég velti sigurlíkum þó lítið fyrir mér. Framboð mitt á sér langan aðdraganda og var ákveðið óháb því hvort og þá hverjir aðrir byðu sig fram." Steingrímur er ánægður með þá niðurstöðu að varaformannskjörið færist inn á landsfundinn. Þannig geti menn kosið varaformann í ljósi úrslita í formannskjörinu eins og venjan sé. Samtímis leysi þetta þann vanda ab samtímis kosningu eru frambjóbendur í formannskjöri ekki kjörgengir í varaformanns- kjöri. Hann segir að þeir sem hafi hugleitt framboð til varaformanns hafi því komist ab þeirri niburstöbu ab það sé gallab fyrirkomulag að kosning í þessi tvö embætti fari fram samtímis. í kosningabaráttunni hefur því verið fleygt að kjör Margrétar sé skilyrði þess að hægt verði að vinna ab sameiningu vinstri manna. „Ég er aubvitað að bjóba mig fram sem formann í Alþýðubanda- laginu til þess að efla það og vinna stefnumibum þess brautargengi. Með því er ég ekki að segja að ég sé að útiloka samstarf við aðra eða framþróun í vinstri hreyfingunni, síður en svo. En ég býð mig fram í ljósi þess pólitíska landslags sem er í landinu," segir Steingrímur þegar þetta er borið undir hann. „Mér þykir miður ef mótfram- bjóðandi minn ætlar að heyja sína baráttu á neikvæðum nótum, ég mun þvert á móti leggja áherslu á hið jákváeða. Angi af þessum meiöi er sú umræba að flokksstarfið sé ekki nógu gott og það sé varafor- manninum að kenna. Ég tek undir ab það þurfi að efla flokksstarfib en bendi á að framkvæmdastjórn flokksins ber ábyrgð á því. í henni sitjum vib Margrét bæði," bætir hann viö. ■ voru atvinnulausir nú fleiri en nokkru sinni fyrr og t.d. rúmlega 1.000 fleiri en í júlí í fyrra. Meginástæður þess telur Vinnumálaskrifstofan minni fiskafla og færri átaksverkefni en í fyrrasumar. Síðasta vfrka dag mánaðarins voru rösklega 6 þúsund manns á skrá, eða um 1.300 fleiri en fyrir ári. Þykir það benda til að atvinnuleysi kunni að aukast aftur nú í ág- úst. Af rúmlega 5.400 íslending- um sem ekkert starf höfðu í júlímánuði voru um 4.000 af Reykjavíkursvæði og Suðurnesj- um, þar sem atvinnuleysi mældist um 4,3% í staö um 3,5% í sama mánuði í fyrrasum- ar. í öðrum landshlutum mæld- ist atvinnuleysi kringum 3% að meðaltali. Atvinnuleysi var hlutfallslega tvöfalt meira meðal kvenna (5,5%) en karla (2,6%) í júlí- mánuði. Á landsbyggðinni var þessi munur jafnvel þrefaldur og fjórfaldur sums staðar. Þann- ig nær 8% kvenna (13. hver kona) á Suðurneskum á at- vinnuleysisskrá í júlí, en aðeins rúmlega 2% karlanna. Á Suður- landi voru 6% kvennanna á skrá en tæp 2% karlanna og hlutföllin voru svipuð á Norð- urlandi verstanverðu. ■ ' Kvikmyndin Tár úr steini veröur frumsýnd um miöjan nœsta mánuö: Átakasaga tón- skálds á framabraut Nígerumenn halda sínu striki í peningaþvœttinu: Bjóða Tímanum hundruð milljóna fyrir smágreiða Um mibjan næsta mánub verbur frumsýnd kvikmynd eftir Hilmar Oddsson, Tár úr'Steini, sem fjallar um átakasögu Jóns Leifs tón- skálds. Myndin hefur verib sex ár í smíbum og var í fyrstu ætlunin ab hún yrbi heimildarmynd en hefur síban þróast í ab verba bíó- mynd í fullri Iengd. Myndin er gerb í samvinnu íslenskra, sænskra og þýskra abila. I kynningu á myndinni segir ab myndin fjalli um þau átök í lífi sínu sem-Jón Leifs þurfti að fást við. Ást á tónlist og ást á fjölskyldu sinni. Seg- ir að myndin sé saga ungs íslensks tónskálds á framabraut og ungrar konu af Gyðingaættingum í Þýska- landi, en á þeim tíma sem myndin gerist var landið að breytast í helvíti á jörb. Myndin var tekin bæði í Þýska- landi og á íslandi. Hilmar Oddsson er leikstjóri, Hjálmar H. Ragnarsson var tónlistarstjóri