Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 7

Tíminn - 30.09.1995, Blaðsíða 7
Laugardagur 30. september 1995 7 Hjálmar Árnason alþingismaöur stýrir nefnd sem um þetta fjallar. Þaö er mín skoöun aö atvinnu- leysisbætur eigi aö vera fyrir fólk sem vantar vinnu og er í at- vinnuleit. Þaö kann aö vera aö einhverjir sem nú njóta atvinnu- leysisbóta ættu aö vera annars staöar staösettir, fólk sem getur unniö en vill ekki vinna. Þaö ætti aö vera á félagslegu framfæri," segir Páll I’étursson. „Þaö er ákaflega dýrt fyrir sam- félagiö aö hafa mikinn fjölda fólks atvinnulausan. Atvinnu- leysistryggingar kosta okkur nú um 4 milljaröa króna á ári. Það eru milli 5 og 6 þúsund á at- vinnuleysisskrá. Ég lít svo á aö þaö besta sem við getum gert fyr- ir þetta fólk sé aö hjálpa því að fá vinnu. Viö höfum gert átak í því aö gera vinnumiðlun virkari, koma á betra sambandi milli þeirra sem vantar vinnukraft og hinna sem vantar vinnu. Þetta hefur skilað töluveröum árangri í fiskvinnslunni. Milli 100 og 200 manns hafa beinlínis í kjölfarið á þessu átaki fengið vinnu í fisk- vinnslunni. Þetta sparar atvinnu- leysistryggingasjóði 134 milljónir á ári fyrir utan verðmætasköpun af vinnu fólksins. Ég hef verið tregur til að veita útlendingum utan EES atvinnu- leyfi. Viö höfum dregið það við okkur í sumar meöan ástandið er svona hér. Nú er það ekki hug- mynd okkar að stöðva framleiðsl- una og því verðum við núna að fara að veita útlendingum at- vinnuleyfi — takist ekki aö manna vinnustaðina meö íslend- ingum. Þá eru það fyrst og fremst Pólverjar sem sótt er um að flytja hingað til lands." Hreint ekki í nöp við útlendinga -Er það rétt að allir útlendingar hér á landi séu í vinnu? „Ég hef Iátið athuga þetta, og þá kemur í ljós að erlendir ríkis- borgarar sem njóta atvinnuleys- isbóta á íslandi eru tiltölulega miklu lægri prósenta en íslend- ingar. Það mun vera 2,1% hjá erlendum konum og 2,9% hjá körlum. Þetta segir okkur þá sögu ab útlendingarnir séu dug- legir við að útvega sér vinnu. Þetta er væntanlega vinnusamt fólk sem sækir það fast að fá vinnu." -Nú hefur þú allt að því verið stimþlaður sem útlendingahatari? „Þaö er alveg fjarri lagi að mér sé í nöp viö útlendinga. Það hef- ur ekki verið amast við neinum útlendingum sem hér hafa haft atvinnuleyfi. Enginn hefur þurft að hverfa úr landi. Við höfum aðeins skotib á frest að gefa út ný atvinnuleyfi til þeirra sem þess þurfa. Varðandi útlendinga- hatrið er það eins fjarstætt og að kalla til dæmis Samtök iðnaðar- ins útlendingahatara fyrir ab auglýsa íslenska vöru og hvetja fólk ab velja íslenskt fremur en útlent. Ég er á sama báti og þessi góbu samtök. Sjálfur hef ég ver- ib mikið í erlendu samstarfi, bæði norrænu og evrópsku, ég hef verið í sendinefnd Alþingis á fundum EFTA og Evrópska efna- hagssvæbisins. Og mér er ljóst mikilvægi bæði norræns og al- þjóblegs samstarfs." / nœstu viku kemur Alþingi saman til fimda. Viðtalið hverfur utn stund að því sem framundan er í þinginu. Verður þetta fjörmikid átakaþing? „Ég skal ekki segja. Það gæti fariö eftir ýmsu. Stjórnarand- staðan á við erfiöleika að stríða. Hún er mjög sundruð. Sumir leiðtogar stjórnarandstööunnar eða þátttakendur í henni hafa orðið fyrir miklum pólitískum áföllum og eiga án efa í miklum