Tíminn - 30.08.1995, Page 2
2
Mi&vikudagur 30. ágúst 1995
Tíminn
spyr...
Eru 16 milljónir króna í eitt
listaverk, Fyssu, of dýrt fyrir
borgina á tímum samdráttar?
Guömundur Þóroddsson,
vatnsveitustjóri:
Nei, túrismi er aö veröa okkar
höfuöatvinnugrein og þetta
listaverk er liöur í aö fegra borg-
ina. Þaö er eölilegt aö Vatn-
sveitan minnist stórviöburöa
meö því aö gefa borginni eitt-
hvaö. Þaö skiptir ekki sköpum í
hennar rekstri. Vatnsveitan
veltir sex-sjö milljöröum á 10
árum og miöaö viö þaö eru 16
milljónir lítil upphæö.
Rúrí, hönnuöur listaverksins:
Ég er ekki viss um aö ég sé
rétta manneskjan til aö svara
þessari spurningu en þó get ég
sagt aö flest stærri listaverk eru
dýrari. Þetta er mjög vandaö
verk, því fylgir vélbúnaöur sem
er mjög kostnaöarsamur og er
yfirleitt ekki í listaverkum. Þaö
er margt sem er óvanalegt viö
verkiö þannig aö kostnaöar-
hliöin hækkar óhjákvæmilega.
Sigrún Magnúsdóttir,
borgarfulltrúi R-listans:
Upphafiö aö Fyssu var aö ís-
lenska lýöveldiö varö 50 ára í
fyrra, og ári áöur — í tíö fyrri
meirihluta — veltu menn
vöngum yfir því hvaö veitu-
stofnanir gætu gert fyrir borg-
ina sína á þessum tímamótum.
Þá þótti óeölilegt hve lítiö af
vatnslistaverkum og gosbrunn-
um væri til í Reykjavík. Því varö
þaö niöurstaöan aö Vatnsveit-
an myndi efna til samkeppni
am vatnslistaverk. Áætlunin
hijóöaöi upp á 7-8 milljónir og
þaö kom mér í opna skjöldu
þegar upp er staöiö hve kostn-
aðurinn varö hár. Þetta reyndist
hrikalega dýrt og er vissulega
umdeilanlegt á samdráttartím-
um. Hitt er einnig ljóst aö þetta
listaverk mun sóma sér sérlega
vel í Laugardalnum.
Ný veitustjórn sá fljótt aö kostnaöur viö Fyssu fœri langt fram úr áœtiun, en:
Ákveöið var aö
ljúka viö verkið
Fulltrúar meiri- og minnihluta í
stjórn Veitustofnana Reykjavík-
urborgar segja aö ný veitustjórn
hafi þurft aö ákveöa hvort ljúka
ætti gerö listaverksins Fyssu eöa
hætta í mibjum klíöum. Nýrri
stjórn hafi fljótlega orbib ljóst
aö kostnabur vib gerb verksins
færi langt fram úr áætlun.
Heildarkostnaöur vib verkiö
var 16 milljónir króna.
í tíð fyrri stjórnar Veitustofn-
ana var samþykkt aö Hitaveitan,
Vatnsveitan og Rafmagnsveitan
skyldu hver gefa borginni gjöf í
tilefni af 50 ára afmæli lýöveldis-
ins. Ákveöið var aö efna til sam-
keppni um vatnslistaverk, sem
yröi gjöf Vatnsveitunnar og um
leiö yrði minnst 85 ára afmælis
hennar. Listakonan Rúrí varö
hlutskörpust í samkeppninni
með listaverkiö Fyssu, sem nú
hefur risiö í Grasagaröinum í
Laugardal. Upphafleg kostnaðar-
áætlun Vatnsveitunnar hljóöaði
upp á 8 milljónir króna.
Alfreð Þorsteinsson, formaöur
stjórnar Veitustofnana, segir að
þegar ný stjórn tók viö hafi henni
fljótlega orðið ljóst að kostnaöar-
áætlunin myndi engan veginn
standast. Stjórnin hafi því þurft
að ákveöa hvort halda ætti áfram
meö verkið eöa hætta gerð þess.
„Það var tekin ákvöröun um aö
ljúka verkinu. Hinn kosturinn var
aö hætta vib gerð verksins í mibj-
um klíðum, sem heföi sennilega
líka verib gagnrýnt. Þetta er mjög
fallegt listaverk og á eftir að veröa
Reykvíkingum til ánægju um
ókomin ár, en það má aubvitað
alltaf deila um þab hvað slíkt má
kosta."
