Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 1
79. árgangur Laugardagur 30. september 1995 183. tölublað 1995 Hátt á 7. hundraö manns flutt frá Vestfjörö- um á átta mánuöum: Vestfirðing- um fækkar hraðaren nokkru sinni Vestfiröingum hefur fækkab ennþá hrabar á þessu ári heldur en á undanförnum ár- um, sem flestum þótti þó nóg um. Rúmlega 670 Vestfirbing- ar tilkynntu um brottflutn- ing frá áramótum til ágúst- loka í ár. Á móti tilkynntu 430 manns flutning til Vest- fjarba. Niburstaban er fækk- un um rúmlega 240 manns, eba rúmlega 2,5% á abeins átta mánubum. Um 9.450 manns voru heim- ilisfastir á Vestfjörbum í lok síb- asta árs. þeim hafbi þá fækkab um rúmlega 150 manns á ár- inu, eða 1,6%. Áratug áður voru Vestfirðingar um 10.420 talsins og sá fjöldi hafði þá ver- ið nokkuð stöðugur í aldar- fjórðung. En síðan hefur sigið stöðugt á ógæfuhliðina. íbúum Vestfjarða fækkaði um rúmlega 210 manns milli 1984 og 1985 og alls hefur þeim nú fækkað um nærri 1.000 manns á einum áratug, eða tæplega 1% að með- altali ár hvert. ■ Fundur bœjarráös í Hafnarfiröi: Óviðunandi vinnubrögð Á fundi bæjarráös Hafnarfjarð- ar sl. fimmtudag voru m.a. tek- in fyrir starfsmannamál bæjar- ins og óskuðu Lúðvík Geirsson og Magnús Gunnarsson að eft- irfarandi yrði bókað: „Vinnu- brögð bæjaryfirvalda varðandi uppsagnir á kjörum starfs- manna bæjarins eru með slík- um eindæmum aö engu tali tekur. Einstakir ráðamenn bæj- arins taka sér vald til að velja úr hópi bæjarstarfsmanna og senda þeim uppsagnarbréf, án þess að fjallað sé áöur um mál- ið á formlegan hátt í hagræð- ingar- og sparnaðarráði, hvað þá bæjarráði. Þessi aðgerð er ekki í samræmi við fyrri sam- þykkt bæjarráðs og því alls óvíst að hún fái staöist." ■ Frumvarp um fœöingarorlof veröur lagt fyrir Alþingi á vorþingi: Réttur foreldra verði jafnaður Heilbrigbisrábherra hyggst leggja fram frumvarp um fæb- ingarorlof eftir áramót. Mark- mib frumvarpsins verbur ab jafna rétt foreldra til fæbing- arorlofs án tillits til hvar þeir vinna. Ráðhera hefur ákveðið að skipa nefnd til aö endurskoða lagafrumvarp um fæðingarorlof frá árinu 1990. Nefndin veröur skipuð fulltrúum aðila vinnu- markaöarins, Jafnréttisráðs, fjár- málaráðherra og heilbrigbis- og tryggingamálaráðherra. Nefnd- inni verður ætlað að hafa tvennt ab leiðarljósi. Annars vegar að jafnaður verði réttur foreldra til fæðingarorlofs, hvar sem þeir vinna og hins vegar ab kostnaður vinnuveitenda og ríkisins vegna fæðingarorlofs aukist ekki frá því sem nú er svo neinu verulegu nemi. Nefnd- inni verður ætlað aö ljúka störf- um fyrir áramót. Stefnt er að því aö leggja frumvarpið fyrir Al- þingi strax eftir áramót. Lagafrumvarpið frá 1990 var samið af nefnd sem skipub var árib áöur. Nefndin var skipuð í framhaldi af Ioforði ríkisstjórn- arinnar sem gefiö var til að greiöa fyrir kjarasamningum milli aðila vinnumarkaðarins voriö 1989. Frumvarpið hefur nokkrum sinnum verið kynnt í ríkisstjórn en ekki lagt fyrir Alþingi. Afgangur af vöruviöskipt- um viö útlönd 