erfibleikum meb sjálfa sig. Ann- ab hefur ekki gengið upp hjá öbmm. Eflaust reyna ýmsir í ör- væntingu að skjóta og höggva þegar þeir greina færi. Hitt er svo annað mál að það getur líka vel verið að einhverjir þeirra skilji að slík vinnubrögð skila ekki árangri, þau auki ekki traust á þeim. Ef þeir átta sig á því þá á ég ekki von á því að þetta verði grimmilegt átakaþing. Þetta verður vona ég starfsamt þing. Vib emm með margt á prjónun- um í þessu ráðuneyti og við vonumst eftir að Alþingi sam- þykki töluvert mikið af lögum sem vib teljum nauðsyn á. Von- andi eigum við góða samvinnu við aðra þingmenn í þeim efn- um." Félagslegar íbúbir sem fólk getur ekki keypt Eitt af þeim verkefnum sem nýr félagsmálaráðherra kom að var félagslega íbúðakerfiö, íbúðir þess kerfis hafa ekki reynst úr- ræði fyrir efnalítið fólk og fólk hefur hreinlega gefist upp á að búa í slíkum íbúðum. Félagslegar íbúðir hafa víða staðið auðar af þessum sökum og orðið erfiður baggi hjá mörgum sveitarfélög- um. „Einn þáttur í að laga þetta kerfi gæti verið að færa íbúðirnar niður í verbi þannig ab þær gætu orðið söluvara á almennum markaði. Eða þá að þær yrðu leiguíbúðir á hóflegu verði á veg- um sveitarfélaganna. í þessu sambandi vil ég benda á ab viö hækkuðum lánshlutfall við kaup- endur fyrstu íbúðar úr 65% í 70% og það varð til þess ab margir sem annars hefðu farið í félags- lega kerfið leggja heldur í að kaupa á frjálsum markaði. Þetta tel ég þróun í rétta átt. í ágúst- mánuði voru afgreidd lán til 97 aðila sem eru að kaupa íbúð í fyrsta skipti á sama tíma og 260 fóru í greiðslumat. Það er því töluverður hluti þeirra sem eru að kaupa sem eru að kaupa í fyrsta sinn og á sama tíma dregur umtalsvert úr ásókninni í félags- lega kerfið," segir Páll. Húsbréfakerfið segir Páll hafa verið um margt gallað, um sumt afturför frá kerfinu frá 1986, til dæmis það aö stytta lánin niður í 25 ár. Páll segir ab Alþingi hafi ekki verið gerð grein fyrir þeim geigvænlegu afföllum sem kerf- inu fylgdu. „Afföllin hafa gert húsbréfa- kerfið óaðlaðandi. Hins vegar er það skjótvirkt og greiðir fyrir við- skiptum með íbúðir. En það er ekkert einfalt ab vinda ofan af þessu en við erum að reyna end- urbæta húsbréfakerfið, auka sveigjanleikann, bjóba upp á 15 ára lán, 25 ára lán og 40 ára lán. Meö 40 ára lánum minnkar greiðslubyrðin um 19% sam- kvæmt því sem nefnd Magnúsar Stefánssonar leggur til grundvall- ar. En það gefur auga leið að ef menn fá lánaða peninga til 40 ára, þá þurfa menn áð borga eitt- hvað hærri vexti en ef lánið væri til 25 ára," sagði Páll Pétursson. Húsnæöisstofnun kann ab veröa lögö niður Talið berst að sakamáli sem ný- lega kom upp innan Húsnæðis- stofnunar ríkisins og mikið verib fjallaö um í blööunum. Páll er æðsti yfirmaður þeirrar stofnun- ar. Mál þetta er nú í höndum RLR og mun hafa sinn gang. „Gangur málsins var sá að hingað í ráðuneytið komu ábendingar um að ekki væri allt meb felldu í lögfræðideild stofn- unarinnar. Ég vísaði málinu sam- dægurs til ríkisendurskoðunar sem kannabi það og komst að raun um ab þarna væri um fjár- drátt að ræða. Kæra var send í kjölfarið til RLR. Við óskuðum auðvitab eftir skýringum frá for- stjóra Húsnæðisstofnunar og hann sendi okkur sína greinar- gerö. Við skulum svo bíða eftir