Gunnar Jóhann Birgisson, ann-
ar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
stjórn Veitustofnana, segir aö þaö
hafi veriö samdóma álit stjórnar-
innar aö ljúka gerð verksins. „Þaö
er vissulega gagnrýnivert hvað
verkiö varö miklu dýrara en upp-
hafleg fjárhagsáætlun sagði til
um, en það er ákaflega erfitt að
hætta við hálfunniö verk." ■
Ungir jafnaöarmenn:
Hægt að útiloka ýmislegt
Ungir jafnabarmenn voru í
galsaskapi þegar þeir sam-
þykktu þá ályktun ab hægt
væri aö útiloka aöild aö Sjálf-
stæöisflokknum. En það er
hægt aö útiloka fleira segja
þeir:
„Einnig er hægt aö útiloka að-
ild Sjálfstæöisflokksins að ríkis-
stjórn íslands. Ýmislegt fleira er
mögulegt, þar meö taliö að úti-
loka aöild íslands aö Evrópu-
sambandinu, en þaö er óráðlegt
að svo stöddu og ber vott um
heimóttarskap og vantrú á getu
íslendinga til að taka þátt í sam-
starfi Evrópuþjóða á jafnréttis-
grundvelli..." segja ungkratarn-
ir. Þeir segjast ekki útiloka aðild
íslands aö ESB. ■
Sagt var...
Hægt væri ab setja fram tlllögu
um þann möguleika ...
„Hægt er aö útiloka aðild að Sjálf-
stæðisflokknum. Einnig er hægt aö
útiloka aðild Sjálfstæðisflokksins að
ríkisstjórn íslands."
Segir í ályktun sem fundur Sambands
ungra jafnabarmanna samþykkti á
sunnudaginn; Alþýbublabib. Einhverra
hluta vegna læbist ab sá grunur ab ver-
ib sé ab hæbast ab óákvebnu æskufólki
í landinu.
Skizofren í blabaútgáfuna
„Slíkt blað yrði afskaplega mikill geð-
klofi."
Segir Össur Skarphébinsson í Alþýbu-
blabinu um sameiginlegt „lengst til
vinstri og hægra megin vib Sjálfstæbis-
flokkinn"-blabs, ef marka má orb Svav-
ars Gestssonar um Alþýbuflokk og Al-
þýbubandalag.
Okkur var sumsé klisjab saman
„Tillögur Hallgríms eru þessar: Kynlíf,
ást, dauði, atriöi eins og „að reyna
við kvenmann", „baráttan viö áfeng-
isböliö" og „að alast upp í Ijótu um-
hverfi". Þreytulegri klisjur er ekki
hægt ab finna í vestrænum menn-
ingarheimi."
Hlynur Hallsson mótmælir kollega sín-
um, Hallgrími „mibaldra" Helgasyni, og
vill endilega halda áfram ab fá ab fjalla
í list sinni um salinn og flísarnar á gólf-
ínu þar sem hann sýnír list sína.
Konur meb fortíb
„Hann hefði án efa veriö í Þjóðvaka
ef hann væri uppi í dag, því þab er
svo mikil söguleg tragedía í honum."
össur Skarphébinsson telur ab Grettir
Ásmundsson yrbi góbur forsætisráb-
herra vegna líkinda hans vib tvo síb-
ustu forsætisrábherra!
Davíb og ræbubebjan
„Húsfreyjan á Útiraubsmýri í Sjálf-
stæöu fólki. Er hún ekki annars for-
sætisrábherra núna?"
Mörbur Árnason kemur upp um dulda
abdáun sína á Davíb og kvenkyninu í
Alþýbublabinu í gær.
Haldtbl kjafti og veribi...
„Bönnuöu þau hvers kyns mótmæli
sem brytu í bága við kínverskt alræð-
isvald eða rægðu kommúnistastjórn-
ina. Talsmabur stjórnvalda sagði ab
slík mótmæli yrðu einnig bönnuð á
fundarstað óhábu kvennarábstefn-
unnar í Huairou, skammt frá Beij-
ing."
DV í gær.
„Hlífum börnum við óbaksreyk,"
stendur utan á vindlapakka sem
barst inn á ritstjórnina um daginn.
Greinilegt aö landlæknir þarf aö
ráöa sér betri prófarkalesara til aö
lesa annars ágætar viövaranir til
(t)óbaksfíklanna ...
•
í pottinum er sagt aö nú sé Bleik
brugöiö, íslendingar hafi ekki sýnt
eins mikinn áhuga á nýja Windows
'95 forritinu og reiknaö var meö;
salan sé fremur dræm, a.m.k. enn
sem komiö er. Venjulega bregst
landinn viö nýjungum á þann hátt
aö hann hnekkir öllum sölumet-
um. Núna viröast menn bíöa ...
•
Blaö hf., sem rak Pressuna, er kom-
iö til gjaldþrotaskipta. Slúöurblaöiö
var upphaflega stofnaö af Alþýöu-
flokknum, en selt Friðriki Friöriks-
syni. Flokkurinn mun hafa allt sitt
á hreinu gagnvart sínu gamla fyrir-
tæki, en Friörik rekur á annan tug
fyrirtækja í útgáfumálum ýmsum,
sem flest eru sögö á fallanda fæti,
þar á meöal Almenna bókafélagiö
hf., sem meira aö segja hefur tap-
aö útgáfuverkum borgarskáldsins
Tómasaryfirtil erkifjendanna Máls
og menningar. Tómas sat sjálfur í
stjórn AB...