3.400 millj- ónum minni en í fyrra: Um 2.400 millj. meira í neysluvörur og nýja bíla íslendingar eyddu um 2,4 milljörbum króna (12%) meira af gjaldeyristekjum sín- um til innflutnings á neyslu- vörum og nýjum bílum fyrstu átta mánubi þessa árs heldur en sömu mánubi í fyrra. Þar sem vöruútflutningur hefur vaxib miklu minna en inn- flutningurinn á þjóbin nú um 3,4 milljörbum minni afgang af vöruvibskiptunum sínum en fyrir ári, eba 9,9 milljarba. Vörur voru seldar úr landi fyr- ir 9 milljarba í ágúst, sem var 7% meira en árið áður. Útflutn- ingurinn var þá alls kominn hátt í 76 milljarða frá áramót- um, sem er 6% meira en á síð- asta ári. Nærri alla þá aukningu má rekja til annars en sjávaraf- urða. Vöruinnflutningurinn var að nálgast 68 milljarða í ágústlok, hvar af rösklega 60 milljarðar fóru í almennan innflutning. Olíukaupin voru rúmir 5 millj- arðar (12% meiri en fyrir ári). Innflutningur fólksbíla var 3,1 milljaröur (sem er 34% aukning milli ára). Um 13,3 milljarbar voru farnir í aðrar neysluvörur (8% aukning). Annar almennur innflutningur var 17% meiri í ágústlok heldur en ári áður. ■ A Hvammstanga Tímamynd CS Andri Már 4. ára og ungviöiö í barnavagninum nutu veöurblíöunnar sem var þar nyöra í vikunni, heiöskír himinn og stafalogn. SJá bls. 8. Haust á Norburlandi. Kristján Júlíusson, bœjarstjóri á Isafiröi, býöst til aö taka á móti flóttamönnum: Allt ab 25 flótta- menn til ísafjarðar Kristján Júlíusson, bæjarstjóri á ísafirbi, hefur sent erindi til fé- lagsmálarábuneytis þess efnis ab ísafjörbur sé reibubúinn til ab taka ab sér óskilgreindan fjölda flóttamanna. Félagsmála- rábuneytib hefur ekki enn tekib upp vibræbur vib sérstök sveit- arfélög um þessi mál ab sögn Braga Gubbrandssonar, for- manns flóttamannarábs Is- lands. „Við bjóbum fram okkar þjón- ustu á þessu svibi sem öbru, við viljum sjá hvort við getum orbiö að liði," sagði Kristján í gær. Aðspurður hvort abstæður á Isafirði væru hagstæðari en ann- arra sveitarfélaga til að taka við flóttamönnum, segir Kristján að málið snúist ekki um hag- kvæmni. Nokkuð er um lausar íbúðir á ísafirbi og auk þess vantar fólk til fiskvinnslu. Eins og kunnugt er hefur verið talað um að taka 25 flóttamenn inn í landið en ísland hefur verið lokab flóttamönnum síðan 1991 og verið harðlega gagnrýnt fyrir þær sakir. Bragi Guðbrandsson segir að það verbi ekki fyrr en ríkisstjórnin taki ákvörðun um málib sem vib- ræbur verbi teknar upp vib ákveb- in sveitarfélög. Kostnabur á bak vib hvern flóttamann er metinn á allt ab 1,5 milljónir kr., sem ríkib greibir, en þab fer þó nokkub eftir líkamlegu ástandi flóttamanns- ins, uppruna og öbru slíku. Ab þeim tíma loknum er flótta- mönnum ætlab að vera á eigin vegum en geta sótt um abstob til síns sveitarfélags í gegnum vib- komandi félagsmálastofnun. Kostnabur sveitarfélaga hefur ekki verib reiknabur út sérstak- lega vegna flóttamanna, ab sögn Braga Guðbandssonar, formanns flóttamannahjálpar íslands. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.