þeirri niðurstöbu sem verður úr rannsókn RLR." -Kemur til greina að Húsnœðis- stofnun ríkisins verði lögð niður? „í stjórnarsáttmálanum er það sett á blað að kanna hvort hús- næðislánakerfið væri betur kom- ið í bankakerfinu. Þaö verbur lit- ið á það. Ég tel þó að Húsnæðis- stofnun hafi unnið mikilvægt verk þótt eflaust megi sitthvað gagnrýna í störfum hennar." Neyöarbjöllur klingja í sveitarfélögunum Eitt þeirra vandamála sem knýr dyra í félagsmálaráðuneytinu er sívaxandi vandi sveitarfélaganna í landinu. Á borði ráðherra er ný- útkomið DV með fyrirsögn þar sem sagt er frá skuldum þriggja þorpa á Vestfjörðum og stór- felldri skuldaaukningu þeirra. Nú er einnig rætt um að viövörunar- bjöllur klingi líka í stærri kaup- stöðum, Kópavogi, Hafnarfirði, - jafnvel í höfuðborginni sjálfri. Páll segir aö staða sveitarféjag- anna sé mikið áhyggjuefni. Árið 1993 hafi hallarekstur sveitarfé- laganna verið 5 milljarbar. Hall- inn skapaðist fyrst og fremst í þrem þeirra, Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði segir Páll. Hann segir þó aö útlitiö nú sé til muna betra fyrir árið 1994 enda þótt sveitarfélögin hafi mörg hver reist sér hurðarás um öxl og þurfi að berjast við skuldir um langan tíma. „Þetta eru gífurlegar byrðar- sem sveitarfélög þurfa að bera á komandi árum. Ef vib lítum á halla upp á 5 milljarða hjá sveit- arfélögum, til dæmis 3 milljarða halla hjá Reykjavíkurborg, þá samsvarar þaö, ef þaö er yfirfært yfir á ríkisfjármálin, 30 milljörð- um króna. Þetta eru gífurlega há- ar tölur. Það hlýtur því að vera höfuðmál að ná þessum halla niður. Þetta virkar ekkert síður á ríkisfjármálin og rekstur þjóðar- búsins, pressar upp vextina og dregur úr hagvexti," sagði Páll. Hann segir að óraunsæ fram- kvæmdaglebi hafi ríkt í mann- virkjagerð margra sveitarfélaga, mörgum þessum framkvæmdum hefði mátt fresta. Alls ekki á leiö út úr pólitík Páll Pétursson er 58 ára gamall með 20 ár að baki sem þingmað- ur. En hvað á hann langt eftir í pólitík? „Mér finnst ég í brúklegu vinnustandi ennþá og vonast til að verða þab áfram. Ef þú ert að spyrja hvort ég sé á leiö út úr pólitík, þá er ég það alls ekki," segir Páll og kímið bros læðist yf- ir andlit hans. Fyrir síðustu kosn- ingar háöi hann snerru um fyrsta sæti listans á Norðurlandi vestra viö vin sinn og félaga á Sauðár- króki, Stefán Guðmundsson, og haföi betur. Páll Pétursson var og er bóndi. Að loknum stúdentsprófum frá MA 1957 gafst honum og eigin- konu hans, Helgu Ólafsdóttur, kostur á helmingi af óræktuðu landi á Höllustöðum. Þar hófust þau hjón handa um að reisa ný- býli og lögðu áherslu á sauðfjár- búskap og bjuggu við góðan hag. Árið 1977 lést Pétur bóndi Pét- ursson á Höllustöðum en móðir Páls, Hulda Pálsdóttir, lést á síb- asta ári. Áður en Pétur dó höfðu þeir feögar stofnað til félagsbús á Höllustöðum sem enn er rekib í því formi. Þar reka búið í dag dóttir Páls og Helgu heitinnar, sem lést árið 1988, Kristín og maður hennar, Birkir Freysson. „Ég tel mig bónda þótt það sé nú ekki nema af nafninu til. Allt- af minnkar vinnuframlagið sem ég get lagt til viö búið. En ég reyni að koma að búskapnum eins og kringumstæður leyfa. Þetta starf sem ég er í núna gefur ekki kost á að vera fjarvistum lengi. Ég tók ekkert sumarleyfi í sumar, en