Tíminn - 26.08.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 26.08.1995, Blaðsíða 1
STOFNAÐUR 1917 79. árgangur Laugardagur 26. ágúst 1995 158. tölublað 1995 Framkvœmdastjóri Lífeyrissjóös bœnda iánabi Emerald Air 90 milljónir án vitundar stjórnar: Hver bóndi lánaði Emer- ald 20-25 þúsund Framkvæmdastjóri Lífeyris- sjóös bænda hefur sagt starfi sínu lausu, vegna lánveitinga til handa flugfélaginu Emerald Air ab upphæb um 90 milljónir króna, sem munu éftir því sem Tíminn kemst næst án leyfis og vitundar stjórnar sjóbsins. Lífeyrissjóöur bænda er stærsti hluthafi í Aktiva hf. sem svo aftur er hluthafi í Emerald Air, sem nú reyndar hefur hætt flugi til ís- lands og annað félag tekið við þeim rekstri. Það hefur verið haft eftir Kristni Sigtryggssyni að fé- lagið sé ekki hætt störfum, heldur hafi félaginu bobist önnur betri verkefni erlendis. Miðað vib þessar tölur má ætla að hver bóndi hafa lánab Emer- ald Air um 25 þúsund krónur, auk hlutafjár í félaginu. Þetta jafngildir farseðli með félaginu til Bretlandseyja. Ekki náðist í Guöríði Þorsteins- dóttur, stjórnarformann Lífeyris- sjóðs bænda, ábur en blaðið fór í prentun í gær. ■ Gubmundur Páll Ólafsson í helgarvibtali Tímans: Búfræðingurinn varð höfundur verðlaunabóka G u ð m u n d u r Páll Ólafsson hélt ungur vestur til Bandaríkjanna til ab verða bú- fræðingur í Ohio. Síðan tók eitt við af öðru í lífi hans, og meðal annars lærbi hann líf- fræbi og fór í ljósmyndun. í dag er hann landskunnur fyrir þrjár veglegar bækur sínar, þar af hefur ein unnið til verðlauna. -Sjábls. 8-9 Gubmundur Tímamynd GS i^On Um þ O n n S tO t*O • Strákamir sem eru ab dorga vib Keflavíkurhöfn — ef höfnin heitir þab þá lengur — eru ibnir vib kolann og þab í bókstaflegri merkingu. Þessir krakkar, sem vib smelltum mynd af ígœr, voru ekki í veibiham, en fylgdust vel meb því sem var ab gerast nebansjávar, án efa í von um ab sjá þann stóra, laxinn, sem gengur inn á hafnir þar sybra. Lífeyrissjóöir ráöherra og þingmanna þyrftu meirihluta launanna œttu þeir aö standa undir lífeyrisgreiöslunum: Iðgj öldin þy rftu ab vera 80% launanna Lífeyrisréttindin sem ráöherr- ar hafa tryggt sjálfum sér eru svo rífleg aö lífeyrissjóöurinn þeirra þyrfti aö fá í iögjöld næstum öll ráöherralaunin ef sjóöurinn ætti sjálfur aö geta staöiö undir öllum lífeyris- greiöslunum til fyrrverandi rábherra. Samkvæmt upplýs- ingum frá Tryggingastolnun Tugir alþjóblegra stórbanka vildu lána ríkissjóbi miklu meira en hann óskabi eftir: Ríkissjóður opnar 13 milljarða kr. reikning Ríkissjóbur hefur samiö vib 24 erlenda banka um nýtt alþjób- legt bankalán, í formi hlaupa- reiknings upp á 13.000 millj- ónir króna, eba 200 milljónir Bandaríkjadala. Um er aö ræöa svonefnt veltilán, sem nota má og greiöa inn á eftir þörfum, segir í Hagtclum Seölabank- ans. Raunar var aöeins leitaö eftir 175 milljón dala láni vib útboöiö þann 22. júni. En á tveim vikum höfbu 24 bankar skráb sig fyrir samtals 260 milljón dollurum. Ríkissjóöur lét þá til leiöast aö hækka láns- fjárhæöina í 200 milljónir dollara. Aö ööru jöfnu segir Seðla- bankinn að ekki sé gert ráö fyr- ir að lánsféö veröi greitt út til ráöstöfunar fyrir ríkissjóð held- ur myndi það varasjóð sem grípa megi til þegar þurfa þyk- ir. Fjárhæðin sé þó öll til reiðu með dags fyrirvara í hverri sem er af öllum helstu viöskipta- myntum landsmanna og er ríkissjóði þá heimilt að nota féð í þrjá, sex og jafnvel tólf mánuöi í senn. Samningurinn gildir til 5 ára og vextirnir LIBOR með 0,07% álagi. Samhliða var einnig endur- nýjaður samningur um útgáfu ríkisvíxla á alþjóöamarkaöi, sem gerður var 1985. En ríkis- sjóður íslands varö þá fyrstur allra ríkissjóöa til útgáfu ríkis- víxla á alþjóölegum markaði. í árslok 1994 nam fjárhæð úti- standandi víxla 265 milljón dollurum, eða um 18 milljörð- um króna. Með nýja samn- ingnum er hámarksfjárhæð út- gáfunnar hækkub úr 350 í 500 milljónir dollara (33 milljaröa kr.). ■ ríkisins sýna útreikningar tiyggingafræbinga aö iögjöld í Lífeyrissjóö ráöherra þyrftu aö nema um 80% af ráðherra- laununum — eöa 70% launa til viöbótar þeim 10% launa sem þessi sjóöur fær í iögjöld vegna félagsmanna sinna, eins og abrir lífeyrissjóöir landsins. Lífeyrissjóöur al- þingismanna kæmist raunar af meö nokkru lægra iðgjalda- hlutfall til þess aö standa sjálf- ur undir áunnum lífeyrisrétt- indum þingmanna, eöa „aö- eins" 56% þingfararkaupsins. Ibgjaldagreibslurnar hvers þingmanns mundu þá nema vel á aöra milljón króna á ári. Sá gríðarlegi kaupauki sem fellst í þessum glæsilegu lífeyris- réttindum virðist af einhverjum ástæðum aldrei komast inn í tíðar umræöur um hraksmánar- leg launakjör íslenskra alþingis- manna, þar sem gjarnan er miö- aö viö einhver ótilgreind störf á hinum almenna vinnumarkaöi. En þar er m.a. sá stóri munur á að vilji þeir sem þar starfa ekki láta sér nægja þann lífeyri sem þeir ávinna sér í sínum lög- bundnu lífeyrissjóðum, þá eiga þeir ekki annan kost en sparnaö af sínum eigin skattskyldu laun- um. Ætlaöi t.d. 100.000 kr. maðurinn ab að safna sér 46% viðbótarlífeyrisréttindum (eins og hann fengi væri hann kos- inn á þing) þá þyrfti hann að fá launin sín hækkuð í 180.000 krónur á mánuði. Virðist því ljóst aö viðbótarlífeyrisréttindi sem svara til 70% ráðherralauna og 46% þingfararkaups eru mik- illa peninga virbi. Má þar meðal annars benda á að umræddir tveir lífeyrissjóðir hafa undan- farin ár verið aö greiða í lífeyri upphæðir sem nema 6-10 föld- um þeim iögjaldatekjum sem þeir fá á ári. Mismunurinn, á annað hundraö milljónir á ári, kemur beint úr ríkissjóði. Enda standa nú áfallnar lífeyrisskuld- bindingar þessara galtómu sjóða í rúmlega 2.600 milljón- um króna. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.