og Siguröur Sverr- ir Pálsson annabist kvikmyndatök- ur að mestu leyti. Aðalleikarar eru Þröstur Leó Gunnarsson sem leikur Jón Leifs, Ruth Ólafsson, hálf-ís- lensk kona af Gyðingaættum, leik- ur eiginkonu tónskáldsins. Berg- þóra Aradóttir og Sigrún Lillendahl leika dætur þeirra hjóna. Fjölmargir abrir leikarar koma við sögu í þess- ari sögu sem frumsýnd verbur 1S. september. ■ Þab er ekki á hverjum degi ab fyrirtækjum á íslandi er bobib upp á hundrub milljón króna hagnab — og þab án þess ab þau þurfi ab lyfta svo mikib sem litla fingri. En þetta gerist, reyndar flesta daga. Jafnvel Dagblabib Tíminn fær slík gyllibob í póstin- um frá Nígeríu, eitt barst í gær. Mister Emeka nokkur Awele í Lagos setur fram tilboö sem varla er hægt að hafna, eða hvað? Hann hefur undir höndum 41,5 milljón- ir Bandaríkjadala, eða 2,7 milljarða íslenskra króna. Awele segist vera bókari í þeirri deild Nígeríuríkis sem annast um fjárlög og fjárhagsskipulag Olíu- málaráðuneytisiens. Hann segir stööuna þá að þeir hafi með góð- um árangri tryggt sér áöurnefnda risafjárupphæð vegna sölu á hráol- íu meðan á Persaflóastríði stób. Dollarana á nú að flytja á banka- reikning erlendis og segir nígeríski bókarinn ab það sé gert aö undir- lagi Nigerian National Petroleum Corporation, fjármálaráðuneytis landsins og Seölabanka Nígeríu. Til þess að auövelda þessa peningatil- færsiu, sem á fagmáli er kölluð peningaþvætti eða peningaþvott- ur, vilja þeir fá aðstoð Tímans. Þeir vilja fá þrjú eintök af bréfhaus fyr- irtækisins og reikningseyðublöö- um, nafn viðskiptabanka og heim- ilisfang hans og númer á viðskipta- reikningi. Líka faxnúmer og síma- numer. Fyrir þennan greiða á Tíminn að fá 30% af upphæðinni sem fær að fara gegnum reikninginn, rúmlega 12 milljónir dollara, eba meira en 800 milljónir króna. Þessi viðskipti eru 100% örugg, segir bókarinn góöi) og farið verður með þau sem algjört trúnabarmál, segir Emeka Awele í bréfi sínu. Tilboðum sem þessum bókstaf- lega snjóar inn til fyrirtækja á ís- landi og víðar um lönd þessa dag- ana. Verslunarráð íslands hefur varaö við slíkum tilboðum, enda hafa einhver fyrirtæki farið flatt á öllu,saman og tapab stórfé í stað þess að græða. Tíminn segir því nei takk. ■ MR. F.MEKA AWELE TEL: 234-1-4527256 FAX: 234-1-4527562 LAGOS - NIGERIA Dear Sir. Thank$ to a piece of information we gathered from the Forcign Trade office of the Nigerian Chamber of Commerce and Industry. The information is so positive as to convince us that you would be capable to provide ús with a so/ution to a money transfer deal of Forty-One million, Five hundred thousand United States Dollars (US$41.5m). / am an Accountant in the Department o( Budget and P/anning of the Ministry of Petro/eum. This department is orincipa.'ly concerned with contract appraisals and the approval of contracts in order of priorities as regards capital projccts of the Military Government of Nigeria. With our postion, we have succcssfu/ly secured for ourselves the sum of Forty-one million five hundred thousand United States Dollars (US$41.5m). This amount accumulated through undcclarcd windfall from sales of crude 0/7 during the Gulf war. Hence, together with the officials of the Nigerian Nationa/ Petroleum Corporation, the Federal Ministry of Finance and the Central Bank of Nigeriawe plan to transfer this amount of money (US$41.5m) into an ovcrseas account by awarding a non-existent contract from my Ministry (NNPC). To this effect I decide to write and seek for your assistance. Bréfiö elskulega frá Nígeríu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.