ég fór í göngurnar í haust og í það fór vika". Páll ræktar frændgarðinn og heldur góðu sambandi vib sveit- ina. Þaö er hans jarðsamband, þar liggja hans rætur. Börn hans og Helgu heitinnar eru þrjú og barnabörnin 7 talsins. Svo aðeins sé vikið að frændgarðinum, þá er þar að finna meðal annars góðs fólks, fjármálaráðherrann Friðrik og sjálfan Hannes Hólmstein, — og þar er líka hún Björk söng- kona, sem Páll segist hlusta á, en yfirleitt ekki nema nauðugur! Áhyggjur af bændum landsins „Ég hef verulegar áhyggjur af landbúnaðarmálunum. Þar þarf að taka til hendi. Bændastéttinni er ekki sýndur skilningur. Störf bænda eru ekki metin að verð- leikum. Andstaða, ósanngirni og jafnvel fjandskapur veður uppi í þjóðfélaginu," segir Páll. „Ég hef á umliðnum árum gagnrýnt margt í landbúnaðar- stefnunni sem fylgt var. Ég var óánægður meb þann farveg sem sauðfjárframleiðslan var sett í og treysti mér ekki til ab standa að löggjöf sem stóð fyrir niður- skurðinum. Það var fyrirsjáanlegt strax að það þýddi ekki að kvóta- setja eina kjöttegund en láta hina vera frjálsa. Hún var dæmd til að verða undir í því skipulagi. Ég var óánægöur með búvöru- samninginn og benti á það. Ég hygg að reynslan hafi sannaö að ég hafði rétt fyrir mér. Þótt bú- vörusamningurinn hafi vafalaust verib gerður af góðum huga, þá hefur hann orðið bændastéttinni til mikillar ógæfu. Við verðum ab brjótast út úr þeim hugsunar- hætti að héðan sé ekki hægt að flytja út landbúnaðarvörur. Á því veltur gjörsamlega framtíö sauð- fjárræktar á íslandi og öll búseta í stórum landshlutum. Ef sauöfjár- framleiðslan hrynur, þá hrynja byggöirnar og þá hrynja þorpin," sagði Páll Pétursson. Bílakaup hagsýns bónda Bílakaup rábherra ber gjarnan á góma. Páll er kominn á rauðan glæsijeppa, sem hann keypti hjá Sölu varnarliðseigna. Páll segir aö þau kaup hafi veriö gerð á nótum hins hagsýna bónda og sparað ríkissjóði fé. „Ég tel mig hafa gert skynsam- lega hluti. Ég vildi ekki fara fram úr þeim reglum sem um þessi kaup gilda, með því að kaupa dýrari bíl en fyrir 3 milljónir króna. Ég taldi mér nauðsynlegt að hafa jeppa, enda þingmaður dreifbýliskjördæmis og ferbast því mikið. Nýir jeppar fást ekki fyrir þessa upphæð og því keypti ég gamlan, og vonandi góðan bíl, enda er hann lítiö keyrður. Ég hef átt marga bíla og aldrei keypt nýjan. Mér bregður því ekki við að kaupa enn einn not- aðan. Ég hefði kevpt bíl í Heklu ef þeir hefðu getað boðið mér betri kjör," segir Páll. Hjónaband ráöherra og borgarfulltrúa ■ Páll Pétursson er kvæntur borg- arfulltrúa, Sigrúnu Magnúsdótt- ur. Páll er yfirmaður sveitar- stjórna landsins. Rekast hér hags- munir á? „Ég missti konu mína, Helgu, fyrir 7 árum. Ég var svo heppinn að kynnast Sigrúnu og við ákváb- um ab rugla saman reitum. Ég er afar hamingjusamur í því hjóna- bandi og tel mig mikinn ham- ingjumann að eignast hana fyrir konu. Varðandi hennar störf og mín störf, þá er því að svara ab hún starfar í sinni pólitík með góbum árangri. Við höfum svip- aða sýn til stjórnmála og mér finnst mikiil styrkur að eiga hauk í horni þar sem Sigrún er," sagði Páll Pétursson að lokum. • ■ „Ég lít svo á að gjaldþrotaleiðin sé ekki skynsamleg," segir Páll Pétursson. Tímamynd: C S

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.